Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 27
STÓRTÓNLEIKAR íslenzka ein-
söngvaralandsliðsins í Tónlistarhúsi
Kópavogs, sem fyrr var um fjallað á
þessum ritvangi, hittu greinilega í
mark, því þrítaka þurfti viðburðinn í
Salnum vegna linnulausrar aðsóknar.
Í millitíðinni átti Gunnar Guðbjörns-
son tenór öðrum hnöppum að hneppa
erlendis, og var raddbróðir hans
Snorri Wium fenginn til að hlaupa í
skarðið. Af því tilefni var undirritaður
beðinn að mæta aftur til að fjalla um
framlag Snorra, líkt og gerzt hefur
við stærri hlutverkaskipti í Íslenzku
óperunni.
Ekki var annað að sjá á aðsókn að
seinni endurtekningunni s.l. laugar-
dag en að vel hefði mátt endurtaka
tónleikana eina ferðina enn, því nán-
ast hvert sæti var skipað og andrúms-
loftið engu órafmagnaðra en á þeim
fyrstu átta dögum áður. Verkefnaval-
ið var óbreytt, nema hvað niður féll
tenórarían úr Perluköfurunum, Je
crois entendre encore, auk þess sem
Snorri valdi sér annað aukalag en for-
veri hans. Í staðinn voru uppklapps-
atriðin ívið fleiri.
Snorra Wium hefur afar sjaldan
borið fyrir hlustir undirritaðs; seinna
skiptið af tveim var þeg-
ar hann kom fram með
„Tenórunum þremur“
ásamt Jóhanni Friðgeiri
Valdimarssyni og Jóni
Rúnari Arasyni s.l. nóv-
ember. Mætti af því
einu halda að reynslu-
ferillinn væri minni en
fram kom af flytjenda-
tali tónleikadagskrár,
þar sem m.a. voru til-
greind ýmis störf við óp-
eruhús í Þýzkalandi.
Enda kom fljótt á dag-
inn, bæði í íslenzku lög-
unum og síðar klassísku
óperuviðfangsefnunum,
að söngvarinn var fyllilega vandanum
vaxinn. Gígja Sigfúsar Einarssonar
glitraði göfugmannlega í meðförum
hans, og með skýrari textaframburði
en maður á að venjast. Textainntakið
hefði kannski mátt vera blæbrigða-
ríkara í túlkun Snorra á Í fögrum dal
Emils Thoroddsen – sem raunar víðar
– þó að fátt væri út á raddgæði að
setja, allt frá neðsta til efsta tóns.
Seinna lag Emils, Smalastúlkan, var
hins vegar þróttmikið og fjaðurmagn-
að við laufléttan meðleik Jónasar
Ingimundarsonar.
Þeir Snorri og Kristinn Sigmunds-
son tóku dúett Bjarna Þorsteinsson-
ar, Sólsetursljóð, af tiginni reisn, þar
sem einungis dró úr gæsahúð hlust-
andans (því miður einmitt við orðin
„himneskan kvöldklukkuhljóm“)
óvænt farsímatíst ofan af svölum, að
vísu í réttri fortónteg-
und og með „þey, þey“
hrynjandi. Í seinni dú-
ett þeirra félaga, Au
fond du temple saint úr
Perluköfurunum (Biz-
et), lét téður alifugla-
effekt aftur á móti ekki
á sér standa, enda ætl-
aði allt um koll að keyra
að atriði loknu.
Ofurlítill þvingunar-
vottur, jafnvel smá sig-
hneigð, lá yfir fyrri
hluta tenórsins í dúett-
inum við Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur í Par-
igi, o cara (La Traviata
eftir Verdi). En seinni parturinn var í
fínu lagi, og Che gelida manina
Snorra í hlutverki Rodolfos úr La Bo-
hème Puccinis var engu minni en
glæsilegur, sem og hrífandi út-
göngudúett hans með Sigrúnu, O
soave fanciulla.
Líkt og fyrri daginn var slett úr
klaufum gáskans í uppklappsatriðum,
og tók Snorri fyrst ófáar keilur hjá
tónleikagestum með kostulegu
ókynntu gamanlimrulagi, og síðast en
ekki sízt með Þér kæra sendi kveðju
(Þórarinn Guðmundsson). Var helzt
út á blániðurlag tónleikanna að setja,
því mynda hefði mátt miklu hæfilegri
endapunkt með mögnuðum terzett
fyrir allan söngvarahópinn en með
gatslitnum Kattardúetti Rossinis.
TÓNLIST
Salurinn
Íslenzk sönglög, erlendar aríur og dúett-
ar. Snorri Wium tenór, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópran og Kristinn Sigmundsson
bassi. Jónas Ingimundarson píanó. Laug-
ardaginn 4. október kl. 14:30.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Snorri Wium
Tenór í tenórs stað
SÖNGKVARTETTINN Rúdolf er
að gefa út nýjan geisladisk sem
nefnist Allt annað og heldur af
því tilefni útgáfutónleika í Saln-
um kl. 20 í kvöld.
Rúdolf hefur starfað frá 1992
og hefur alla tíð sérhæft sig í
flutningi söngtónlistar án undir-
leiks. Kvartettinn hefur flutt
þekkt lög í nýjum útsetningum
fyrir blandaðan kvartett og hefur
Skarphéðinn Hjartarson, tenór-
söngvari Rúdolfs, verið aðal-
útsetjari kvartettsins. Í seinni tíð
hafa viðfangsefni Rúdolfs aðal-
lega verið innlend og erlend
djass- og dægurlög fyrri tíma. Á
tónleikunum verða flutt lög eftir
ástsæla lagahöfunda Íslendinga
eins og Sigfús Halldórsson, Jón
Múla Árnason, Ólaf Gauk, Þóri
Baldursson og Magnús Eiríksson
auk laga eftir Evert Taube,
George Gershwin og Charlie
Chaplin.
Söngkvartettinn Rúdolf skipa
þau Sigrún Þorgeirsdóttir sópr-
an, Soffía Stefánsdóttir alt,
Skarphéðinn Hjartarson tenór og
Þór Ásgeirsson bassi.
Á tónleikunum mun Vignir
Stefánsson leika á píanó í tveim-
ur lögum.
Söngkvartettinn Rúdolf
fagnar nýrri plötu
EVA Bergþóra Guð-
bergsdóttur hefur ver-
ið ráðin í starf kynning-
arstjóra Listahátíðar
Reykjavíkur og Ása
Briem í starf verkefn-
isstjóra. 71 umsókn
barst um störfin, 39 um
starf verkefnisstjóra
og 32 um starf kynn-
ingarstjóra.
Eva Bergþóra er
með BA-próf í ensku
frá Háskóla Íslands
með stjórnmálafræði
sem aukagrein. Hún
hefur unnið hjá Ríkis-
sjónvarpinu sem dag-
skrárgerðarmaður og
fréttamaður, haft umsjón með ýms-
um þáttum og heimildamyndum og
þýtt úr ensku og spænsku fyrir sjón-
varp. Eva Bergþóra starfar nú sem
fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni.
Ása Briem hefur lokið einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík, MA-prófi í tónlist frá
City University í London og var við
nám í tónsmíðum við Listaháskóla
Íslands á liðnu ári. Hún hefur starfað
í Salnum í Kópavogi, hjá Listahátíð,
tónlistarhátíðinni í Reykholti og ver-
ið verkefnisstjóri Grafarvogsdags-
ins. Ása starfar nú á tónlistardeild
RÚV.
Kynningarstjóri tekur til starfa
um miðjan október og verkefnis-
stjóri um áramót.
Nýir kynningar- og
verkefnisstjórar
Listahátíðar
Eva Bergþóra
Guðbergsdóttir
Ása
Briem
LISTASAFN Íslands stendur fyrir
námskeiði í tveimur hlutum, fimmtu-
dagana 16. og 23. október kl. 17-19.
Varðveisla málverka og pappírs-
verka nefnist fyrra námskeiðið.
Fjallað verður um efni og gerð
listaverka. Áhrif umhverfisins á mál-
verk og pappírsverk. Kynntar verða
leiðir til að forðast ótímabært nið-
urbrot og skemmdir. Farið verður í
greiningu og mat skemmda og bent á
úrræði sem lengja lífdaga verkanna.
Síðara námskeiðið nefnist Ástand
og uppruni málverka. Þar verður
fjallað um atriði sem ber að hafa í
huga við kaup á listaverkum. Hvern-
ig greina má ástand þeirra og höf-
undareinkenni. Hvað ber að varast
og hvers ber að gæta með tilliti til al-
þjóðlegra samþykkta er varða við-
skipti með listaverk.
Viktor Smári Sæmundsson for-
vörður, deildarstjóri forvörsludeild-
ar, og Rakel Pétursdóttir safnfræð-
ingur, deildarstjóri fræðsludeildar,
hafa umsjón með námskeiðinu.
Námskeið um varð-
veislu málverka
LYDIA Frumkin, píanóleikari og
prófessor í píanóleik við Oberlin-
tónlistarháskólann í Ohio, heldur
meistaranámskeið í píanóleik dag-
ana 24.-25. október nk. Námskeiðið
er haldið á vegum tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands og fer fram í
Salnum í Kópavogi.
Lydia Frumkin er fædd í austur-
hluta gömlu Sovétríkjanna og
stundaði nám við Tónlistarháskól-
ann í Leníngrad. Hún lauk prófi í
einleik og kammertónlist með
hæstu einkunn 1971 og var strax
ráðin kennari við skólann. Hún fékk
fararleyfi ásamt eiginmanni sínum
1973 og hefur verið fastráðin við
Oberlin-tónlistarskólann síðan 1974.
Hún hefur komið fram á tónleikum
um gjörvöll Bandaríkin, m.a. í New
York, Cleveland, Chicago og Wash-
ington D.C, og þykir leikur hennar
sameina afburða tæknikunnáttu og
einstaka tónlistargáfu. Hún er eft-
irsóttur kennari á sumarnámskeið-
um víða í Evrópu og hefur m.a.
kennt í Hollandi og Sviss. Lydia
Frumkin er einn virtasti píanó-
kennari af rússneska skólanum sem
starfar vestanhafs.
Meistaranámskeið
í píanóleik
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Rafhlö›ur
VERSLUN • VERKSTÆ‹I
Radíófljónusta Sigga Har›ar
N‡jar hle›slurafhlö›ur í flest tæki
og síma einnig vi›ger›ir og smí›i
Endurlífgum rafhlö›ur
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
LINDIR -KÓPAVOGI
Mér hefur verið falið að leita eftir 80-90
fm 3ja herb. íbúð í Lindunum í Kópavogi.
Æskilegt er að eignin hafi þvottahús inn-
an íbúðar, helst í góðu ástandi. Bílskýli
væri kostur. Kaupandi óskar eftir afhend-
ingu sem allra fyrst. Verðhugmynd 13-15
milljónir. Áhugasamir vinsamlega hafið
samband og ég mun fúslega veita allar
nánari upplýsingar.