Morgunblaðið - 11.09.2003, Side 18
AUSTURLAND
18 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
Handfært bókhald
Tölvugrunnur
Ritvinnsla
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Glærugerð
Mannleg samskipti
Tölvubókhald
Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
í mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær.
Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!.
Steinunn Rósq, þjónustu-
fulltrúi,
Íslenska Útvarpsfélaginu
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli Íslands
B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6
Opið til kl. 22.00
HELDUR óvenjulegt brúðkaup var
á dögunum haldið við Hafursá,
skammt norðaustan Snæfells.
Brúðhjónin Arna Jóhannsdóttir og
Christen Nørgaard eru búsett á
Jótlandi í Danmörku og voru hér á
hreindýraveiðum og í fjöl-
skylduheimsókn, þegar brúðkaupið
var ákveðið með skömmum fyr-
irvara.
„Við fórum upp eftir um morg-
uninn, vorum með eitt leyfi á tarf,
sem Christen skaut síðan,“ segir
Arna. „Við eigum von á okkar
fyrsta barni, svo að ég hleyp ekki á
eftir hreindýrum þessa dagana.
Christen fór svo og þvoði stígvél
og hendur og hitti mig í fallegri
laut við Hafursá, rétt hjá Hafurs-
felli. Þar var sr. Lára G. Odds-
dóttur sóknarprestur á Valþjófs-
stað komin þeirra erinda að gefa
okkur saman og aðrir viðstaddir
voru foreldrar mínir og systir,
hennar maður og börn og ein
frænka.“
Athöfnin símuð til Danmerkur
með handfrjálsum búnaði
„Tengdaforeldrar mínir búa úti í
Danmörku, en höfðu ekki mögu-
leika á að koma, svo að við settum
bara handfrjálsan búnað á símann
hennar Maríönnu systur og næld-
um í prestinn. Þannig heyrðu
tengdaforeldrar mínir allt saman í
gegnum símann til Danmerkur.“
Arna segir þau Christen ekki
mikið fyrir tilstand og því hafi þau
kosið að hafa þennan háttinn á.
„Við höfðum einhvern tímann
talað um þetta í gríni, en þegar við
vorum nú komin hingað á veiðar
ákváðum við að slá til.“
Eftir athöfnina var boðið upp á
veitingar í lautinni. „Jú, það var
smurt, sjáðu til, og með því kampa-
vín,“ segir Arna kankvís. „Svo spil-
aði frænka mín Ísland er land þitt
á þverflautu. Það var ofsalega fal-
legt veður þennan dag og sól allan
tímann. Það var blástur af jökl-
inum, en þennan dag hefði veðrið
ekki getað verið fallegra.“
Arna og Christen eru sem fyrr
segir búsett á Jótlandi. Hún er
nuddari og nálastungusérfræð-
ingur og hann skógfræðingur og
að auki stunda þau bæði veiðar.
Óvenjulegt brúðkaup var á dögunum haldið við Hafursá, norðaustan Snæfells
Skaut tarf og brá sér svo í
næstu laut til að kvænast
Ljósmynd/MJ
Sr. Lára G. Oddsdóttir gefur Jótlandsbúana Örnu Jóhannsdóttur og Christen Nørgaard saman við Hafursá.
Egilsstaðir
LANDSVIRKJUN hefur undirritað
samninga við Fosskraft JV (E. Phil &
Søn, Hochtief Construction AG, Ís-
lenska aðalverktaka og Ístak hf.) um
gerð stöðvarhússhvelfingar Kára-
hnjúkavirkjunar. Þessir aðilar áttu
lægsta tilboð í verkið og er samning-
urinn gerður á grundvelli þess. Upp-
hæð hans er um 8,3 milljarðar króna.
Friðrik Sophusson forstjóri undir-
ritaði samninginn f.h. Landsvirkjun-
ar en f.h. Fosskrafts undirrituðu Sör-
en Langvad, E. Phil & Søn, Harald
Wolf og Robert Simoni, Hochtief,
Stefán Friðfinnsson, ÍAV, og Loftur
Árnason, Ístaki.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Samningur
um gerð
stöðvarhúss-
hvelfingar
Kárahnjúkar
girðingu. Ekki mun útstillingin vera af listrænum toga
sérstaklega, heldur er verið að selja bolina vegfar-
endum.
ÞEGAR ekið er um Helgustaða-
hrepp í Fjarðabyggð má við bæ-
inn Helgustaði sjá stuttermaboli blakta tugum saman á
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Blaktandi bolir til sölu
Fjarðabyggð
SÍLDVEIÐISKIPIN eru nú óðum
að útbúa sig fyrir síldarvertíðina.
Í gær voru Örn KE, Birtingur NK
og Sunnutindur SU að taka síldar-
næturnar um borð í skipin í Nes-
kaupstað og gera sig klár til að halda
á miðin.
Menn eru hóflega bjartsýnir á
komandi síldarvertíð með það í huga
að ástand sjávar er óvenjulegt við
landið og sjómenn eru smeykir við
breitt hegðunarmynstur síldarinnar
vegna þess. Þá hefur lítið sem ekkert
orðið vart við síld austan við landið í
haust og þeir bátar sem á miðin eru
komnir hafa lítið sem ekkert orðið
varir við síld.Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Hófleg
bjartsýni á
síldarvertíð
Neskaupstaður