Morgunblaðið - 01.11.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagði í ræðu
sinni við upphaf landsfundar flokks-
ins á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær að
aldrei fyrr í Íslandssögunni hefðu
jafnaðarmenn verið jafnsterkir og
nú. Hann sagði að Samfylkingarfólk
hefði ætlað að búa til stórflokk og
breyta flokkakerfinu. Sagði hann í
því sambandi að nú „væri stórflokk-
urinn til en fjórflokkurinn dauður“.
Össur kom víða við í ræðu sinni og
lagði m.a. áherslu á að Samfylkingin
hefði unnið góðan sigur í alþing-
iskosningunum sl. vor. „Í þingkosn-
ingunum náðum við þeim sögulega
áfanga að fara yfir 30%. Í kosning-
unum festi Samfylkingin sig með af-
gerandi hætti í sessi sem næst-
stærsti flokkur landsins. Aldrei fyrr
í Íslandssögunni hafa jafnaðarmenn
verið jafnsterkir á Íslandi og í dag.
Við höfum skapað Samfylkingunni
einstaka stöðu sem leiðandi afls í ís-
lenskum stjórnmálum. Aldrei fyrr
hafa íslenskir jafnaðarmenn verið
næststærstir á Norðurlöndunum.
Ég get sagt ykkur, félagar góðir,
þar er tekið eftir okkur. Við ætl-
uðum að búa til stórflokk og breyta
flokkakerfinu. Í dag er stórflokk-
urinn til en fjórflokkurinn er dauð-
ur.“
Össur vék einnig að velferð-
armálum og sagði að Samfylkingin
ætlaði að uppræta fátæktargildrur
og treysta stöðu barnafjölskyldna.
„Þess vegna mun Samfylkingin
setja á oddinn breytt velferðarkerfi
sem leggur mikla áherslu á að
styrkja stoðir fjölskyldna og barna,“
sagði hann. Össur sagði að hlutfall
barna undir 18 ára aldri væri hlut-
fallslega miklu hærra hér á landi en
á hinum Norðurlöndunum. „Samt
eru útgjöld til barna og barnafjöl-
skyldna langlægst á Íslandi af Norð-
urlöndunum. Vitið þið að Ísland er
eitt fárra landan innan OECD sem
kemur í veg fyrir að ungar barna-
fjölskyldur geti brotið sér leið til
bjargálna með því að tekjutengja
barnabætur? Þær tekjutengingar
eru stór partur af fátæktargildrum
nútímans. Það eru þær sem Stefán
Ólafsson prófessor sýndi fram á á
Vorþingi Samfylkingarinar að hefðu
breytt velferðarkerfi nútímans í eins
konar ölmusukerfi. Þessu verður að
breyta um leið og svigrúm skapast í
ríkisfjármálum.“
Gagnrýnir skattastefnu
Sjálfstæðisflokksins
Össur sagði að Samfylkingin hefði
mjög skýra áherslu í skattamálum.
Hún vildi lækka matarverð til heim-
ilanna með því að lækka virð-
isaukaskatt á matvælum um helm-
ing. Hann gagnrýndi á hinn bóginn
skattastefnu Sjálfstæðisflokksins.
„Undir hans forystu hefur skatt-
byrði hér á landi aukist meira síðan
1995 en í nokkru öðru OECD landi,“
sagði hann. „Þeir sem borguðu 25
krónur í skatt af hverjum 100 krón-
um árið 1995 borga núna 29 krónur.
Núna, eftir öll þessi afrek, kemur
Sjálfstæðisflokkurinn og ber sér á
brjóst eins og Tarsan í frumskóg-
inum. Hann lofar skattalækkunum
upp á 20 milljarða. En hvenær? Ein-
hvern tíma seinna? Kannski þegar
þenslan er í hámarki? Eða hvað? Á
kannski að endurnýta þessi kosn-
ingaloforð og nota aftur að fjórum
árum liðnum? Hvernig byrjar Sjálf-
stæðisflokkurinn að efna þetta lof-
orð sitt haustið eftir kosningar? Með
því að hækka þungaskatt um 400
milljónir. Með því að hækka bensín-
gjald um 600 milljónir. Með því að
draga úr vaxtabótum sem er í reynd
skattahækkun um aðrar 600 millj-
ónir. Með því að draga úr framlagi
til sérstaks lífeyrissparnaðar sem
jafngildir skattahækkun um 500
milljónir til viðbótar.“
Gegnir ábyrgðarhlutverki
Össur fjallaði einnig um áform
ríkisstjórnarflokkanna um að skerða
atvinnuleysisbætur. „Ég get ekki
annað en sagt það að skelfing er það
dapurleg byrjun hjá nýjum og efni-
legum félagsmálaráðherra að gera
það sitt fyrsta verk að skerða bætur
til atvinnulausra. Það er skrítinn
flokkur sem tekur bakföll til að
vernda rjúpuna en ræðst að kjörum
þeirra sem minnst hafa í mann-
heimum. Ég segi því við Árna: Sam-
fylkingin skorar á Árna Magnússon
[félagsmálaráðherra] að taka aftur
Yfir sjö hundruð fulltrúar voru við setningu landsfundar Samfylkingarinnar í gær
Össur segir
fjórflokk-
inn dauðan
Landsfundur Samfylkingarinnar var settur
á Ásvöllum í Hafnarfirði síðdegis í gær. Um
700 fulltrúar víða um land taka þátt í störf-
um þingsins. Össur Skarphéðinsson, for-
maður flokksins, kom víða við í setning-
arræðu sinni. Fundinum lýkur á sunnudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, veitir Ingveldi dóttur sinni athygli á meðan kona hans, Árný
Erla Sveinbjörnsdóttir, gengur að borðinu. Ný stjórn Samfylkingarinnar verður kjörin á lansfundinum í dag.
MARGRÉT Frímannsdóttir,
fráfarandi varaformaður Sam-
fylkingarinnar, hafði ekki gert
upp hug sinn í gærkvöld, er
Morgunblaðið náði tali af
henni, varðandi það hvort hún
hygðist bjóða sig fram til for-
mennsku framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar. Framboðs-
frestur rennur út fyrir hádegi í
dag. Gert er ráð fyrir því að
kosningar til embættisins sem
og kosningar til gjaldkera, rit-
ara og fulltrúa í framkvæmda-
stjórn fari fram eftir hádegi í
dag, samhliða umræðum á
þinginu.
Frestur
rennur út
fyrir hádegi
LANDSFUNDUR Samfylking-
arinnar heldur áfram í dag. Kl. 8
hefst fundur kvennahreyfingar
Samfylkingarinnar og kl. 10 mun
Stefán Jón Hafstein, formaður fram-
kvæmdastjórnar kynna skýrslu sína.
Almennar umræður verða fyrir há-
degi í dag og eftir hádegi munu mál-
efnahópar funda. Í kvöld verður há-
tíðarkvöldverður að Grand Hóteli í
Reykjavík og verður Þórólfur Árna-
son borgarstjóri ræðumaður kvölds-
ins.
Dagskrá í dag
Í DRÖGUM að ályktun landsfundar
Samfylkingarinnar um velferðarmál
eru framkomnar tillögur ríkisstjórn-
arinnar um skerðingu á atvinnuleys-
isbótum harðlega fordæmdar. Jafn-
framt er lagt til að landsfundurinn
lýsi yfir vilja sínum til að lyfjakaup
verði boðin út til að ná fram lækkun
á kostnaði. Þá skal tryggja að eng-
inn greiði meira en ákveðið hámark
fyrir lyfseðilsskyld lyf og lækna-
þjónustu, t.d. með sérstökum heilsu-
kortum. Stilla á komugjöldum og
öðrum greiðslum sjúklinga í hóf og
setja reglur um hámarksbiðtíma eft-
ir þjónustu heilbrigðisstofnana.
Í drögunum segir að það þurfi að
velja rekstrarform einstaka heil-
brigðis- og velferðastofnana eftir að-
stæðum og tryggja að fjármunir
nýtist sem best við gerð þjónustu-
samninga. Þessi þjónusta eigi að ná
til allra óháð efnahag og aldrei vera
rekin með hagnað að leiðarljósi.
Jafnlaunaverkefni sett á fót
Ráðast á til atlögu við launamun
kynja með samstilltu átaki ríkis-
valds og vinnumarkaðar segir í
drögum ályktunar um mannréttindi,
jafnrétti og kvenfrelsi. Jafnframt
verði sett á fót jafnlaunaverkefni á
vegum ríkis og sveitarfélaga og öll-
um ráðum beitt til að bylta viðhorfi
samfélagsins til vinnuframlags
kvenna.
Jafnframt segir að stjórnvöldum
verði gert skylt að koma á fót sér-
stakri aðgerðaráætlun sem miði að
fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum
sem hið opinbera ráðstafar eins og í
hópi embættismanna, dómara, pró-
fessora og annars staðar á vettvangi
hins opinbera. Í sama skyni verði
staðið að sérstakri vakningu sem
beint verði að viðskiptalífinu til að
rétta af ójafnvægið milli kynja í
æðstu stöðum þar.
Styður framboð til
öryggisráðs SÞ
Sagt er að Samfylkingin styðji
framboð Íslands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna 2009–2010
enda gefi það mikilvægt tækifæri til
að láta að sér kveða á alþjóðlegum
vettvangi.
Í drögum að ályktun um utanrík-
is- og alþjóðamál segir einnig brýnt
að skilgreina forgangsverkefni á
sviði öryggismála sem taka mið af
aðstæðum eins og þær séu. Varað er
við nýjum kenningum Bandaríkja-
stjórnar um réttmæti árásarstríðs ef
stjórnvöld telji hagsmunum sínum
ógnað. Sú kenning eigi sér ekki fót-
festu í alþjóðalögum og gangi gegn
grundvelli stofnsáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
Samfylkingin ítrekar nauðsyn
þess að sátt náist um markmið og
útfærslu öryggis- og varnarstefnu
Íslands á grundvelli samstarfs allra
stjórnmálaflokka. Ógnir sem kunni
að steðja að Íslendingum séu margs
konar og fráleitt allar af hernaðar-
legu tagi.
Í drögunum segir að það sé hlut-
verk Samfylkingarinnar að vera í
fararbroddi umræðunnar um sam-
skipti Íslands við Evrópusambandið.
Alþingi komi að skipun
hæstaréttardómara
Í drögum að ályktun um lýðræði
og dómsmál segir að skerpa þurfi
greiningu ríkisvaldsins í löggjafar-
vald, dómsvald og framkvæmdavald
og skapa Alþingi raunverulegan
sess sem æðstu stofnun ríkisins.
Þróunin hér á landi hafi sífellt verið í
átt að sterkara meirihlutavaldi, nán-
ast alræði meirihlutans, sem birtist
m.a. í skorti á samráði við aðra. Lagt
er til að landið verði gert að einu
kjördæmi og ráðherrar segi af sér
þingmennsku á meðan þeir þjóni
sem framkvæmdavaldshafar. Einnig
að ábyrgð þeirra verði skilgreind
betur og skýrð í lögum.
Er bent á að hæstaréttardómarar
hafi verið skipaðir síðustu áratugi
eftir ákvörðun dómsmálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins án samráðs við
lýðræðislega kjörna fulltrúa ann-
arra stjórnmálaflokka. Samkvæmt
drögunum vill Samfylkingin tryggja
aðkomu Alþingis að skipan hæsta-
réttardómara.
Lýðræði í stjórnmálaflokkum í
stjórnarskrá
Þá segir í drögunum að lands-
fundur Samfylkingarinnar vilji að
heimilað verði að tiltekinn fjöldi
kjósenda geti krafist þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Endurskoða eigi
skipulag stjórnarráðs Íslands í ljósi
nýrra samfélags- og atvinnuhátta og
vernda með lögum heimildarmenn
Drög að ályktunum landsfundar Samfylkingarinnar voru lögð fram í gær
Tiltekinn fjöldi kjósenda geti
krafist þjóðaratkvæðagreiðslu
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagði í ræðu
sinni við upphaf landsfundar
flokksins í gær að hann vonaðist til
að Samfylkingin gæti flutt inn í nýtt
húsnæði fyrir áramót. Sagði hann
að leigutíð flokksins á „hanabjálka í
Austurstræti“ væri því senn á enda.
„Það er verið að reka smiðshöggið
á samninga um fjármögnun á fimm
til sex hundruð fermetra húsnæði,
sem ég vona að Samfylkingin geti
flutt inn í fyrir áramót.“
Sagði hann að langþráður
draumur um húsnæði undir hreyf-
inguna væri því loksins að rætast.
Ekki er þó búið að finna nýtt hús-
næði. „Það verður nýrrar fram-
kvæmdastjórnar að finna hið rétta
skjól og ganga endanlega frá húsa-
málum Samfylkingarinnar. En
frumbýlingsárunum er lokið.“
Í nýtt húsnæði fyrir áramót