Morgunblaðið - 14.08.2003, Side 31

Morgunblaðið - 14.08.2003, Side 31
FERNIR tónleikar eru á dagskrá Berjadaga í ár, auk þess sem frumsýnt verður nýtt íslenskt leikrit, Tenórinn, eftir Guðmund Ólafsson í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Hátíðin hefst með tónleikum í Ólafsfjarðarkirkju á föstudagskvöld kl. 20:30 þar sem Baldvin Tryggvason, sérstakur heiðursgestur hátíð- arinnar, setur hátíðina við kertaljós. Á laug- ardaginn kl. 16 verður dagskrá í Ólafsfjarð- arkirkju með ljóðum og tónlist Sveinbjörns og Tryggva M. Baldvinssona, en um kvöldið verð- ur leikrit Guðmundar, Tenórinn, frumflutt í Tjarnarborg kl. 20:30. Fyrri tónleikar sunnu- dagsins hefjast kl. 14 í Kvíabekk og þar mun Kristinn H. Árnason leika perlur gítarbók- menntanna í sveitasælunni, en lokatónleikar hátíðarinnar verða haldnir í Tjarnarborg kl. 20:30. Listamenn á Berjadögum í ár eru Daníel Þorsteinsdóttir píanóleikari, Guðmundur Ólafsson sjónleikari og leikskáld, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Kristinn H. Árna- son gítarleikari, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, Oddur Bjarni Þorkelsson leikstjóri, Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran, Sig- urður Halldórsson sellóleikari, Sigursveinn Magnússon tónlistarmaður, Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfundur, Tryggvi M. Baldvins- son tónskáld, auk Arnar Magnússonar píanó- leikara og upphafsmanns Berjadaga. Gestir úr öðrum listgreinum „Mér hefur alltaf þótt svo vænt um þessa árstíð, þ.e. berjatímann, enda er þetta ákveð- inn uppskerutími. Þegar hugmyndin að tónlist- arhátíðinni upphaflega kviknaði þá kom þessi tími sterklega til greina þar sem okkur langaði að tengja hátíðina bæði árstíðinni og umhverf- inu, enda eru listsköpun og náttúra einkunnar- orð Berjadaga,“ segir Örn Magnússon og bendir á að íslenska þjóðlagið Litlu börnin leika sér, sem er aðalberjalagið, hafi verið skrifað upp í Ólafsfirði á sínum tíma. Samkvæmt Erni er það yfirleitt sami kjarn- inn sem stendur að Berjadögum þó vissulega komi alltaf nýtt fólk til liðs við hann á hverju ári. „Þannig eru t.d. bæði Hildigunnur og Sig- urður að koma í þriðja sinn, en Kristinn, Daníel, Sveinbjörn og Tryggvi að koma í fyrsta skiptið. Segja má að gestirnir sem koma hverju sinni séu þungamiðjan í tónlistarflutningnum. Hátíðin er yfirleitt í föstum skorðum þó vissu- lega taki hún alltaf smábreytingum frá ári til árs. Við höfum alltaf verið með einn gest á Berjadögum úr annarri listgrein, þannig að þetta er ekki hreinræktuð tónlistarhátíð, og í ár eru Guðmundur úr leiklistinni og Svein- björn úr ritlistinni gestir okkar.“ Að sögn Arnar eru upphafstónleikarnir kertaljósatónleikar. „Meðal þess sem við bjóð- um upp á má nefna gullfallegt verk eftir Schu- bert sem heitir Næturljóð og Dumki-tríó eftir Dvorák sem er eitt af frægustu tríóum sög- unnar fyrir sakir skemmtilegheita og fegurðar. Auk þess munu Kristinn og Marta flytja þjóð- lagaútsetningar eftir Britten.“ Mikil stemning á Kvíabekk Á laugardagseftirmiðdegi kl. 16 er dag- skráin Bræðalag í Ólafsfjarðarkirkju þar sem bræðurnir Sveinbjörn og Tryggvi flytja sögur, ljóð og tónlist með aðstoð tónlistarfólksins. Kristinn H. Árnason verður síðan með gítar- tónleika í Kvíabekk kl. 14 á sunnudaginn þar sem hann mun m.a. spila verk eftir J.S. Bach, L. Milan og A. Barrios. „Kvíabekkur er forn landnámsjörð og höfuðból sveitarinnar, en við höfum alltaf verið með tónleika í litlu viðar- kirkjunni sem þar stendur. Við viljum endilega vera þarna á þessum stað, frammi í sveit, því þar ríkir svo mikil stemning auk þess sem þetta hefur verið aðalsamkomustaður byggðarlagsins frá örófi alda. Þetta er mið- punktur þessarar sveitar alveg frá því að Ólafsfjörður byggist.“ Að vanda kemur allt tónlistarfólkið fram á lokatónleikunum sem fram fara í Tjarnarborg kl. 20:30. „Þarna verður afar fjölbreytt og blönduð dagskrá þar sem allir troða upp. Við tónlistarfólkið myndum t.d. nokkurs konar sal- onsveit með nikku, fiðlu, gítar og selló og spil- um bæði sérstök númer og svo undir hjá söng- konunum. En mesta tilhlökkunarefnið er erindi Baldvins Tryggvasonar, heiðursgests okkar, þar sem hann fjallar um Ólafsfjörð og mannlífið á uppvaxtarárum sínum,“ segir Örn, en lokatónleikarnir enda líkt og áður með fjöldasöng. Uppgjör tenórs Guðmundur Ólafsson hefur verið kynnir á lokakvöldi Berjadaga frá upphafi, en í ár tekur hann að sér enn stærra hlutverk, því á laugar- dagskvöld frumsýnir hann leikverkið sitt Ten- órinn í Tjarnarborg kl. 20:30. „Ég bað Guð- mund um að skrifa eitthvað fyrir okkur, en hann átti þetta í handraðanum og þetta er al- veg ekta leikrit fyrir Berjadaga þar sem það er með tónlistarívafi og um tónlistarmenn,“ segir Örn. „Þetta er leikrit fyrir einn leikara og píanó- leikara,“ segir Guðmundur sem leikur tenórinn en Sigursveinn Magnússon bregður sér í hlut- verk píanóleikarans í verkinu. „Að grunninum til fjallar verkið um tenór sem er að fara að halda tónleika og er að undirbúa sig í búnings- klefanum fyrir tónleikana. Það er ýmislegt sem hvílir á honum þannig að þó hann sé að fara að syngja þá er hann með hugann við annað og þarf að ráða fram úr þeim málum líka. Þannig má segja að þetta sé svona lítið uppgjör.“ Aðspurður segist Guðmundur hlakka mjög til að frumsýna í Ólafsfirði. „Ég er héðan og hef unnið nokkuð með leikfélaginu hér, en þau hafa frumsýnt eftir mig tvö leikrit á síðustu tíu árum. Það er því voða gaman að vera kominn aftur og geta sýnt þeim aðeins hvað ég hef lært af þeim í leiðinni.“ Að sögn Guðmundar er í raun ótrúlega lítill munur fólginn í því að læra texta eftir sjálfan sig og aðra. „Maður hefði haldið að ég hefði mikið forskot, en það var ekkert þannig að ég kynni textann fyrirfram þó ég hefði skrifað hann. Auðvitað hefur maður ákveðnar hugmyndir, en þær eru ekkert endi- lega réttari þó maður hafi skrifað textann sjálf- ur. Þess vegna er einmitt svo nauðsynlegt að hafa með sér leikstjóra sem sér hlutina á annan hátt. Oddur Bjarni bendir mér kannski á nýjar leiðir sem ég hafði ekkert hugsað út í, en geng- ur alveg upp þegar maður fer að velta því fyrir sér og er kominn af stað uppi á sviði,“ segir Guðmundur ánægður með samstarfið. Þess má geta að Tenórinn verður að sögn Guðmundar tekinn til sýninga í Iðnó í lok októ- ber í haust. Listsköpun tengd náttúrunni Tónlistarhátíðin Berjadagar hefst á morgun, föstudag, og stendur til sunnudagskvölds, en þetta er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin í Ólafsfirði. Silja Björk Huldudóttir ræddi við Örn Magnússon píanóleikara og skipuleggjanda Berja- daga og Guðmund Ólafsson leikara og leikskáld. Morgunblaðið/Arnaldur Hluti hópsins sem tekur þátt í Berjadögum. Hildigunnur Halldórsdóttir, Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Sigurður Halldórsson, Örn Magnússon (fyrir framan) og Kristinn H. Árnason. Sigursveinn Magnússon og Guðmundur Ólafs- son í hlutverkum sínum í Tenórnum. silja@mbl.is LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.