Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 49
VARDAR Vatrostalna frá Skopje,
mótherjar Hauka í Meistaradeild
Evrópu, eru efstir í 1. deildinni í
Makedóníu eftir þrjár umferðir.
Vardar vann skæðustu keppinauta
sína undanfarin ár, Pelister, 35:28
á sunnudagskvöldið og hefur unn-
ið þrjá fyrstu leiki sína á tíma-
bilinu, rétt eins og Metalurg og
Mladost. Hinn 39 ára gamli Pepe
Manaskov, frægasti handknatt-
leiksmaður Makedóníu, var
markahæstur hjá Vardar með 8
mörk og Stefce Alusovski skoraði
7. Markvörður liðsins, Petar Mis-
ovski, átti stórleik á milli stang-
anna.
Mótherjar
Hauka á
sigurbraut
MARKIÐ sem Eiður Smári
Guðjohnsen skoraði fyrir
Chelsea á móti Middles-
brough í fyrradag var 48.
markið sem hann skorar fyrir
félagið í öllum mótum. 35
þeirra hafa komið í úrvals-
deildinni í 101 leik en markið
gegn „Boro“ var það fyrsta
sem hann skorar í úrvals-
deildinni í þeim fjórum leikj-
um sem hann hefur komið við
sögu í á yfirstandandi leiktíð.
Að auki hefur Eiður Smári
skorað 13 mörk fyrir félagið í
öðrum mótum, þ.e. bik-
arkeppninni, deildabik-
arkeppninni og Evrópu-
keppninni frá því hann gekk í
raðir félagsins fyrir þremur
árum.
Eiður Smári skoraði 18
mörk í 55 leikjum með Bolton
í 1. deildinni 1998-2000 og
hefur þar með skorað samtals
53 mörk í 160 leikjum í ensku
deildakeppninni.
Eiður
nálgast
mörkin 50
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Chelsea, er hér í bar-
áttu við Chris Riggott, Middlesbrough. Eiður Smári skoraði fyrra mark Chelsea í sigurleik, 2:1.
Pandiani, sem átti litla möguleika áað komast í liðið áður en Roy
Makaay var seldur til Bayern Mün-
chen, hefur þakkað
Irueta, þjálfara sín-
um, traustið og verið
besti maður liðsins
það sem af er leiktíð-
inni. Hann skoraði eitt mark í sigur-
leik gegn Atletico Madrid á laugar-
daginn, 5:1, og hefur hann skorað sjö
mörk í sex deildarleikjum. Frábær
frammistaða Pandiani hefur orðið til
þess að það er hlutskipti landsliðs-
mannanna Diego Trístan og Albert
Luque að sitja til skiptis á bekknum,
sem þeim hefur ekki líkað og sýndi
Trístan óánægju sína með góðri ræðu
yfir þjálfaranum, þegar hann var tek-
inn af velli á dögunum.
Ekki unnið heimaleik enn
Barcelona, sem mátti þola tap fyrir
Valencia á Nou Camp, 1:0, hefur ekki
enn unnið leik á heimavelli á leiktíð-
inni. Þrátt fyrir það er ekki byrjað að
ræða um að skipta um þjálfara. Hol-
lendingurinn Frank Rijkaard ekki
talinn í góðum málum hjá Barcelona.
Manzano í vanda
Gregorio Manzano, þjálfari Atlet-
ico Madrid, á ekki sjö dagana sæla
eftir slaka byrjun liðsins, sem er í
þriðja neðsta sæti með aðeins fjögur
stig. Á síðasta tímabili stýrði Manz-
ano liði Mallorca, sem hefur þegar
sagt upp sínum þjálfara.
Atletico hefur í seinni tíð verið
þekkt fyrir að skipta títt um þjálfara
og eitt tímabilið sátu fimm í stjórastól
liðsins, þar á meðal Claudio Raniero,
núverandi knattspyrnustjóri Chelsea.
Valencia í skuldafeni
Þrátt fyrir að Valencia sitji nú á
toppi spænsku deildarinn þá virðast
fjármál liðsins vera að slá flest met.
Þrátt fyrir að hafa náð frábærum ár-
angri á síðustu árum, þá nær liðið
ekki fyrir gjöldum og skuldar tæp-
lega 12 milljarða ísl. króna. Forráða-
menn liðsins vinna nú að áætlun sem
miðar að því að lækka gjöld og auka
tekjur. Liðið mun eftir tímabilið lík-
legast selja nokkra af sínum bestu
leikmönnum. Mörg lið hafa augastað
á argentínsku landsliðsmönnunum
Ayala og Pablo Aimar.
Iniesta í séræfingar
Andrés Iniesta, einn efnilegasti
leikmaður Spánar, hefur verið settur í
séræfingar til þess að bæta hraða,
styrk og snerpu. Iniesta er talinn
framtíðarstjarna Barcelona og er nú
varamaður fyrir Brasilíumanninn
Ronaldinho. Iniesta er sagður vera
svar Barcelona við Raúl, fyrirliða
Real Madrid.
Pandiani skorar grimmt
WALTER Pandiani, landsliðs-
miðherji frá Úrúgvæ, hefur
heldur betur verið í sviðsljósinu
með Deportivo La Coruna á
Spáni og má sergja að hann hafi
slegið í gegn. Hann jafnaði met
Brasilíumannsins Rivaldo og
Hollendingsins Roy Makaay
þegar hann skoraði í sínum
sjötta deildarleik í röð, en auk
þess hefur hann skorað í báðum
leikjum liðsins í Meistaradeild
Evrópu.
Ingi Úlfar
Helgason
skrifar
frá Spáni AP
Walter Pandiani skallar knöttinn að marki Atletico Madrid á laugardaginn.
ENSKIR fjölmiðlar greindu frá því
í gær að Sir Bobby Robson, knatt-
spyrnustjóri Newcastle, hafi slegist
í hóp með Kevin Keegan, stjóra
Manchester City, að reyna að kló-
festa Eið Smára Guðjohnsen frá
Chelsea þegar leikmannamark-
aðurinn opnast á nýjan leik í jan-
úar.
Greint er frá því að Manchester
City hafi þegar sett sig í samband
við Chelsea um kaupin á Eiði
Smára og Bobby Robson er sagður
ætla að gera það sama en hann
reyndi fyrir þremur árum að fá
hann frá Bolton. Þá valdi Eiður að
fara til Chelsea.
Robson er
sagður vilja
fá Eið Smára
ÓÐINN Ásgeirsson spilaði í sjö
mínútur og skoraði 6 stig þegar lið
hans Ulriken Eagles sigraði
Kristiansand Pirates, 79:67, í fyrstu
umferð norsku úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik á sunnudaginn.
Óðinn gekk í raðir norska liðsins í
sumar frá KR en var áður hjá Þór
Akureyri þar sem hann er upp al-
inn.
JÓHANNES B. Jóhannesson varð
sigurvegari á öðru stigamóti
Billiardsambandsins í snóker, sem
fór fram um helgina. Hann vann
Brynjar Valdimarsson í úrslitum,
5:4. Jóhannes B., sem hefur unnið
fimmtán leiki á stigamótum í röð,
vann Ásgeir Ásgeirsson í undanúr-
slitum 4:2, en Brynjar vann Gunnar
Hreiðarsson 4:0.
HELGI Kolviðsson og félagar í
Kärnten fengu skell á heimavelli,
0:3, gegn Sturm Graz í austurrísku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu um
helgina. Þar með er Kärnten aðeins
stigi frá fallsæti, er í níunda og
næstneðsta sæti með 11 stig en
Sturm Graz er fyrir neðan með 10
stig. Helgi lék allan leikinn.
ÁSDÍS Þorgilsdóttir, fyrrv.
landsliðskona í knattspyrnu, hefur
verið ráðin þjálfari 1. deildarliðs
RKV, sameiginlegs kvennaliðs
Reynis í Sandgerði, Keflavíkur og
Víðis í Garði. Ásdís lék með KR um
árabil, síðast 2002, og þá spilaði hún
jafnframt þrjá landsleiki en hún hef-
ur 11 sinnum leikið fyrir Íslands
hönd.
VALUR vann Skallagrím, 87:78, í
fyrstu umferð 1. deildar karla í
körfuknattleik á sunnudag en bæði
liðin léku í úrvalsdeildinni í fyrra.
Ragnar N. Steinsson skoraði 26 stig
fyrir Val og Ágúst Jensson 22 en
Steven Howard gerði 23 stig fyrir
Skallagrím.
HOLLENSKI landsliðsmaðurinn
Jimmy Floyd Hasselbaink, félagi
Eiðs Smára Guðjohnsen hjá
Chelsea, var ekki valinn í hollenska
landsliðshópinn – fyrir leik gegn
Moldavíu á laugardaginn.
BARCELONA á Spáni á hvorki
fleiri né færri en fimm leikmenn í
hollenska landsliðshópnum. Það eru
þeir Michael Reiziger, Marc Over-
mars, Philip Cocu, Giovanni van
Bronckhorst og Patrick Kluivert.
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, er ekki ánægður með
líkamlegt form Argentínumannsins
Juan Sebastians Verons. Ranieri
ákvað að velja Veron ekki í lið sitt í
leikinn við Middlesbrough á sunnu-
daginn heldur skipaði hann Veron
að mæta á æfingu. Næstu dagana
kemur Argentínumaðurinn til með
að þurfa að mæta á séræfingar með
það fyrir augum að komast í betra
form en eftir því var tekið þegar
Chelsea tapaði fyrir Besiktas að
Veron var ekki í góðu standi.
FÓLK