Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 44
ARI Í ÖGRI: Dúettinn Acoustic
skemmtir föstudagskvöld. Stórsveit
Ara í Ögri með suðræna djasssveiflu
laugardag, um eftirmiðdaginn og um
kvöldið.
BOOMKIKKER, Hafnarstræti:
„The Gig“ er ný tónlistarröð sem
verður hvern fimmtudag næstu mán-
uði. Ekkert mun kosta inn og er litið
á þetta sem tækifæri fyrir ungar og
efnilegar sveitir að kynna sig. Í
kvöld spila DYS, Ríkið og Total
Fucking Destruction frá Bandaríkj-
unum.
BRAGGINN, Hólmavík: Ríó Tríó
með tónleika kl. 21.00 og Hljómar
með dansleik kl. 00.00 föstudags-
kvöld. KK og Magnús Eiríksson með
tónleika laugardagskvöld kl. 21.00.
Tónleikar þessir eru í tengslum við
Tónlistarhátíð á Hólmavík.
CAFE CENTRAL, Pósthússtræti
17: Steypa spilar fimmtudags- og
föstudagskvöld.
CAFÉ RIIS, Hólmavík: Halli
Reynis laugardagskvöld.
CAFFÉ KÚLTURE, Hverfisgötu
18: Hljómsveitin Þel leikur fimmtu-
dagskvöld kl. 21.00.
CATALINA, Hamraborg 11,
Kópavogi: Hermann Ingi Jr.
skemmtir föstudags- og laugardags-
kvöld.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Megas,
Súkkat og Mike Pollock fimmtudags-
kvöld. KK og Magnús Eiríksson
flytja Ferðalögin sín föstudagskvöld.
Hera, Bjarni Tryggva, Bjartmar
Guðlaugsson, Birna og Jódís, Arnar
Guðmundsson laugardagskvöld.
Eivör Pálsdóttir og Hörður Torfason
sunnudagskvöld. Tónleikarnir eru
liður í Trúbúrahátíð.
FELIX: DJ Robbi Chronic á opn-
unarkvöldi föstudagskvöld kl. 00.00.
FÉLAGSHEIMILIÐ Hvamms-
tanga: Ólafur Kjartan Sigurðarson
leikur laugardagskvöld kl. 20.00 til
22.30.
GADDASTAÐAFLATIR, Hellu: Á
móti sól og Vinir Jóns spila föstu-
dagskvöld. Tríó Ómars Diðrikssonar.
Laugardagskvöld eftir kvöldvöku
spila Hljómar í Hvoli.
GAUKUR Á STÖNG: Útgáfutón-
leikar hljómsveitarinar Tube,
fimmtudagskvöld kl. 22.00. Sixties
spila föstudagskvöld. SSSól spilar
laugardagskvöld.
GLAUMBAR: Atli skemmtana-
lögga fimmtudags- og föstudags-
kvöld. Þór Bæring laugardagskvöld.
GRANDROKK: Kráar-spurninga-
keppni föstudagskvöld kl. 17.30. Kl.
22.00 Rokksveitin Total Fucking
Destruction frá Bandaríkjunum,
Kimono, Forgarður Helvítis, Auxpan
Angermeans, The Motherfucking
Clash (frá Bandaríkjunum). Kr. 200
inn. Á laugardagskvöld kl. 23.00
leika Brain Police, Dark Harvest og
Dr. Spock .
GRÆNI HATTURINN, Akureyri:
Deep Purple heiðrunartónleikar
fimmtudagskvöld kl. 21.30. Hljóm-
sveitina skipa Eiríkur Hauksson, Jó-
hann Ásmundsson, Sigurgeir Sig-
mundsson og Þórir Úlfarsson.
Hljómsveitin Spark skemmtir föstu-
dags- og laugardagskvöld.
GULLÖLDIN: Stórsveit Ásgeirs
Páls spilar föstudags- og laugardags-
kvöld.
HAFNARBAKKINN, Reykjavík:
Rás 2 með útitónleika laugardags-
kvöld kl. 21.00 til 00.00. M.a. koma
fram Quarashi, Sálin hans Jóns míns
og Stuðmenn. Þetta er liður í 20 ára
afmælisfagnaði Rásar 2. Tónleikun-
um lýkur með flugeldasýningu.
HLAÐVARPINN: Danski saxafón-
leikarinn Benjamin Koppel og
sænski kontrabassaleikarinn
Thommy Andersson leika föstudags-
kvöld kl. 20.30. Með þeim leikur Ey-
þór Gunnarsson.
HLJÓMSKÁLAGARÐURINN:
Sumardjamm FM957 á Menningar-
nótt laugardagskvöld. Tónleikar og
úrslit í Fear Factor. Hljómsveitirnar
Land og synir, Skítamórall og fl.
stíga á svið og enda FM957 Sum-
ardjamm 2003.
HÓTEL STYKKISHÓLMUR:
Hljómsveitin Brimkló leikur laugar-
dagskvöld.
HVERFISBARINN: Bítlarnir
fimmtudagskvöld. DJ Benni föstu-
dagskvöld. DJ Ísi laugardagskvöld.
IÐNÓ: Danski saxafónleikarinn
Benjamin Koppel og sænski kontra-
bassaleikarinn Thommy Andersson
leika fimmtudagskvöld kl. 21.00. Með
þeim leikur Eyþór Gunnarsson.
Geirfuglarnir með miðnæturtónleika
laugardagskvöld kl. 00.00.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Tríó
Óskars Guðjónssonar laugardags-
kvöld kl. 16.00 til 18.00.
KAFFI-LÆKUR: Njalli í Holti
með létta tónlist á fóninum föstu-
dags- og laugardagskvöld.
KAFFI-STRÆTÓ, Mjódd: Íris
Jóns syngur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
KRÁIN, Laugavegi 73. : Ingvar
Valgeirsson trúbador fimmtudags-
kvöld. Blues express föstudags- og
laugardagskvöld.
KRINGLUKRÁIN: Dans og Gleði-
tríóið Copy, Paste og Enter
skemmtir föstudags- og laugardags-
kvöld.
KVARTETT KÁRA: Kvartettinn
er á leið í stutta tónleikaferð um
Norðurland eystra. Hann spilar í
Deiglunni, Akureyri í kvöld og svo á
Mývatni, Gamla bænum á föstudag
og laugardag. Kvartettinn endar í
bænum og leikur á Caffé Kúlture á
sunnudagskvöldið.
LAUGAVEGUR 11: Palli í Maus
sér um tónlistina fimmtudagskvöld.
Andri X og Jón Atli „Gel“ á neðri
hæð laugardagskvöld. Hljómsveitin
Mínus kemur fram órafmögnuð á
efri hæð eftir flugeldasýningu Menn-
ingarnætur.
LAUGAVEGUR 22: Rally Kross á
miðhæð föstudagskvöld. DJ sett:
Blackbird á fyrstu hæð laugardags-
kvöld, Þórhallur á annarri hæð.
LITTLE CENTRAL: Djass/blús
hljómsveitin Misery loves company
með tónleika laugardagskvöld þar
sem þeir flytja plötuna Small
Change eftir Tom Waits í heild sinni
auk þess að flytja frumsamið efni.
METZ, Austurstræti 9: Margeir
og Yo-El föstudags- og laugardags-
kvöld.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL:
Hljómsveitin Brimkló leikur föstu-
dagskvöld. Stuðmenn með íslenska
dansmenningarnótt á laugardags-
kvöldið.
NELLYS CAFÉ: Gunnar Óla og
Einar Ágúst úr Skítamóral fimmtu-
dagskvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Stuðbandalagið frá Borganesi
skemmtir laugardagskvöld.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Hljóm-
sveitin Úlfar spila föstudags- og
laugardagskvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hunang spila föstudagskvöld.
Saga Klass laugardagskvöld.
TJARNARBÍÓ: Tími stendur fyrir
tónleikadagskrá og myndbands-
gjörningum á milli 18.00 og 23.00 á
laugardaginn. Kimono, Maus o.fl;
Heimir Björgúlfsson, Lortur o.fl.
VÍDALÍN: Hin hryllilega
skemmtilega sveit Gilitrutt leikur
um helgina.
VÍÐIHLÍÐ: Hljómsveitin Spútnik
spilar á sveitaballi laugardagskvöld.
VÍNBARINN: Geir Ólafsson laug-
ardagskvöld.
ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN:
Hljómsveitin Jagúar spilar laugar-
dagskvöld kl. 00.00 og fagnar með
því fimm ára afmæli. DJ Magic sér
um upphitun og spilar í hléi.
ÖMMUKAFFI: Varði (Varði Goes
Europe) og Steini spila blágrastón-
list kl. 21.00 á laugardaginn.
FráAtilÖ
Danski djassarinn Benjamin Kopp-
el verður á þeytingi um borgina um
helgina.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Liðsmenn Maus verða í Tjarnarbíói
ásamt fleirum á laugardaginn.
Morgunblaðið/Golli
Pönksveitin DYS verður á opnunarkvöldi „The Gig“ á Boomkikker.
Morgunblaðið/Jim Smart
Liðsmenn Tube verða með útgáfutónleika á Gauknum í kvöld.
FÓLK Í FRÉTTUM
44 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 UPPSELT
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 UPPSELT
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT
30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 LAUS SÆTI
31. SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!
Rómeó og Júlía
Aukasýningar
Fimmtudag 14.08, kl. 20
Föstudag 15.08, kl. 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Sumarkvöld við orgelið
14. ágúst kl. 12.00:
Natalie Chow sópran
og Katalin Lörincz orgel
16. ágúst kl. 12.00:
Steingrímur Þórhallsson orgel
17. ágúst kl. 20.00:
Steingrímur Þórhallsson Leikur m.a.
verk eftir Clementoni og Widor.
Ain´t Misbehavin´
the Fats Waller Musical Show
Síðustu sýningar
Fimmtud. 14. ágúst kl. 20:00
Föstud. 15. ágúst kl. 20:00 - Örfá sæti laus
Laugard. 16. ágúst kl. 19:00 - Breyttur sýn.tími
Sunnud. 17. ágúst kl. 20:00 - Lokasýning
Miðasala í Loftkastalanum
opin alla virka daga frá 15 - 18.
Sími 552 3000 • loftkastalinn@simnet.is
Ég og skuggarnir
(Life with Judy Garland:
Me and My Shadows)
Drama
Bandaríkin 2001. Skífan. VHS (170 mín.)
Ekki við hæfi mjög ungra barna. Leikstjóri:
Robert Allan Ackerman. Aðalleikarar:
Judy Davis, Victor Garber, Hugh Laurie,
Tammy Blanchard, Marsha Mason.
EINHVERN tíma eldsnemma á
sunndagsmorgni var ég staddur í
neðanjarðarlest í Barcelona. Fáir
voru í vagninum utan þess að í sætinu
fyrir framan mig var kona með
drengsnáða sér við hlið. Hann var að
raula og þegar ég
lagði við eyrun
heyrði ég að það var
„Somewhere Over
the Rainbow“.
Því nefni ég þetta
að atburðurinn fékk
mig til að hugsa um
þau gífurlegu áhrif
sem Hollywood hef-
ur á heimsbyggðina og Judy Garland
er eins mikill hluti af Hollywood og
Tjörnin af Reykjavík. Garland er virt
og dáð sem framúrskarandi söngvari
og leikari af guðs náð. Hún er einnig
fræg fyrir valt veraldargengi en stöð-
ugleikinn var lítill síðari árin sökum
áfengis- og lyfjaneyslu.
Sjónvarpsmyndin Ég og skuggarn-
ir, er byggð á minningum dóttur
hennar, Lornu Luft, sem jafnframt er
sögumaður. Ferill stjörnunnar er
rekinn allt frá því að móðir Judyar
keyrir hana 12 ára gamla í fangið á
Louis B. Meyer um 1934, uns þriðji
eiginmaðurinn finnur stjörnuna látna
af of stórum lyfjaskammti í íbúð
þeirra í London árið 1969. Í millitíð-
inni er stiklað á stóru í litríku og
stormasömu lífi magnaðrar en við-
kvæmrar hæfileikakonu sem þarfnað-
ist oftar en ekki þess skjóls sem við
flest þurfum á að halda í lífinu. En
fann ekki.
Margt hefur verið rætt, ritað og
kvikmyndað um lífshlaup Garland,
mynd dóttur hennar er vafalaust með
því sannferðugasta og sýnir hvernig
það gekk fyrir sig í aðalatriðum. Sjálf-
sagt erfitt að gera því trúverðugri skil
og myndin ásættanlegur bautasteinn
um stórmennið. Tammy Blanchard
túlkar listakonuna eftirminnilega vel
á unglingsárum og er að auki sláandi
lík henni í útliti. Síðan tekur Judy
Davis við, hún er fáguð og flink líkt og
fyrri daginn en Judy Davis víkur aldr-
ei mjög langt frá sínum persónulega
leikstíl. Ástæða er að geta Victors
Garbner í hlutverki Sids Luft og
Johns Benjamin Hickey sem Rogers,
eins besta vinar hennar og félaga,
þeir koma persónunum vel til skila.
Áhorfandinn fræðist einnig tals-
vert um gömlu Hollywood sem er
dregin dável upp á tjaldið og margar
sögufrægar persónur kvikna til lífs-
ins. Ofar öllu er þó himnesk rödd Gar-
land sem fær vitaskuld að njóta sín í
mörgum, vel endurgerðum frægum
atriðum.
Ég og skuggarnir fékk 5 Emmy-
verðlaun (þ. á m. Leikkonurnar báðar
sem túlka Garland), en gefið ykkur
góðan tíma því myndin er þriggja
tíma löng. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Goðsögnin
Garland
…Rokksveitin ógurlega Primus,
með bassaundrið Les Claypool
fremstan á meðal jafningja, er að
koma saman aftur í fyrsta sinn í
fjögur ár. Nýtt efni ku vera á leiðinn
og Norður-Ameríkutúr er fram-
undan. Túrinn er farinn til að fylgja
eftir nýrri safnskífu, Animals Should
Not Try To Act Like People. Fyrri
partur tónleika fer í að leika gamla
slagara en í seinni partinum verður
platan Sailing The Seas Of Cheese
leikin í heild sinni.
FÓLK Ífréttum