Morgunblaðið - 07.10.2003, Síða 19

Morgunblaðið - 07.10.2003, Síða 19
„ÉG held að mörgum þyki þetta ansi sárt,“ sagði Margrét Guð- mundsdóttir, starfsmaður í Strax við Byggðaveg, í tilefni af því að Kaupfélag Eyfirðinga, KEA, hef- ur nú hætt afskiptum af versl- unarrekstri á Akureyri. Kaldbak- ur, sem er að stærstum hluta í eigu KEA, seldi í gær 50,4% eignarhlut sinn í Samkaupum til Kaupfélags Suð- urnesja. Samkaup voru í eigu Kald- baks og Kaupfélags Suðurnesja og hefur fé- lagið rekið á þriðja tug mat- vöruverslana á höfuðborgarsvæð- inu, Suðurnesjum, Vestfjörðum og Norðurlandi undir nöfnunum Nettó, Kaskó, Samkaup, Úrval, Strax og Sparkaup auk þess að reka kjötvinnslu í Njarðvík og kostverslun á Akureyri. Margrét sagði að ekki væri bú- ið að kynna starfsfólki þær eigna- breytingar sem urðu í gær. „En það virðist bara allt vera komið suður. Ég vona samt að fólk haldi áfram að versla við okkur, hingað kemur mikið af skólafólki og eins eigum við trygga viðskiptavini, fólk úr hverfinu,“ sagði Margrét. Ingunn Björnsdóttir hefur keypt inn sínar nauðsynjar í versluninni við Byggðaveg allt frá því hún var opnuð á sínum tíma. „Þetta er eiginlega alveg ótrú- legt, hvernig á maður að skilja svona hluti?“ sagði hún. „Nú fer allur gróðinn suður, það virðist vera stefnan. Ég syrgi það vissu- lega að nú fer allur arður burt úr bænum, en ég verð að versla hér áfram, þetta er mín búð og ég kemst ekki annað til að versla,“ sagði Ingunn og bætti við að starfsfólkið væri afar liðlegt, „ekki get ég kvartað yfir blessuðu fólkinu, það telur ekki eftir sér að setja ofan í poka fyrir mig.“ Óskar Óskarsson, starfsmaður Úrvals í Hrísalundi, sagði það vissulega sögulega stund að KEA væri hætt afskiptum af versl- unarrekstri. Hann hóf störf hjá KEA árið 1973 og í Hrísalundi hefur hann verið síðustu 16–17 ár og líkað ágætlega. „Ætli það sé ekki ástæða þess að maður hefur enst hér öll þessi ár,“ sagði hann. Hann sagði nokkurn söknuð að því að kaupfélagið kæmi nú ekki nálægt verslunarrekstri í bæn- um, „en ég vona bara að þessar breytingar verði til góðs,“ sagði Ósk- ar. Stefán Hall- dórsson frá Hlöðum hefur verslað við kaup- félagið í áratugi, „en ég hef ekki litið svo á að ég væri að versla við KEA síðustu tvö ár, mér finnst félagið varla vera til, er þetta ekki bara orðið papp- írsfyrirtæki?“ sagði Stefán. Kaupfélagshjartað er sterkt Anna Pétursdóttir, starfsmaður í Nettó, hefur 25 ára starfsferil að baki hjá kaupfélaginu, byrjaði í versluninni á Grenivík en hefur unnið í Nettó hin síðari ár. Hún viðurkenndi að sitt trygga KEA- hjarta hefði tekið feilpúst þegar henni bárust fréttirnar um að fé- lagið ætti verslanir sínar ekki lengur. „Þú getur rétt ímyndað þér það,“ var svarið við spurning- unni um hvort henni hefði líkað vistin. „Það er nú stundum sagt um mig að ég sé fædd og uppalin í kaupfélaginu. Jú, jú, kaupfélags- hjartað er sterkt,“ segir hún og nefnir að sér þykir því nokkur tímamót nú þegar reksturinn hafi flust til Suðurnesja. Hún sagði eldra fólk horfa meira til þess við hvern væri verslað, það væri trygglyndara „en yngra fólkið hugsar öðruvísi, því er meira sama um hver á hvaða verslun“. Anna vonaði að ekki yrðu stór- felldar breytingar á rekstrinum, „en auðvitað geta breytingar líka verið af hinu góða, fólk er samt vanafast og vill hafa hlutina í föstum skorðum“. Margrét Guðmundsdóttir: Hingað kemur mikið af skólafólki og eins eigum við trygga viðskiptavini, fólk úr hverfinu. Stefán Halldórsson: Ég hef ekki litið svo á að ég væri að versla við KEA síðustu tvö ár, mér finnst fé- lagið varla vera til. Anna Pétursdóttir: Stundum sagt um mig að ég sé fædd og uppalin í kaupfélaginu; kaup- félagshjartað er sterkt. Óskar Óskarsson: Söknuður að því að kaupfélagið komi ekki lengur nálægt verslun en breyt- ingar vonandi til góðs. Ingunn Björnsdóttir: Ég syrgi það vissulega að nú fer allur arð- ur burt úr bænum. En ég verð að versla hérna áfram. Kaldbakur selur hlut sinn í Samkaupum – KEA-verslanir heyra því endanlega sögunni til Mörgum þykir þetta ansi sárt „Auðvitað geta breytingar verið af hinu góða, en fólk er vanafast…“ Morgunblaðið/Kristján AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 19 KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur stundað verslunarrekstur í Eyjafirði um áratuga- skeið, en með sölu á helmingshlut Kald- baks, sem að stórum hluta er í eigu KEA, í Samkaupum til Kaupfélags Suðurnesja í gær lauk afskiptum félagsins af versl- unarrekstri í firðinum. „Þetta eru út af fyrir sig nokkur tíðindi. Þær eignir sem voru í hefðbundinni starf- semi KEA fyrir utan sjávarútveg, hafa nú verið seldar frá Kaldbaki,“ sagði Benedikt Sigurðarson formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga. Hann sagði að ferlið hefði hafist þegar félagið seldi Byggingavörudeild KEA til Húsasmiðjunnar árið 2000. Síðan var Mjólkursamlag KEA selt og nú fyrir skömmu Norð- lenska og í gær seldi fé- lagið svo Samkaup. Frá því hafist var handa við fyrirtækjavæð- ingu KEA fyrir nokkrum misserum er nú einungis eftir innan Kaldbaks sjávarútvegs- hluti starfseminnar, sem nú er í formi 18% hlutar í Samherja. „Við áttum kannski ekki von á að þróun Kaldbaks yrði svona hröð, en hver hefði getað séð þær gríðarlegu breytingar sem orðið hafa í íslensku viðskiptalífi á örfáum síðustu vikum,“ sagði Benedikt. Hann sagði sölu Kaldbaks á hlut sínum í Samkaupum til Kaupfélags Suðurnesja gerða í góðri samvinnu við KEA. „Hags- munir okkar félagsmanna eru ekki í upp- námi, það er fullur vilji af hálfu Kaupfélags Suðurnesja til að vinna með okkur að því að þróa viðskiptakjör á grundvelli Kostakorts- ins og við treystum því að samstarfið verði gott. Þeir sinna sínu fólki vel,“ sagði Bene- dikt. Hann sagði ólíklegt að salan hefði í för með sér röskun á þeirri verslunarstarfsemi sem fyrir væri á Akureyri og Eyjafirði og fólk þyrfti ekki að óttast að verslunum yrði lokað. „Það hefur verið hagrætt í þessum rekstri og búið að koma honum í ágætis horf. Það er því fráleitt að reikna með að breytingar verði gerðar af þessum sökum,“ sagði Benedikt. KEA hætt afskiptum af verslunarrekstri Benedikt Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.