Morgunblaðið - 11.09.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL óánægja er innan dagvöruverslunarinnar
með fyrirkomulag á innflutningi og sölu osta.
Segja Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) að
margir telji að þeir búi við skerta samkeppnis-
stöðu gagnvart Osta- og smjörsölunni, sem hafi
um nokkurt skeið fengið langstærstan hlut tolla-
kvóta til innflutnings á ostum.
Fram kemur í fréttabréfi SVÞ, að nú síðast
hafi landbúnaðarráðuneytið veitt Osta- og smjör-
sölunni um 35% þess tollakvóta sem í boði var
fyrir tímabilið 2003–2004 og það sem eftir stóð
hafi verið dreift á 7 innflutningsaðila. Segja SVÞ
að Osta- og smjörsalan hafi með höndum einka-
sölu á öllum innlendum ostum sem framleiddir
eru í mjólkursamlögum víða um landið. Þyki því
fulllangt gengið í einokunartilburðum að fyrir-
tækið hafi einnig keypt upp stærstan hluta tolla-
kvóta á ostum á kostnað annarra sem hafi áhuga
á ostainnflutningi.
SVÞ segja að landbúnaðarráðuneytið hafi alls
úthlutað 119 tonna tollakvóta til innflutnings á
ostum fyrir tímabilið júlí 2002 til júní 2003. Til-
boð bárust í mun meira magn, eða 166,5 tonn.
Tollakvótum sé úthlutað til þeirra sem hæst
bjóða og í því magni sem óskað sé eftir, þó innan
marka þess sem til ráðstöfunar er. Þeir sem ekki
fái úthlutað tollakvóta fyrir osta þurfi að greiða
30% verðtoll á hvert innflutt kíló auk 430-500 kr.
magntolls á hvert kíló. Hinir sem hafi keypt
tollakvóta af ríkinu greiði aðeins 149 kr. magn-
toll af hverju kílói.
Segir SVÞ að ekki fáist uppgefið hjá landbún-
aðarráðuneytinu hvað Osta- og smjörsalan
greiddi fyrir tollakvótann sem fyrirtækið fékk
úthlutað, en meðalverð kvóta sem seldur var á
uppboðinu, var 228 krónur fyrir hvert kíló. Alls
úthlutaði ríkið 119 tonnum og fékk því alls
greiddar rúmar 27 millj. kr. fyrir kvótann.
SVÞ segja, að Osta- og smjörsalan sé í eigu
mjólkursamlaganna í landinu og annist sölu á öll-
um þeim ostum sem samlögin framleiða en sé
líka stærsti ostainnflytjandi landsins. Vert sé að
hafa í huga að mjólkursamlögin greiði aðeins um
helming af verði mjólkur til bænda, hinn helm-
ingurinn komi frá ríkinu í formi beingreiðslna.
Þessi sömu mjólkursamlög hafi opið samráð um
sölu á ostum gegnum Osta- og smjörsöluna og
kaupi auk þess upp stærri hluta innflutnings-
kvóta á mjólkurafurðum en nokkur annar inn-
flytjandi. „Þetta fyrirkomulag er löngu úrelt og
gefur fulla ástæðu til endurskoðunar,“ segir í
fréttabréfi SVÞ.
Algerlega gegnsætt
Að sögn Kristjönu Axelsdóttur á skrifstofu
framleiðslu- og markaðsmála í landbúnaðarráðu-
neytinu, hafa SVÞ ekki haft samband við ráðu-
neytið með gagnrýni sína. Kristjana bendir á að
kvótarnir séu auglýstir opinberlega og allir geti
sótt um. Sé sótt um meira en úthlutað sé fari
fram útboð og hæstbjóðendur fái kvótana. „Mér
finnst kannski verið að láta í það skína að land-
búnaðarráðuneytið sé að skammta kvótann en
það er alls ekki þannig. [...]Þetta er algjörlega
gegnsætt og ekki verið að skammta neitt eftir
neinum röngum leiðum,“ segir Kristjana.
Aðspurð segir hún að að ekki sé lögð sú
skylda á þá aðila sem fái úthlutað kvóta að þeir
nýti sér heimildina. „En þeir eru auðvitað búnir
að borga fyrir heimildina þannig að það borgar
sig ekki fyrir þá að afla sér heimilda sem þeir
ætla ekki að nýta.“
Greitt er fyrir heimildina fyrifram auk þess
sem tollar eru greiddir við innflutning. Ekki er
hægt að framselja kvótann.
Samtök verslunar og þjónustu gagnrýna fyrirkomulag á innflutningi og sölu osta
Osta- og smjörsalan fær
stærstan hlut tollakvóta
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hef-
ur átt viðræður við forystumenn
Sambands íslenskra sveitafélaga
um möguleika á því að flytja verk-
efni á sviði heilbrigðismála frá ríki
til sveitarfélaga, einkum á svið öldr-
unarþjónustu og heilsugæslu. Ráð-
herra skýrði frá þessum viðræðum
á þingflokksfundi á Egilstöðum á
dögunum. „Ég hef átt viðræður við
forystumenn Sambands íslenskra
sveitarfélaga um möguleika á því að
fara í vinnu um það að flytja verk-
efni og þeir eru mjög jákvæðir í því.
[…] Ég hafði hug á því fyrir lok
september að skipa starfshóp í sam-
vinnu við Samband íslenskra sveit-
arfélaga og fara í þessa vinnu og
skoða sérstaklega hvort það er
skynsamlegt að flytja öldrunarmál-
in og heilsugæsluna til sveitarfé-
laga.“
Jón segir þessar hugmyndir helg-
ast af því að öldrunarþjónusta og
heilsugæsla séu samtvinnuð fé-
lagsþjónustunni, undir heilsugæslu
heyri heimahjúkrun og heimaþjón-
usta. „Þetta hefur reynst mjög vel
þar sem við erum með þjónustu-
samninga, eins og á Akureyri og
Höfn, og við erum með vinnu í gangi
í Reykjavík í þessari samþættingu,“
segir ráðherra.
Best komið undir einni stjórn
„Ég er þeirrar skoðunar að þetta
væri best komið undir einni yfir-
stjórn. Og það myndi efla sveitar-
félögin mjög ef þau fengju tekju-
stofna og völd til að sinna þessu en
til þess að það megi verða verða þau
að sameinast í ríkara mæli heldur
en þau hafa gert, þannig að mér
finnst að þetta verði allt saman að
fara saman og við verðum að fara í
þessa vinnu jafnhliða félagsmála-
ráðuneytinu. Ég ætla að skipa í
þetta starfshóp og skipa svo tengilið
við nefndir félagsmálaráðherra sem
ynni þá með þeim og kæmi í veg fyr-
ir að það væri tvíverknaður þarna á
ferðinni.“ Ráðherra á ekki von á að
niðurstaða liggi fyrir í bráð. „Þetta
er mjög flókið verkefni, heilsu-
gæslustöðvarnar eru samtengdar
sjúkrahúsum víða um landið þannig
að menn þurfa að fara mjög vel yfir
þetta og gefa sér í það tíma, þannig
að ég myndi nú gefa þessum starfs-
hópi eitthvert svigrúm til þess.“
Heilbrigðisráðherra vill skoða færslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga
Rætt um að sveitarfélög
taki yfir öldrunarþjónustu
VERKEFNIÐ Dagblöð í skólum,
sem starfrækt hefur verið í grunn-
skólum Reykjavíkur síðustu ár fyr-
ir nemendur í 3. og 7. bekk, er að
hefja göngu sína á nýjan leik. Verk-
efnið er samstarfsverkefni
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og
útgáfufélaga Morgunblaðsins og
DV en tilgangurinn er að nota dag-
blöð sem stuðningsefni í kennslu.
Að sögn Auðar Huldar Kristjáns-
dóttur verkefnisstjóra tóku 4.700
nemendur í 3. og 7. bekk frá 60
skólum þátt í verkefninu í fyrra en
þeir voru 3.500 frá 44 skólum árið á
undan. Búast má við að fjöldi þátt-
takenda verði svipaður í ár ef ekki
meiri. Krakkar í 3. og 7. bekk fá
verkefnabækur sem þau vinna með
og dagblöð send til sín í tiltekinn
tíma á skólaárinu til að vinna úr. Að
sögn Auðar fá nemendur í 10. bekk
í þeim skólum sem þátt taka í verk-
efninu einnig blaðasendingar til að
nota við verkefnavinnu.
Nokkrir skólar á landsbyggðinni
óskuðu eftir þátttöku í vetur og
fengu sendar bækur og blöð. Í lok
febrúar var haldin kynning fyrir
kennara á Akureyri og þar mættu
fulltrúar frá fimm af sex grunn-
skólum bæjarins. Sjöundu bekkjum
var boðið upp á heimsóknir á dag-
blöðin síðasta vetur og nýttu flestir
skólar sér það. Bæði kennarar og
nemendur voru ánægðir með heim-
sóknirnar, að sögn Auðar. Samtals
tók Morgunblaðið á móti 64 hópum
og DV fékk 53 heimsóknir.
Verkefnið Dagblöð í skólum hefur göngu sína á nýjan leik
Morgunblaðið/Jim Smart
Kennarar í 3. bekk hlýddu í síðustu viku á kynningu á verkefninu „Dagblöð í skólum“ í Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur. Í þessari viku verður kennurum í 7. bekk boðið upp á sams konar kynningu á verkefninu.
Að minnsta kosti 60 skólar taka þátt
GUNNARI Erni Örlygssyni alþing-
ismanni var ekki gerð sérstök refsing
fyrir umferðarlagabrot sem ríkissak-
sóknari krafðist í fyrradag að hann
yrði dæmdur í eins mánaðar fangelsi
fyrir.
Ákærði játaði að hafa hinn 4. ágúst
2001 ekið bifreið sviptur ökurétti á
103 km hraða á klukkustund suður
Norðurlandsveg við Hvalshöfða í
Húnaþingi vestra, en þar var leyfður
hámarkshraði 90 km. Var þetta í
þriðja sinn sem hann gerðist sekur
um akstur bifreiða sviptur ökurétti en
viðurlög við slíkri háttsemi varða
samkvæmt dómvenju 30 daga fang-
elsi, segir í dómi héraðsdóms.
Með dómi í júlí í fyrra hlaut ákærði
hálfs árs fangelsi, þar af 3 mánuði
skilorðsbundna í þrjú ár, auk tveggja
milljóna króna sektar, fyrir brot á
lögum um umgengni um nytjastofna
sjávar, lögum um stjórn fiskveiða,
tollalögum, lögum um bókhald og al-
mennum hegningarlögum.
Brotið nú var dæmt sem hegning-
arauki við þennan dóm. Að mati dóm-
ara hefði ákærða ekki verið gerð
hærri refsing en hann hlaut með dóm-
inum frá í júlí í fyrra ef dæmt hefði
verið í málunum í einu lagi. Var hon-
um því ekki gerð sérstök refsing í
málinu.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Verjandi ákærða
var Örn Clausen hrl. Málið sótti Kol-
brún Sævarsdóttir saksóknari hjá
ríkissaksóknara.
Breytir engu varðandi þing-
mennskustörf Gunnars Arnar
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segir að dóm-
urinn breyti engu varðandi störf
Gunnars fyrir flokkinn á Alþingi.
„Dómarinn kemst að þeirri niður-
stöðu að þó að málið hefði verið tekið
samhliða þessu kvótamáli frá í fyrra
þá hefði hann ekki hlotið meiri refs-
ingu. Hann var með refsingu á bakinu
vegna þess dóms er við tókum afstöðu
til Gunnars Arnar sem frambjóðanda
fyrir flokkinn. Við töldum hann
kjörgengan og samkvæmt þessum
dómi hefði það ekki breyst. Þar af
leiðandi er afstaða okkar til þing-
mennskustarfa hans sú sama, við telj-
um að hann hefði eftir sem áður verið
kjörgengur,“ sagði Guðjón Arnar.
Hann sagði að ekki hefði munað
nema rúmri viku að umferðarbrotið
væri fyrnt í kerfinu. „Það var búið að
liggja í þagnargildi í tæp tvö ár.
Framið 4. ágúst 2001 en þingfest hjá
dómi 24. júlí 2003 og vantaði því bara
11 daga að það væri fyrnt. Ég held að
menn séu almennt ekki að leita að
sektarmiðum í kerfinu til að greiða ef
þeir fá ekki rukkun eða neina stefnu.
Það kannski skýrir að Gunnar hafi
álitið að þetta mál væri fallið niður af
einhverjum orsökum, án þess þó að
ég geti nokkuð sagt um hvers vegna
hann sagði okkur ekki af þessu máli
fyrir kosningar,“ sagði Guðjón Arnar.
Hann sagðist ekki mæla því bót að
menn brytu lögin en mál þetta breytti
engu um stöðu Gunnars Arnar sem
þingmanns. „Ef við hefðum átt að
leggja sama mat á það hvort hann
væri kjörgengur fyrir kosningar mið-
að við þennan dóm þá hefði það verið
okkar niðurstaða að hann væri það.
Lögin segja fyrir um það að séu menn
ekki með meiri fangelsisrefsingu á
bakinu en fjóra mánuði séu þeir kjör-
gengir.“
Dæmt í máli Gunnars Arnar Örlygs-
sonar, þingmanns Frjálslynda flokksins
Ekki gerð sérstök
refsing vegna
umferðarbrota
MIKLAR skemmdir voru unnar í
innbroti í Grunnskólanum á Ísafirði í
fyrrinótt. Þegar starfsfólk kom til
vinnu var búið að valda skemmdum á
hurðum á skrifstofum og millihurð-
um í byggingunni. Ekki er vitað
hvort einhverju var stolið. Svo virð-
ist sem að sá eða þeir sem brutust
inn hafi leitað að lyfjum, en aðstæður
bentu til þess. Innbrotið er óupplýst.
Um er að ræða annað innbrotið í
skólann á fáeinum dögum, en brotist
var inn í skólann aðfaranótt laugar-
dags. Unnar voru skemmdir í bygg-
ingunni, en tjón af völdum innbrot-
anna nemur hundruðum þúsunda.
Brotist inn í
Grunnskóla
Ísafjarðar
VERKALÝÐS- og sjómannafélagið
Grettir á Reykhólum tekur þátt í
sameiningu verkalýðsfélaga á Vest-
fjörðum. Tillaga um sameiningu við
Verkalýðsfélag Vestfirðinga var
samþykkt í allsherjaratkvæða-
greiðslu. Grettir er 11. félagið sem
gengur til liðs við sameinað félag.
Grettir vill
sameiningu
♦ ♦ ♦