Morgunblaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Saturn kemur í dag.
Silver Whisper og
Bauska fara í dag.
Mannamót
Félag aldraðra Mos-
fellsbæ. Skrifstofa fé-
lagsins verður lokuð í
sumar til 2. september.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Skrifstofa
félagsins sem er í
Garðabergi á Garða-
torgi, opnar eftir sum-
arlokun þriðjudaginn
2. september og verð-
ur eftir það opin á
þriðjudögum og
fimmtudögum frá kl.
10.30–12.
Félagsstaf aldraðra
Garðabæ. Ferð í
Grundarfjörð 3. sept-
ember lagt af stað frá
Krikjuhvoli kl. 10,
skráning í hjá Guð-
björgu í s. 565 6028
eða Ólöfu s. 565 7368.
Leikfimi kvenna byrj-
ar á mánudag 1. sept-
ember kl. 9.30 og kl.
10.30, leikfimi karla
byrjar þriðjudaginn 2.
sept. kl. 12.50.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga er frá Hraun-
seli kl. 10. Rúta frá
Firðinum kl.19.50.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum sund og
leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, kl. 13
boccia. Miðvikudaginn
3. sept kl. 13.30 fundur
hjá Gerðubergs-
kórnum. Nýir félagar
velkomnir.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-Samtök spilafíkla,
fundir spilafíkla, Höf-
uðborgarsvæðið:
Þriðjudagur kl 18.15 –
Seltjarnarneskirkja,
Valhúsahæð, Seltjarn-
arnes. Miðvikudagur
kl. 18 – Digranesvegur
12, Kópavogur.
Fimmtudagur kl. 20.30
– Síðumúla 3–5,
Göngudeild SÁÁ,
Reykjavík. Föstudag-
ur kl.20 – Víðistaða-
kirkja, Hafnarfjörður.
Laugardagur kl. 10.30
– Kirkja Óháða safn-
aðarins, v/ Háteigsveg,
Reykjavík. Austur-
land: Fimmtudagur
kl.17 – Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Neyðarsími
GA er opinn allan sól-
arhringinn. Hjálp fyrir
spilafíkla. Neyðarsími:
698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is
og síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti,
Stangarhyl 2, er opinn
–þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í
flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikum fyrir
krabbameinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga
fyrir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu á Thorvald-
sensbazar, Austur-
stræti 4, s. 551-3509.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla) sími
588-8899.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minn-
ingaspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Í dag er laugardagur 30. ágúst,
242. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Jesús horfði á þá
og sagði: „Fyrir mönnum eru
engin ráð til þessa, en fyrir Guði.
Guð megnar allt.“
(Mk. 10, 27.)
Anna Sigrún Bald-ursdóttir skrifar
pistil á Kreml.is um ný-
hafnar vísindaveiðar á
hrefnu.
„Það var öllum ljóst
sem það vildu vita að
áhrif hvalveiða yrðu
ekki jákvæð. Um slíkar
veiðar verður ekki
fjallað í jákvæðu ljósi í
okkar helstu við-
skiptalöndum eða meðal
nágrannaþjóða,“ skrifar
Anna Sigrún. „Hval-
veiðar eru einfaldlega
lagðar að jöfnu við það
að éta hundakjöt og
slíkt líðst einfaldlega
ekki í hinum vestræna
heimi. Það er engin sér-
stök rökhyggja á bak
við afstöðuna til hunda-
kjötsáts, heldur er hún
hluti af vestrænu gild-
ismati og sama virðist
orðið eiga við um hval-
kjöt, hversu ósáttir sem
menn kunna að vera við
það. Hafró og aðrir geta
hrópað sig hása í nafni
sinna vísinda en þetta
stríð er tapað. Það tap-
aðist á síðustu öld.“
Anna Sigrún segir aðEinar K. Guðfinns-
son, formaður ferða-
málaráðs, sé ekki heldur
sannfærandi á heimasíðu
sinni þegar hann varpar
öndinni léttar 11. ágúst
yfir því að mótmæli séu
ekki eins hávær og ein-
hverjir ætluðu.
„Þetta var áður en
veiðarnar hófust og
óhætt að segja að þar
hafi þingmaðurinn fagn-
að of snemma. Við
hverju bjóst maðurinn –
að heimsbyggðin hefði
setið með öndina í háls-
inum í 16 ár og beðið
frétta af því hvort veið-
ar hæfust eða ekki?
Auðvitað tók það nokkra
daga áður en áhrifin
fóru að koma í ljós og
ekki hefur verið séð fyr-
ir endann á þeim. Það er
ekki á hverjum degi sem
fréttastofur koma hing-
að til lands til að fylgj-
ast með því sem við tök-
um okkur fyrir hendur
og það hefur nú reyndar
þótt fréttnæmt í sjálfu
sér ef eitthvað íslenskt
kemst yfirleitt í erlendar
fréttir, hvað þá heims-
fréttir,“ skrifar Anna.
Hún segir að lokum:„Það þýðir lítið að
reyna að gera lítið úr
áhrifum veiðanna með
því að draga úr mik-
ilvægi þeirra ein-
staklinga og samtaka
sem mótmæla nú og
munu mótmæla. Það er
ljóst að ferðaþjónustan
mun verða fyrir áföllum
vegna þessa og þau
áhrif munu ekki koma í
ljós fyrr en á næsta ári,
enda aðalferðamanna-
tímabilinu rétt að ljúka
núna. Yfirvöldum og
stjórnarliðum væri nær
að benda á mótvæg-
isaðgerðir eða a.m.k.
hvaða hagkvæmnisjón-
armið liggja að baki
veiðunum.
Skringilegar tilraunir
til að hnýta þjóðrembing
og „sjálfsákvörðunarrétt
sjálfstæðrar þjóðar í eig-
in landi“ eru beinlínis
kjánalegar. Við verðum
ekkert betri Íslendingar
ef við veiðum hvali.“
STAKSTEINAR
Áhrif hvalveiða
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI gerði sér ferð á Sól-heima í Grímsnesi um daginn og
líkaði vel að dvelja þar part úr degi.
Gróðursældin í þessum reit er slík
að Víkverja datt helst í hug að hann
væri staddur í útlöndum, kannski
einhverju Norðurlandanna þar sem
gróður er jafnan meiri en hér á
landi. Stemmningin á Sólheimum
þótti Víkverja líka einstök. Hann
fékk það á tilfinninguna að þetta
samfélag væri algerlega óháð um-
heiminum, þyrfti ekki á honum að
halda. Víkverja þótti dásamlegt að
geta upplifað það vinsamlega and-
rúmsloft sem á Sólheimum ríkir og
vonar að það góða starf sem þar er
unnið fái vaxið um aldur og ævi.
x x x
HAUSTIN eru góður tími að matiVíkverja. Skólarnir að byrja
með tilheyrandi tilhlökkun og engu
er líkara en þjóðfélaginu öllu sé snú-
ið í gang að nýju eftir sumardval-
ann. Bindur Víkverji vonir við að
fjölmiðlar geti borið á borð kræsi-
legri fréttir fyrir landann. Sumarið
er nefnilega hálfgerð gúrkutíð fyrir
fjölmiðla enda starfsemi fjölda fyr-
irtækja og stofnana í lágmarki. Í
framhjáhlaupi veltir Víkverji því
fyrir sér hvers vegna fréttaládeyða
er kölluð gúrkutíð? Hvað koma
gúrkur málinu eiginlega við?
x x x
BURTSÉÐ frá gúrkum hefur Vík-verji gaman af því þegar skól-
arnir hefjast. Áður gat Víkverji líka
hlakkað til haustsins því þá var tekið
slátur. Víkverji var í eina tíð liðtæk-
ur í sláturgerð og naut til þess full-
tingis mömmu, ömmu, afa og fleiri
ættmenna. Grunar Víkverja að
minna fari fyrir sláturgerð á heim-
ilum nú en fyrir til dæmis einum eða
tveimur áratugum. Fjölskylda Vík-
verja hefur í það minnsta gefist upp
á að sauma vambir, saxa mör og …
reyndar er Víkverji ekki alveg með
það á hreinu hvaða nöfnum slát-
urverkin kallast, enda var hann ung-
ur að árum þegar síðast var tekið
slátur á heimilinu. Þótt Víkverji sé
löngu orðinn vanur því að borða
keypt slátur en ekki heimagert, þá
saknar hann þess síðarnefnda. Það
var einhvern veginn meira alvöru að
borða slátur sem kom í handsaum-
aðri vömb heldur en í vélsaumuðum
teygjanlegum poka úr gúmmí-
kenndu efni eins og það sem nú fæst
í búðum.
Víkverji þykir kannski gamaldags
að líta sláturgerð fyrri ára svo róm-
antískum augum. Kannski var þetta
ekkert svo skemmtilegt, þótt heima-
gerða slátrið sé þó sannarlega betra
í minningunni en „nútímaslátur“.
Minningin getur verið blekking ein.
Það sem áður var verður stærra og
betra en það sem á sér stað í núinu.
Minningin fegrar og bætir, sem er
einmitt ástæðan fyrir því að hún
getur verið svo mikið betri en kald-
ur og hversdagslegur raunveruleik-
inn. Haustið er þó fjarri því að vera
kalt og hversdagslegt, þótt það beri
með sér verksmiðjusaumaða slát-
urkeppi.
Morgunblaðið/Golli
Frá Sólheimum í Grímsnesi.
ÉG VAR að keyra frá
Húsavík til Akureyrar
þegar mér datt í hug að
kveikja á útvarpinu.
Fréttir voru byrjaðar og
það fyrsta sem ég heyrði
var að Orkuveita Reykja-
víkur ætlaði að hækka
gjaldskrá sína um 6% til
notenda rafmagns og hita.
Ekki að það sé óalgengt
hjá þessari stofnun, en það
sem manni svíður mest er
að þessi hækkun skuli
stafa af því að hiti í
Reykjavík er búinn að
vera yfir meðaltali undan-
farið og fjárstreymið hjá
fyrirtækinu hefur minnk-
að um u.þ.b. 400 milljónir
af þeim sökum. Hafið þið
heyrt annað eins?
Ég, sem Reykvíkingur í
tæpa hálfa öld, er gersam-
lega gáttaður á svona yf-
irlýsingum frá slíkri bruðl-
stofnun sem Orkuveitan
er. Þetta er fyrirtækinu til
skammar. Ekki megum
við Reykvíkingar gleyma
bruðli þessarar stofnunar í
gegnum árin. Hún hefur
tapað hundruðum milljóna
króna á röngum fjárfest-
ingum o.s.frv. Orkuveitan
er eitt ríkasta fyrirtæki
landsins, en ekki höfum
við fengið að njóta þess að
mér finnst, og legg ég til
að stjórnarformaður og
forstjóri verði látnir taka
pokann sinn. Mér skilst að
þetta sé hálfgert fjöl-
skyldufyrirtæki þessara
manna og er kominn tími
til að endurnýja í brúnni.
Við Reykvíkingar erum
búnir að borga þetta fyr-
irtæki upp fyrir löngu, en
vegna lélegrar stjórnunar
verða þessir menn alltaf
að leita til almennings eft-
ir peningum ef eitthvað
bjátar á og vegna einok-
unar geta þeir leyft sér
allt. Hugsið ykkur ef önn-
ur fyrirtæki í landinu
gætu hagað sér svona. Ef
maður skrúfar niður í ofn-
unum heima hjá sér sök-
um hita þá vilja þeir fá
borgað fyrir það líka.
Ég legg til að allir
Reykvíkingar hafi skrúfað
frá öllum ofnum yfir sum-
arið svo að þeim hjá Orku-
veitunni líði ekki illa og
þeir þurfi ekki að halda
marga okurfundi þannig
að launakostnaður fari
ekki úr böndunum og þurfi
ekki að koma með svona
leiðinlega yfirlýsingu.
Jón Sigurðsson.
Skrautleg uppákoma
ÞAÐ er orðin með endem-
um skrautleg uppákoma í
kringum kosningu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur til formanns Sam-
fylkingarinnar og er engu
líkara en að heilaþvottur
hafi átt sér stað innan
stuðningsmannahóps
hennar.
Spurningin er: Er þessi
hópur stuðningsmanna
hennar að koma sér upp
einskonar messíasínu sem
rétttrúaðir Samfylkingar-
menn ætla sér að dýrka?
110828-7569.
Tapað/fundið
Peysa í poka týndist
RÖNDÓTT, svört og hvít
peysa úr versluninni Red/
Green týndist sl. miðviku-
dag, líklega í leið 140 eða
162. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 554 6737
eða 661 9209.
Dýrahald
Anna loðna er týnd
ANNA er sjö ára brönd-
óttur, loðinn, norskur
skógarköttur, lítil og nett.
Hún týndist frá heimili
sínu í Hlíðarási í Mos-
fellsbæ 28. júlí sl. Ól henn-
ar fannst við göngustíg við
Vesturlandsveg en síðast
sást til hennar að leik við
annan kött. Hennar er
sárt saknað. Þeir sem vita
um afdrif hennar eru
beðnir um að hafa sam-
band í síma 823 2893 eða
585 7209.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Til
Reykvíkinga
Morgunblaðið/Arnaldur
LÁRÉTT
1 mótgengur, 8 hörfar, 9
þyngdareiningar, 10 tala,
11 jarði, 13 sefaði, 15
þráðar, 18 dreng, 21 af-
kvæmi, 22 detta, 23 smá-
aldan, 24 miskunnar-
leysið.
LÓÐRÉTT
2 hráslagi, 3 dimmviðri, 4
yfirhafnir, 5 systir, 6 tor-
veld, 7 fífl, 12 smáger, 14
títt, 15 Freyjuheiti, 16
kvabba um, 17 vik, 18 lítil
saurkúla, 19 þvættingi,
20 þekkt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 blíða, 4 sígur, 7 asann, 8 náðug, 9 agn, 11 alda,
13 uggs, 14 umber, 15 sálm, 17 traf, 20 kal, 22 eyrun, 23
jaðar, 24 lúrir, 25 narra.
Lóðrétt: 1 blaka, 2 íhald, 3 Anna, 4 senn, 5 geðug, 6
regns, 10 gubba, 12 aum, 13 urt, 15 spell, 16 lærir, 18
riðar, 19 forna, 20 knár, 21 ljón.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16