Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 25
KAMMERSVEITIN Ísafold hefur í
kvöld tónleikaferð sína um landið
með tónleikum í Nýheimum á Höfn
í Hornafirði kl. 20. „Ísafold er nýr
hópur tónlistarfólks, saman settur
af sautján hljóðfæraleikurum sem
flestir eru ýmist að ljúka námi
heima eða í framhaldsnámi erlend-
is,“ segir Melkorka Ólafsdóttir
flautuleikari sem klárar einleikara-
nám sitt næsta vor. „Þetta er allt
fólk sem hefur spilað mikið saman
áður bæði í og fyrir utan skólann
þannig að við þekkjumst býsna
vel,“ segir Daníel Bjarnason stjórn-
andi og forsprakki hópsins, en hann
lauk námi í hljómsveitarstjórn við
Tónlistarskólann í Reykjavík sl. vor
fyrstur manna og stefnir á frekara
framhaldsnám í hljómsveitarstjórn
næsta vetur.
Spurð um tildrög þess að hóp-
urinn ætli að fara hringinn á aðeins
átta dögum svarar Melkorka að þau
hafi einfaldlega metnað fyrir því að
kynna 20. aldar tónlist á lands-
byggðinni. „Við ætlum að kynna
verkin á tónleikunum, þ.e. vera
með spjall um hvert verk á undan,
til þess að kynna þessa tónlist því
hún vill oft verða dálítið óaðgengi-
leg fyrir fólk. Þetta er því tilraun af
okkar hálfu til að færa 20. aldar
tónlist nær fólkinu,“ segir Mel-
korka og Daníel bætir við: „Mark-
mið okkar er fyrst og fremst að
vera með skemmtilega tónleika.“
Á tónleikunum verða flutt sex
verk eftir jafnmarga höfunda frá
ýmsum þjóðlöndum. „Rússinn Igor
Stravinskí er vafalaust það tón-
skáld, á efnisskrá okkar, sem flestir
þekkja, en eftir hann munum við
flytja Ragtime sem er einstaklega
skemmtilegt verk,“ segir Melkorka.
„Eftir Frakkann Edgar Varése
munum við flytja Octandre, sem er
afar kraftmikið verk skrifað fyrir
sjö blásara og kontrabassa, en eftir
hinn austurríska Anton Webern
spilum við sex lítil stykki sem eru í
raun algjört eyrnakonfekt,“ segir
Melkorka. „Þetta er mjög sérstök
músík, afar gegnsæ,“ segir Daníel.
„Og viðkvæm. Þetta er einhvern
veginn allt annar hljóðheimur en
maður á að venjast. Maður verður
eiginlega að sperra eyrun,“ segir
Melkorka. „Við ætlum auk þess að
flytja dansprelúdíur eftir Witold
Lutoslawski, sem er líklega fræg-
asta pólska tónskáld 20. aldarinnar.
Þetta verk hans byggir á pólskum
þjóðlögum og þjóðlagarytmum og
er mjög skylt því sem t.d. Bartok og
Kodály voru að gera á sínum tíma. Í
raun er þetta eiginlega síðasta
verkið sem hann skrifaði í þessum
þjóðlagastíl, því eftir þetta fór hann
að gera allt aðra hluti, þ.e. að fást
meira við tólftónatækni,“ segir
Daníel.
Úr Vesturheimi varð tónskáldið
Charles Ives fyrir valinu. „Hann
var afar furðulegur náungi, sem
gerði afskaplega skrýtna tónlist og
tilraunir sem önnur tónskáld fóru
ekki að gera af viti fyrr en fimmtíu
árum seinna. Meðal þess sem hann
gerði tilraunir með var að láta tvær
eða þrjár hljómsveitir eða hljóð-
færahópa spila saman en í mismun-
andi tempói svo útkoman verður oft
ansi skrautleg og stundum kómísk,
sérstaklega þar sem hann var gjarn
á að nota þekkt bandarísk þjóðlög í
þessar tilraunir sínar,“ segir
Daníel. Lokaverk tónleikanna er
Stemma eftir Hauk Tómasson sem
byggir á íslenskri rímu sem hann
rakst á í tónlistarorðabókinni Grov-
es. „Við vildum hafa eitt íslenskt
verk, svona til samanburðar,“ segir
Daníel og Melkorka bætir við:
„Stemma varð fyrir valinu af því að
Haukur er í afar miklu uppáhaldi
hjá mörgum okkar auk þess sem
það hentaði vel sem lokaverk, því
við vorum að leita að einu verki þar
sem allir hljóðfæraleikaranir gætu
værið með.“
Næstu tónleikar Ísafoldar verða í
Egilsstaðakirkju annað kvöld kl.
20, en allar nánari upplýsingar um
tónleikastaði og tíma má finna á
mbl.is undir liðnum Staður og
stund og á bls. 15 í næstu Lesbók.
Tónlist 20. aldar á hringferð
Morgunblaðið/Árni Sæberg