Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 40
ÍÞRÓTTIR
40 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ má alveg reikna
með því að hitinn geti
orðið okkar versti óvin-
ur en það er ansi mikil
molla hérna og núna
þegar ég tala við þig er
hitinn 38 gráður,“ sagði
Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Grindvíkinga,
við Morgunblaðið í gær,
en í kvöld eiga læri-
sveinar hans í höggi við
Kärnten í UEFA-
keppninni.
Grindvíkingar komu til Austur-
ríkis í fyrrakvöld og hafa því
kannski aðeins náð að laga sig að
hitanum en Bjarni vonast til að
hitinn verði ekki mikið
yfir 30 stig þegar flaut-
að verður til leiks en
veðurfræðingar spá því
að hitinn fari eitthvað
niður á við í dag.
„Við kálum sjálfum
okkur ef við ætlum að
reyna að halda uppi ein-
hverjum hraða í þessum
hita. Við leggjum
áherslu á að spila ag-
aðan varnarleik allt frá
fremsta manni og aftur
úr og freista þess að fá þá framar
á völlinn með það fyrir augum að
geta sótt hratt þegar færi gefst,“
sagði Bjarni.
FÓLK
SIGFÚS Sigurðsson skoraði 5
mörk og var markahæstur ásamt
Frakkanum Joel Abati þegar lið
þeirra, Magdeburg, sigraði franska
liðið Créteil, 30:28, í æfingaleik í
Bördelandhalle í Magdeburg í fyrra-
kvöld þar sem 3.000 áhorfendur voru
saman komnir.
GUÐJÓN L. Sigurðsson og Ólafur
Örn Haraldsson munu dæma fyrri
leik Figas Aalsmeer frá Hollandi og
RK Bosna í 1. umferð forkeppni
Meistaradeildarinnar í handknattleik
sem fram fer í Hollandi helgina 13. og
14. september.
HAUKAR mæta portúgalska liðinu
Bernardo Aveiro á Ásvöllum í fyrri
leiknum í undankeppni Meistara-
deildarinnar laugardaginn 13. sept-
ember klukkan 16.30. Svissneskir
dómarar,Vitzthum og Choquard,
dæma leikinn á Ásvöllum en Belgíu-
menn síðari leikinn í Portúgal viku
síðar.
BOLTON gekk í gær frá kaupum á
brasilíska sóknarmanninum Mario
Jardel. Hann verður þar með fimmti
leikmaðurinn sem Bolton gerir samn-
ing við fyrir leiktíðina en áður höfðu
Stylianos Giannakopoulos, Florent
Laville, Ivan Campo og Kevin Davies
handsalað samninga við félagið.
JARDEL hefur leikið undanfarin
ár í Portúgal með Sporting og Porto
og Galatasaray í Tyrklandi. Hann er
öflugur markaskorari og til marks
um það varð hann markakóngur tvö
ár í röð í Evrópu, 1998 og 1999.
SOL Campbell, miðvörður Arsen-
al, verður kallaður fyrir hjá enska
knattspyrnusambandinu, sem vill að
hann tjái sig um atvikið í leiknum
gegn Manchester United í Cardiff, er
hann sparkaði í Eric Djemba-
Djemba. Campbell á yfir höfði sér
þriggja leikja bann fyrir atvikið, sem
dómari leiksins sá ekki.
CHRISTIANO Ronaldo, portú-
galski táningurinn sem Manchester
United hefur gert samning við, verð-
ur í keppnistreyju númer 7 hjá ensku
meisturunum. Ekki ómerkari leik-
menn en George Best, Bryan Rob-
son, Eric Cantona og David Beck-
ham báru þetta númer á búningi
sínum þegar þeir léku með United.
ULI Höness, framkvæmdastjóri
Bayern München, segir að hollenski
sóknarleikmaðurinn Roy Makaay sé
fimm sinnum dýrmætari en David
Beckham, sem Real Madrid keypti
frá Manchester United. Bæjarar
keyptu Makaay frá La Coruna á
Spáni. „Ég hefði valið Roy fimm sinn-
um áður en að David Beckham,
kæmi,“ sagði Höness og bætti síðan
við: „Hann (Makaay) skoraði 29 mörk
á síðustu leiktíð á Spáni – í einni erf-
iðustu deildarkeppni heims.“ Makaay
fékk Gullskóinn fyrir að vera marka-
hæsti leikmaður Evrópu sl. keppnis-
tímabil og hann hefur verið einn
mesti markvarðahrellir Spánar sl.
þrjú ár.
ÓLAFUR Gottskálksson
markvörður er enn á sjúkra-
listanum og fór ekki með
Grindavíkurliðinu til Austur-
ríkis. Þar af leiðandi stendur
Helgi Már Helgason á milli
stanganna eins og í þremur
undanförnum leikjum Grind-
víkinga. Ólafur er meiddur í
hálsi og segir Bjarni Jó-
hannsson þjálfari alls ekki
víst hvenær Ólafur verði klár
í slaginn og svo getur alveg
farið að hann leiki ekkert
meira með liðinu á yfirstand-
andi leiktíð.
Bjarni reiknar ekki með að
gera miklar breytingar á liði
sínu sem tapað hefur síðustu
tveimur deildarleikjum, fyrir
Fram og ÍBV.
„Síðustu leikir hafa ekki
verið góðir hjá okkur þannig
að við vonum að ný tíð sé í
vændum og við náum okkur
vel á strik hér í Austurríki,“
sagði Bjarni.
Ólafur ekki
í markinu
BJARNI Jóhannsson, þjálfari
Grindvíkinga, hefur aðeins náð að
kynna sér lið Kärnten en hann sá
liðið gera 1:1 jafntefli við Bregenz
á heimavelli í síðustu viku.
„Ég á svolítið erfitt með að
meta lið Kärnten. Það sem ég hef
hins vegar séð er að þeir eru mjög
agaðir í sínu leikskipulagi. Þeir
spila leikkerfið 3:5:2 og flestir
liðsmenn eru líkamlega mjög
sterkir og stórir. Liðið er taplaust
eftir fjórar umferðir og er komið í
ágæta leikæfingu þar sem deild-
arkeppnin hófst um miðjan júlí.
Ég held að Kärnten teljist sterkt
austurrískt lið og ef maður skoðar
árangur austurrísku liðanna í Evr-
ópukeppninni á undanförnum dög-
um þá hafa þau verið að gera
góða hluti.“
Þar á Bjarni við að Pasching sló
út Werder Bremen í Intertoto-
keppninni og Grazer AK gerði 1:1
jafntefli við Ajax í fyrrakvöld í
undankeppni Meistaradeildar-
innar.
Bjarni sá Kärnten og Bregenz
Ég veit ekki hversu mikið erhægt að græða á þessu sem
ég hef séð en auðvitað er betra að
vita eitthvað um andstæðingana.
Mér finnst talsverður keimur af
breskum fótbolta hjá AIK. Liðið
spilar kröftugan fótbolta og leik-
menn liðsins eru líkamlega sterkir.
Það er talsverður styrkleikamunur
á sænsku deildinni og hér heima.
Hraðinn er miklu meiri í Svíþjóð
en fótboltinn snýst ekki bara um
það og með öguðum og skynsam-
legum leik er allt hægt,“ sagði Að-
alsteinn í samtali við Morgunblað-
ið.
Spurður út í möguleika Fylkis-
manna í viðureignunum við AIK
sagði Aðalsteinn; „Það er alltaf
möguleiki en það sem við þurfum
fyrst og fremst að gera í þessum
fyrri leik er að koma í veg fyrir að
þeir setji á okkur mark. Við þurf-
um að loka vel öllum svæðum og ef
það tekst tel ég vel mögulegt á að
við getum strítt þeim. Það eru
ekki heimsins fljótustu eða flink-
ustu leikmenn í öftustu varnarlínu
hjá þeim og vonandi getum við
fært okkur það í nyt með okkar
fljótu framherjum. Það þarf að
sjálfsögðu allt að ganga upp ef við
ætlum okkur að ná góðum úrslit-
um og heppnin verður að vera með
okkur. Ég met stöðuna þannig að
við verðum að eiga okkar besta
leik til að geta strítt þeim veru-
lega,“ segir Aðalsteinn. Hann telur
ennfremur að sjálfstraustið sé ekki
alveg upp á það besta hjá leik-
mönnum AIK eftir frekar brösótt
gengi að undanförnu og það geti
vonandi komið hans mönnum til
góða.
„Það var áberandi í þessum leik
sem ég sá að sjálfstraustið var
ekki mikið en það hafa verið að
koma nýjir menn inn í liðið og eins
úr meiðslum. Það er koma mjög
sprækur Ghanamaður í framlínuna
og það er leikmaður sem við verð-
um að hafa mjög góðar gætur á.
Hann er eldsnöggur og flinkur og
talsvert á skjön við aðra leikmenn.
Ég held að við eigum að geta mætt
í þennan leik með gott sjálfstraust.
Okkur hefur gengið vel að undan-
förnu. Vörnin hefur haldið vel og
ef Kjartan, sem að mínu mati er
besti markvörður landsins, verður
í stuði eins og hann hefur verið í
allt sumar þá aukast líkur á að við
getum staðið okkur vel. Við lítum
á Evrópukeppnina sem bónus en
engu að síður er metnaður hjá
okkur að standa okkur vel og von-
andi náum við að sýna okkar bestu
hliðar.“
Aðalsteinn getur teflt fram sínu
sterkasta liði að því undanskildu
að Valur Fannar Gíslason getur
ekki spilað en hann er rétt að
skríða saman eftir meiðsli.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þeir verða í sviðsljósinu í Austurríki og Svíþjóð í forkeppni UEFA-bikarsins í kvöld – Ólafur Örn
Bjarnason, fyrirliði Grindvíkinga, og Fylkismaðurinn Ólafur Páll Snorrason.
Fylkismenn mæta AIK á Råsunda-vellinum í Stokkhólmi
Verðum að vera
agaðir og skynsamir
AÐALSTEINN Víglundsson, þjálfari Fylkismanna, er hóflega bjart-
sýnn fyrir leikinn á móti AIK í 1. umferð forkeppni UEFA-bikarsins í
knattspyrnu, en liðin eigast við á Råsunda-leikvanginum í Solna í
Stokkhólmi í kvöld. Aðalsteinn brá sér til Svíþjóðar á dögunum og
sá AIK tapa fyrir Hammarby, 3:1, og þá hefur hann séð leik liðsins á
móti Örgryte af myndbandsspólu.
Bjarni
„Hitinn getur orðið
okkar versti óvinur“