Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 30

Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í björtu útsýni á fögru kvöldi í sat ég með 14 ára gömlum syni mínum á bekk í skeifunni fram- an við Aðalbyggingu Há- skóla Íslands. Við ræddum um hvaða fræði væru kennd í hús- unum á háskólasvæðinu – og gerðum tilraun til „að lesa hús“ eins og Þórbergur kenndi. Son- urinn setti þá fram snarpa at- hugasemd um staðsetningu tveggja bygginga: „Náttúruvís- indahúsið er ekki á réttum stað, það stelur himninum frá Nor- ræna húsinu.“ Við virtum svo þessar tvær byggingar betur fyrir okkur: Formfegurð Norræna hússins fellur á dimman flöt Náttúruvís- indahússins og hverfur. Einkenni þess er ekki svipur hjá sjón úr fjar- lægð. Daginn eftir ákvað ég að kanna hvort við hefðum lesið húsin rétt – með því að hjóla niður í Vonarstræti, eftir Hringbrautinni og um há- skólasvæðið – með augun á Nor- ræna húsinu. Einnig fékk ég bók- ina Norræna húsið, Alvar Aalto og Ísland (1999) lánaða í Þjóð- arbókhlöðunni. Niðurstaðan var skýr: Norræna húsið er horfið úr borgarmyndinni. Í bókinni birtist staðsetningin sem megingildi hjá Alvar Aalto, „mikilhæfasta húsameistara Norðurlanda, heimskunnan snill- ing“. (7). Gylfi Þ. Gíslson drepur á þetta atriði í inngangi: „Morg- uninn eftir að Alvar Aalto kom til landsins gengum við Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins, með honum um allt byggingarsvæðið. Við undruðumst, hversu fljótur hann var að taka ákvörðun um, hvar húsið skyldi reist. Þetta var á fögrum degi og útsýni bjart.“ (7). Alto varði þó áfram góðum tíma í að kanna Vatnsmýrina. Það var eitthvað þýðingar- mikið við staðsetninguna. Hjört- ur Pálsson nefnir það í grein í bókinni að Aalto teiknaði hús sem í senn féll að umhverfi sínu og breytti því. „Úr fjarlægð hillir það uppi eins og hvol í Land- eyjum. Dökkt og ljóst leikast á og leika sér við síbreytilega birtu árstíðanna í landi með bjartar nætur og kolsvart skammdegi.“ (9–10). Norræna húsið átti augljóslega að gegna sjónrænu hlutverki úr fjarska, hvort sem menn horfa frá Tjörninni, Hringbrautinni eða frá háskólasvæðinu. Þetta hlut- verk var strokað út. Séð frá Tjörninni fellur húsið í skugga nýreistrar blokkar á Eggertsgötu sunnan við það og Náttúruvís- indahúss norðan við það. Ilona Lethinen, arkitekt á teiknistofu Aalto 1961–1975, skrifar: „Húsið er ekki stórt en arkitektúrinn er kraftmikill ... Þess er því óskandi að bygging- arframkvæmdir í nánd við það heppnist vel. Ef til vill veitir framlag Alvars Aalto til skipu- lagsins á svæðinu góða mögu- leika til framtíðarþróunar þess.“ (25, 28). Því miður hafa fyrrnefndar byggingarframkvæmdir ekki sýnt verki Alvars Aalto næga virðingu. Hækkandi þakkórónan yfir miðju húsinu, klædd dökk- bláum flísum að utan, er t.d. megineinkenni, en nýtur sín ekki lengur. Það er afleitt því „Nor- ræna húsið er ... bygging á al- þjóðlegan mælikvarða er skipar verðugan og eðlilegan sess í þró- unarferli Aaltos.“ (Ásdís Ólafs- dóttir, bls. 41). Bókin um Norræna húsið fjallar ekki um glatað hlutverk byggingarinnar í borginni. Texti Péturs H. Ármannssonar arkitekts um Norræna húsið sannfærði mig þó endanlega um að lesturinn á byggingunum tveimur í Vatnsmýrinni og blokk- inni ætti við rök að styðjast. Pét- ur telur Norræna húsið án vafa einn merkasta viðburð á sviði húsagerðarlistar hér á landi á 20. öldinni, og að það sæki einmitt sérstöðu sína m.a. í staðsetn- inguna. Aalto fékk þá hugmynd að framlengja Reykjavíkurtjörn til suðurs og inn á svæði Háskólans. „Þar sá Aalto fyrir sér Norræna húsið við enda tjarnarinnar og spegilmynd þess á vatnsfletinum. Hin heillandi hugmynd um menningarhúsið á vatnsbakk- anum sem skapa skyldi enda- punkt Reykjavíkurtjarnar til suð- urs var frá upphafi kjarninn í því sem kalla mætti sýn Aaltos á Reykjavík,“ skrifar Pétur (59). Í þeirri sýn verður háskólasvæðið samgróinn hluti af umgjörð tjarnarinnar. Pétur skrifar að snilldin í úrlausn Norræna húss- ins sé þeim hulin sem ekki hafi skynjað vægi þess í borgarmynd Reykjavíkur. Það er sorglegt hversu mörg- um var þetta hulið því „Norræna húsið er í raun hluti af hjarta miðbæjarins, þar sem það blasir við enda tjarnarinnar frá Vonar- stræti séð.“ (65). Fram kemur hjá Pétri að tillögu Elissu og Alv- ars Aalto að skipulagi Háskóla Íslands frá 1976 hafi verið end- anlega hafnað af skipulags- yfirvöldum 1986. Þar er vatna- svæði tjarnarinnar framlengt til suðurs og myndar Norræna hús- ið sjónrænan endapunkt, þrátt fyrir smæð sína. Í bókinni stendur að Norræna húsið sé eina húsið á Íslandi sem teiknað er af heimsþekktum arki- tekt. Á ferðum sínum hingað varði þessi arkitekt drjúgum tíma „í að ganga um svæðið og gaumgæfa staðhætti í Vatnsmýr- inni ...“ (59). Hann hafði snilligáfu sem felst í því að sjá það sem aðrir sjá ekki – og geta skapað það. Aalto sá ekki aðeins húsið sem hann teiknaði heldur tengdi hann staðsetningu þess og hlut- verk við miðbæinn allan og há- skólasvæðið í heild. Honum hefði aldrei á ævinni hugkvæmst að staðsetja Náttúruvísindahúsið við austurgafl Norræna hússins, og háa blokk sunnan við það. Um- hverfið var í huga hans hluti af sköpunarverkinu. Getur verið að snilldin hafi ver- ið byggingarnefndum háskólans og Reykjavíkurborgar hulin – þótt hún sé börnum augljós – eða var byggingin í andstöðu við reglufestu háskólaskipulagsins? Húsið sem hverfur Snilldin í úrlausn Norræna hússins er þeim hulin sem ekki hafa skynjað vægi þess í borgarmynd Reykjavíkur, stendur skrifað. Nú er snilldin öllum hulin. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is SÍÐASTLIÐINN laugardag var opnuð sýning á listgripum eftir Ragnar Kjartansson í Listasafni ASÍ undir yfirskriftinni „Ragnar í Glit“. Sýningin er haldin í tilefni þess að Ragnar hefði orðið áttræður 17. ágúst næstkomandi, en hann lést árið 1988. Hér er því um minningarsýn- ingu að ræða, þó ekki bara til að heiðra minningu merkilegs myndlist- armanns heldur líka til að minna yngri kynslóðir á framlag Ragnars til íslenskrar myndlistar. Ragnar starfaði sem listhönnuður á fimmta áratugnum en hóf svo að vinna fígúratífar höggmyndir á þeim sjötta. Í þá daga var abstraktsjónin allsráðandi í íslenskum myndlistar- heimi og kann það að vera ástæðan fyrir því að Ragnari hafi ekki verið gefið það vægi í íslenskri listasögu sem hann á skilið, þ.e. vegna þess að hann fellur ekki saman við skrásetn- ingu myndlistarsögunnar. Einungis tvö verk eftir Ragnar eru skráð í safneign Listasafns Íslands og er hann ekki tilgreindur í helstu lista- sögubókum okkar. Nýlistasafnið hef- ur þó heiðrað listamanninn með minningarsýningu árið 1992 og út- gáfu 50 blaðsíðna listaverkabókar um Ragnar og höggmyndir hans. Úti- listaverk eftir Ragnar Kjartansson er svo að finna víðs vegar um landið. Þekktast er „Stóð“ sem stendur við Hringbrautina í Reykjavík og rétt þykir mér að minnast líka á frábæran minnisvarða hans um Bárð Snæfells- áss sem er á Arnarstapa. Áhrifavaldur utan umræðu Ýmislegt kom fram um félagsstarf Ragnars í kynningu á sýningunni í Lesbókinni á laugardaginn var. Mér finnst samt við hæfi að nefna eitthvað það helsta hér aftur með nokkrum viðbótum, því að listamaðurinn vann ekki einungis sigra í efni og formi heldur líka í baráttumálum myndlist- armanna. Ragnars er minnst sem eins af hvatamönnum Nýlistasafns- ins. Hann var undirstaðan í stofnun Myndhöggvarafélags Íslands, sem nú heitir Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, og var hann gerður þar að heiðursfélaga í apríl 1988, hálfu ári áður en hann kvaddi þennan heim. Hann var aðaldriffjöðrin í því að setja saman umdeilda útilistaverkasýn- ingu á Skólavörðuholtinu árið 1967, en sýningarnar urðu svo árlegur við- burður allt til ársins 1976 og ollu straumhvörfum í höggmyndalist á Ís- landi. Mikil vinátta var á meðal Ragn- ars og Dieters Roths, sem oft gleym- ist í umræðu um Roth og Ísland þar sem listamaðurinn er yfirleitt tengd- ur við SÚM. Dieter Roth er annars fæddur í Þýskalandi en bjó megin- hluta ævi sinnar í Sviss og síðar hér á Fróni. Hann vann talsvert af listgrip- um í samstarfi við Ragnar og eru nokkrir þeirra til sýnis í Listasafni ASÍ. Sýningin í ASÍ spannar einungis leirmuni Ragnars frá árunum 1948– 1967, þegar hann rak leirkeraverk- stæðin Funa og Glit hf. En eftir 1967 sneri Ragnar sér eingöngu að högg- myndalist. Sýningin er skipt í tvo hluta. Leirmunir sem gerðir voru í Funa eru sýndir í kjallara safnsins en í Ásmundarsal eru verk úr Gliti hf. Þetta eru á annað hundrað verk, að mestu nytjahlutir eins og vasar, könnur, skálar, diskar, bakkar, vín- sett og ýmiss konar stell sem inni- halda fleiri en einn grip. Gripirnir frá Funa eru húðaðir og málaðir í skær- um litum og lítið er um myndskreyt- ingar eins og á gripunum frá Gliti. Þeir munir eru mattir og jarðlitir spila meginhlutverk litaskalans. Gripirnir eru svo skreyttir með abstrakt formum eftir ýmsa kunna listamenn, að undanskildum fáeinum vösum sem eru skreyttir með fígúrat- ífum myndum eftir Ragnar og Hring Jóhannesson. Flest eru verkin gerð úr jarðleir en nokkuð er líka um hraunleir sem er blanda úr blágrýt- ishrauni og leir. Ragnar hefur aug- ljóslega fengist við ólíkar stíltegund- ir, sumt er gróft, jarðbundið eða formfast og annað er fínlegt, léttvægt og laust í forminu. Væntanlega hafa markaðslögmál og tískubylgjur í ís- lenskum listiðnaði eitthvað með þetta að gera, en tilraunasemi listamanns- ins á þó vafalaust sinn skerf í fjöl- breytninni. Fjölskylda Ragnars hefur haldið vel utan um framkvæmdina og er hér kjörið tækifæri fyrir áhugamenn um listhönnun og myndlist að kynna sér verk hans og hugmyndir. Mannspeki og myndlist Þótt Ragnar hafi verið nokkuð hefðbundinn í verki þá á hann vel er- indi í umræðu um samtímalistir. Ekki þó vegna þess að nú sé mikið unnið í leir heldur snerti hann marga ólíka þætti myndlistar, s.s. þrívíða og tví- víða list, listhönnun og listpólitík og hann vildi færa listina út úr sýning- arsölum og á meðal fólksins, en sýn- ingarnar á Skólavörðuholtinu voru einmitt tilraunir til þess. Í því sambandi tel ég enn og aftur ástæðu til að nefna þýska myndlist- armanninn Joseph Beuys, sem alloft hefur ratað í skrif mín. Beuys snerti gríðarlega marga fleti myndlistar og kemur því oft upp þegar litið er til helstu áhrifavalda á samtímalistir. Líkt og Ragnar vildi Beuys gera listina almenna. Hann gekk út frá því að allir væru gæddir eiginleikum til að skapa listir og vildi gera listsköp- un að samfélagslegu viðhorfi. Beuys aðhylltist andropósófískar (mann- speki) kenningar Rudolfs Steiners og skipuðu þær stóran ef ekki megin- þáttinn í listsköpun hans. Rudolf Steiner er annað dæmi um mann sem lét allt skipta sig máli og snertir and- ropósófían allmarga þætti í vestrænu samfélagi. Aðallega er það þó uppeld- isfræðin sem hefur átt fylgi að fagna í Evrópu, sérstaklega í Þýskalandi, Hollandi og Svíþjóð, en svokallaðir „Waldorf“-skólar eru byggðir á kenningum Steiners. Þar er gengið út frá því að allir búi yfir listrænum eiginleikum og að virkja beri skap- andi eigind nemendanna. Kenningar og aðferðir Steiners eru margþættar og ekki gefst færi á að fjalla um þær hér, en hvað listsköpun varðar þá höfðu hugmyndir Steiners talsverð áhrif á marga af upphafsmönnum abstraktlistarinnar, s.s. Vassily Kandinsky og Piet Mondrian. Um 100 ár eru liðin síðan Steiner mótaði andropósófíuna og þótt grunnhug- myndir hans standist tímans tönn þá þarf samt að finna þeim nýjan farveg þegar tímarnir breytast og það gerði einmitt Joseph Beuys. Plöntur úr rekaviði Á Sólheimum í Grímsnesi, við Sesseljuhús, stendur nú yfir sýning á höggmyndum eftir þýska listamann- inn Gerhard König, en hann nam höggmyndalist við Andropósófíska háskólann í Dornach í Sviss. König kom fyrst til Íslands árið 1997 og hef- ur komið hingað á hverju sumri síðan. Var það „Eddan“ sem dró hann hing- að í fyrstu, en bókin ku vera honum afar hugleikin. König starfaði á Sól- heimum í þrjú sumur og kom þar tré- smíðaverkstæði í stand. Þess má geta að Sesselja Sigmundsdóttir heitin, sem stofnaði Sólheima á sínum tíma, var andropósófisti, en andropósófían er ekki bara fræði heldur lífsstíll. Sýning Gerhards Königs ber yfir- skriftina „Lífsform“ og samanstend- ur af sjö höggmyndum unnum í reka- við. Þema listamannsins er plöntulífið og íslenski fiskurinn. Hann vinnur í mjög viðtekna andropósófíska mynd og leggur aðallega áherslu á sköpun- argleðina í handverkinu. Þetta eru vel unnin verk og svipar nokkuð til skurðgoða sem standa súlulaga upp úr jörðinni. Leirmunir Ragnars Kjartanssonar á sýningu í listasafni ASÍ. Margt býr í einum manni MYNDLIST Listasafn ASÍ Opið alla daga nema mánudaga frá 13– 17. Sýningu lýkur 31. ágúst. LEIRMUNIR RAGNAR KJARTANSSON Sólheimar í Grímsnesi Sýningin er aðgengileg hvenær sem er og hún stendur út ágústmánuð. HÖGGMYNDIR GERHARD KÖNIG Jón B. K. Ransu Ljósmynd/Ransu Höggmynd eftir Gerhard König á Sólheimum í Grímsnesi. Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.