Morgunblaðið - 01.09.2003, Qupperneq 23
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 23
✝ Lárus GuðjónLúðvígsson
fæddist í Reykjavík
30. mars 1914.
Hann lést á Elli-
heimilinu Grund 22.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Ingi-
gerður Ágústa Eyj-
ólfsdóttir, f. 18.
ágúst 1892, d. 9.
september 1977, og
Lúðvíg Lárusson, f.
11. janúar 1881, d.
30. júní 1940, kaup-
maður í Reykjavík.
Systkini Lárusar eru Guðrún, f.
1910, d. 1978, og Sigurður Hauk-
ur, f. 1921.
Lárus kvæntist 12. júlí 1941
Daisy Sögu Jósefsson, f. í Lodz í
Póllandi 25. október 1912, d. 25.
janúar 1988. Daisy var dóttir
hjónanna Karólínu Amalíu Guð-
Percival framkvæmdastjóra, f.
17. apríl 1943. Þau skildu. Börn
þeirra eru Stephen listmálari, f.
26. mars 1968, kvæntur Louise
Harrison listmálara, f. 2. júní
1968, og er sonur þeirra Boyd, f.
28. febrúar 2003, og Samantha
listfræðingur, f. 21. júní 1970.
Karólína er búsett í Englandi. 3)
Lúðvíg sálfræðingur, f. 22. apríl
1947. Maki Margrét Guðmunds-
dóttir framkvæmdastjóri, f. 16.
janúar 1954. Börn þeirra eru
Edda Lára nemi, f. 2. mars 1984,
og Lárus Guðjón nemi, f. 17. apr-
íl 1986. Lárus og Daisy skildu.
Lárus var stúdent úr stærðfræði-
deild Menntaskólans í Reykjavík
og hélt að því loknu til verslunar-
náms í Þýskalandi og Bretlandi.
Hann stofnaði og rak verslunina
Feldinn í samvinnu við frænda
sinn Arnbjörn Óskarsson. Lárus
kom víða við í rekstri fyrirtækja
og var mikill athafnamaður.
Hann dvaldi á Elliheimilinu
Grund síðustu tvær vikurnar fyr-
ir andlát sitt.
Útför Lárusar verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
laugsdóttur, f. 14.
desember 1882, d. 11.
ágúst 1969, og Jó-
hannesar Jósefsson-
ar, f. 28. júlí 1883, d.
5. október 1968, eig-
anda Hótel Borgar.
Börn Lárusar og
Daisy eru: 1) Hildur
tækniteiknari, f. 6.
ágúst 1942. Maki
Peter von Schilling
hagfræðingur, f. 7.
mars 1943, og er
dóttir þeirra Henri-
ette Carolina ferða-
fræðingur, f. 24.
mars 1977. Hildur og Peter eru
búsett á Spáni. Hildur var áður
gift Guðna Gíslasyni (látinn). Þau
skildu. 2) Karólína listmálari, f.
12. mars 1944. Maki Frederick
Henry Roberts sálfræðingur, f.
15. ágúst 1922, d. 2. júní 2002.
Karólína var áður gift Clive
Látinn er í Reykjavík tengdafaðir
minn, Lárus G. Lúðvígsson, 89 ára
að aldri, eftir langt og viðburðaríkt
líf.
Lárus var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og að honum stóðu
sterkar ættir og má segja að föð-
urfjölskylda hans hafi sett mikinn
svip á viðskiptalíf í Reykjavík enda
muna margir Íslendingar eftir Skó-
verslun Lárusar G. Lúðvígssonar,
nafna og afa Lárusar, sem lengst af
var til húsa í Bankastræti í Reykja-
vík. Að loknu stúdentsprófi úr
Menntaskólanum í Reykjavík hélt
Lárus utan til náms bæði í Þýska-
landi og Bretlandi og nam þar versl-
unarfræði og tungumál. Þegar heim
var komið stofnaði Lárus fyrirtæki í
fataframleiðslu og verslun. Hann
var mikill athafnamaður og óhrædd-
ur við að fara ótroðnar slóðir. Hug-
myndaauðgin var mikil og hafði
hann mjög gott auga fyrir fallegri
hönnun. Hann stundaði laxeldi í frí-
tíma sínum löngu áður en það varð
þekkt á Íslandi og svo mætti lengi
telja. Hann var mikill húmoristi,
elskaði að segja sögur og var því oft
hrókur alls fagnaðar á mannamót-
um.
Lárus kvæntist Daisy Sögu Jós-
efsson, en hún var dóttir Jóhannes-
ar á Borg og eignuðust þau þrjú
börn. Fjölskyldan bjó við mikla vel-
megun á þeirra tíma mælikvarða og
tengslin við Hótel Borg höfðu mikil
áhrif á allt fjölskyldulífið. Lárus var
fjölskyldumaður og elskaði að
ferðast um Ísland með konu og börn
með sér. Var þá ýmist ekið í bifreið
eins langt og hægt var eða siglt með-
fram ströndinni og höfð viðdvöl í
hinum ýmsu sjávarplássum. Í þessu
eins og svo mörgu öðru var hann
langt á undan sinni samtíð. Þau
Daisy ferðuðust einnig mikið er-
lendis og voru sannkallaðir heims-
borgarar enda hafði Daisy alist upp í
stórborgum vestanhafs fyrstu 14 ár
ævi sinnar.
Upp úr 1960 þegar viðskiptaum-
hverfi á Íslandi tók stakkaskiptum
fór að halla undan fæti fyrir íslensk-
um iðnaði. Lárus var ekki nógu fljót-
ur að aðlaga sig þeim breytingum og
fyrirtæki hans urðu undir í barátt-
unni. Þau Daisy skildu og dæturnar,
Hildur og Karólína, settust að er-
lendis, auk þess sem Lúðvíg sonur
hans dvaldi langdvölum í Danmörku
við nám og störf. Ævikvöld Lárusar
varð hins vegar gott. Síðustu 10 árin
bjó hann í íbúð í hjarta Reykjavíkur.
Hann naut þess að ganga Laugaveg-
inn og Skólavörðustíginn, skoða í
glugga verslana og fylgjast með
tískunni. Oft gekk hann upp á
Hlemm, tók strætisvagn í einhver
úthverfin til að fylgjast með upp-
byggingu borgarinnar og gekk síðan
heim aftur. Einnig var hann dugleg-
ur að fara í Sundhöll Reykjavíkur og
gekk þá alltaf þangað og heim aftur.
Á þessum árum naut hann dyggrar
vináttu Kristínar Zoëga og Geirs
Sigurðssonar. Þau sinntu honum á
ótrúlega óeigingjarnan hátt og
skulu þau hafa bestu þakkir fjöl-
skyldunnar fyrir það. Lárus skilur
eftir sig fjölskyldu þar sem listrænir
hæfileikar og húmor eru einkenn-
andi og erum við þakklát fyrir það.
Far í friði.
Þín tengdadóttir,
Margrét Guðmundsdóttir.
Föstudagurinn 22. ágúst sl. var
einn af þessum fallegu sumardög-
um, logn og blíða. Þann dag kvaddi
Lárus G. Lúðvígsson, vinur okkar,
þennan heim og verður hann jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í dag, 1.
september.
Minningarnar hrannast upp í
huga okkar. Þú varst hluti af lífi
okkar í svo mörg ár. Lárus var sann-
ur vinur, honum þótti vænt um
börnin okkar og hann fylgdist ætíð
með þeim, sérstaklega Sigurði Geir,
enda töluðu þeir ætíð saman sem
jafningjar og veit ég að Lárus pass-
ar nú vel litla Sigurð Geir sem Sig-
urður og Ásta misstu í júní. Hann
var mikil barnagæla. Hann sá sitt
fyrsta langafabarn, Boyd litla,
nokkrum dögum áður en hann dó.
Við töluðum saman í síma svo tím-
unum skipti á hverjum degi og eig-
um við eftir að sakna þess að hringja
ekki í hann. Einnig eigum við eftir
að sakna allra bíltúranna. Þetta var
partur af öllu. Það kemur til með að
vanta mikið þegar Lárus situr ekki
lengur til borðs með okkur á hátíðis-
og tyllidögum.
Lárus hafði sérstaklega skemmti-
lega kímnigáfu og frásagnarhæfi-
leika. Hann sá alltaf spaugilegu hlið-
arnar á málum. Séntilmaður var
hann af Guðs náð og hann fylgdist
vel með öllum heimsmálum. Tísku
fylgdist hann vel með enda smekk-
maður mikill. Það var oft gott að
leita til hans. Hann var heimsmaður
og hafði ferðast mikið til að kynna
sér alls kyns nýjungar vegna at-
vinnu sinnar, til Bandaríkjanna,
Parísar, London og víðar.
Að leiðarlokum þökkum við þér
samfylgdina í öll þessi ár, elsku Lár-
us. Þakka þér fyrir að vera vinur
okkar. Við eigum eftir að sakna þín
svo mikið.
Aðstandendum hans vottum við
virðingu okkar og samúð og biðjum
þess að minningin um Lárus megi
verða þeim að leiðarljósi um ókomin
ár. Við máttum vissulega margt af
honum læra.
Leyf mér að hvílast
mér líður svo vel.
Ljósið það dofnar,
nú svefni ég stel.
Samt er svo margt sem þarf að gera,
margt sem þarf að sjá.
Leyf mér að leggjast
og hvíldina löngu að fá.
(Eyjólfur Kristjánsson.)
Góðu minningarnar gleymast
ekki.
Kristín og Geir.
LÁRUS GUÐJÓN
LÚÐVÍGSSON
Kristján Þorvalds-
son, faðir góðs vinar,
er látinn. Mig langar,
með nokkrum orðum,
að minnast á þær
góðu stundir sem við félagarnir,
vinir Eyfa, áttum á heimili þeirra
hjóna Kristjáns og Guðnýjar í
Sigluvogi. Þar vorum við alltaf
velkomnir hvort sem við komum
drulluskítugir eftir fótboltaleik á
þúfuvellinum eða vantaði sama-
stað fyrir skólaböll. Þá var al-
gengt að okkur væri boðið upp á
Sæmund í sparifötunum, (frónkex
með kremi), sem ávallt var nóg af
á heimilinu. Einnig eru eftir-
minnilegar jólanæturnar þar sem
við spiluðum fram undir morgun í
eldhúsinu og kláruðum allt Toffee
Crisp súkkulaðið og Sinalcoið úr
búrinu.
Mikil skíðabaktería hrjáði fjöl-
skylduna sem smitaði okkur
strákana. Bræður Eyfa höfðu
unnið við skíðakennslu í Kerling-
arfjöllum á sumrin og við Eyfi
hófum seinna að vinna þar saman.
Það var sannkölluð veisla fyrir
okkur þegar Kristján og Guðný
komu í heimsókn í fjöllin klyfjuð
KRISTJÁN BJÖRN
ÞORVALDSSON
✝ Kristján BjörnÞorvaldsson
fæddist í Hafnarfirði
30. maí 1921. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni í
Reykjavík 11. ágúst
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 22.
ágúst.
af varningi sem ófá-
anlegur var í fjöllun-
um.
Eyfi starfaði síðan í
fleiri ár í Kerlingar-
fjöllum og oftsinnis
fengum við strákarnir
að sitja í með þeim
hjónum í fjöllin. Það
kom fyrir að við
ákváðum að fram-
lengja ferðina um
einn eða fleiri daga,
ef veður var gott. Þá
fór Kristján í bæinn
en Guðný tók rútuna
með okkur strákun-
um í bæinn. Sat hún þá aftast með
okkur krökkunum og hélt uppi
stuðinu með ærslagangi og söng.
Mér er afar minnistæð helgi ein í
júlí þar sem ákveðin hafði verið
ferð í Kerlingarfjöll með þeim
hjónum til að skíða og heimsækja
Eyfa. Á síðustu stundu breyttust
áform Kristjáns svo hann átti
ekki heimangengt. Þegar hann sá
vonbrigði okkar yfir að komast
ekki í fjöllin rétti hann okkur bíl-
lyklana, að splunkunýjum Range
Rover, og sagði: „takið þið bara
bílinn strákar mínir og skilið hon-
um eftir helgi,“ Þá var ég sautján
ára, nýkominn með bílpróf. Þegar
ég hugsa til baka þá held ég að
mér hafi aldrei verið sýnt eins
mikið traust, hvorki fyrr né síðar
en þennan sumarmorgun. En
traustinu brugðumst við ekki.
Ég sendi innilegar samúðar-
kveðjur til Eyfa og allrar fjöl-
skyldu hans.
Viktor Urbancic.
Það voru mikil for-
réttindi að fá að kynn-
ast og starfa með Guttormi Sigur-
björnssyni, fyrrv. forstjóra
Fasteignamats ríkisins. Þau kynni
má rekja allt til ársins 1974, er hann
var skipaður forstöðumaður FMR.
Farsælu starfi Guttorms fyrir FMR
hafa verið gerð skil á öðrum vett-
vangi, en mig langar að minnast hans
í örfáum orðum vegna sameiginlegs
áhugamáls okkar, sem var Mats-
mannafélag Íslands.
Matsmannafélag Íslands var stofn-
að 24.11. 1987 og voru stofnendur 27
sem komu úr ýmsum starfsstéttum
og höfðu mismunandi menntun og
starfsreynslu að bakgrunni. Driffjöð-
urin að stofnun félagsins var Gutt-
ormur og var hann sjálfkjörinn for-
maður okkar allt fram til vorsins
1993, er hann baðst undan endur-
kjöri. Það var eins og sjálfsagður
hlutur að aðsetur félagsins var hjá
GUTTORMUR
SIGURBJÖRNSSON
✝ Guttormur Sig-urbjörnsson
fæddist á Ormsstöð-
um í Skógum í Valla-
hreppi í Suður-Múla-
sýslu 27. september
árið 1918. Hann lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi 11. ágúst
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Digraneskirkju 22.
ágúst.
FMR og þar voru
stjórnarfundir haldnir á
annan áratug.
„Ég á mér draum,“
sagði Martin Luther
King. Á svipaðan hátt
átti Guttormur sér
þann draum að bæta
stöðu matsmála á Ís-
landi og auka menntun
starfandi matsmanna.
Stofnun Matsmanna-
félags Íslands og allt
það fræðslu- og skipu-
lagsstarf, sem þar fór
fram, var liður í því að
láta þann draum ræt-
ast. Guttormur var hugmyndasmið-
urinn og dreif okkur, meðstjórnar-
menn sína, með í starfi og gerði um
leið sinn draum að okkar. Undir for-
mennsku hans stóð MFÍ að mörgum
fræðslufundum og ráðstefnum um
matsmál, þar sem innlendir og er-
lendir fyrirlesarar komu og fræddu
íslenska matsmenn og aðra áhuga-
sama.
Stórt skref í menntamálum mats-
manna var stigið við stofnun Mats-
mannafræðslunnar 1991. Hér var um
að ræða fjögurra anna nám, sem var
skipulagt af MFÍ í samvinnu við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-
lands. Matsmannafræðslan starfaði
undir verndarvæng Endurmenntun-
ar Háskóla Íslands og útskrifuðust
þaðan alls 44 matstæknar í þremur
árgöngum. Guttormur beitti sér mik-
ið fyrir réttindamálum matsmanna
og þá sérstaklega hinna nýju mats-
tækna. Framhald starfs hans á þessu
sviði bíður nýrra hugsjónamanna.
Það var erfitt að fylla það skarð,
sem Guttormur skildi eftir, er hann
lét af störfum sem formaður MFÍ, en
um leið má segja að starfið hafi verið
léttara vegna þeirra varða, sem hann
hafði reist allt frá stofnun félagsins
og nýir stjórnarmenn gátu fetað sig
eftir.
Guttormur var í mínum huga um-
fram allt leiðtogi og hugsjónamaður í
störfum sínum að matsmálum. Hann
var hæglátur og ljúfur í umgengni, en
einstaklega tillögugóður og lipur
fræðari. Hann átti gott með að fá
menn til að vinna með sér að góðum
málum og ég hef þá trú að hann hafi
ekki unnið nema að góðum málum.
Ég er þakklátur fyrir að hafa átt
Guttorm Sigurbjörnsson að sam-
starfsmanni og góðum félaga.
Blessuð sé minning hans.
Gunnar Torfason,
fyrrv. form. MFÍ.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN PÁLMASON,
Ölduslóð 34,
Hafnarfirði,
lést aðfaranótt sunnudagsins 31. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigrún Aðalbjarnardóttir,
Þorgerður Jónsdóttir, Steingrímur Þórðarson,
Viðar Hrafn Steingrímsson, Lena Karen Sveinsdóttir,
Sigrún Steingrímsdóttir, Nikulás Árni Sigfússon,
Hrefna Margrét Viðarsdóttir.