Morgunblaðið - 11.09.2003, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2003 41
Grzegorz Tkaczyk var marka-hæstur hjá Magdeburg í leikn-
um með 7 mörk og þeir Stefan
Kretzschmar og Oleg Kulechov
gerðu 6 mörk hvor.
Meistarar Lemgo eru óárennilegir
sem fyrr og þeir sigruðu Wallau-
Massenheim, 38:34. Lemgo hefur
unnið þrjá fyrstu leiki sína. Einar
Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir
Wallau, Rúnar Sigtryggsson komst
ekki á blað en hann var útilokaður
frá leiknum með þrjár brottvísanir á
lokamínútu fyrri hálfleiks. Markus
Baur skoraði 10 mörk fyrir Lemgo
og Florian Kehrmann 9.
Íslendingarnir hjá Wetzlar voru
atkvæðamiklir þegar lið þeirra fékk
Grosswallstadt í heimsókn. Gunnar
Berg Viktorsson var markahæstur
með 6 mörk og Róbert Sighvatsson
3. Það var hins vegar ekki nóg,
Grosswallstadt sigraði, 25:24, og
skoraði Snorri Steinn Guðjónsson
tvö marka liðsins, annað þeirra úr
vítakasti.
Kiel vann Essen, 30:28, og skoraði
Guðjón Valur Sigurðsson eitt mark
fyrir Essen en lið hans hefur tapað
tveimur fyrstu leikjum sínum.
Guðmundur Hrafnkelsson og fé-
lagar í Kronau/Östringen sitja á
botninum eftir þriðja tap sitt en það
var naumt, 30:29 í Minden.
Jaliesky Garcia skoraði eitt mark
fyrir Göppingen sem tapaði, 23:21,
fyrir Wilhelmshavener. Gylfi Gylfa-
son skoraði ekki fyrir heimaliðið.
Flensburg er með fullt hús stiga,
sex eftir þrjá leiki, og vann Gumm-
ersbach, 32:29. Lars Christiansen
skoraði 8 mörk fyrir Flensburg en
Kyung-Shin Yoon var atkvæðamest-
ur hjá Gummersbach með 9 mörk.
Nordhorn hefur heldur ekki tapað
stigi en liðið lék sinn fyrsta leik í
gærkvöld og vann þá Stralsunder,
31:22.
Góður útisigur hjá Magdeburg
LÆRISVEINAR Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg hófu baráttuna um
þýska meistaratitilinn eins og best varð á kosið í gærkvöld. Þeir
sóttu heim lið HSV Hamburg, sem hafði farið vel af stað og unnið
tvo fyrstu leiki sína í deildinni. Frammi fyrir troðfullu húsi, 5.000
áhorfendum, vann Magdeburg góðan sigur, 32:29, og var með yf-
irhöndina allan síðari hálfleikinn. Sigfús Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir Magdeburg í leiknum en þetta var fyrsti leikur liðsins þar sem
það átti fjóra leikmenn í 21-árs landsliði Þýskalands sem tók þátt í
HM á dögunum.
FÓLK
FRAKKAR og Litháar tryggðu
sér sæti í undanúrslitum Evrópu-
mótsins í körfuknattleik í gær en
leikið er í Svíþjóð. Frakkar unnu
Rússa, 76:69, þar sem að Tony Park-
er skoraði 18 stig fyrir Frakka en
Andrei Kirilenko var atkvæðamest-
ur í liði Rússa með 22 stig.
EVRÓPUMEISTARALIÐ fyrrum
Júgóslavíu er úr leik þar sem Serb-
ía/Svartfjallaland tapaði gegn
Litháen 98:82. Ramunas Siskauskas
skoraði 27 stig í liði Litháens en
Djuro Ostojic skoraði 17 stig fyrir
Serbíu/Svartfjallaland en liðið skor-
aði 17 stig gegn engu í upphafi fjórða
leikhluta en leikmenn Litháens náðu
að halda fengnum hlut.
PEDRAG Stojakovic leikmaður
Serbíu/Svartfjallalands komst ekki
á blað í leiknum í gær en hann hefur
átt við meiðsli að stríða á ökkla. Stoj-
akovic er ein besta skytta NBA-
deildarinnar en hann leikur sem
kunnugt er með liði Sacramento
Kings.
Í kvöld mætast Spánn og Ítalía í
undanúrslitum keppninnar auk þess
sem Grikkir leika gegn Ítölum.
ENSKIR fjölmiðlar sögðu frá því í
gær að Roman Abramovich, eigandi
Chelsea, hefði boðið sir Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóra Manchester
United, að koma til Lundúnaliðsins.
Haft er eftir Ferguson að hann hafi
hafnað mjög góðu tilboði Rússans en
það þurfi „meiriháttar hamfarir“ til
að hann yfirgefi fengsæla skútu
Manchester-liðsins.
ALAN Pardew, knattspyrnustjóri
Readings, sagði í gær upp hjá félag-
inu. Hann var ósáttur með að stjórn
þess vildi ekki veita honum leyfi til
að ræða við forráðamenn West Ham
á dögunum. Talið er líklegt að hann
taki við West Ham nú þegar hann er
laus allra mála hjá Reading.
CHRIS Kirkland, markvörður
Liverpool og enska landsliðsins, 21
árs og yngri, meiddist á æfingu með
landsliðinu í fyrrakvöld. Hann, sem
er nýbúinn að jafna sig eftir aðgerð á
hné, verður frá æfingum í mánuð.
GEORGE Weah, fyrrverandi leik-
maður AC Milans, hefur lýst yfir
áhuga á að gerast landsliðsþjálfari
Nígeríu, en það starf mun vera laust
um þessar mundi. Weah lagði skóna
á hilluna í fyrra eftir að hafa sem
leikmaður og landsliðsþjálfari Líb-
eríu stýrt liðinu í úrslitakeppni Afr-
íkukeppninnar í knattspyrnu.
FABRIZIO Ravanelli gerir sér
vonir um að fá samning við enska 1.
deildarliðið Coventry. Ravanelli var
árum saman hjá Derby en hætti hjá
félaginu í vor.
SEX Íslendingar taka þátt í
heimsmeistaramótinu í keilu sem
hefst í Malasíu í dag. Þeir eru: Arnar
Sæbergsson, ÍR, Freyr Bragason,
KFR, Jón Helgi Bragason, ÍR,
Magnús Magnússon, KR, Sigurður
Lárusson, ÍR og Steinþór Geirdal
Jóhannsson, ÍR. Þjálfari liðsins er
Theodóra Ólafsdóttir.
Leiðrétting
Í myndartexta sem fylgdi mynd og umfjöll-
un um val á íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu kvenna var sagt að þar ætti Mar-
grét Lára Viðarsdóttir í hlut. Svo mun ekki
vera heldur var það Laufey Ólafsdóttir sem
bar fyrir augu á myndinni í baráttu við leik-
mann ungverska landsliðsins. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.