Morgunblaðið - 01.09.2003, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
ÁFENGISVANDINN verður ekki
lengur leystur í hverju landi fyrir sig,
eins og verið hefur hingað til, er mat
Robin Room frá Svíþjóð. Með til-
komu fjölda samninga milli þjóða um
sölu á framleiðsluvörum landanna, til
að mynda innan Evrópusambands-
ins, hefur þetta breyst. Í þessum
samningum er oft kveðið á um óheft
frelsi til að selja ýmsar vörur og
bendir Room á að þessir samningar
hafi haft áhrif á heilbrigðisstefnu
þjóða. Robin Room heldur fyrir-
lestur í dag á norrænu vímuvarn-
arráðstefnunni sem hófst í Reykjavík
í gær.
Room mun fjalla um áhrif hnatt-
væðingar á verslun með áfengi en
hann starfar við áfengisrannsóknir
við Háskólann í Stokkhólmi og á í
samstarfi við fólk um allan heim.
„Áfengisvandinn verður ekki lengur
leystur í hverju landi fyrir sig eins og
verið hefur hingað til. Með tilkomu
allra þessara samninga milli þjóða
um sölu á framleiðsluvörum land-
anna, til að mynda innan Evrópu-
sambandsins, hefur þetta breyst.“
Hann leggur áherslu á að fólk þurfi
að byrja að hugsa upp leiðir til að
bregðast við þeim heilsu- og fé-
lagslega vanda sem áfengi er. „Litið
er á áfengi í flestum verslunarsamn-
ingum sem hverja aðra versl-
unarvöru og ekki eru fyrir hendi við-
varanir um áhrif þess á heilsu. Dæmi
um mótvægisaðgerðir eru alþjóða-
samningar þar sem samningsaðilar
viðurkenna að verðlagning og álagn-
ing skatta geti haft áhrif í þá átt að
draga úr neyslu. Þegar er til slíkur
samningur um sölu á tóbaki og hafa
47 lönd undirritað hann.“
Room bendir á að sífellt erfiðara
sé fyrir þjóðir að halda uppi háum
sköttum á áfengi þegar verslunar-
samningar eru í gildi. Til að mynda
ætli Finnland og Danmörk að lækka
skatta á áfengi á næstunni vegna
áhrifa Evrópusamninga í nágranna-
löndum þeirra. Í nágrannalöndunum
sé verðlag á áfengi lægra og lands-
menn versli þar.
Fjögurra eyja verkefnið er sam-
vinnuverkefni milli Íslands, Fær-
eyja, Grænlands og Álandseyja og
var kynnt á ráðstefnunni í gær. Að
sögn Þorgerðar Ragnarsdóttur,
framkvæmdastjóra Áfengis- og
vímuvarnarráðs og verkefnisstjóra
íslenska verkefnisins, fékk hópur
fólks sem vinnur að vímuvörnum
styrk frá Norrænu ráðherranefnd-
inni árið 2001 til að búa til einhvers
konar uppbyggilegt forvarnarverk-
efni.
Uppbygging verkefnisins er mis-
munandi eftir löndunum fjórum en
markhópurinn er alls staðar sá sami,
ungt fólk sem flytur að heiman til
þess að hefja nám í framhaldsskóla
og verður að fara að sjá um sig sjálft.
Norræna vímuvarnarráðstefnan í Reykjavík
Samningar hafa áhrif
á heilbrigðisstefnu
FEÐGARNIR Eyþór Sigmundsson og Sig-
mundur Eyþórsson drógu risalax að landi
í Laxá í Aðaldal eftir hádegi á föstu-
daginn. Reyndist það vera hængur, 26
pund og 108 sentimetra langur. Tók hann
rauða og gula Snældu í svokölluðum
Presthyl.
„Ég hefði aldrei landað þessum fiski.
Pabbi er snillingur í veiði, búinn að landa
fleiri hundruð löxum, og með reynslu
sinni, kunnáttu og snilld landaði hann
þessum laxi með minni aðstoð,“ segir Sig-
mundur. Það tók þá um 40 mínútur og tók
hængurinn tvær 100 metra rokur út í á
áður en hann náðist í land.
Nokkrum mínútum síðar veiddi Sig-
mundur fyrsta lax sinn á flugu, 16 punda
hrygnu sem einnig tók Snældu. Og auð-
vitað beit hann Maríuuggann af laxinum
að veiðimannasið.
Alls fengu feðgarnir níu fiska á eina
stöng þessa þrjá daga sem þeir dvöldu við
ána. Þar af veiddust fjórir á þremur
tímum á föstudaginn.
Tók 26 punda
hæng í Laxá í
Aðaldal
EKIÐ var á karlmann um sjötugt á Hringbraut í
Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöld, á móts við
Meistaravelli. Var hann fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi og samkvæmt
upplýsingum læknis voru meiðslin talin alvarleg.
Tildrög slyssins eru óljós og málið var í rannsókn
lögreglunnar í gærkvöld. Eins og myndin af vett-
vangi ber með sér urðu nokkrar skemmdir á fólks-
bílnum sem maðurinn varð fyrir á göngu sinni yfir
Hringbraut. Ökumaður hlaut ekki teljandi meiðsl.
Morgunblaðið/Júlíus
Ekið á gangandi mann
OLÍUFÉLAGIÐ, ESSO, hefur ákveðið að
hækka verð á eldsneyti frá og með deginum í
dag. Lítrinn af 95 oktana bensíni hækkar um
2,50 krónur, lítri af dísil- og flotaolíu hækkar
um krónu en hins vegar lækkar svartolíu-
lítrinn um eina krónu. Skeljungur ákveður í
dag hvað félagið tekur til bragðs en ekki náð-
ist í talsmann Olís í gærkvöldi. Síðast hækk-
uðu olíufélögin eldsneytið 1. júlí er bensín-
lítrinn fór upp um 2,30 krónur.
Frá og með deginum í dag mun lítrinn af 95
oktana bensíni hjá Olíufélaginu kosta 96,10 kr.
í sjálfsafgreiðslu á þjónustustöðvum félagsins
á höfuðborgarsvæðinu, 94,90 krónur á ESSO-
bílum innanlands. Svo virtist sem þeir ferð-
uðust meira á bílum en í flugi vegna ótta við
hryðjuverk. Magnús sagðist telja að miðað við
þróun mála síðustu ár ætti bensínverð að
lækka með haustinu vegna minnkandi eftir-
spurnar.
Hækkun „í loftinu“ hjá Skeljungi
Reynir Guðlaugsson hjá Skeljungi sagði í
gærkvöldi að hækkun væri „í loftinu“ en
ákvarðanir um mögulegar verðbreytingar
yrðu teknar í dag. Ólga hefði verið á heims-
markaðnum og dollarinn hækkað gagnvart
krónunni.
Express stöðvunum en fullt þjónustuverð
100,10 krónur. Bensínstöðvar á lands-
byggðinni gefa svo mismikinn staðgreiðslu-
afslátt, auk afsláttar Safnkortshafa.
Spurður um ástæðu fyrir hækkuninni nú
sagði Magnús Ásgeirsson hjá Olíufélaginu
hana aðallega vera vegna hækkunar elds-
neytis á heimsmarkaði undanfarnar vikur og
hækkunar á gengi dollars gagnvart íslensku
krónunni. Hækkunin á heimsmarkaði er að
sögn Magnúsar einkum vegna mikillar og
óvæntrar eftirspurnar í Bandaríkjunum eftir
bensíni. Magnús sagði að óvenju mikið hefði
verið um ferðalög Bandaríkjamanna á einka-
Bensín hækkar um 2,50 kr.
ÁÆTLAÐ er að um fimm til sex þús-
und lítrar af terpentínu hafi lekið úr
olíuflutningabíl með tengivagni sem
valt á hliðina í Bitrufirði á Ströndum í
gærmorgun og þar af hafi um tvö
þúsund lítrar farið út í umhverfið.
Olíuflutningabíllinn sem er frá Ol-
íudreifingu var að flytja um 40 þús-
und lítra af terpentínuefni frá
Reykjavík til Ísafjarðar. Óhappið
varð á mjóum vegi norðan við
Óspakseyri. Að sögn lögreglumanns
gaf vegkantur sig þegar bíllinn mætti
öðru ökutæki. Lögreglan frá Hólma-
vík og slökkvilið á staðnum var þegar
kallað á staðinn og sömuleiðis meng-
unarteymi frá Olíudreifingu í
Reykjavík. Í gærkvöldi var unnið að
því að koma bílnum í burtu og verður
jarðvegur síðan hreinsaður.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Slökkviliðsmenn frá Hólmavík reyndu að koma í veg fyrir mengun frá
olíubílnum sem valt í Bitrufirði.
Tvö þúsund lítrar
láku út í umhverfið
SKÓLASTJÓRI Klébergsskóla,
Sigþór Magnússon, ætlar að reyna
að hefja skólastarf í dag þrátt fyrir
að framkvæmdum á skólahúsnæðinu
sé ekki að fullu lokið. Það er viku
seinna en áætlað var. Þetta er fjórða
haustið sem skólastarf raskast að
hausti vegna framkvæmda við skóla-
húsnæðið.
„Það hafa ýmsir samverkandi
þættir valdið því að framkvæmdum
hefur seinkað svo. Það hefur gert
okkur erfiðara fyrir að öll byggingin
hefur verið undirlögð vegna fram-
kvæmda, og hvergi hægt að byrja.
Nú sér fyrir endann á þessu, en
betra hefði að sjálfsögðu verið að
framkvæmdum hefði verið lokið hinn
15. ágúst,“ segir Sigþór.
Enn sér ekki fyrir endann á fram-
kvæmdum því tveir áfangar eru eftir
sem báðir lúta að breytingum innan-
húss. Þá er ónefndur frágangur á lóð
skólans.
Sigþór segir starfsfólkið hins
vegar gott og foreldra og nemendur
jákvæða. Sé litið fram á veginn séu
allir sammála um að verið sé að
leggja grunn að farsælu skólastarfi.
Skólastarf
raskast
í fjórða
sinn