Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
„VIÐ liggjum hérna inni á Ísafjarðardjúpi og
flökum og frystum þessa fínu síld. Við tókum um
250 tonn í tveimur holum á sunnudag í kantinum
vestan við Halann, mjög stóra og fallega síld.
Þetta er svona tveggja daga vinnsla hjá okkur en
við byrjuðum í nótt,“ sagði Maron Björnsson,
skipstjóri á Guðmundi Ólafi ÓF, þegar Morg-
unblaðið spjallaði við hann í gær.
Maron og áhöfn hans héldu frá Akureyri áleið-
is vestur á fimmtudag og komu nánast beint í
veiðina, enda höfðu þeir fengið fréttir af síld frá
togurunum.
„Við fengum fyrst síld, sem var of smá fyrir
okkur, en svo tókum við hitt holið og höfum eitt-
hvað að gera í bili. Síðustu tvær vertíðir höfum
við tekið alla okkar síld hérna fyrir vestan. Höf-
um annaðhvort byrjað í kantinum vestan við Hal-
ann eða í Víkurálnum og bara gengið vel. Síldin
hérna fyrir vestan er sú bezta, bæði stór og feit
og það þýðir ekkert annað en vera í slíkri síld og
vinna hana um borð. Hitt skilar allt of litlu og
smáa síldin fyrir austan er nánast verðlaus nema
í bræðslu,“ sagði Maron.
Hann segir að áróður og bull um meðafla í
flottrollið á síldveiðunum hafi skemmt mjög mik-
ið fyrir veiðunum og beztu veiðisvæðin hafi verið
meira og minna lokuð frá því í desember í fyrra.
„Það er enginn meðafli hjá okkur á þessum
slóðum. Við fáum engan fisk með síldinni og það
er eftirlitsmaður um borð hjá okkur til að stað-
festa það. Það var líka eftirlitsmaður um borð í
Vilhelm megnið af vertíðinni í fyrra og þar var
meðafli ekkert vandamál. Samt er lokað á okkur.
Hér er langbezta síldin, en það er eins og menn
vilji heldur veiða 50% smásíld fyrir austan en
stóru síldina hérna. Það er einkennilegt að byrja
veiðar og koma að flestum svæðunum lokuðum
án þess að til þess sé nokkur raunveruleg ástæða.
Það væri nær að hækka viðmiðunarmörkin fyrir
smásíldina og lofa henni að vaxa áfram enda er
hún að mestu verðlaus.
Það á að opna þetta og vinna eins og menn eða
hreinlega hætta þessu. Markaðurinn vill bara
stóra síld og hún fæst óvíða nema í flottrollið hér
fyrir vestan og austur á Héraðsflóa,“ sagði Mar-
on, en útgerðin hefur heimildir til veiða á 3.000
tonnum af síld í haust og vetur.
„Flökum og frystum þessa fínu síld“
SKÆÐ magakveisa hefur lagst á um 20
manns, sjúklinga og starfsfólk, á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Selfossi og hefur tveimur
deildum verið lokað. Kveisan er talin stafa
af veirusýkingu og er hún mjög smitandi.
„Þessi sýking er í rauninni það sem er að
ganga núna úti í samfélaginu og er mjög
smitandi. Hún er að leggja heilu fjölskyld-
urnar,“ segir Ágúst Örn Sverrisson, sjúkra-
húslæknir á Sjúkrahúsi Suðurlands. Ein-
kenni pestarinnar eru óþægindi í maga,
uppköst, niðurgangur og í sumum tilvikum
hiti. Kveisan gengur hratt yfir, margir eru
orðnir mikið skárri eftir tvo til þrjá sólar-
hringa, segir Ágúst.
Ágúst segir kveisuna að öllum líkindum
vera af völdum víruss, en sýni sem skera
endanlega úr um það eru enn í ræktun á
rannsóknarstofu. Líklega berist veikin
manna á milli með snertingu og því sé gott
ráð að þvo sér oft um hendurnar.
Sjúkrahús-
deildum lokað
vegna maga-
pestar
meðal réttingaverkstæði, sprautuverkstæði
og framrúðuverkstæði. Gistiheimili er í sam-
byggðu húsi en að sögn Gunnars Arnar var
aldrei nein hætta á að eldurinn bærist þangað
ELDUR kviknaði í bílaverkstæði á Viðar-
höfða 2 um klukkan 21 í gærkvöldi. Tveir
menn voru að vinna við bíl þegar eldur kvikn-
aði í honum og barst eldurinn fljótlega í húsið
og stóðu logarnir upp úr þakinu. Mennirnir
sluppu ómeiddir.
Tilkynning barst til slökkviliðs klukkan
21.06 og var allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins kallað á vettvang og kall-
aðar út allar aukavaktir. Að sögn Gunnars
Arnar Péturssonar, vettvangsstjóra slökkvi-
liðsins, kviknaði eldurinn í bíl sem verið var
að vinna í og barst fljótlega í annan bíl. Bíl-
arnir urðu fljótt alelda. Barst eldurinn í húsið
og var töluvert mikill eldur og reykur þegar
slökkviliðið og lögregla komu á staðinn.
Sendir voru sex reykkafarar inn í húsið til
að tryggja að það væri mannlaust. Slökkvilið-
ið náði fljótlega tökum á brunanum og sneri
sér að því að rjúfa þakið og reyna að koma í
veg fyrri að eldurinn bærist í önnur verk-
stæði í sama húsi. Ekki var vitað þegar blaðið
fór í prentun um tjón á húsinu en ljóst er að
það skiptir milljónum enda þurfti að rjúfa allt
þakið.
Í húsinu eru nokkur bílaverkstæði, þar á
bakka barst lögreglu aðeins þremur mínútum
eftir tilkynninguna um eldinn á Viðarhöfða.
Að sögn varðstjóra fóru nokkrir bílar í það
útkall.
og enginn reykur í því húsi. Að sögn lögreglu
var einn gestur í gistiheimilinu og sakaði
hann ekki.
Önnur tilkynning vegna bruna í Þang-
Morgunblaðið/Júlíus
Stórtjón í
bruna á
verkstæði
KAUPFÉLAG Eyfirðinga,
stærsti eigandi Kaldbaks, er nú
hætt afskiptum af verslunar-
rekstri í Eyjafirði. Kaldbakur
seldi í gær Kaupfélagi Suður-
nesja 50,4% eignarhlut sinn í
Samkaupum, en Samkaup hafa
rekið á þriðja tug matvöruversl-
ana víða um land, á höfuðborg-
arsvæðinu, Suðurnesjum, Vest-
fjörðum og Norðurlandi. Áætl-
aður hagnaður Kaldbaks af
sölunni er rúmlega 1.100 millj-
ónir króna.
„Ég get vel trúað að mörgum
þyki þetta ansi sárt,“ sagði Mar-
grét Guðmundsdóttir, starfsmað-
ur í Strax við Byggðaveg á Ak-
ureyri. Ingunn Björnsdóttir sem
lagsins hafi komið frá Kaldbaki.
Engar breytingar séu fyrirhug-
aðar á starfsemi fyrirtækisins og
að áfram sé ætlunin að reka
verslanir víða um land eins og nú
sé gert. Spurður að því hvort
breytingin nú sé gerð með það
fyrir augum að standa betur að
vígi í samkeppninni við stærri
keðjurnar tvær á markaðnum,
Baug og Kaupás, segir Guðjón að
þetta tengist því ekki. Hins veg-
ar sé stefnt að því að auka hlut-
deild Samkaupa, sem hafi nú um
16% af markaðnum, og horft sé
sérstaklega til höfuðborgarsvæð-
isins í því sambandi.
tryggðir og menn gætu treyst
því að Suðurnesjamenn myndu
sinna viðskiptavinum sínum
norðan heiða. Hann taldi fráleitt
að til þess kæmi að verslunum
yrði lokað, búið væri að hagræða
í rekstrinum og koma honum í
þokkalegt jafnvægi.
Stefnt að stækkun
Guðjón Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, segir
aðspurður að frumkvæði þessar-
ar breytingar á eignarhaldi fé-
þar hefur verslað um langt árabil
sagði að nú sýndist sér sem allur
ágóði færi suður, en það breytti
ekki því að hún myndi halda
áfram að versla „í búðinni sinni“,
enda kæmist hún ekki annað, bíl-
laus.
Benedikt Sigurðarson, formað-
ur stjórnar KEA, sagði að vissu-
lega væri um að ræða sögulega
stund nú þegar félagið hefði ekki
lengur með verslunarrekstur í
bænum að gera. Hann taldi að
hagsmunir félagsmanna væru
KEA hætt afskiptum
af verslunarrekstri
Kaldbakur hefur selt meiri-
hluta sinn í Samkaupum
Kaldbakur/13, 19
TIL að bregðast við vanda
foreldra þegar vetrarfrí eru í
grunnskólum, hyggst Ís-
landsbanki gera tilraun með
að bjóða starfsmönnum sín-
um, sem eiga börn í 1.–5.
bekk, að fara með þau í
heilsuskóla á vegum bankans.
Að sögn Herdísar Pálu Páls-
dóttur hjá Íslandsbanka er
markmiðið að létta álagi af
starfsfólkinu, koma í veg fyr-
ir að starfsemi bankans rask-
ist þessa daga og síðast en
ekki síst að bjóða börnunum
upp á skemmtilegan skóla.
„Þannig fá allir eitthvað fyrir
sinn snúð, foreldrarnir, börn-
in og bankinn,“ segir Herdís.
Heilsuskóli
í skólafríum
Daglegt líf/24