Morgunblaðið - 11.09.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hvor er betri, gulur eða rauður?
Menningar- og menntasamskipti við Japan
Kynna sér sér-
stöðu Íslands
NÝ NEFND ummenningar- ogmenntasamskipti
Íslands og Japans stóð
fyrir heimsókn sjö jap-
anskra ungmenna til
landsins, bæði til að kynn-
ast landi og þjóð, en einnig
til að sitja ráðstefnu um
orkumál með íslensku
nefndinni. Á dagskrá
hópsins var meðal annars
heimsókn í menntamála-
ráðuneytið, þar sem þau
hittu Tómas Inga Olrich,
menntamálaráðherra, og
heimsókn í utanríkisráðu-
neytið. Einnig hittu þau
japanska sendiherrann á
Íslandi og rákust óvænt á
japanska rithöfundinn
Haruki Murakami. Morg-
unblaðið ræddi við Yuriko
Shibayama, eina af jap-
önsku ungmennunum.
Getur þú sagt okkur aðeins frá
þessum nýju menningar- og
menntasamskiptum Íslands og
Japans?
„Ég gekk í þennan hóp í júní
eftir að hafa rekist á auglýsingu
frá honum í háskólanum mínum.
Ég hef mikinn áhuga á Norður-
löndum svo mig langaði að hitta
aðra sem hafa þennan sama
áhuga.Við héldum svo málþing í
júní í íslenska sendiráðinu í Jap-
an. Þar fengum við kynningu á
Íslandi og hittum Íslending sem
var við nám í Japan, auk þess að
vinna sem plötusnúður. Auk þess
var haldin tónlistarhátíð þar sem
meðal annarra kom fram íslenska
hljómsveitin Trabant.“
Hver var svo kveikjan að þess-
ari ferð hingað til Íslands?
„Við höfum verið í sambandi
við íslensku krakkana frá því í vor
og vonumst til að þau heimsæki
okkur til Japans næsta vor. Við
fengum styrki til þessa samstarfs
og höfum hlakkað til að koma.“
Hvernig hefur dvölin hér á Ís-
landi verið hingað til?
„Við komum hingað 3. septem-
ber og förum aftur heim mánu-
daginn 15. september. Við höfum
mestmegnis setið á ráðstefnu um
orkumál, til dæmis vetni sem
orkugjafa. Við höfum heimsótt
fyrirtæki á þessu sviði og hlustað
á fyrirlestra um orkumál. Einnig
erum við að kynnast menningar-
arfleifð Íslendinga og kynna þeim
okkar. Við tókum þátt í japanskri
tesiðaathöfn í Háskóla Íslands á
laugardaginn. Einnig hittum við
japanska sendiherrann á Íslandi,
sem hefur aðsetur í Noregi, þeg-
ar hann kom hingað til lands.Við
fórum á bókmenntahátíðina í
Reykjavík og hittum þar óvænt
japanska rithöfundinn Haruki
Murakami. Það var einstök upp-
lifun, hann sést ekki mikið í fjöl-
miðlum í Japan svo það var mikill
heiður að hitta hann hér. Hann
las upp úr bók sinni á japönsku og
sagði okkur að hann hafi ekki
ímyndað sér að neinn í áhorf-
endahópnum skildi hvað hann
væri að segja. Svo þetta var
óvænt fyrir báða að-
ila.“
Hafið þið ferðast
eitthvað um landið?
„Við fórum að Skóg-
um og upplifðum ís-
lenska náttúru. Hún var allt öðru-
vísi en náttúran í Japan.
Náttúran er einhvern veginn svo
yfirþyrmandi hérna, mikið pláss
alls staðar. Svo sá ég jökul í
fyrsta skipti á ævinni. Mér finnst
liturinn á himninum og öll þessi
mismunandi ský sem þið hafið
hér sérlega heillandi. Stundum sé
ég ekki skilin á milli lands og
skýja.
Á morgun förum við svo til
Þingvalla, sem mér finnst mjög
spennandi vegna áhuga míns á
Norðurlöndum. Þarna var fyrsti
þingstaðurinn á Norðurlöndum
og ég hlakka mikið til að sjá það.
Þar ætlum við að bjóða Íslending-
unum upp á japanskt sushi sem
við útbúum fyrir þá.“
Af hverju er ráðstefnan um
orkumál?
„Tæknin í orkumálum á Íslandi
er mjög þróuð, alveg eins og í
Japan, en við þekkjum ekki vel til
hvernig málum er háttað hér.
Eitthvað hefur verið um samstarf
og heimsóknir á milli fyrirtækja
en það eru ekki margir náms-
menn í Japan sem vita eitthvað
um Ísland. Við viljum kynna okk-
ur sérstöðu Íslands í þessum mál-
efnum.“
Hvað eiga Ísland og Japan
sameiginlegt þegar kemur að
orkumálum?
„Það er erfitt að segja því sam-
félagið er svo mismunandi, það er
færra fólk og öðruvísi loftslag og
landslag hér. Það sem við eigum
helst sameiginlegt er vel þróuð
tækni. Japanskir bílaframleið-
endur, eins og Toyota og Mitsu-
bishi, eru að vinna að þróun vetn-
isknúinna bíla og þegar hafa verið
settar upp fimm vetnisstöðvar í
Tókýó, svipaðar stöðinni hér í
Reykjavík. Ef til vill geta Ísland
og Japan haft með sér samstarf
um þessa þróun þar sem Íslend-
ingar eru að taka þessa tækni í
notkun. Það er áhugavert að bera
löndin tvö saman því þau eru ólík
að mörgu leyti, við höfum til
dæmis engar náttúrulegar orku-
auðlindir en Íslendingar hafa á
hinn bóginn mun meira en þeir
hafa þörf fyrir.
Svo er líka jarðvarmi
í Japan alveg eins og
hér, böð í heitum lind-
um eru mikið stunduð í
Japan. Í gær fórum við
í Bláa lónið, sem er æð-
isleg upplifun fyrir Japana.“
Er þá hægt að keyra um á
vetnisbíl í Tókýó í dag?
„Ég held að það sé ennþá of
erfitt að nota vetnisbíla. Þeir eru
enn of dýrir og það eru allt of fáar
vetnisstöðvar í borginni til að það
gangi. Strætisvagnar eru annað
mál þar sem þeir fara sömu leið-
ina og geta tekið eldsneyti á sama
stað í hvert skipti.“
Yuriko Shibayama
Yuriko Shibayama er fædd
1983 í japönsku borginni Tókýó.
Hún er nú á öðru ári í hinum
virta Waseda-háskóla í Tókýó
þar sem hún nemur norræn
fræði við félagsvísindadeild há-
skólans. Námið er nýtt af nálinni
og hefur einungis verið í boði síð-
ustu þrjú ár.
… tókum þátt
í japanskri
tesiðaathöfn
Ódýrt fyrir alla!Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla! LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
FRÁBÆRT VERÐ!
OPIÐ
11-20
ALLA DAGA
HVERGI
BETRA VERÐ!
295-
1/1 KJÚKLINGAR
frosnir
pr.kg.
NÝR rekstraraðili, Bær hf., hefur
tekið við rekstri Hótels Kirkjubæj-
arklausturs, en Kaupfélag Árnes-
inga (KÁ) hefur rekið hótelið um
árabil. KÁ er nú í greiðslustöðvun
vegna rekstrarörðugleika. Bær hf.
hefur átt Hótel Kirkjubæjarklaust-
ur frá því bygging þess hófst árið
1980 en leigt það út til mismunandi
rekstraraðila undanfarin ár.
Jón Helgason, stjórnarformaður
Bæjar hf., segir það hafa blasað við
að taka þyrfti við rekstrinum af
KÁ, þar sem rekstraraðilinn taldi
sig ekki getað staðið að því lengur.
„Reksturinn verður í sama formi og
verið hefur, þannig að viðskiptavin-
ir munu ekki verða varir við neinar
breytingar, að minnsta kosti ekki til
hins verra. Við höfum ekki tekið
neinar ákvarðanir um leit að nýjum
rekstraraðila ennþá, því fyrst þarf
að gera sér grein fyrir hver staðan
er núna.“
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um framtíðarskipulagningu hótels-
ins, sökum þess hversu snögg at-
burðarásin hefur verið. „Framtíð-
aráform okkar eru að reyna að
styrkja stöðu hótelsins eftir því sem
kostur er og leita þeirra leiða sem
líklegastar eru til að ná því mark-
miði.“
Nýr rekstraraðili tekur við
Hótel Kirkjubæjarklaustri