Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KEA HÆTT Í VERSLUN
Kaupfélag Eyfirðinga er hætt af-
skiptum af verslunarrekstri. Félagið
er stærsti eigandi Kaldbaks sem
seldi í gær allan eignarhlut sinn í
Samkaupum. Samkaup hafa rekið á
þriðja tug matvöruverslana víða um
land. Stjórnarformaður KEA sagði
þetta vissulega sögulega stund.
Lög um lækningar
Að öllum líkindum mun nefnd á
vegum heilbrigðisráðuneytisins
leggja til að lög verði sett um starf-
semi óhefðbundinna lækninga. Slík
lög hafa verið sett bæði í Danmörku
og Noregi. Í skýrslu nefndarinnar
kemur fram að eftirspurn eftir slík-
um lækningum hefur aukist mikið á
15 árum. Guðmundur Sigurðsson,
læknir og formaður nefndarinnar,
sagði aukna eftirspurn eftir þessari
þjónustu endurspegla óánægju fólks
sem hefði leitað sér lækninga í heil-
brigðiskerfinu.
Fjölskyldufólkið flytur
Rannsókn Sigurðar Sigurð-
arsonar, atvinnuráðgjafa hjá At-
vinnuþróunarfélagi Norðurlands
vestra, bendir til þess að fólks-
fækkun á landsbyggðinni hafi nær
öll verið í aldurshópnum 44 ára og
yngri. Þetta sé sá hópur sem myndi
fjölskylduna og því drifkraftur í
hverju samfélagi. Fækkun í þessum
aldurshópum geti bent til hnignunar
og gefi vísbendingar um að byggðin
sé í vanda. Hann vill auka erlenda
fjárfestingu og sameina sveitarfélög
til að snúa þessari þróun við.
Arafat skipar neyðarstjórn
Yasser Arafat Palestínuleiðtogi
beið þess í gær að taka við embætt-
iseið bráðabirgðaheimastjórnar,
með Ahmed Qurei í forsætisráð-
herrastóli. Átta ráðherrar verða í
stjórninni unz fullskipuð stjórn verð-
ur skipuð síðar. Áður hafði Arafat
lýst yfir neyðarástandi á heima-
stjórnarsvæðunum í kjölfar sjálfs-
morðssprengjuárásar herskás Pal-
estínumanns í ísraelsku hafnarborg-
inni Haifa, sem Ísraelar hafa m.a.
brugðizt við með loftárás á meintar
æfingabúðir samtakanna Íslamskt
djíhad í Sýrlandi.
Írak nýtt eilífðarstríðsfen?
Bandaríkjamenn standa frammi
fyrir því að vera í þann mund að
sökkva í fen langvinns, heiftúðugs og
að endingu gagnslauss stríðs í Írak
sem yrði hliðstætt því sem Sovét-
menn háðu í Afganistan á níunda
áratugnum. Við þessu varaði Vladi-
mír Pútín Rússlandsforseti í viðtali
við The New York Times. Viðræður
standa enn yfir í öryggisráði SÞ um
nýja ályktun um Íraksmálin.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/13 Umræðan 32/34
Erlent 14/16 Minningar 34/39
Höfuðborgin 18 Kirkjustarf 40
Akureyri 19 Bréf 42
Suðurnes 20 Dagbók 44/45
Landið 22 Sport 46/49
Daglegt líf 24/25 Fólk 50/53
Listir 25/27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakar 54
Þjónusta 31 Veður 55
* * *
Dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun
RÚMLEGA þrítugur karlmaður
var í gær dæmdur í tveggja ára
fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness
fyrir að nauðga konu í Sandgerði í
janúar síðastliðnum. Hann var
einnig dæmdur til að greiða fórn-
arlambi sínu 600 þúsund krónur í
miskabætur og aðrar 600 þúsund
krónur í málsvarnarlaun og rétt-
argæsluþóknun.
Maðurinn ók konunni heim af
skemmtistað í Keflavík síðla næt-
ur og fékk leyfi hjá henni til að
fara á salernið hjá henni. Að því
loknu segir konan að hann hafi
þröngvað sér til samræðis gegn
vilja hennar og beitt aflsmunum.
Kvaðst hún hafa orðið skelfingu
lostin, lömuð af hræðslu og hrein-
lega frosið er maðurinn réðst á
hana.
Breytti framburði sínum
Maðurinn neitaði fyrst um sinn
alfarið við yfirheyrslur að hafa átt
samræði við konuna en breytti síð-
ar framburði sínum þegar niður-
stöður DNA-rannsóknar lágu fyr-
ir og kvað þau hafa haft samfarir
að frumkvæði og frjálsum vilja
konunnar.
Dóminum þótti framburður
konunnar, gegn neitun mannsins,
trúverðugur og fann hann sekan.
Segir í dómnum að ekki sé vafi á
því að konan hafi vegna nauðgun-
arinnar orðið fyrir alvarlegu and-
legu og tilfinningalegu áfalli, sem
komi til með að há henni um
ókomna framtíð.
Dóminum þótti einnig að hátt-
semi mannsins bæri merki um
fullkomið virðingarleysi gagnvart
kynfrelsi konunnar. Hún hefði
ekkert þekkt til hans og ekki gefið
honum neitt tilefni til að ætla að
hún vildi hafa við hann kynmök og
hefði að auki beðið hann að hætta
er hann neytti aflsmunar og
þröngvaði henni til kynmaka. Ætti
hann sér engar málsbætur.
SILFUR Egils í umsjá Egils Helgasonar
mun verða á dagskrá Stöðvar 2 í vetur.
Hafa samningar þegar verið undirritaðir,
að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar, for-
stjóra Norðurljósa.
Þættirnir verða tveir í hverri viku, á
laugardögum og sunnudögum á milli
klukkan sex og sjö. Pólitískar umræður
og fréttir vikunnar verða meginviðfangs-
efnið en að sögn Sigurðar mun Egill ráða
efnistökum og hafa frjálsar hendur til að
móta þáttinn.
Silfur Egils á
Stöð 2 í vetur
JÓHANNES M. Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH), segir ljóst að
„slysaleg atburðarás“ hafi átt sér
stað þegar foreldrum veikrar stúlku
var ekki sinnt sem skyldi sl. vor.
Lést stúlkan úr heilahimnubólgu á
gjörgæsludeild spítalans þremur
dögum eftir að hún missti meðvit-
und á heimili sínu. Jóhannes segir
atvikið sýna veikleika í heilbrigð-
iskerfinu þar sem þrír mismunandi
staðir hafi fengist við sama tilfellið
án þess að hafa aðgang að upplýs-
ingum hver annars.
Líkt og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hafa foreldrar stúlk-
unnar kvartað til landlæknis vegna
meintra mistaka við sjúkdómsgrein-
ingu og meðferð sem barnið fékk.
Telja þau að kvartanir foreldra
veikra barna séu ekki teknar nógu
alvarlega þegar hringt er í heil-
brigðisstofnanir, bæði á Lækna-
vaktina og barnadeild LSH. Það
hafi sýnt sig í þeirra tilviki en ítrek-
að höfðu foreldrarnir hringt í heil-
brigðisstofnanir og leitað ráðgjafar
og aðstoðar. Var þeim m.a. sagt að
gefa barninu stíl og bíða og sjá til
hvað gerðist.
Skerpa þarf
vinnulag við símtöl
Í álitsdrögum landlæknis um
þetta mál kemur m.a. fram að hann
telur ástæðu til að endurskoða og
skerpa vinnulag við meðferð símtala
utan úr bæ til heilbrigðisstofnana.
Verulega spurningu megi þannig
setja við afgreiðslu á tveimur sím-
tölum móður stúlkunnar við
Læknavaktina og síðar bráðamót-
töku barnadeildar Landspítalans. Á
hvorugum stað voru gerðar hljóð-
upptökur af símtölum móðurinnar.
Jóhannes bendir á að dag hvern
sé tekið við miklum fjölda símtala á
barnadeild Landspítalans vegna
fyrirspurna frá foreldrum og for-
ráðamönnum veikra barna. Að með-
altali séu þetta um 50 símtöl á dag
og annað eins berist til slysadeild-
arinnar. Því berist spítalanum á
annað hundrað fyrirspurnir daglega
vegna veikinda barna. Þó að lækn-
ingar og ráðgjöf um síma séu vara-
samar sé þó ljóst að einhver hluti
þjónustunnar muni fara fram með
þeim hætti.
Spurður hvort þetta atvik sýni að
heilbrigðisstarfsfólk sé undir svo
miklu álagi í starfi sínu að símtöl
séu afgreidd með þeim hætti sem
gert var vegna stúlkunnar, segist
Jóhannes ekki vilja tjá sig nánar
um einstök atvik. Þó sé ákveðin til-
hneiging til þess að halda frá verk-
efnum sökum álags, einkum á slysa-
og bráðadeild og bráðamóttöku
barnadeildar. Þar sé mesta hættan
á atvikum sem þessum.
Lækningaforstjóri LSH um mál ungrar stúlku er lést úr heilahimnubólgu sl. vor
Slysaleg atburðarás og
sýnir veikleika í kerfinu
Sameiginleg
símsvörun
til umræðu
„MEÐHÖNDLUN veikra barna í
gegnum síma er og verður ávallt
mjög varasöm. Það á að vera meg-
inreglan að skoða fleiri börn heldur
en færri,“ segir Jóhannes M. Gunn-
arsson og upplýsir að umræður hafi
farið fram milli spítalans og heil-
brigðisráðuneytisins um hvernig
standa eigi að símaþjónustu á
Reykjavíkursvæðinu. Brotalamir
séu á þeirri þjónustu og mögulegt
sé að koma upp sameiginlegri sím-
svörun fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Landspítalinn hljóti að koma þar að
málum og m.a. með þjálfun og sí-
menntun þess starfsfólks sem svari
í síma.
ÆFING á vegum Alþjóðabjörg-
unarsveitar Slysavarnafélagsins
Landsbjargar fór fram á Gufu-
skálum á Snæfellsnesi um
helgina. Alls tóku 30 björg-
unarsveitarmenn þátt í henni
og að auki fylgdust nokkrir
Bandaríkjamenn með. Samstarf
hefur verið haft við þá síðustu
ár varðandi rústabjörgun en al-
þjóðasveitin hefur í tvígang
verið send utan vegna jarð-
skjálfta; í Tyrklandi árið 1999
og í Alsír sl. vor. Um svonefnda
úttektaræfingu var að ræða þar
sem fleiri björgunarsveitar-
menn eru tilbúnir til starfa en
þarf í útkall. Var þeim gefinn
kostur á að sýna getu sína og
að þeir gætu starfað við erfiðar
aðstæður erlendis.
Ljósmynd/Daníel Eyþór Gunnlaugsson
Samstarf um rústabjörgun
Ákærður
fyrir að falsa
nöfn föður
og bræðra
REYKVÍSKUR maður hefur verið ákærður
fyrir skjalafals, en manninum, sem er 44
ára, er gefið að sök að hafa falsað nafn föður
síns og tveggja bræðra og sett verðbréf í
þeirra eigu, að verðmæti rúmlega 76 millj-
óna króna, sem tryggingar fyrir eigin verð-
bréfaviðskiptum og öðrum skuldbindingum.
Ríkislögreglustjóri ákærði manninn fyrir
að hafa með þessum hætti blekkt starfs-
menn Sparisjóðabanka Íslands, Lánasýslu
ríkisins og Búnaðarbanka Íslands, og var
málið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gærmorgun.
Veðsetti íbúðir bræðra sinna
Meðal þess sem manninum er gefið að sök
er að falsa undirskriftir tveggja bræðra
sinna og eiginkonu annars þeirra á trygg-
ingarbréf og þar með veðsett íbúðir þeirra
til að tryggja skil sín í viðskiptum við Spari-
sjóðabanka Íslands og Búnaðarbanka Ís-
lands.
Einnig er ákærða gefið að sök að hafa
falsað undirskrift föður síns til að geta lagt
alla verðbréfaeign föðurins, samtals um 46
milljónir, að veði fyrir eigin viðskiptum við
Búnaðarbanka Íslands. Maðurinn er einnig
ákærður fyrir að falsa undirskriftir bróður
og föður á umboð til að kaupa og selja
skuldabréf, hlutabréf og verðbréf fyrir
þeirra hönd.