Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MÁL og menning sendir frá sér
fjölda bóka á þessu hausti en útgáf-
an leggur megináherslu á íslenskan
skáldskap og erlendar öndvegisbók-
menntir auk ævisagna og bók-
mennta fyrir börn og unglinga.
Skáldskapur
Herra Alheimur eftir Hallgrím
Helgason er vísindaskáldsaga með
tilvistarlegum undirtóni sem fjallar
um Guð. Einar Kárason hefur skrif-
að samtímasögu sem heitir Stormur
eftir aðalpersónunni Eyvindi Jóns-
syni Stormi. Þetta er saga um
hippamóral, landeyður, auðnuleys-
ingja, bókaútgefendur og íslenska
námsmenn erlendis. Guðmundur
Andri Thorsson sendir frá sér
skáldsöguna Náðarkraftur. Hún
fjallar um kynslóð „síðustu sósíalist-
anna“ sem stendur frammi fyrir
nýrri heimsmynd. Gyrðir Elíasson
sendir frá sér söguna Hótelsumar.
Hún fjallar um ungan mann sem er
nýskilinn og dvelur sumarlangt á
litlu hóteli í fæðingarbæ sínum. Að
baki daganna heitir ljóðabók eftir
Pétur Gunnarsson en 30 ár eru nú
liðin frá útkomu fyrstu ljóðabókar
hans, Splunkunýr dagur, sem fylgir
með í 2. útgáfu í þessu nýja safni af
ljóðum og textum frá 1974–2001.
Einn nýliði kveður sér hljóðs með
skáldsögu á vegum Máls og menn-
ingar; Sölvi Björn Sigurðsson með
sögu sem heitir Radíó Selfoss. Sagt
er frá uppvexti tveggja ungra pilta
á Selfossi og skrautlegum fjöl-
skyldum þeirra.
Mál og menning gefur líka út í
kilju fyrir jólin nýtt úrval smásagna
eftir gamlan meistara smásagna-
formsins, Ólaf Jóhann Sigurðsson,
sem sonur hans, Ólafur Jóhann
Ólafsson hefur valið og ritar for-
mála að.
Af þýðingum kemur út Miðnæt-
urbörn eftir Salman Rushdie í þýð-
ingu Árna Óskarssonar. Með þess-
ari bók kvaddi Rushdie sér hljóðs
víða um heim. Hálfbróðirinn eftir
Lars Saabye Christensen í þýðingu
Sigrúnar Magnúsdóttur. Skáldsaga
fjögurra kynslóða sem hlaut Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
2002. Bóksalinn í Kabúl eftir norsku
blaðakonuna Åsne Seierstad. Eftir
fall talibana í Afganistan dvaldi hún
hjá Khan-fjölskyldunni í Kabúl og
lýsir bókin lífi fjölskyldunnar á
þeim tíma.
Fyrir börn og unglinga
Sigrún Eldjárn sendir frá sér
skáldsöguna Týndu augun. Hún
fjallar um tvö systkini á flótta. Þau
hrekjast um í dimmri þoku og úfnu
hrauni og á vegi þeirra verða ýmsir
torkennilegir hlutir og verur. Krist-
ín Helga Gunnarsdóttir sendir frá
sér bókina Strandanornir. Þar segir
frá tveimur systrum, tíu og tólf ára,
sem fara ásamt göldróttri ömmu
sinni og allri fjölskyldunni norður á
Strandir. Eyjadís nefnist ævin-
týrasaga eftir Unni Þóru Jök-
ulsdóttur og fjallar um leit að týnd-
um draumi. Eyjamaðurinn Axel
Gunnlaugsson sendir frá sér bókina
Eldgos í garðinum. Bók Tove Jans-
son Vetrarundur í Múmíndal verður
endurútgefin í þýðingu Steinunnar
Briem. Ævintýrið um Augastein
eftir Felix Bergsson með myndum
Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur.
Hér segir frá því þegar jólasvein-
arnir sitja uppi með lítið barn sem
þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera
við. Ólafur Gunnar Guðlaugsson
sendir frá sér fimmtu bókina um
Benedikt búálf, Höfuðskepnur Álf-
heima. Tvær bækur með barna-
ljóðum koma út hjá forlaginu: Það
er komin halastjarna og hin sígilda
bók Jóhannesar úr Kötlum Ömmu-
sögur sem kom fyrst út árið 1933.
Brian Pilkington sendir frá sér
Mánasteinar í vasanum. Þar segir
frá lítilli stelpu og leynivini hennar,
Dínusi dreka. Anna Cynthia Leplar
skrifar og teiknar bókina Ég vildi
að ég væri… sem lýsir þönkum lítils
hunds sem kemst að því að best er
að vera hann sjálfur. Úr smiðju Ás-
laugar Jónsdóttur kemur bókin
Eggið. Þar segir frá því þegar egg
fellur úr hreiðri og lendir í faðmi
villikattarins. Leyndarmálið hennar
ömmu eftir Björk Bjarkadóttur
fjallar um sex ára afmælisdaginn
hans Óla.
Blóðregn – Sögur úr Njálu er
teiknimyndasaga eftir Ingólf Örn
Björgvinsson og Emblu Ýr Báru-
dóttur. Í bókinni lifna þekktar per-
sónur við og þúsund ára gömul átök
eru færð í mál og myndir nýrra
tíma. Á slóð skepnunnar eftir Isabel
Allende segir frá ferðalagi inn í
frumskóga Suður-Ameríku þar sem
allir eru að leita hinnar dularfullu
skepnu. Bókina þýddi Kolbrún
Sveinsdóttir. Gallabuxnaklúbburinn
í þýðingu Önnu Heiðu Pálsdóttur.
Þetta er fyrsta skáldsaga ungrar
konu, Ann Brashers, sem lýsir við-
burðaríku sumri í lífi fjögurra
æskuvinkvenna.
Ævisögur og fleira
Guðjón Friðriksson sendir frá sér
síðara bindi ævisögu Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Í þessari bók er rakin
ævi Jóns frá þjóðfundinum 1851.
Gísli Pálsson mannfræðingur hefur
skrifað um landkönnuðinn Vilhjálm
Stefánsson, Frægð og firnindi. Í
bókinni eru birtar ókunnar heim-
ildir, þ.á m. nýfundin einkabréf.
Sally Magnusson hefur skrifað bók-
ina Draumurinn um Ísland – á ferð
með Magnúsi Magnússyni. Sally er
dóttir Magnúsar og saman ferðast
þau feðgin um Ísland á vit upprun-
ans. Árni Heimir Ingólfsson og
Guðmundur Arnlaugsson hafa skrif-
að bók um ævistarf Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur sem ber heitið Þorgerður
og kórarnir. Þar er rakin í máli og
myndum saga Hamrahlíðarkóranna.
Þýddar bækur og ýmis efni
Greppikló eftir Axel Sheffler og
Juliu Donaldson í þýðingu Þórarins
Eldjárns. Þá koma út fjórar galdra-
myndabækur: Í sveitinni, Úti að
leika, Ég sofna og Ég vakna. Þetta
eru harðspjaldabækur með víxl-
mynd í hverri opnu sem breytist
þegar bókinni er snúið.
Þorleifur Hauksson hefur skrifað
bókina Sagnalist – íslensk stílfræði
II – skáldsögur 1850–1970. Í bók-
inni er fjallað um stíl og frásagn-
arbrögð margra af helstu rithöf-
undum þjóðarinnarm svo sem
Halldórs Laxness, Þórbergs, Guð-
mundar Hagalíns, auk höfunda sem
síðar kveðja sér hljóðs. Flugubók
Péturs í Nesi er bók um fluguhnýt-
ingar og flugufræði eftir Pétur
Steingrímsson. Af norskum rótum –
norsk hús á Íslandi er bók um mörg
hús á landinu sem eru af norskum
uppruna.
Mál og menning sendir frá sér fjölda bóka af ýmsu tagi á þessu hausti
Áhersla á íslenskan skáld-
skap og öndvegisbókmenntir
Kristín Helga
Gunnarsdóttir
Sigrún
Eldjárn
Salman
Rushdie
Hallgrímur
Helgason
AÐALSTEINN Ásberg Sigurðsson,
formaður Rithöfundasambands Ís-
lands, segir að stjórn sambandsins
muni skoða erindi Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar á stjórnarfundi
í dag eða á morgun. Hannes Hólm-
steinn hefur sem kunnugt er leitað
liðsinnis Rithöfundasambandsins
vegna ákvörðunar fjölskyldu Hall-
dórs Laxness um að takmarka að-
gang að bréfum hans í vörslu Lands-
bókasafns Íslands. „Við munum taka
afstöðu til málsins á næsta stjórn-
arfundi,“ segir Aðalsteinn.
Rithöfundasamband
Íslands
Fer yfir
erindi
Hannesar
AÐSÓKNIN virtist koma að-
standendum tónleika Kjartans Sig-
urjónssonar í Digraneskirkju á
sunnudaginn var í opna skjöldu,
því ljósrita þurfti fjölda aukaein-
taka af tónleikaskránni á staðnum.
Dagskráin var fremur stutt, um
þriggja kortéra, en skemmtilega
valin með þrjú íslenzk verk í seinni
hluta.
Lux aeterna eftir finnska ný-
klassísistann Joonas Kokkonen
(1921-96) var efst á blaði. Að hluta
dulúðugt en vandað lítið orgelverk
sem undirr. mundi ekki eftir í svip
en hljómaði líkt og gæti staðið
framarlega meðal norrænna org-
elverka 20. aldar. Tilbrigði belg-
íska tónskáldsins Flors Peeters
(1903-86) um fornhymnuna Veni
creator spiritus voru ekki síður
áheyrileg, enda frábærlega vel
skrifuð fyrir orgel og hjómuðu allt
upp í glæsilega á hið ómfagra litla
orgel Björgvins Tómassonar. Tók-
ust bæði verkin nokkuð vel í flutn-
ingi, og virtist eins ætla að fara um
hina glæsilegu F-dúr tokkötu
Bachs BWV 540,
enda hafði flytj-
andinn vaðið fyr-
ir neðan sig í
fremur varfærnu
tempóvali. En
þrátt fyrir nokk-
uð vænlegt upp-
haf tókst flytj-
anda ekki eins
vel upp í seinni
hluta þessa
krefjandi verks, þar sem bar á
nokkrum truflandi hikum er komu
manni á óvart miðað við hinn fyrri.
Bráðfallegur sálmforleikur Jóns
Þórarinssonar um svipmikla ís-
lenzka þjóðsálminn Jesú, mín
morgunstjarna, hefur náð öruggum
sessi í orgelbókmenntum landsins
og streymdi áfram af öryggi. Eftir
Jón Ásgeirsson kom síðan Stutt
fantasía er sveiflaðist sérkennilega
á milli tónallar hefðar og bítónallar
raddsamstigni; áheyrilegt verk og
vel heppnað í flutningi burtséð frá
einu smáhiki. Loks var Ostinato et
Fughette eftir Pál Ísólfsson,
skemmtilegt verk er gæti verið
undir einhverjum áhrifum frá alda-
mótameisturum franska skólans.
Tókst þrástefjakaflinn þokkalega
vel, og hress fúghettan sömuleiðis,
burtséð frá smástirðleika á einum
stað eða tveim.
Erlent
og innlent
TÓNLIST
Digraneskirkja
Verk eftir Kokkonen, Peeters, J.S. Bach,
Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson og Pál
Ísólfsson. Kjartan Sigurjónsson orgel.
Sunnudaginn 5. október kl. 15.
ORGELTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Kjartan
Sigurjónsson
LAB Loki, í samstarfi við Kassandra Production,
kynnir „millilandaleiksýninguna“ Aurora Borealis í
Nýlendunni Nýlendugötu 15a kl. 19 og 21 í dag. Við
sýninguna er beitt gagnvirkri vídeó-tækni milli landa
með aðstoð veraldarvefjarins og þannig skapað eitt
verk á einum stað á sömu stundu. Sýningin fer fram á
sama tíma í Danmörku. Leikarar eru Páll S. Pálsson
og Steinunn Knútsdóttir. Leikstjóri er Rúnar Guð-
brandsson.
Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Sýningin fer fram í
þröngu rými á báðum stöðum. Fólk lokað inn í íbúðum,
tilfinningar lokaðar inní fólki. Kammerspil þarsíðustu
aldamóta og sjónvarpsgláp samtímans. Dauðadans
Strindbergs á gólfinu, Sid og Nancy í rúminu. Ást í
sjónvarpinu, klám í tölvunni og einhver í símanum.“
Næstu sýningar eru á morgun, fimmtudag, föstudag
og laugardag og á veraldarvefnum: www.labloki.com
kl. 19 og 21.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Millilandasýning í Nýlendunni
♦ ♦ ♦
Biobörn er eftir
Yrsu Sigurð-
ardóttur. Bókin
var nýlega valin
besta sagan í
samkeppni um
Íslensku barna-
bókaverðlaunin
árið 2003.
Fyrirtækið Bio-
börn stofnar
frumkvöðlasetur fyrir afburðabörn.
Fjölmörgum gáfnaljósum er boðið á
námskeiðið en fyrir mistök er tröss-
unum Önnu Lísu og Ragga boðið
líka!
Í bókinni segir frá þeim Önnu
Lísu og Ragga, Möggu, sem er af-
burðagreind stelpa, og Arnari, sem
er fulltrúi blindra á námskeiðinu.
Forstjóri fyrirtækisins, doktor Guð-
geir, vekur fljótlega forvitni krakk-
anna og gruna þau hann um að
standa í einhverju vafasömu. Þau
fara að kanna málið betur og leiðir
sú rannsókn ýmislegt óvænt í ljós.
Biobörn er fimmta bók Yrsu sem
áður hefur hlotið viðurkenningu
IBBY samtakanna á Íslandi árið
2000 fyrir bókina Við viljum jólin í
júlí.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bók-
in er 208 bls., prentuð í Odda hf.
Kápumynd er eftir Ragnar Helga
Ólafsson. Verð: 2.690 kr.
Börn