Morgunblaðið - 14.08.2003, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 41
FJÓRÐA og síðasta risamót ársins í
golfi, PGA-meistaramótið, hefst á
Oak Hill golfvellinum í Bandaríkj-
unum í dag. Þar munu allir fremstu
kylfingar heims reyna með sér og
þar af verða 42 kylfingar af evr-
ópsku mótaröðinni og hafa aldrei
verið fleiri.
Það er ekkert nýtt að nafn Tigers
Woods komi upp þegar rætt er um
mögulega sigurvegara enda hefur
hann tvívegis sigrað, 1999 og 2000.
Ernie Els hefur sjálfsagt fullan hug
á að koma í veg fyrir það, en hann
hefur aldrei náð að sigra á PGA
mótinu, náði þriðja sæti 1995 og hef-
ur ekki komist hærra. Els segist
ekki vita hvers vegna hann hafi aldr-
ei náð að leika betur á PGA mótinu
en segir að leikur sinn síðustu vik-
urnar hafi lagast mikið og nú sé
hann hér um bil jafn sterkur og stöð-
ugur og hann var í vor, en þá lék
hann mjög vel. Hann segir jafnframt
að hann geti dottið inn á fína hringi
að þessu sinni þó svo hann hafi ekki
leikið vel í mótinu undanfarin ár.
Meistarinn frá því í fyrra, Rich
Beem er tilbúinn í slaginn ásamt
meistara ársins þar á undan, David
Toms, en þeir verða í ráshópi með
Woods fyrstu tvo hringina.
Els ætlar að breyta
til og leika vel
PETRÚN Jónsdóttir var í gær ráðin
yfirþjálfari hjá blakdeild Þróttar í
Reykjavík. Petrún er öllum hnútum
kunnug í blakíþróttinni. Sjálf lék
hún um árabil og frá árinu 1987 hef-
ur hún þjálfað hið sigursæla lið
Þróttar frá Neskaupstað og þá er
hún núverandi landsliðsþjálfari
kvenna í blaki.
Petrún sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hún myndi þjálfa
meistaraflokk kvenna og karla hjá
félaginu. „Það verður væntanlega
nóg að gera hjá mér eins og venju-
lega enda verð ég líka með yfirum-
sjón og ráðgjöf varðandi yngri
flokkana,“ sagði Petrún.
Spurð hvort einhverjir leikmenn
kæmu með henni að austan sagði
Petrún: „Hulda Elma [Eysteins-
dóttir] og Elsa Sæný Valsgeirsdóttir
koma örugglega og síðan er spurn-
ing hvort einhverjar fleiri komi, það
er ekki komið á hreint ennþá, en það
er ýmislegt í gangi. Elsa Sæný hefur
búið í Reykjavík síðustu árin en lék
með okkur fyrir austan.“
Undanfarin ár hefur það verið
þannig að þegar blakarar frá Norð-
firði fara til náms í Reykjavík hafa
þeir undantekningarlítið gengið til
liðs við ÍS. Spurð hvort þetta muni
nú breytast sagði yfirþjálfari Þrótt-
ar: „Engin spurning, það er alveg
gefið að krakkarnir koma í Þrótt.“
Petrún ráðin þjálfari
Reykjavíkur-Þróttara
Petrún Jónsdóttir, lands-
liðsþjálfari kvenna í blaki,
og þjálfari Þróttar R.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Helgi, sem verið hefur á mála hjáKärnten síðan 2001, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að hann
væri mjög spenntur að mæta löndum
sínum, en hann hafði þá nýlokið við að
koma leikmönnum Grindavíkurliðsins
í sundlaug þar sem þeir voru að kæla
sig í hitanum sem geisar á meginlandi
Evrópu þessa dagana.
„Ég er fullur tilhlökkunar enda
ekki á hverjum degi sem maður fær
að spila gegn löndum sínum. Það er
búið að vera ansi heitt, þetta þrjátíu
og fimm gráður, og ég reikna með að
þessi hiti verði þegar leikurinn hefst,“
sagði Helgi en leikurinn hefst á stað-
artíma klukkan 18.
Helgi var ásamt þjálfara Kärnten á
Íslandi á dögunum þar sem þeir voru
á meðal áhorfenda á leik Grindvík-
inga og Fylkis og þar kortlögðu þeir
lið Grindvíkinga.
„Grindavíkurliðið lék vel í þessum
leik og það er alveg ljóst að lið þeirra
er vel skipulagt. Okkur fannst nauð-
synlegt að sjá þá og skoða aðstæður í
Grindavík. Þjálfarinn hrósaði varnar-
leik Grindvíkinga og sagði þá gefa fá
færi á sér og að þeir lokuðu svæð-
unum vel úti á vellinum. Hann sagði
að Grindavíkurliðið væri vel spilandi,
það spilaði vel úr vörninni og í liðinu
væru bæði góðir skallamenn og fljótir
kantmenn. Í okkar huga verður því
ekkert vanmat í gangi. Við erum al-
veg undirbúnir undir hörkuleiki. Við
leggjum upp með að vinna góðan sig-
ur á heimavelli og forðast þannig að
lenda í einhverjum erfiðleikum heima
á Íslandi. Ég veit það sjálfur hvað það
er erfitt að eiga við Íslendinga á
þeirra heimavelli og það hef ég sagt
meðspilurum mínum. Undir öllum
venjulegum kringumstæðum eigum
við að komast áfram og ég tel svo vera
en við gerum okkur líka grein fyrir
því að allt er mögulegt í fótboltanum
og menn mega ekki slaka á eitt and-
artak,“ sagði Helgi en Kärnten er í
fimmta sæti af tíu liðum í austurrísku
deildinni með sex stig eftir fjóra leiki,
þrjú jafntefli og einn sigur.
Helgi hefur verið í byrjunarliðinu í
öllum leikjunum og hefur spilað sem
varnartengiliður og þá stöðu spilar
hann gegn Grindvíkingum. Helgi seg-
ir að Wörthersee-völlurinn rúmi að-
eins 10.500 manns en aðeins 4.000 í
sæti og líklega verður sá fjöldi á vell-
inum í kvöld en aðeins er leyfilegt að
selja í sæti í Evrópukeppninni.
Helgi Kolviðsson
mætir Grindvíkingum
Ekkert
vanmat
hjá okkur
HELGI Kolviðsson verður í
slagnum á miðjunni með aust-
urríska liðinu Kärnten á Wörth-
ersee leikvangum í Klagenfurt í
Austurríki í kvöld, þegar Kärnt-
en tekur á móti Grindvíkingum í
fyrri viðureign liðanna í 1. um-
ferð forkeppni UEFA-bikarsins í
knattspyrnu.