Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 16
UMRÆÐAN 16 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ gefur maður afmælisbarni sem á allt? Það skyldi þó ekki vera blómvöndur? Og eftir því sem af- mælisbarnið á merkara afmæli er vöndurinn veglegri, oft byggður upp í uppáhaldslitum afmælisbarnsins, með uppáhaldsblómum þess eða þá með jafnmörgum blómum af einni tegund, gjarnan rósum, eins og árin eru mörg. Ég hef eitt ákveðið afmælisbarn í huga núna. Það er sjálft Blóm vik- unnar, sem á í raun tvöfalt afmæli í dag. Þessi grein er númer 500, en gæti líka talist númer 800. Þetta þarf ákveðinnar skýringar við og nú hverfum við langt aftur í tímann. Þegar Hið íslenska garð- yrkjufélag, sem nú heitir Garð- yrkjufélag Íslands, var stofnað árið 1885 var eitt helsta markmið þess að útbreiða þekkingu á ræktun meðal almennings. Þetta hefur stjórn fé- lagsins haft í heiðri, nær allar götur frá stofnun þess hefur verið gefið út ársrit, Garðyrkjuritið, einnig hafa verið gefnar út nokkrar bækur, svo sem Matjurtabókin, Skrúðgarða- bókin og bókin Garðurinn, sem fjallar um skipulag og efnisval í görðum. Eins hefur lítið fréttablað, Garðurinn, komið út í allmarga ára- tugi. En það skyldu þó ekki vera litlu pistlarnir um blóm vikunnar, sem hafa verið einna drýgstir við að boða fagnaðarerindið? Fyrsta Blóm vikunnar leit dags- ins ljós vorið 1975. Ritstjórn Morg- unblaðsins tók því ljúflega þegar þáverandi stjórn Garðyrkjufélags Íslands reifaði þá hugmynd að birta pistla um gróður á síðum blaðsins, sem Garðyrkjufélagið bæri ábyrgð á. Þessir pistlar hafa birst allar göt- ur síðan og eru orðnir 800 talsins. Eins og dyggir lesendur pistlanna vita, birtast þeir ekki reglulega í hverri viku, í svartasta skammdeg- inu verður alltaf hlé á skrifunum og þegar mikið berst blaðinu af inn- sendum greinum verður stundum örlítill dráttur á birtingu blómsins okkar. En hvers vegna er þessi grein þá númer 500 en ekki 800? Ástæðan er sú að hér varð stóra stopp um 5 ára skeið og þegar við fengum aftur rými í Morgunblaðinu varð að samkomulagi að byrja núm- eringar upp á nýtt. Umsjónarmenn þáttanna allan þennan tíma hafa aðeins verið tveir, Ágústa Björnsdóttir og Sigríður Hjartar. Ef samlíkingunni um blóm- vöndinn er haldið áfram er Blóm vikunnar vöndur sem er settur sam- an af 800 blómum, greinahöfundar eru 55 talsins, þannig að blómateg- undirnar eru þá 55, en fegursta blóm vandarins hlýtur að vera Ágústa Björnsdóttir, sem sýndi það afrek, að hafa umsjón með þátt- unum frá 1975 uns hún lést 1999, þótt Sigríður hafi verið henni til að- stoðar frá 1986. Ágústa Björnsdóttir var mjög vel að sér um ræktun þótt hún væri ekki skólagengin á því sviði. Hún rak um skeið litla garðyrkjustöð á heimili sínu í Kópavogi, sem hún nefndi Rein. Þessi garðyrkjustöð og Ágústa sjálf var mikil lyftistöng fyrir ræktun í Kópavogi. Ágústa átti einstaklega gott með að miðla öðrum fróð- leik um ræktun. Hún var í stjórn Garðyrkju- félags Íslands um nær 10 ára skeið og hélt fjölmarga fyrirlestra um ræktun bæði innan félags og utan og skrif- aði um hugðarefni sitt í ýmis tímarit auk þess að hafa umsjón með Blómi vikunnar og skrifa þar fjölmargar greinar eða alls um 115 talsins. Ágústa hafði einstaklega gott lag á að umgangast fólk og fá það til liðs við sig, eins og sést á því hve margir hafa lagt hönd á plóginn með greinaskrifum. Þeir 55 greinahöf- undar, sem hér hafa komið við sögu, eru ágætt þversnið af félögum í GÍ, en félagið starfar sem áhugamanna- félag, þótt félagar séu bæði leikir og lærðir. Sú blanda hefur reynst fé- laginu vel, hinn almenni félagi, sem ekki hefur formlega menntun á sviði ræktunar eða í grasafræði, hefur áhugann og smám saman hafa margir viðað að sér fróðleik, sem er síst minni en hjá mörgum lang- skólagengnum í faginu, þótt öðruvísi sé. Þessi stóri hópur höfunda hefur því bæði fagþekkingu og áhugann að vopni þegar hann mundar ritstíl- inn. Ógeregt er að gera öllum skil en þó verð ég að nefna fáein nöfn. Drjúgir við pennann hafa verið rit- stjórar Garðyrkjuritsins, þeir Ing- ólfur Davíðsson grasafræðingur og Ólafur Björn Guðmundsson lyfja- fræðingur. Fast á hæla þeirra koma Óli Valur Hansson fv. garð- yrkjuráðunautur og Hermann Lundholm fv. garðyrkjustjóri Kópa- vogsbæjar. Ekki má gleyma Sig- urlaugu Árnadóttur húsmóður í Hraunkoti í Lóni, sem hafði brenn- andi áhuga á ræktun og viðaði að sér ótrúlegri þekkingu á langri ævi, eins og sést á fjölbreyttum greinum hennar um Blóm vikunnar, sem eru meira en 50 tals- ins. Hér læt ég staðar numið þótt marga fleiri megi nefna þar sem um 20 höfundar hafa skrifað meira en 10 greinar hver. Efnið í Blómi vik- unnar er líka fjölbreytt og skrifað hefur verið um allt frá hinu minnsta til hins stærsta, frá fræsöfnun til risaeika. Matjurtir, blómjurtir, tré og runnar, íslensk blóm, erlend blóm, inniblóm, gróð- urhúsablóm, ekkert er Blómi vik- unnar óviðkomandi. Og við erum bara rétt að byrja. Við höldum áfram greinaskrifum meðan Morg- unblaðið tekur við blómunum okkar og þökkum gott samstarf við tengi- liði okkar þar. Myndin sem fylgir þessum skrif- um, er af einkennistré Garðyrkju- félags Íslands. Það á sér merka sögu eins og félagið sjálft. Þetta tré er silfurreynir, sem stendur í garð- inum á horni Aðalstrætis og Kirkju- strætis. Þessi garður hefur gengið undir mörgum nöfnum, en hann var elsti kirkjugarður Reykjavíkur, Vík- urkirkjugarður stundum kallaður. Kirkjugarðurinn var aflagður 1838 en síðast mun hafa verið grafið í hann 1882, og Schierbeck land- læknir fékk garðinn til ræktunar 1883. Þar var hann með ótrúlega fjölbreytta ræktun og tilraunastarf- semi eins og á jörð sinni Rauðará og um það ber silfurreynirinn fagurt vitni . Í garðinum er minnismerki um Schierbeck, sem Garðyrkju- félaginu var gefið á aldarafmæli þess. Schierbeck landlæknir og 17 aðrir borgarar í Reykjavík stofnuðu Garðyrkjufélag Íslands árið 1885. Félagið lifir alls ekki eingöngu í for- tíðinni, þótt við hana hafi verið dval- ist í þessari grein, það fylgist vel með og hefur verið í fararbroddi alla tíð. Vefslóð þess er http://www.gar- durinn.is og veffang gardur- inn@gardurinn.is. Morgunblaðið/Ómar Afmæl- isblóm VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 500. þáttur MIKIL breyting hefur orðið á Sjálfstæðisflokknum á því tímabili sem flokkurinn hefur starfað. Um tíma var flokkurinn mjög frjálslyndur og gat fallist á ýmis mikilvæg umbótamál launafólks en á síðari árum hefur flokkurinn orðið öfgafullur frjálshyggjuflokkur og hefur færst verulega til hægri. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengið í gegnum nokkur skeið. Í fyrstu var flokkurinn harður íhaldsflokkur, sem hélt ákveðið fram einkarekstri og gróðasjónarmiðum í at- vinnurekstri. Einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsi var það kallað á pappírnum. Á því tímabili barðist Sjálfstæð- isflokkurinn hatrammlega gegn öllum umbótamálum Al- þýðuflokksins og verkalýðshreyfingarinnar, eins og al- þýðutryggingum, togaravökulögum og byggingu verkamannabústaða. Alþýðuflokkurinn kom fyrstu alþýðutryggingunum (almannatrygg- ingum) á í samvinnu við Framsóknarflokkinn. Þáttaskil urðu í stefnu Sjálfstæðisflokksins við myndun „nýsköpunarstjórnarinnar“. Þá tók við tímabil aukins frjálslyndis og umbótavilja í sögu Sjálfstæðisflokksins. Undir forustu Ólafs Thors samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn við myndun ríkisstjórnar árið 1944 tillögur Alþýðuflokksins um almannatryggingar, sem var eitt af helstu málum „nýsköpunarstjórnarinnar“. Fleiri umbóta- mál launafólks samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn í tíð þeirrar rík- isstjórnar en auk Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins sat Sósíal- istaflokkurinn í þeirri stjórn. Stærsta mál stjórnarinnar var endurnýjun atvinnutækja þjóðarinnar, þ. á m. kaup stjórnarinnar á 32 togurum fyrir stríðsgróðann. Talið var nauðsynlegt, að opinberir aðilar, svo sem bæj- arfélög, tækju við hluta hinna nýju atvinnutækja. Ólafur Thors sýndi mikið frjálslyndi og umbótavilja í tíð „nýsköpunarstjórnarinnar“. Hann sveigði stefnu Sjálfstæðisflokksins nær stefnu verkalýðsflokkanna. Hið sama má segja um Bjarna Benediktsson. Hann samþykkti tillögur Al- þýðuflokksins um stofnun Bæjarútgerðar Reykjavíkur í borgarstjórn Reykjavíkur og sýndi með því mikið frjálslyndi og framsýni. Báðir þessir forustumenn og formenn Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson, sýndu einnig mikinn umbótavilja í tíð viðreisnarstjórn- arinnar, er almannatryggingar voru stórefldar samkvæmt tillögum Al- þýðuflokksins og fleiri umbótamál launafólks og almennings náðu fram að ganga. Á síðustu áratugum hefur Sjálfstæðisflokkurinn færst á ný í íhaldsátt og flokkurinn hefur tekið upp algera frjálshyggju og gróðahyggju. Á þessu tímabili hefur aðaláherslan verið lögð á einkavæðingu og einka- rekstur en minna hugsað um að efla velferðarstofnanir þjóðfélagsins eins og almannatryggingar. Það er jafnvel farið að tala um að einka- væða vissa þætti innan heilbrigðisgeirans, í menntakerfinu og á sviði fé- lagsmála! Á þessu tímabili frjálshyggju og gróðahyggju hefur misskipt- ing í þjóðfélaginu stóraukist. Mörg fyrirtæki hafa blindast af gróðahyggju og hafa tekið upp ómanneskjulega stjórnarhætti. Markmið þeirra hefur verið það eitt að græða sem mest. Íslenskt þjóðfélag hefur verið að breytast úr fyrirmyndar velferðarþjóðfélagi, þar sem fólk hefur tekið tillit hvað til annars, í algert gróðaþjóðfélag, þar sem menn níða skóinn hver af öðrum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur villst af braut. Hann er ekki lengur flokk- ur allra stétta eins og hann vildi vera. Hann er nú flokkur auðmagns og gróðahyggju. Hann dregur taum fyrirtækja á kostnað launafólks. Ýmsir fyrrverandi forustumenn Sjálfstæðisflokksins hafa gagnrýnt þessa stefnubreytingu flokksins. Má þar nefna Matthías Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og Sverri Hermannsson, fyrrverandi mennta- málaráðherra. Þeir hafa gagnrýnt taumlausa frjálshyggju Sjálfstæð- isflokksins. Matthías Bjarnason hefur harðlega gagnrýnt öfgafulla einka- væðingarstefnu Sjálfstæðisflokksins. Vonandi finnur Sjálfstæðisflokkurinn á ný þann veg, sem þeir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson leiddu hann inn á. Framsóknarflokkurinn hefur sl. 8 ár hjálpað Sjálfstæðisflokknum til þess að framkvæma ómengaða íhaldsstefnu. Það er eins og þessir tveir flokkar framkalli það versta hvor hjá öðrum, gróðahyggju og helminga- skiptastefnu. Flokkur frjálshyggju og gróðasjónarmiða Eftir Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.