Morgunblaðið - 11.09.2003, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞÁ er hinn árvissi bændagrátur skoll-
inn á með fullum þunga. Og það í öll-
um gerðum af fjölmiðlum. Þeir gráta
„hvíta bankakjötið“, hvernig það hef-
ur leikið offramleiðsluna þeirra,
„rauða ríkiskjötið“. Uhuuuuuuuuuuu-
uuu. Ljótu bankarnir sem dæla pen-
ingum í hvíta kjötið með þeim afleið-
ingum að almenningur er búinn að
gleyma ketinu þeirra sem framleitt er
á kostnað landsmanna og gróðurs
landsins.
Allir formenn hinna ýmsu bænda-
samtaka jafnt sem bændur hafa
kveinað. Og ekki stendur heldur á
landbúnaðarráðherra og alþingis-
mönnum á sífelldum atkvæðaveiðum.
Og á meðan heldur landinu áfram
að blæða út. Sandurinn svíður restina
af grasinu, vatnið sverfur og sverfur
gróðurlausan jarðveginn, kindurnar
grafa holur í moldarbörðin og moldin
heldur áfram að fjúka út í hafsauga.
Hvað eru menn að hugsa á 21. öld-
inni? Er ekki kominn tími til að
tengja? Það eru alltof, alltof, alltof
margar rollur sem naga hina grænu
kápu fjallkonunnar og alltof, alltof,
alltof margir rolluskrokkar (lamba-
ket) afgangs að hausti, sem við hvorki
viljum né getum étið. Við verðum auk
þess bara feitari, feitari og feitari af
öllu þessu kjötáti. Burt með féð af
fjöllum. Það hefur nagað nógu mörg
göt í grassvörðinn og hleypt þar með
vatni og vindi í sárin. Sárast af öllu er
þó að ala rasssíða útlendinga á við-
kvæmum gróðri landsins, þar sem
reynt er að selja þeim umframbirgðir
af ketinu því arna fyrir lítið.
Ég bara skil ekki hvernig á því
stendur að rolluskjáturnar skuli vera
svona réttháar í þessu landi, að hafa
öld eftir öld, haft einkarétt á hinum
villta gróðri landsins og „blóðsogið“
hann. Sannkallaðar lýs landsins.
Reyndar hafa hreindýr og hestar
bæst í hópinn.
Nú er tækifærið fyrir bændur að
hætta offramleiðslu þessarar tegund-
ar kjöts og koma svo restinni af roll-
unum í beitarhólf. Hættum að níðast á
landinu með þessari hirðingjaaðferð.
Næg vinna í þéttbýlinu. Vita fjár-
bændur (já, og nautakjötsframleið-
endur) ekki að það þarf að flytja inn
fólk til landsins til að hægt sé að vinna
fiskinn okkar? Vita þeir ekki að það
þarf að flytja inn fólk til vinnu á Aust-
fjörðum? Flest hótelin eru mönnuð
með útlendingum. Nú er tækifærið
fyrir bændur að hætta þessum kotbú-
skap og fá almennilega borgaða
vinnu. Auk þess mundi almenningur
þá losna við að borga beingreiðslur til
þeirra sem hætta, að ég tali nú ekki
um, hvað sjónmengunin af völdum
þessara skelfilega, skelfilega, skelfi-
lega ljótu plasthauga þeirra mundi
minnka. Færri plasthaugar, ekki
satt?
Þetta árlega bændakvein endar
alltaf á einn veg; ríkisstjórnin grípur
inn í og gefur þeim enn einu sinni dá-
góða summu af peningum lands-
manna, til að lengja í hengingarólinni
þeirra. Er það kannski það sem
bændur vilja?
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Melteigi 4, Akranesi.
Frá Margréti Jónsdóttur
Morgunblaðið/RAX
„Bændavæll 2003“
Í hernaði áttavilt heimsmenning er
og hryðjuverk gerast það dagurinn sver.
Sterk aðför að lífi er hvers-dags-frétt hér
því hraði til björgunar vökumenn sér.
Ei hatur og illvilja-hugfesta má,
Þar hefndin er mögnuð og rót sína á.
En ráðsmennska ómannleg ofraun varð sú
og af því fer versnandi heimsbölið nú.
Ef sýnir þú skilning og sanngirni fljótt
þá sáttargerð kemur og vinarþel skjótt
og elsku Guðs þegar í Syninum sérð
þú samtímis átt nær í ljósið hans ferð.
Hervæddur heimur,
misrétti og manndráp
samrýmast ekki mannhelgi
Pétur Sigurgeirsson
Þá kom formyrkvun yfir allt
Lag: Í fornöld á jörðu