Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 23
ÁSLAUG Þorvaldsdóttir áhuga-
ljósmyndari fékk styrk að fjárhæð
150 þúsund frá Atvinnuþróunarsjóði
kvenna til þess að hanna og mark-
aðssetja minningarkort. Áslaug
sótti um styrkinn í febrúar á þessu
ári og sagðist hafa verið hætt að
hugsa um þetta þegar henni barst
bréf í júlí sl. frá félagsmálaráðu-
neytinu þess eðlis að hún hefði
fengið styrkinn.
Minningarkortin verða með ljós-
myndum sem Áslaug tekur sjálf og
til að byrja með er ætlunin að
hanna 6 mismunandi kort. Séra Sig-
urður Ægisson, sóknarprestur á
Siglufirði, ætlar að semja textann
inn í kortin, og væntanlega mun
Ásprent á Akureyri prenta þau en
Áslaug segist vera að semja við þá
þessa dagana.
Hugmyndina að baki kortanna
segir Áslaug vera þá að henni finnst
hafa vantað þessa tegund af kort-
um. „Mér finnst hafa vantað kort til
að tjá tilfinningar sínar með fallegri
mynd og texta, því fólk á oft erfitt
með að færa tilfinningar sínar í orð.
Flestöll minningar- og samúðarkort
eru keimlík oftast með krossi og
þess háttar. Mín kort eiga að vera
öðruvísi og góð viðbót við við þau
sem fyrir eru á markaðnum,“ segir
Áslaug sem reyndar er ekki búin að
velja myndirnar á þau enn. „Þær
verða ugglaust af einhverju já-
kvæðu og fallegu sem augað gríp-
ur.“ Stefnt er að því að kortin komi
á markað í október. Aðspurð segist
Áslaug ekki stefna á að hanna jóla-
kort í framtíðinni ,,en þó á maður
aldrei að segja aldrei, ég hugsa nú
bara um það núna að koma þessum
kortum skammlaust frá mér“.
Ljósmyndaáhuga sinn segir Ás-
laug að megi trúlega rekja til afa
hennar Ólafs Guðmundssonar heit-
ins sem tók mikið af myndum uppi
um fjöll og firnindi. Sjálf fór hún að
taka myndir fyrir um tuttugu árum
og segir stíl sinn hafa þróast. ,,Mér
finnst skemmtilegast að taka ,,close
up“ myndir eða nærmyndir af hinu
og þessu,“ segir Áslaug sem tekur
allar sínar myndir á filmur á
Olympus OM 1 vél. Hún hefur farið
á tvö ljósmyndanámskeið og unnið
til verðlauna nokkrum sinnum í
ljósmyndasamkeppnum.
Á vefsíðu Áslaugar http://
www.nerdhouse.is/Aslaug má sjá
sýnishorn af ljósmyndum hennar.
Fékk styrk til að
hanna og markaðs-
setja minningarkort
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Áslaug Þorvaldsdóttir á heimavelli,
með myndavélina og ljósmyndir
eftir sig á veggnum.
Borgarnes
ÞORLÁKUR bóndi Jónasson í Vogum
var að huga að reykingakofa sínum í
blíðunni. Hann hafði verið að kljúfa tað
og sagði illa ganga að ná vel þurru
taðinu í þeirri tíð sem verið hefði í sum-
ar.
Þó vel gangi með heyskapinn er erf-
iðara með taðið. Uppi við kofavegginn
halla sér silungsrárnar í verkefnaleysi
því enginn er silungurinn til að þræða
upp á þær og hengja upp í reykhúsi. Ör-
deyða að kalla í Mývatni nú um stundir.
Vantar æti fyrir silunginn að sagt er. Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Þorlákur í
Vogum
Mývatnssveit
Mettaður litur - háglansandi lakkáferð
Nýtt Pure Color Lip Vinyl
Þeir eru smart. Þeir eru áberandi og flottir. Gljástigið gerir allan muninn. Kubbar
af heitum og áleitnum varalitum með stórkostlegan gljáa. Ein umferð af
lakkgljáandi lit eða tvær, kannski sín í hvorum lit? Eða aukaumferð yfir venjulegan
varalit til að gera hann meira spennandi?
Kringlunni, sími 568 9033
Nýtt - Daywear Plus Multi Protection Anti-Oxidant
Créme SPF 15 - dagkrem
Nýtt - Magnascopic Mascara - maskari
Pure Color Lipstick - varalitur (full stærð)
val um tvo liti
Pure Color augnskuggasett - tveir augnskuggar,
val um heita eða kalda liti
Advanced Night Repair - viðgerðardropar
Intuition EDP spr. - ilmvatn
Falleg snyrtitaska
*Meðan birgðir endast
Verðgildi gjafarinnar er kr. 7.400
www.esteelauder.com
Prófaðu nýjasta rakakremið. Margfaldaðu fyrirferð augnháranna með
nýjum maskara. Sjáðu sjálfa þig í nýju ljósi. Kaupirðu Estée Lauder
vörur fyrir 3.900 kr. eða meira í Snyrtivöruversluninni Clöru Kringlunni
dagana 14.-17. ágúst færðu glæsilega gjöf með eftirfarandi glaðningi:
Gjöfin þín