Morgunblaðið - 07.10.2003, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! !
" !
# $ % %&
' #(#
)## %&
Laugardalur | Íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur (ÍTR) stóð í
gær fyrir árlegum fræðsludegi fyrir
nemendaráð í grunnskólum Reykja-
víkur. Dagurinn var haldinn í Laug-
ardalshöllinni og mættu um 90 ung-
menni til að njóta handleiðslu
fagfólks hjá ÍTR. Markmið dagsins
var að efla starfsemi nemendaráða
og gefa þeim vegarnesti inn í starfið
á komandi vetri. Að auki deila nem-
endaráðsfulltrúar reynslu, sem
skapar fjölbreytni í starfi þeirra í
vetur.
Dagurinn hófst á ávarpi Soffíu
Pálsdóttur, æskulýðsfulltrúa ÍTR,
en síðan tóku við hópeflisleikir í um-
sjón Óttars Hrafnkelssonar, verk-
efnisstjóra hjá ÍTR. Tilgangur
þeirra var að hrista upp í hópnum
fyrir vinnu dagsins og skapa liðs-
anda. Jakob Frímann Þorsteinsson
grunnskólakennari fjallaði um
ábyrgð og hlutverk nemendaráða, en
þau eru talin afar mikilvæg grunn-
eining lýðræðis meðal nemenda í
hverjum skóla og ábyrgð þeirra mik-
il.
Eygló Rúnarsdóttir, verkefn-
isstjóri hjá ÍTR, fjallaði um skipu-
lagningu á uppákomum og hvernig
best er að standa að fundahöldum og
Ottó Tynes, sem stýrir unglinga-
starfi í Tónabæ, tók fyrir hvernig
best er að koma skoðunum og málum
á framfæri. „Þegar maður talar við
hóp af fólki verður fólk að taka mark
á því sem þú segir, annars verður
hálf tilgangslaust að tala,“ segir
Ottó. „Maður verður að vita um hvað
maður er að tala og vera sannfær-
andi. Til þess þarf maður að und-
irbúa sig og við fórum yfir hvernig á
að æfa sig og vera undirbúinn. Síðan
ræddi ég aðeins við þau um að sumir
eru feimnir við að koma fram og aðr-
ir eru öruggir og það er ekki hægt að
kenna öryggi, heldur verður það
koma með æfingu, sem ekkert er
asnalegt við. Sumir þurfa bara að
æfa sig meira en aðrir. Síðan hvatti
þau til að ögra sér svolítið og kýla á
það að takast á við verkefnin, því ein-
hvers staðar á lífsleiðinni verðum við
að standa upp og tala.“
Unglingarnir voru að sögn hressir
með daginn og höfðu bæði gagn og
gaman af deginum. Að sögn Óttars
Hrafnkelssonar var úthald unga
fólksins mikið. „Stemmningin var
mjög góð þó þetta hafi verið mjög
langur dagur. Þau mættu til okkar
níu í morgun og voru búin klukkan
þrjú. Þetta eru náttúrulega ungling-
ar sem hafa valist til forystu, þannig
að þau hafa mikinn kraft. Það var
farið þarna í gegnum atriði eins og
unglingalýðræði og ýmsa hagnýta
hluti varðandi stjórnun funda og
uppákoma.“ Óttarr segir unglingana
hafa verið afar fróðleiksfúsa.
„Klukkan hálf þrjú var kynning á
keppnum vetrarins, til dæmis hæfi-
leikakeppninni „Skrekk“, sem fer
fram fyrir áramót og spurn-
ingakeppninni „Nema hvað?“ og það
dundu yfir okkur spurningar um fyr-
irkomulag og ýmis atriði varðandi
þessar keppnir. Þetta er mjög
spennandi fyrir þau. Þau fá að hitta
aðra krakka í sömu sporum og deila
reynslunni. Það er mjög mismunandi
eftir skólum hvernig nemendaráðin
fá að starfa. Markmiðið með okkar
er að ýta undir að félagsstarfið í skól-
unum verði eins virkt og auðið er.“
Nemendaráð mikilvæg
grunneining lýðræðis
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessi hressu ungmenni voru að læra ýmis hagnýt atriði um starf nemendaráða í grunnskólum.
Fræðsludagur
fyrir unglinga
Hafnarfirði | Nýtt skref í átt til
pappírslauss samfélags var stigið í
Hafnarfirði nú um mánaðamótin, en
sveitarfélagið hefur nú tekið í gagn-
ið rafræna launaseðla fyrir alla
starfsmenn sína og býður nú starfs-
fólki sínu upp á þann möguleika að
fá launaseðilinn sendan með raf-
rænum hætti í gegnum heima-
banka.
Þessi útsending rafrænna launa-
seðla er í samræmi við upplýsinga-
stefnu Hafnarfjarðar. Þar er lögð
áhersla á rafræna miðlun gagna
þegar möguleiki á því er fyrir
hendi. Með rafrænum launaseðlum
er stefnt að því að tryggja aðgengi
starfsmanna að launaseðlum á
öruggum og miðlægum stað.
Þannig eru launaseðlar alltaf til-
tækir, til dæmis við uppgjör skatta.
Mælist vel fyrir
Rafrænn launaseðill er pappírs-
laus og er sendur á rafrænan hátt
frá Hafnarfjarðabæ inn á öruggt
svæði. Seðillinn birtist síðan í þeim
netbanka þar sem launin eru lögð
inn. Allir starfsmenn Hafnarfjarð-
arbæjar sem eru með aðgang að
netbanka geta nú haft þar aðgang
að launaseðlum sínum.
„Þetta hefur farið frekar rólega
af stað, enda fengum við þetta núna
um mánaðamótin,“ segir Steinunn
Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Hafnarfjarðarbæjar. „Fólk fékk
bréf með launaseðlunum nú um
mánaðamótin og er enn að skoða
þennan möguleika, en viðbrögðin
hafa verið jákvæð. Margir starfs-
menn okkar eru tengdir heima-
bönkum og fyrir þá er þetta bara
hið besta mál.
Fólk fær nú launaseðilinn strax
og þarf ekki að bíða eftir póstinum.
Svo eru þeir alltaf til staðar og afar
erfitt að týna þeim, til dæmis þegar
fólk er að vinna skattaskýrsluna.“
Hafnarfjarðarbær er fyrstur ís-
lenskra sveitarfélaga til að bjóða
starfsmönnum sínum upp á rafræna
launaseðla.
Rafrænir
launaseðlar
teknir í
notkun
Tjörnin | Nú er haustið gengið í garð, náttúran
býr sig undir að ganga til náða undir breiðu fall-
inna laufa, sölnaðra grasstráa og dúnsæng snæv-
ar, sem þó er sjaldséður hvítur hrafn í höfuð-
borginni. Skiptar skoðanir eru meðal manna um
haustið. Sumum finnst það drungaleg árstíð, árs-
tíð lækkandi sólar, roks, rigningar og kulda.
Aðrir sjá í haustinu rómantík syfjaðrar jarð-
arinnar með fölri litadýrð sem á engan sinn líka.
Eftir átök sumarsins býr jörðin sig undir ljúfa
hvíld vetrarins. Stemningin í köldum haust-
andvaranum síðdegis er óviðjafnanleg og naut
þessi vel klædda fjölskylda þeirrar ánægju að
ganga um í kaldri og frísklegri haustblíðunni
meðfram Reykjavíkurtjörn.
Morgunblaðið/Ásdís
Haustganga við Tjörnina
Reykjavík | Þórólfur Árnason, borg-
arstjóri Reykjavíkur, mun leggja
næstu fjórar vikur í fundi með íbú-
um hverfa borgarinnar. Hverfa-
fundaátakið hófst í gærkvöldi með
fundi í Fólkvangi
á Kjalarnesi.
Næsti fundur
verður annað
kvöld kl. 20 í
Listasafni
Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu,
þar sem borg-
arstjóri mun
ræða við íbúa
miðborgarinnar. Fundaröðinni lýk-
ur 4. nóvember í Hagaskóla, þar sem
borgarstjóri spjallar við vestur-
bæinga.
Á vef Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is, kemur fram að
með fundunum leggur borgarstjóri
áherslu á að kynna sér málefni
hverfanna á milliliðalausan hátt.
Ennfremur segir þar að framundan
hjá Reykjavíkurborg sé áframhald-
andi flutningur á þjónustu borg-
arinnar út í hverfin, nær þegnunum.
Það nýmæli er á fundunum í ár að
á þeim hefur framsögu, auk borg-
arstjóra, fulltrúi hverfisbúa, sem
gefur innsýn inn í sögu og sérkenni
hverfisins. Fundarstjórar verða for-
menn hverfisráðanna.
Þórólfur Árnason segist spenntur
fyrir því að kynnast íbúunum nánar
á hverfafundum. „Þetta er mér nýtt
og ég er mjög spenntur fyrir því að
fá þarna milliliðalaust samband við
íbúana og vonast til að þeir nýti það.
Ég hef heyrt að hverfafundir hafi
verið vel sóttir undanfarin ár og þar
hafi verið mjög frjó umræða. Þetta
er tvíhliða upplýsingamiðlun. Ann-
ars vegar upplýsi ég um það sem
borgin hefur fram að færa og ekki
síður fæ ég að heyra hvað íbúarnir
segja um sitt nánasta umhverfi.“
Að lokum eru borgarbúar hvattir
til að kynna sér fundina og fram-
gang þeirra á vef Reykjavík-
urborgar, www.reykjavik.is.
Árvissir
hverfafundir
borgarstjóra
hefjast