Morgunblaðið - 11.09.2003, Síða 22
LISTIR
22 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Viðtöl um dauðann
Það var frábær hugmynd hjá
Helgu Hansdóttur öldrunarlækni að
hafa samband við Magnús Pálsson
myndlistarmann og koma á sam-
vinnu þeirra á milli. Helga átti í fór-
um sínum allnokkur viðtöl við aldr-
aða um viðhorf þeirra til nútíma
lækningameðferða á hinstu stund. Í
þessum viðtölum fann hún eitthvað
sem henni fannst með réttu eiga er-
indi til almennings og leitaði til
Magnúsar Pálssonar myndlistar-
manns með það í huga að hann skap-
aði þessu efni viðeigandi umgjörð.
Afrakstur samvinnu þeirra má nú sjá
og heyra í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Viðtöl Helgu voru skráð
og eru á sýningunni lesin af leikur-
um, þau heyrast í heyrnartólum og
útvarpstækjum. Í þeim koma fram
brot úr daglegu lífi, mismunandi við-
horf, lífsviska og reynsla þeirra sem
eiga langt líf að baki.
Magnús Pálsson hefur skapað við-
tölunum leikræna umgjörð með því
að stilla upp gömlum hlutum, göml-
um viðtækjum og húsgögnum. Einn-
ig gefur að líta gömul föt á slám, sem
minna á dánarbú. Hann hefur látið
smíða inn í salinn hallandi veggi sem
skapa brenglun á rýminu, eitthvað
sem kippir undan manni fótunum og
er það sterkasti þáttur innsetning-
arinnar, þar kemur fram ákveðin
samsvörun við það hvernig mætti
ímynda sér að að skyndileg nálægð
dauðans umbreyti veruleikanum.
Auk þess sýnir hann tvö myndbönd
sem eru af nútímalegum toga, eitt af
línuriti í mónitor og annað af hjarta
sem slær. Umgjörð Magnúsar er
sterk en ég velti því fyrir mér hvort
sá fortíðarblær sem er yfir innsetn-
ingunni skapi kannski fjarlægð sem
síður er að finna í viðtölunum sjálfum
en ekkert í þeim gefur ákveðið tíma-
bil til kynna annað en daginn í dag.
Myndböndin eru þó öllu nútímalegri
og gera það að verkum að lífið og
endalokin færast nær hvort öðru líkt
og í viðtölunum sjálfum. Magnúsi
tekst líka á undraverðan hátt að
vinna með salinn í Hafnarhúsinu sem
yfirleitt er svo erfiður viðureignar.
Honum tekst að skapa úr honum
heilsteypt, áhrifamikið og eftirminni-
legt rými, sambland af kuldalegu al-
menningsrými og innilegu einka-
rými.
Það er óskaplega ánægjulegt að
sjá samvinnu af þessu tagi verða til
og sýnir svo sannarlega að lifandi
sköpun einskorðast langt í frá við
hinar svokölluðu skapandi stéttir.
Fátt er jafn spennandi og að sjá þeg-
ar möguleikar myndlistarinnar eru
nýttir líkt og hér er gert og ekki síst
að sjá svo augljóslega hvernig vís-
indin geta auðgað listina og öfugt.
Sýningin er þess utan afar aðgengi-
leg og á erindi við alla.
Ryk
Myndlistarverk geta að sjálfsögðu
verið tvívíð eða þrívíð og verk Ingu
Jónsdóttur eru hvort tveggja, en líkt
og fleiri leitast hún einnig við að inn-
lima fjórðu víddina í verk sín, nefni-
lega tímann. Inga leitar verksum-
merkja hans í einu af því sem sýnir á
hversdagslegan hátt flug tímans,
nefnilega ryksöfnun. Það hefur
löngum verið höfuðverkur myndlist-
armanna hvernig innlima má tímann
í myndlistarverk, þetta var til að
mynda eitt af því sem hélt Marcel
Duchamp uppteknum, hvernig hann
gæti sýnt hreyfingu og tíma í verkum
sínum. Þetta er sígilt þema.
Verk Ingu Jónsdóttur bjóða fyrst
og fremst upp á hugleiðingu um
framvindu tímans. Myndbandsverk
hennar í Gryfju er heillandi verk þar
sem áhorfandinn gleymir sér auð-
veldlega í að horfa á hvernig myndin
breytist og á samspil myndarinnar
við það sem henni er varpað á, hvítan
sandinn. Verkin uppi í Ásmundarsal
hafa yfir sér formlegra fagurfræði-
legt yfirbragð sem aðskilur þau frá
t.d. verkum Fluxus-listamanna sem
einnig unnu með hversdagsleg efni.
Japansk-þýska listakonan Suchan
Kinoshita sem vinnur mjög innan
ramma Fluxus-hreyfingarinnar
gerði t.a.m. innihald ryksugupokans
heima hjá sér að aðalsýningarefni
sýningar sinnar í Amsterdam fyrir
fáeinum árum. En Inga gengur
lengra í verkum sínum, hún kýs að
gera umgjörðina að sterkum hluta
verkanna og spyrja þannig spurn-
inga um umbúðir og innihald lista-
verka um leið og hún víkur ekki frá
aðalþema sínu, hinni eilífu hringrás.
Inga hefur í verkum sínum á síð-
ustu árum gjarnan gert fortíðina og
tímann að viðfangsefni verka sinna
bæði í ljósmyndum og þrívíðum
verkum. Úr því næstum því engu
sem rykið er hefur henni nú á ein-
faldan hátt tekist að skapa heil-
steypta marglaga sýningu sem allt í
senn sýnir hversdaginn sem hluta af
stærri heild, hinni stóru hringrás,
jafnframt því sem hún veltir fyrir sér
framsetningu, eðli og eiginleikum
listaverka í dag.
Töfratákn
Á blaði sem fylgir með sýningu á
allnokkrum verkum Kristins Péturs-
sonar (1896–1981) sem nú eru sýnd í
Arinstofu Listasafns ASÍ er Kristinn
réttilega nefndur huldumaður í ís-
lenskri myndlist. Í bók sinni Ís-
lenskri myndlist gerir Björn Th.
honum nokkur skil og leitar jafn-
framt skýringa á því að ekki hafi bor-
ið meira á þessum ágæta málara.
Hann nefnir þar að Kristinn hafi ekki
troðið nýjar brautir og ekki verið
stór áhrifavaldur, auk þess aldrei
staðið á frægðartindi. En útilokar
ekki að síðar meir gætu handverk
hans vakið undrun.
Nú sýnir listasafnið olíu-
málverk eftir Kristin, verk
frá fimmta og sjötta ára-
tug síðustu aldar. Þar má
glögglega sjá áhrif frá
Kandinsky, en verk hans
og skrif urðu Kristni hálf-
gerð opinberun á ferlinum
og tvímælalaust sú hvatn-
ing sem hann þurfti til að
stíga skrefið í átt að óhlut-
bundnara málverki. Hug-
lægur hluti málverksins
var Kristni mikilvægur,
líkt og Kandinsky, en
þekkt er rit hans Uber das
Geistlige in der Kunst, Um
hið andlega í listinni. Þetta
kemur fram til dæmis í
litanotkun Kristins í lands-
lagsmyndunum sem benda
til huglægrar upplifunar af
umhverfinu frekar en
beinnar sjónrænnar
reynslu.
Pétur Már
í Galleríi Dvergi
Í litlu og óvenjulegu
sýningarrými Gallerís
Dvergs við Grundarstíg
sýnir Pétur Már Gunnars-
son (f. 1975) nú innsetn-
ingu sem er í anda þema
sýninganna sem hér hefur
verið fjallað um, hringrás
lífsins, tíminn, dauðinn.
Hann bætir líka ástinni
við. Innsetningin er í sam-
spili við rýmið sem er lítið
kjallaraherbergi með lágri
lofthæð og minnir helst á
geymslu. Innsetning Pét-
urs samanstendur af ólík-
um hlutum sem finna
mætti í mörgum bílskúrnum eða
geymslunni, þeim hefur hann komið
fyrir á borði og breitt undir þá græn-
an dúk. Þetta eru m.a. verkfæri, tóm-
ar flöskur o.fl. að ógleymdum bókum
og einnig er þar ljósritabunki af bón-
orðsbréfum og svörum. Innsetningin
minnir dálítið á verk Ilya Kabakov
sem gjarnan býr til ímynduð rými í
kringum tilbúnar persónur. Í kjall-
arakompunni skapast skemmtilegt
andrúmsloft í kringum þessa hluti.
Þegar ég kom að skoða var auk þess
nærvera yfirsetustúlkunnar og vin-
konu hennar stór hluti af sýningunni
en líflegt spjall þeirra um myndlist-
armenn var eins og lifandi viðauki við
innsetninguna.
Spennandi sunnudagsgöngutúr
Það er með ólíkindum hversu vel
þessar fjórar sýningar sem hér hefur
verið fjallað um falla saman hvað
varðar viðfangsefni og þemu, það er
næstum synd að þær skuli ekki allar
vera í sama húsinu. Á móti kemur
smæð borgarinnar og þar með mögu-
leikinn á stórskemmtilegum og fjöl-
breyttum sunnudagsgöngutúr. Rétt
er að minna á óvenjulegan opnunar-
tíma Dvergsins sem er milli 17 og 19.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús
Til 14. september. Hafnarhúsið er opið
alla daga vikunnar kl. 11–17 og fimmtu-
daga kl. 11–18.
VIÐTÖL UM DAUÐANN, BLÖNDUÐ TÆKNI,
MAGNÚS PÁLSSON
OG HELGA HANSDÓTTIR
Memento mori
Innsetning Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns í samvinnu við Helgu
Hansdóttur öldrunarlækni í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Hin eilífa hringrás, frá sýningu Ingu
Jónsdóttur, RYK, í Listasafni ASÍ.
Listasafn ASÍ við Freyjugötu
Til 21. september. Listasafn ASÍ er opið
þriðjudaga til sunnudaga kl. 14–18.
ÁSMUNDARSALUR OG GRYFJA
RYK, BLÖNDUÐ TÆKNI,
INGA JÓNSDÓTTIR
Gallerí Dvergur, Grundarstíg 21
Til 12. október.
ARINSTOFA
TÖFRATÁKN, MÁLVERK,
KRISTINN PÉTURSSON
Til 14. september. Galleríið er opið
fimmtudaga til sunnudaga kl. 17–19.
BLÖNDUÐ TÆKNI,
PÉTUR MÁR GUNNARSSON
Ragna Sigurðardóttir
ASÍ dustar rykið af málara sem ekki fór mikið
fyrir en þar má nú sjá verk Kristins heitins
Péturssonar í Arinstofu.
KÍNVERSKI fiðluleikarinn Chuan-
yun Li leikur á opnunartónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói í kvöld kl. 19.30. Hljómsveit-
arstjóri er Rumon Gamba. Efnis-
skráin er sú sama og fyrirhuguð var á
tónleikunum í síðustu viku þegar Max-
im Vengerov veiktist svo áhugasamir
geta enn náð því að heyra Tzigane og
Symphony Espagnole eins og til stóð í
síðustu viku.
Á efnisskránni verður Gamanfor-
leikur í C-dúr eftir Victor Urbancic,
España eftir Emmanuel Chabrier,
Siesta eftir William Walton, Capriccio
espagnol op. 34 eftir Nikolai Rimsky-
Korsakov, Symphonie espagnole op.
21 eftir Edouard Lalo og eftir Maurice
Ravel Tzigane.
Chuanyun Li var aðeins 11 ára
gamall þegar hann vann til fyrstu
verðlauna í fimmtu alþjóðlegu Wien-
iawski fiðlukeppninni og er þar með
yngstur allra sem hafa unnið til verð-
launa í þeirri keppni. Þetta var árið
1991 og var það samdóma álit allra 20
dómarana frá 11 löndum að þar væru
sérstakir hæfileikar á ferð.
Li hóf fiðlunám sitt í heimahúsum
aðeins þriggja ára að aldri og fyrstu
verðlaun fyrir leik
sinn hlaut hann
fimm ára gamall í
fiðlukeppni meðal
ungs fólks í Pek-
ing. Árið 1986
flutti hann ásamt
fjölskyldu sinni til
Hong Kong þar
sem hann hélt
áfram námi. Að
því loknu sneri hann aftur til Peking
þar sem hann var undir handleiðslu
hins heimskunna fiðlukennara Yaoji
Lin í Peking. 1996 hlaut hann fullan
námsstyrk frá Juilliard-tónlistarskól-
anum í New York en þar voru kenn-
arar hans Dorothy DeLay, Itzak Perl-
man og Hyo Kang. Hann hefur hlotið
fjölda verðlauna og komið fram með
hljómsveitum víða um heim.
Hann kom hingað til lands árið 1995
og lék þá fiðlukonsert nr. 1 eftir Pag-
anini. Li leikur á Guadagnini fiðlu frá
1773.
Í efnisskrá tónleikanna segir m.a.:
„Urbancic samdi Gamanforleikinn
árið 1952 og tileinkaði Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Forleikurinn var
frumfluttur á tónleikum hljómsveit-
arinnar í Þjóðleikhúsinu 30. sept-
ember 1955, undir stjórn tónskáldsins.
Á síðustu áratugum 19. aldarinnar
og fyrstu áratugum þeirrar 20. var
spænsk tónlist að nokkru leyti sér-
grein franskra tónskálda. Spænska
bylgjan hófst með óperunni Carmen
eftir Georges Bizet og Symphonie
espagnole eftir Edouard Lalo (bæði
verkin samin 1875), og áður en leið á
löngu var nærri því hvert tónskáld á
franskri grund farið að semja tónlist
með spænsku ívafi. Massenet, Chabr-
ier, Delibes, Ravel og Debussy urðu
allir fyrir áhrifum af spænskri tónlist,
og fyrr en varði tóku tónskáld annarra
landa að bætast í hópinn, t.d. Rússinn
Rimsky-Korsakov (Capriccio espagn-
ol). Tvö tónskáldanna sem leikin verða
í kvöld voru þó hálfspænsk og því má
segja að þau hafi að einhverju leyti
verið á heimavelli.
Emmanuel Chabrier (1841–1894)
samdi frægasta verk sitt, hljómsveit-
arforleikinn España, árið 1883. Ári áð-
ur hafði hann farið með fjölskyldu
sinni til Spánar og orðið hugfanginn af
landi og þjóð. Aðalstef verksins eru
sótt í spænskan þjóðararf.
William Walton (1902–1983) er tal-
inn einn af merkustu tónskáldum
Breta á 20. öld. Smáverkið Siesta er
hylling til Ítalíu, sem var eitt af uppá-
haldslöndum Waltons. Það var samið
1926 og frumflutt sama ár undir stjórn
tónskáldsins, en endurskoðað 1962.
Nikolai Rimsky-Korsakov (1844–
1908) samdi Spænsku kaprísuna
(Capriccio espagnol) árið 1887 og
hugsaði sér hana upphaflega fyrir
fiðlu og hljómsveit. Hann skipti fljótt
um skoðun og þegar upp var staðið
var kaprísan hljómsveitarverk án ein-
leikara.
Þrátt fyrir að hafa samið ógrynni
verka af ýmsum toga – þeirra á meðal
sjö verk fyrir fiðlu og hljómsveit –
hvílir frægð Edouards Lalo (1823–
1892) aðallega á einu verki: Symphon-
ie espagnole. Lalo samdi verkið handa
einum frægasta fiðluleikara álfunnar á
síðari hluta 19. aldar, Spánverjanum
Pablo de Sarasate. Sarasate frumflutti
Fiðlukonsert Lalos í F-dúr snemma
árs 1874, og Lalo lauk við Spænsku
sinfóníuna skömmu síðar.
Maurice Ravel (1875–1937) var alla
tíð heillaður af Spáni og samdi fjöl-
mörg tónverk sem byggjast á
spænskri tónlist.Tzigane á rætur sínar
að rekja til tónleika sem Ravel var við-
staddur á einkaheimili í Lundúnum
veturinn 1922. Tzigane er franska orð-
ið yfir sígauna, og verk Ravels var frá
upphafi hugsað sem stutt virtúósa-
stykki í sígaunastíl.“
Kínverskur fiðluleikari á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói
Chuanyun Li tekur upp
bogann í stað Vengerovs
Chuanyun Li