Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 33
✝ Guðrún Sumar-liðadóttir fædd-
ist í Stykkishólmi 16.
október 1926. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni 5.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ragnheiður
Einarsdóttir, f. 25.
ágúst 1890 á Þing-
völlum í Helgafells-
sveit, d. 16. janúar
1966, og Sumarliði
Einarsson, f. 25. júlí
1889 á Ási í Stykk-
ishólmi, d. 18. sept-
ember 1972. Guðrún átti 23 hálf-
systkini, af þeim eru níu á lífi.
Guðrún giftist Hinriki Guð-
mundssyni, f. 2. maí 1923 á Ögri
á Snæfellsnesi, d. 24. júní 1999.
Þau eignuðust tvær dætur, Krist-
ínu Ingibjörgu, f. 24. mars 1951,
og Ragnheiði, f. 20. júlí 1953.
Kristín á þrjár dætur með Magn-
úsi Welding Jónssyni, skilin. 1)
Guðrúnu, f. 20 mars 1970, gift
William Howard Clark, f. 16.
febrúar 1970. Börn þeirra: Anton
Pétur Clark, f. 12. mars 1993,
Matthías Leó Clark, f. 14. maí
1994, og Tinna Marín Clark, f.
20. apríl 2001. 2) Elínu, f. 20.
september 1972, sambýlismaður
Hilmar Hólmgeirs-
son, f. 18. júní 1967.
Börn: Magnús Snær
Dagbjartsson, f. 22.
janúar 1999, og Ól-
ína Sif Hilmarsdótt-
ir, f. 15. nóvember
2001. 3) Eyrúnu, f.
19. september 1978,
sambýlismaður
Ólafur Már Brynj-
arsson, f. 27. mars
1974. Barn þeirra:
Kristín Anna Ólafs-
dóttir, f. 22. ágúst
1999. Ragnheiður er
gift Erni Arnarssyni
og eiga þau þrjú börn: Andrés H.
Arnarson, f. 8. júlí 1977; Berg-
lind Arnardóttir, f. 19. apríl
1980, sambýlismaður Haraldur
Logi Hrafnkelsson, f. 23. ágúst
1972; og Hinrik Arnarson, f. 18.
ágúst 1981.
Guðrún vann ýmis störf sam-
hliða því að vera húsmóðir. Hún
vann í fiskvinnslu og einnig við
afgreiðslustörf. Um árabil starf-
rækti hún grímubúningaleigu
ásamt Helgu Pétursdóttur. Hún
vann í Holts Apóteki og Háaleitis
Apóteki við lyfjaáfyllingar til
margra ára. Guðrún verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Okkur langar að skrifa nokkur
orð um þig, elsku amma. Minningin
um þig er hlý og falleg. Við urðum
allar þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að vera mikið hjá þér og afa þegar
við vorum litlar stelpur. Það var
alltaf mikil gleði í kringum þig og
gaman að heimsækja þig. Þú vildir
allt fyrir okkur gera. Við minnumst
þess sérstaklega þegar við fengum
að gista. Haldin var mikil veisla,
vakað lengi og mikið hlegið. Það
voru engin jól nema þau væru hald-
in heima hjá þér og afa í Vestur-
berginu. Þú varst gestrisin og vildir
helst hafa okkur öll hjá þér öllum
stundum. Þú sagðir alltaf að þú
ætlaðir að eignast tíu börn. Sú ósk
þín rættist þegar barnabörn og
barnabarnabörn fæddust. Þú varst
mjög trúuð og kenndir okkur Faðir
vorið og aðrar bænir. Þegar við
gistum hjá þér fórum við alltaf með
Faðir vorið saman og eftirfarandi
bæn áður en við fórum að sofa:
Ó, Jesú, bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái að spilla.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
og lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
(P. Jónsson.)
Þegar við urðum eldri bjuggum
við svo allar hjá ykkur í einhvern
tíma. Guðrún og Bill hófu búskap
sinn hjá ykkur í kjallaranum sem
afi útbjó sem íbúð. Þá fæddust Ant-
on Pétur og Matthías Leó. Elín
flutti svo tímabundið og bjó í litla
herberginu sem afi kallaði litlu
skrifstofuna sína. Var hún þá ófrísk
af Magnúsi Snæ. Þegar afi féll frá
24. júní 1999 fluttu Eyrún og Óli til
þín til að aðstoða þig í veikindum
þínum. Sama ár fæddist svo Kristín
Anna. Alltaf varstu glöð og kát og
vildir allt fyrir alla gera og minn-
umst við þín sem bestu ömmu sem
við gátum eignast. Nú þegar við
kveðjum þig viljum við þakka þér
þær samverustundir sem við áttum
með þér og vonum að þú sért komin
á þann stað sem þér líður vel, hjá
honum afa.
Guðrún, Elín og Eyrún.
Hún Gunna vinkona mín lést eft-
ir veikindi á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni þann 5. ágúst sl.
Við urðum vinkonur strax í barn-
æsku þar sem við fæddumst sama
ár í Stykkishólmi og vorum eins og
samlokur fram að tvítugsaldri. Við
brölluðum margt, hlógum mikið og
sungum. Ég kem frá barnmörgu
heimili en hún bjó ein með móður
sinni. Ég man eftir okkur við
þvottabrettið að þvo, syngjandi nýj-
ustu dægurlagatextana en þá kunn-
um við alltaf alla. Enn fremur í
frystihúsinu og bara yfirleitt við
leik og störf þá vorum við saman og
nutum samverunnar.
Um tvítugt hitti hún Hinna sinn,
Hinrik Guðmundsson, sem var ást-
in í lífi hennar. Við það fækkaði
samverustundum okkar eins og
gengur og gerist en aldrei slitnaði
þráðurinn. Við fluttumst báðar til
Reykjavíkur og þar hittumst við
regulega. Við höfum t.d. verið í
saumaklúbbi saman í áratugi ásamt
fleiri góðum konum.
Gunna var orðin veik síðustu árin
og var á hjúkrunarheimilinu Sól-
túni síðasta eina og hálfa árið sem
hún lifði. Þar hittumst við vikulega
og áttum yndislegar stundir. Við
ræddum um heima og geima og þá
ekki síst yljuðum við okkur við
bernskuminningarnar og skemmt-
um okkur vel.
Nú er mín kæra vinkona komin
til Hinna síns og annarra ástvina,
sem ég veit að hún var farin að þrá
að hitta og samgleðst ég henni með
það.
Ég sit eftir en get yljað mér við
minningarnar um samveru okkar
sem ég hef náð að rifja svo vel upp
með henni síðustu mánuði. Ég er
mjög þakklát fyrir að hafa átt
svona góða vinkonu í 76 ár og það
sem meira er, það hefur aldrei fall-
ið skuggi á vinskap okkar. Það er
yndislegt.
Ólöf Ragnarsdóttir.
Elsku Gunna ,,niðri“, nú er kallið
komið og þú búin að fá þína hinstu
hvíld. Okkur fjölskyldunni sem
bjuggum ,,uppi“ í Efstasundi 70 frá
árunum 1951–1998 langar til að
kveðja þig með fáeinum orðum.
Strax þegar þið fluttuð í Efsta-
sundið frá Stykkishólmi tókst með
þessum tveimur fjölskyldum mikill
kærleikur. Í þá daga voru báðir
húsbændur mikið fjarverandi
vegna vinnu sinnar. Þess vegna var
mikið um að aðeins væri kvenfólk í
húsinu. Fyrir utan ykkur mömmu
vorum við fjórar dætur ,,uppi“ og
tvær dætur,, niðri“. Fljótlega var
eins og þarna byggi aðeins ein fjöl-
skylda, svo mikill var samgangur-
inn.
Ekki fór það framhjá neinum að
þarna fór myndarleg fjölskylda.
Frúin niðri saumaði allan fatnað á
fjölskyldu sína, þetta fannst okkur
mjög merkilegt því við systurnar
áttum flestan fatnað keyptan er-
lendis frá.
Gunna mín, okkur er það minnis-
stætt þegar þú varst alltaf að taka
til og allt var svo fínt niðri, og
stelpurnar þínar kunnu heil ósköp
af bænum sem við heyrðum þegar
við fengum að gista hjá ykkur niðri.
Arnrún hafði þann forgang vegna
aldurs síns að vera í fóstri hjá ykk-
ur þegar mamma fór í siglingu með
pabba og tók hún miklu ástfóstri
við ykkur.
Minningarnar hrannast upp og
margar eru þær skoplegar en alltaf
stóðu þessar fjölskyldur saman í
gegnum súrt og sætt.
Manstu þegar við allar dæturnar
vorum klæddar í eins matrósakjóla
sem mamma hafði keypt í einni
siglingunni með pabba og tromm-
uðum niður Laugaveginn, allar eins
klæddar? Þá var nú gaman.
Um jólin mættum við einnig á
jólagleði í Þjóðleikhúskjallaranum
aftur í þessum frægu kjólum og
vöktum mikla eftirtekt.
Þegar þið mamma voruð í slátr-
inu og við Kristín gerðum tilraun til
að bera út eitthvert dagblaðið í
grenjandi rigningunni?
Eða bollurnar þína á bolludag-
inn?
Einn daginn að vetri til þegar þið
mamma fóruð út með okkur allar,
til að byggja snjóhús (þá héldu nú
frúrnar í götunni að þið væruð bún-
ar að tapa ykkur), við settum kerta-
ljós og fínerí í snjóhúsið sem stóð af
sér veðrið í nokkra daga.
Einnig kemur upp í hugann þeg-
ar þið mamma skiptuð um jarðveg í
lóðinni aðeins með handafli og
bjugguð til mjög fínan garð við
Efstasundið.
Svo fluttuð þið Hinni í Vestur-
bergið ásamt Ragnheiði, og þrátt
fyrir flutninginn hélst þú áfram að
vera Gunna ,,niðri“.
Magnús og Kristín fluttu þá
einnig úr Sundinu í Blikahóla með
dætur sínar, Guðrúnu og Elínu, síð-
ar eignuðust þau Eyrúnu.
Guðrún og Guðni áttu Jöru á
meðan þið voruð enn í Sundinu, eft-
ir það fluttu þau einnig í Breiðholt-
ið, og eignuðust þar Nonna.
Með þessum krakkahóp okkar
Kristínar myndaðist strax mikill
vinskapur sem helst enn.
Þér fannst gaman að því þegar
ég tók mig til og prjónaði eins
peysur á alla meðlimi þessara
tveggja fjölskyldna og færði þér
mynd af hópnum.
Elsku Gunna mín, við þökkum
þér fyrir allar þær kærleiksstundir
sem við fengum að njóta í samver-
unni við þig og þína.
Kristín, Ragnheiður og fjölskyld-
ur, megi góði guð styrkja ykkur í
sorg ykkar.
Guðrún (Gulla) og fjölskyldur.
GUÐRÚN
SUMARLIÐADÓTTIR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓRÓTHEA SIGRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Miðkoti,
Dalvík,
sem lést föstudaginn 8. ágúst verður
jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
16. ágúst kl. 13.30.
Gunnar B. Arason, Þórunn Alfreðsdóttir,
Anna S. Aradóttir, Árni Konráðsson,
Guðlaugur Arason, Lilja Tryggvadóttir,
Svava Aradóttir, Sigfús Thorarensen,
Hafdís E. Bjarnadóttir, Jón Rafnsson,
Elías J. Bjarnason, Guðrún Brynjólfsdóttir,
Bjarni Th. Bjarnason, Iðunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
sonur,
JÓN ODDSSON,
Höfðavegi 46,
Vestmannaeyjum,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut sunnudaginn 3. ágúst sl.
Útförin verður gerð frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 16. ágúst kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbavörn í Vestmannaeyjum.
Sigríður Ragnarsdóttir,
Ragna Kristín,
Hafþór og Bryndís Jónsbörn,
Svava Aðalsteinsdóttir,
Oddur Jónsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HREGGVIÐUR SKÚLASON,
Heiðargerði 53,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
12. ágúst síðastliðinn.
Útför hans verður auglýst síðar.
Björg Karlsdóttir,
Skúli Hreggviðsson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Marta Sjöfn Hreggviðsdóttir,
Jóhann Hreggviðsson, Kristín Lára Hjartardóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÓLÖF ÓSKARSDÓTTIR,
Klettahrauni 15,
Hafnarfirði,
lést á Landsspítalanum v/Hringbraut þriðju-
daginn 12. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Gunnarsson,
Erla G. Jónsdóttir, Jón Eiríksson,
Sigrún Jónsdóttir, Brynjar Ragnarsson,
Gunnar Jónsson, Magnea G. Þórarinsdóttir,
Sjöfn Jónsdóttir, Sigurjón R. Hrafnkelsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ANDREA BENEDIKTSDÓTTIR,
Seljavegi 19,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 11. ágúst.
Sæmundur Haraldsson,
Hrólfur Sæmundsson, Guðný Magnúsdóttir,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
Kolbeinn Sæmundur Hrólfsson,
Andri Guðnýjarson og Glóey Jónsdóttir.