Morgunblaðið - 01.11.2003, Síða 2

Morgunblaðið - 01.11.2003, Síða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMFYLKINGIN FUNDAR Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði mörg dæmi um alvarlegar brotalamir á heilbrigðiskerfinu í ræðu sinni við upphaf landsfundar flokksins í gær. Hann sagði flokkinn þurfa að skoða breytt rekstrarform heilbrigðisþjón- ustunnar án þess að hróflað verði við jöfnu aðgengi allra óháð efnahag. Vanskil l ífeyrissjóða Vanskil á iðgjöldum til lífeyr- issjóða á síðasta ári námu um 1.500 milljónum króna, en alls eru um 14 til 15 þúsund gjaldendur sem koma við sögu vegna vanskila, sem er um 16% færri en í fyrra. Forstöðumaður eftirlitsskrifstofu ríkisskattstjóra segir meðalvanskil á hvern launþega vera um 117 þúsund krónur þegar um reiknað endurgjald sé að ræða sem þeir sem eru með sjálfstæða starfsemi reikna sér sjálfir. Kasjanov áhyggjufullur Forsætisráðherra Rússlands, Míkhaíl Kasjanov, lýsti í gær mikl- um áhyggjum sínum af þróun mála í Yukos-málinu en ríkissaksóknari landsins hefur fryst nær helming hlutafjár olíufyrirtækisins. Vladímír Pútín forseti hefur áður sagt að ráð- herrar eigi ekki að tjá sig um Yukos- málið meðan það sé í rannsókn. Lögðu fé í sjóði Bush Bandarísk stórfyrirtæki, sem fengið hafa verkefni upp á milljarða dollara án útboðs í Írak, lögðu sum verulegt fé í kosningasjóði George W. Bush forseta allt frá árinu 1990. Laugardagur 1. nóvember 2003 Prentsmiðja Árvakurs hf. ÞEIR sem umgangast mikið dýr læra smám sam- an að lesa ýmislegt úr hegðun þeirra og hreyf- ingum. Þannig geta hestamenn til dæmis séð það á eyrum hesta, þegar þeir eru á hestbaki, hvernig skapi hesturinn er í og hvort hann sé pirraður eða áhugalaus. Þeir sem þekkja vel til páfagauka segja að það sé líka hægt að lesa ýmislegt úr hreyfingum þeirra og látbragði. Hér eru nokkrar ábendingar um táknmál þeirra:  Það merkir ekkert sérstakt þótt páfagaukar klóri sér í kollinum.  Þegar fuglarnir teygja fæturna aftur á bak og sperra klærnar og þegar þeir teygja vængina út í loftið eru þeir að teygja sig. Þetta er merki um að þeim líði vel.  Þegar þeir standa á einum fæti og kurra lágt er það merki um að þeim líði vel.  Þegar páfagaukar snúa höfðinu í hálfhring og fela höfuðuð undir vængnum líður þeim mjög vel.  Þegar fuglarnir bíta í fjaðrirnar eru þeir að snyrta sig.  Þegar páfagaukar hjúfra sig saman með úfnar fjaðrir eru þeir annaðhvort veikir eða mjög hræddir. Táknmál páfagaukanna Þ AÐ dreymir örugglega marga krakka um að eiga fullt af alls konar gælu- dýrum. Fæstir eru þó jafnheppnir og hún Ingibjörg Kristín Valsdóttir sem á bæði páfagauka, sem vilja helst af öllu sitja á öxlinni á henni, og mjúkan hund til að tala við og kúra hjá. Við hittum Ingibjörgu þar sem hún var með páfagaukana sína í Kringlunni og báðum hana um að sýna okkur gæludýrin sín og segja okkur frá þeim. „Ég á tvo fugla, hund, humra, fisk og snigla,“ sagði Ingibjörg þegar við vorum komin heim til hennar. Af hverju ertu með svona mörg dýr? „Það er bara svo gaman að hugsa um þau og kúra með þau. Svo er ég með humrana, fiskana og sniglana svo ég geti selt afkvæm- in.“ Hefurðu alltaf átt dýr? „Nei, ekki alltaf en oft. Við fengum fyrsta hundinn okkar þegar ég kom heim af fæðing- ardeildinni og svo áttum við hamstur, naggrís og fugla þegar ég var lítil. Ég fékk svo fyrsta dýrið, sem ég átti ein, þegar ég var þrettán ára.“ Hvaða dýr eru í mestu uppáhaldi hjá þér? „Hundurinn Rocco og ástargaukarnir sem heita Freyr og Matta. Ég fékk Frey í sept- ember eða október í fyrra og Möttu í sumar.“ Karlinn er miklu gáfaðari „Fyrst hélt ég að Freyr væri karl og kallaði hann Seif, svo hélt ég að hann væri kerling og kallaði hana Freyju. Ég komst svo loksins að því að hann er karl og nú kalla ég hann Frey. Þegar ég var orðin alveg viss um að hann væri karl ákvað ég að fá mér kvenfugl en fugl- inn sem ég fékk dó nokkrum dögum eftir að ég fékk hann. Ég fékk svo Möttu gefins í dýrabúðinni þar sem ég hafði keypt fuglinn sem dó.“ Ertu alltaf með fuglana á öxlinni? „Nei, ekki alltaf. Stundum eru þau í búr- unum sínum en þau eiga sitt hvort búrið. Ef þau eru saman í búri er bæði hætt við að þau verði leið hvort á öðru og að þau verði stygg- ari. Ég set þau stundum í sama búrið en það endar alltaf með þvílíkum slagsmálum ef ég hef þau lengi saman. Þegar þau eru hvort í sínu búrinu eru þau hins vegar glöð að hittast þegar þau fá að koma út. Annars er Freyr miklu gáfaðri en Matta og því er búrið hans alltaf opið þannig að hann getur farið út þegar hann vill. Hann fer samt aldrei út á næturnar en stundum á daginn þegar hann heyrir að það er einhver frammi.“ Lætur klippa flugfjaðrirnar Ingibjörg er oft með fuglana sína úti og þannig rákumst við einmitt á hana í Kringl- unni. Hún segir að það sé ekkert mál á sumrin og að þá fari hún oft með þá til vinkonu sinnar og á dýrarölt en það kallar hún það þegar hún fer í dýrabúðir, eða til dýralæknis eða hundasnyrtis. Á veturna fer hún þó bara með fuglana eitthvað stutt en þá þarf hún að hafa þá undir úlpunni sinni og passa vel að þeim verði ekki kalt. Ertu ekkert hrædd um að þau strjúki? „Nei, það er búið að klippa af þeim flugfjaðrirnar þannig að þau geta ekki flogið.“ Er ekki slæmt fyrir páfagauka að hafa ekki flugfjaðrir? „Nei, flugfjaðrirnar vaxa alltaf aftur og því þarf að snyrta þær reglulega til að halda fuglunum ófleygum. Annars vil ég hafa þá ófleyga af því að fuglinn sem bjó einu sinni á móti okkur var alltaf að fljúga út um gluggann. Við björguðum honum nokkrum sinum en einn daginn slapp hann út og kom aldrei aftur.“ En hvernig kemur hundinum og fugl- unum saman? „Ég fékk Rocco í vor þegar hann var níu mánaða. Fyrst gelti hann á Frey en svo var hann skammaður fyrir það og þá hætti hann því.“ Eru fuglarnir ekkert hræddir við hann? „Nei, alls ekki! Þeir halda að þeir séu stærri en hann.“ Er mikil vinna að hugsa um dýrin? „Já, svolítið! Það þarf að viðra hundinn mörgum sinnum á dag, gefa honum að borða og greiða honum. Svo þarf að gefa hinum dýr- unum að borða og þrífa búrin þeirra. Ég var líka með annan hund í sumar en varð að láta hann þar sem hann þurfti svo mikla hreyf- ingu. Ég hafði ekki tíma til að hugsa um hann.“ Hugsarðu alveg um dýrin sjálf? „Ég hugsa mest um þau sjálf en fæ stund- um hjálp frá foreldrum mínum.“ Hvar lærðirðu að hugsa um dýrin? „Bara af reynslunni. Bara með því að eiga dýr. Svo hef ég aðeins verið að lesa dýrabæk- ur en þó ekki mikið. Ég er líka mikið í dýra- búðum að skoða og fylgjast með.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ingibjörg segir að hundinum Rocco og páfagaukunum komi vel saman. Ingibjörg með fuglana Frey og Möttu. Dýrastelpa í Grafarholti VIÐ fengum ábendingu frá barnalækni vegna umfjöllunar okkar um hjólabretti í síðasta blaði. Læknirinn sagði að það væri mjög mik- ilvægt að krakkar væru með hjálma og hlífar þegar þeir væru að renna sér á hjólabrettum þar sem það geti komið í veg fyrir að þeir meiði sig alvarlega þegar þeir detta eða verða fyrir öðrum óhöppum eins og alltaf getur gerst í íþróttum. Við hvetjum því alla hjóla- brettakrakka til að fara að ráðum læknisins og fá sér hjálma og hlífar. Vel varinn hjólabrettakappi. Öryggishlífar Svar: Þegar þeir eru ringlaðir. Hundar geispa ekki bara þegar þeir eru syfjaðir. Hvenær geispa þeir líka?Júgíó frá Japan LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 mennskuna og nú er kennt að spila með Yu- gi-oh á laugardögum í NEXUS og haldin eru mót á föstudögum og stundum á sunnudög- um. Til stendur að NEXUS setji upp netsíðu með spilareglum Yu-gi-oh á íslensku. Vinirnir Ægir James og Þór Örn Flygen- ring eru spenntir fyrir spilunum og eru sam- an í að safna þeim. Þeir hafa komið sér upp vænu safni og fara oft með strætó til að verða sér úti um spilin góðu. Stundum liggur leiðin í Kolaportið því þar fæst spænska útgáfan af Yu–gi–oh sem er ódýrari en sú enska. Ægir fer stundum í NEXUS til að spila en Þór er að læra kúnstina. Morgunblaðið/Sverrir Vinirnir Ægir James og Þór Örn Flygenring. eru gædd töframætti. Aðrir sækjast eftir djásnunum og því er þetta eilíf barátta og auðvitað stefnir aðalhetjan að því að verða besti spilarinn. Spilin fást m.a. í NEXUS og þar fengust þær upplýsingar að fleiri og eldri krakkar spiluðu Yu-gi- oh heldur en t.d. Pókemon. Eftir að Stöð 2 hóf að sýna teiknimyndirnar um Yu-gi-oh kom kippur í spila- Nýjasta æðið í spilaheiminum eru kortaspilin Yu-gi-oh (borið fram júgíó). Spilin eru fram- leidd af tölvuleikjarisa í Japan og sama grunnhugmyndin liggur að baki: Teiknimyndir eru sýndar í sjón- varpi með þeim persónum sem eru á kortaspilunum og einnig eru framleiddir tölvuleikir með þeim. Aðalsöguhetjan í myndinni kemst yfir forn spil sem eru dýrmæt því þau  TÓMSTUNDIR H EKLUNÁLIN lék í höndunum á Pétri Guðmundssyni þegar hann var fimm ára og síðan hefur handavinna verið honum hugleik- in. Hann er þrjár vikur með eina ullarpeysu með norsku mynstri, snarar fram nokkurra fermetra bútasaumsteppi á nokkrum dögum og grípur í útsauminn þess á milli. Þetta er þó bara tómstundagaman því Pétur er í fullri vinnu sem tæknimaður hjá Ríkissjón- varpinu en hann er rafeindavirki og vélfræð- ingur að mennt. Hann hefur ekki tíma til að grípa í handavinnuna í vinnunni en tekur til við hana að loknum vinnudegi. Í vinnunni kemur hann m.a. að beinum útsendingum og tekur á móti öllum fréttasendingum utan af landi og einnig utan úr heimi. Pétur þarf því að skoða fréttaefni sem oft getur verið ógeðfellt og jafn- vel ekki sýningarhæft í sjónvarpi. „Ég reyni að taka vinnuna ekki með mér heim en handavinnan dreifir huganum þegar heim er komið,“ segir sá afkastamikli og smeygir sér í nýjustu ullarpeysuna sem er árgerð 2004 frá norska merkinu Dala. Alls hefur Pétur prjónað 24 ullarpeysur, bæði með norsku mynstri og annars konar, eins og eftir handavinnumanninn fræga Kaffe Fassett. Sjónminni en ekki námskeið Upphafið að handavinnuáhuga Péturs má rekja til saumaklúbbs hjá móður hans fyrir 46 árum þegar Pétur var 5 ára. Þar sátu konurnar og hekluðu og Pétur fylgdist grannt með. Þegar þær voru farnar greip hann heklunál og garn og byrjaði og hefur ekki hætt í handavinnu síðan. „Ég hef lært þetta með sjón- og heyrnarminni og svo síðar af blöðum og bæklingum,“ segir Pétur sem á síðari árum hefur þó farið á sauma- námskeið og hellt sér út í bútasaum. Þegar hann byrjar á stykki eins og peysu, bútasaumsteppi eða útsaumi, hefur hann ekki ákveðið hvert það fer, nema í undantekning- artilfellum. Peysurnar hafa margar farið til ætt- ingja og vina, sem og útsaumur og bútasaums- teppi. „Þetta verður sextugsafmælisgjöf,“ segir hann og bendir á fallegt bútasaumsteppi sem er greinilega vel sniðið og vandað. Sjö fermetra bútasaumsteppi Saumavélin hans Péturs er heldur ekkert slor, tölvustýrð vél sem hann notaði föðurarfinn til að kaupa fyrir fimm árum. „Hún er algjör vinnuþjarkur og ég get næstum því skilið hana eftir með saumaskapinn.“ Hægt er að tengja saumavélina við tölvu, hanna mynstur og láta hana sauma. Hún hefur a.m.k. gert sitt gagn við að sauma saman teppið sem Pétur vinnur að um þessar mundir og verður að lokum 7,01 fm að stærð enda er stofan hans undirlögð þegar hús- ráðandi situr við saumaskapinn þar sem sófinn og sófaborðið er vinnuaðstaðan. „Ég þekki ekk- ert annað,“ segir hann glaðbeittur. Pétur segir þetta áhugamál ekki endilega dýrt miðað við margt annað. „En maður má heldur ekki horfa bara í peningana.“ Hann segir að handavinnan gefi sér mikið. „Það léttir lífið að setjast niður og búa eitthvað til, fá útrás fyrir sköpunargleðina.“ Hann segist bara líta á handavinnuna sem áhugamál en hún er samt bara eitt af mörgum. Pétur lærði ballett í æsku og var lengi í dansi. Hann er líka áhugaljós- myndari og með einkaflugmannspróf og því ábyggilegt að hann skortir ekki verkefni í tóm- stundum. Handavinna dreifir huganum Morgunblaðið/Ásdís Afslöppun: Vestið prjónaði Pétur eftir mynstri Kaffe Fassett og hér situr hann við að sauma út. Það dreifir huganum. Morgunblaðið/Ásdís 24 peysur: Nýjasta peysan úr smiðju Péturs, 2004 árgerðin af ull- arpeysu með norsku mynstri. Mynstur: Pétur hefur saumað all- mörg bútasaumsteppi með mismun- andi mynstrum. Upphafið að handavinnuáhug- anum má rekja til saumaklúbbs móð- ur Péturs þegar hann var 5 ára. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 36 Úr verinu 14 Umræðan 36/38 Viðskipti 14/15 Messur 40/41 Erlent 16/17 Kirkjustarf 50/52 Minn staður 18 Minningar 42/44 Höfuðborgin 20/21 Bréf 48 Akureyri 22 Dagbók 50/51 Suðurnes 23 Leikhús 68 Árborg 24 Íþróttir 52/55 Landið 25 Fólk 56/61 Daglegt líf 26/27 Bíó 58/61 Listir 28/29 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 32 Veður 63 * * * Kynning – Blaðinu í dag fylgir auglýs- ingablað frá Vörustjórnunarfélagi Ís- lands. edda.is Einstakur þjóðarspegill Fljúgandi mælsku, heitar hugsjónir og hárfínt skopskyn er að finna í þessari nýstárlegu bók sem inniheldur tilsvör og kafla úr ræðum þingmanna frá stofnun lýðveldisins. Tekist er á um stórmál en einnig er umræðu um minni mál gefinn gaumur, t.d. áfengismál og stafsetningu. Með leyfi forseta er í senn fróð- legur og skemmtilegur vitnis- burður um veröld sem var og lykill að ýmsum helstu umræðuefnum samtímans. L a u g a r d a g u r 1. n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 3 HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands dæmdi í gær tvo forsvarsmenn útgerðarfyrirtækja á Snæfellsnesi í 6 og 3 mánaða fangelsi og 38 milljóna króna sekt sam- anlagt fyrir stórfelld fiskveiðibrot á árunum 2001 og 2002. Miðað við sektir, upptöku afla og bóta- greiðslur sem alls nema um 155 milljónum, er hér um að ræða þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp fyrir brot af þessu tagi. Sá sem þyngri dóminn hlaut fékk 20 milljóna króna sekt og var jafnframt dæmdur til að greiða Landsbanka Íslands 13,7 milljónir króna í skaðabætur. Meðákærði hlaut 18 milljóna króna sekt auk fangelsisdómsins. Voru þeir sakfelldir fyrir ákæru ríkislögreglustjóra fyrir að halda bátum ítrekað að veiðum án tilskilinna aflaheimilda, fyrir að landa afla sem veiddur var heimildarlaust og fyrir að standa ekki skil á virð- isaukaskatti og staðgreiðsluskatti. Tveir menn til viðbótar voru dæmdir í skilorðs- bundið fangelsi fyrir aðild að brotunum og annar til að greiða 800 þúsund krónur í sekt og hinn 600 þús- und. Enn einn aðildarmaður var þá dæmdur í 800 þúsund króna sekt. Ólöglegur afli upp á 100 milljónir króna Þá var ólöglegur afli gerður upptækur og þurfa ákærðu að standa skil á verðmæti hans að fjárhæð rúmlega 100 milljónir króna. Mennirnir sem dæmdir voru tengdust m.a. fyr- irtækjunum Bervík, Blíðu, Kristjáni og Dritvík. Brotin voru gegn lögum um umgengni um nytja- stofna sjávar, lögum um stjórn fiskveiða, lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og einnig voru tveir mannanna dæmdir fyrir umboðssvik og fyrir brot á virðisaukaskattslögum. Brotin voru framin frá því í mars 2001 til desember 2002. Einn sakborningur, sem ákærður var í málinu, og félag hans voru sýknuð af ákærum. Helgi Magnús Gunnarsson, sem sótti málið fyrir ákæruvaldið, segir að þessi dómur marki tímamót að því leyti að aldrei hafa eins mikil verðmæti verið gerð upptæk fyrir dómi að kröfu efnahagsbrota- deildar í málum sem varða fiskveiðilöggjöfina. „Einnig er það nýlunda að sakborningar fái óskil- orðsbundna dóma fyrir brot af þessu tagi og ekki síst markar dómurinn tímamót að því leyti að tveir sakborningar fá dóm fyrir umboðssvik í tengslum við fiskveiðibrot,“ segir hann. „Í þessu máli reyndi um margt á nýjar rannsóknaraðferðir efnahags- brotadeildarinnar,“ sagði hann. Málið dæmdi Finnur Torfi Hjörleifsson dóm- stjóri. Verjandi ákærða sem hlaut 6 mánaða fang- elsi var Jón Magnússon hrl. Verjandi þess sem fékk 3 mánaða fangelsi var Sigurður Sigurjónsson hrl., þess sem fékk tveggja mánaða skilorð Hilmar Bald- ursson hrl., þess sem fékk eins mánaðar skilorð Kristján Stefánsson hrl. sem einnig varði þann sem fékk 800 þúsund kr. sekt en sá var sýknaður af upp- tökukröfum ákæruvalds. Verjandi þess sem sýkn- aður var í málinu var Guðmundur Óli Björgvinsson hdl. Þyngsti dómur til þessa fyrir brot á fiskveiðilöggjöfinni féll í gær Aflaupptökur, sektir og bótagreiðslur 155 milljónir FÓLKIÐ sem lést í bílslysi skammt frá bænum Viðvík í Hjaltadal á fimmtudag, hét Isabel Owzarek, nemi í ferðamálafræði, og Victor Páll Jóhannsson. Isabel Owzarek var 20 ára gömul og bjó tímabundið að Hólum þar sem hún var við nám, en var frá Þýskalandi. Hún var fædd 31. ágúst 1983. Victor Páll Jóhannsson var 8 ára gamall og til heimilis á Austurgötu 9 í Hafnarfirði. Hann var fæddur 9. maí 1995. Victor Páll JóhannssonIsabel Owzarek Létust í bílslysi „ÞETTA gekk vel og allir stóðu sig vel,“ sagði Hörður Guðmundsson skipstjóri á frysti- og nótaskipinu Þorsteini EA sem dregið var til hafn- ar í Neskaupstað af Vilhelm Þor- steinssyni EA seint í gærkvöldi eftir að mikill leki kom að skipinu 30 mílur norðaustur af Glettinganesi. Skipin komu til hafnar kl. 22.30 í gærkvöldi. „Það gekk mjög vel að ná drátt- artóginu um borð og það bjargaði að vera með ofurtóg frá Hampiðjunni,“ sagði Hörður við Morgunblaðið klukkan 21.30 í gærkvöldi. Þorsteinn var á siglingu með veiðarfærin uppi þegar lekinn kom að skipinu um miðjan dag í gær. Skipstjórinn ósk- aði eftir aðstoð þegar sýnt var að dælur skipsins réðu ekki við lekann. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór til aðstoðar með dælubúnað, einnig fór björgunarskipið Hafbjörg á staðinn með dælubúnað ásamt Birtingi NK. Um klukkan 21 í gærkvöldi hafði sjór lækkað um 70 sentímetra í vél- arrúmi Þorsteins eftir að Gæsluþyrl- an kom með sex dælur sem hún lét síga um borð. Annar stýrimannanna úr þyrluáhöfninni varð eftir um borð í Þorsteini til að sjá um dælurnar. Aðgerðir hófust í kjölfar þess að Reykjavíkurradíó hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14.41 og tilkynnti mikinn leka í vél- arrúmi Þorsteins. Norðan eða norð- vestan 12–13 metrar á sekúndu og talsverður sjór var þegar vart varð lekans. Sáu tvö skip í námunda við Þorstein Varðstjórar í stjórnstöð Land- helgisgæslunnar sáu í fjareftirlits- kerfi stofnunarinnar að tvö skip voru stödd í námunda við Þorstein. Voru starfsmenn Reykjavíkurradíós beðnir um að kalla þau upp og óska eftir að þau héldu í átt til Þorsteins. Einnig var óskað eftir að björgunar- sveitir á Austfjörðum yrðu kallaðar út. TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, var þá á flugi fyrir vestan land og var hún þegar kölluð inn til Reykjavíkur. Þar fór þyrluáhöfnin um borð í TF-LIF með dælurnar og fór hún á loft frá Reykjavíkurflug- velli kl. 15.41. Haft var samband við skipið stuttu síðar og þá var verið að koma taug úr Vilhelm Þorsteinssyni yfir í Þor- stein. Kl. 16.54 var Þorsteinn kominn í tog en þá var lekinn orðinn það mik- ill að skipið var farið að síga á verri hliðina að sögn skipstjórans. Sigldi Vilhelm Þorsteinsson með skipið í átt til Neskaupstaðar og kom til hafnar skömmu fyrir miðnætti. Þorsteinn EA dreginn til hafnar í Neskaupstað Dælur skipsins réðu ekki við mikinn leka Morgunblaðið/Kristján Þorsteinn EA var á siglingu 30 mílur norðaustur af Glettinganesi þegar mikill leki kom að skipinu um miðjan dag í gær. ÚTGÁFUFÉLAG DV hefur farið fram á að fá greiðslustöðvun þess framlengda um eina viku. Félagið fékk upphaflega þriggja vikna greiðslustöðvun snemma í septem- ber og var sú greiðslustöðvun síðan framlengd til loka október. Að sögn Jóhannesar Rúnars Jó- hannssonar, aðstoðarmanns útgáfu- félags DV á greiðslustöðvunartíman- um, var fyrirtaka í héraðsdómi þar sem farið var fram á að fá greiðslu- stöðvunina framlengda um eina viku. „Dómarinn tók þá beiðni til úrskurð- ar og kveður væntanlega upp úr- skurð í næstu viku þannig að greiðslustöðvunin er enn í gildi.“ Jóhannes segir verið að safna nýju hlutafé og að semja um niðurfærslu krafna eða breytingu á þeim. DV vill greiðslustöðv- un framlengda um viku ÓLI Björn Kára- son, ritstjóri DV undanfarin ár og einn eigenda blaðsins, lét af störfum hjá blaðinu í gær. Hann staðfesti í samtali við Morg- unblaðið að dag- urinn í gær hefði verið sinn síðasti hjá blaðinu. Óli Björn hættir sem ritstjóri DV Óli Björn Kárason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.