Morgunblaðið - 14.08.2003, Side 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 45
ROKKBANDIÐ Deep
Purple á sér fáa jafn-
oka. Nokkrir jaxlar úr
íslenska tónlistarheim-
inum ætla hins vegar
að gera tilraun til að
fanga anda þeirra á
tónleikum í þessari
viku og næstu. Það
eru sjálfur Eiríkur
Hauksson söngvari
ásamt Eric Qvick
trommuleikara, Jó-
hanni Ásmundssyni bassaleikara,
Sigurgeiri Sigmundssyni gítar-
leikara og Þóri Úlfarssyni á
hljómborði sem ætla að votta
Deep Purple virðingu sína með
tónleikum.
Í kvöld verða tónleikar á veit-
ingahúsinu Græna hattinum á Ak-
ureyri en miðvikudaginn 20. og
fimmtudaginn 21. ágúst verða síð-
an tónleikar á Gauki á Stöng sem
verða jafnframt hljóðritaðir vegna
fyrirhugaðrar útgáfu á geisladiski.
„Þetta er náttúrulega það sem
maður byrjaði að hlusta fyrst á,“
sagði Sigurgeir Sigmundsson í
samtali við blaðið. „Og fyrir mína
parta þá hef ég aldrei hætt að
hlusta á þá, sérstaklega núna síðst
liðin 8 ár eftir að kom inn í hljóm-
sveitina gítarleikarinn Steve
Morse sem er gamalt átrúnaðar-
goð hjá mér, svo segja má að
áhuginn á hljómsveitinni hafi allur
aukist.“
Deep Purple eru enn í fullu fjöri
og er von á nýrri skífu frá þeim
24. ágúst, skömmu eftir seinni tón-
leikana í Reykjavík. Á heiðrunar-
tónleikunum segir Sigurgeir að
haldið verði í visst þema á tónleik-
unum: „Við erum eingöngu með
Ian Gillan „stöff“. Við erum að
spila lög af Deep Purple in Rock,
Made in Japan
og Machine
Head. Síðan tök-
um við líka sold-
ið af seinna
tímabilinu eins
og síðustu plöt-
una sem þeir
gerðu með
Ritchie Black-
more, Perfect
Strangers. Síðan þetta nýja tíma-
bil eftir að Morse kom inn í hljóm-
sveitina.“
Sigurgeir segir valið á Eiríki
Haukssyni sem söngvara hafa leg-
ið beinast við: „Það er enginn
rokksöngvari á Íslandi sem getur
sungið Deep Purple eins og hann.
Ef þú ætlar að fá einhvern rokk-
söngvara til að gera eitthvað, þá
dettur manni Eiríkur fyrstur í
hug. Það skemmir líka ekki fyrir
að við Eiríkur erum æskufélagar
og höfum spilað mikið saman.“
Þetta er í annað skiptið sem
þeir halda tónleika af þessu tagi
en fyrsta skiptið var í nóvember í
fyrra þar sem þeir fylltu Kaffi
Reykjavík tvö kvöld í röð. „Það er
gífurlegur áhugi fyrir Deep
Purple, og ég er handviss um að
við eigum eftir að sjá það í miklu
rokkstuði.“
Tónleikar í Reykjavík og á Akureyri
Deep Purple rokk
Eiríkur Hauksson
KNICKERBOX
Laugavegi 62, sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni, sími 533 4555
K N I C K E R B O X
ÚTSÖLULOK!
fimmtudag,
föstudag,
laugardag og
sunnudag
3 fyrir 1
á öllum
útsöluvörum
aðeins í
4 daga.
Hefurðu heyrt
annað eins...?
Já, þú velur þér hvaða
þrjár flíkur sem er
á útsölunni en
greiðir bara fyrir eina.
Þú greiðir aðeins
fyrir dýrustu vöruna
Algjör bomba...!
NÝJAR VÖRUR
EFTIR HELGINA!
mán.-mið. 10 - 18.30
fimmtud. 10 - 21
föstud. 10 - 19
laugard. 10 - 18
sunnud. 13 - 17
Opnunartími
Opnunartími
mán-fös. 11 - 18
laugard. 11 - 16
langur laugard. 11 - 17
sunnud. lokað
3 fyrir 1
…Ýmsir kunnir popptónlistar-
menn fá á baukinn í bandaríska
tímaritinu Blender sem hefur valið
50 verstu dægurlagahljómsveit-
irnar eða tónlistarmenn allra
tíma. Bæði Mick Jagger og David
Bowie eru ofarlega á listanum,
Bowie í 12. sæti vegna samstarfs-
ins við hljómsveitina Tin Machine
og Jagger í 13. sæti vegna mis-
heppnaðs sólóferils síns. Segir
Blender að það efni, sem Jagger
sendi frá sér á sólóplötum sínum,
sé verra en laglaus sex ára strákur
hefði búið til. Versta hljómsveitin
er hins vegar að mati blaðsins
rappsveitin Insane Clown Posse.
Hljómsveitin Emerson, Lake and
Palmer, söngvarinn Michael Bolt-
on, rapparinn Vanilla Ice og klar-
ínettuleikarinn Kenny G. komust á
listann yfir 10 verstu. Í 11. sæti
var LaToya Jackson, nýbylgju-
hljómsveitin Oingo Boingo var í
16. sæti.
Á fréttavef BBC er haft eftir Andy
Pemberton, ritstjóra Blender: „Ef
ég væri í hópi þeirra sem eru á
listanum væri ég reiður. En þeir
ættu að vita betur. Það er þeim
sjálfum að kenna að þeir eru þar.“
FÓLK Ífréttum