Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 15
STAÐA stjórnarmanna í Kauphöll Ís-
lands ræðst meðal annars af mörk-
unum á milli eftirlits Kauphallarinnar
annars vegar og Fjármálaeftirlitsins
hins vegar, að mati forseta viðskipta-
deildar Háskólans í Reykjavík og
lektors við Viðskiptaháskólann á Bif-
röst. Í Morgunblaðinu á fimmtudag
var sagt frá gagnrýni deildarforseta
viðskipta- og hagfræðideildar Há-
skóla Íslands á stöðu stjórnar Kaup-
hallarinnar og þá sérstaklega að
margir aðalstjórnarmenn tengist
mjög viðskiptum í Kauphöllinni vegna
starfa sinna.
Agnar Hansson forseti viðskipta-
deildar Háskólans í Reykjavík segir
að spurningin um það hvort um sé að
ræða hugsanlega hagsmunaárekstra
vegna stöðu stjórnarmanna Kaup-
hallarinnar fari eftir því hvernig
menn túlki hlutverk hennar. Kaup-
höllin sé fyrst og fremst vettvangur til
að eiga viðskipti og ef málið sé skoðað
út frá því sjónarhorni sé ekki óeðlilegt
að þeir hagsmunaaðilar sem eigi við-
skipti í Kauphöllinni stýri fyrirtæk-
inu.
Þá segir Agnar um eftirlitshlutverk
Kauphallarinnar að það skipti máli
hvers eðlis eftirlitið sé. Ef eftirlitið
snúist um atriði eins og að fylgjast
með því að skráð fyrirtæki fylgi
reglum við birtingu upplýsinga, þá sé
ekki óeðlilegt að þeir sem stundi við-
skiptin sitji í stjórninni.
Eigi eftirlit Kauphallarinnar hins
vegar að felast í túlkun á eðli við-
skiptanna, þá geti hagsmunaárekstr-
ar komið upp við það að þeir sem
stundi viðskiptin sitji í stjórn Kaup-
hallarinnar og þá geti staða forstjóra
Kauphallarinnar einnig orðið erfið.
Agnar segist hins vegar telja að meg-
inhlutverk Kauphallarinnar eigi að
felast í því að tryggja snurðulaus við-
skipti og upplýsingagjöf, en að eftirlit
með eðli viðskiptanna eigi að vera í
höndum annarra, svo sem Fjármála-
eftirlitsins.
Svipað og erlendis
„Ég get ekki séð að fyrirkomulagið
hérna sé mjög ólíkt því sem það er
annars staðar,“ segir Bernhard Þór
Bernhardsson, lektor við Viðskipta-
háskólann á Bifröst, en segist að öðru
leyti ekki vilja leggja mat á það hvort
staða stjórnarmanna í Kauphöll Ís-
lands sé eðlileg eða ekki. „Kauphall-
arreglurnar hérna eru að langmestu
leyti byggðar á Evrópurétti og
NOREX-samstarfið sem við erum í
gerir það að verkum að við erum með
svipaðar reglur og gilda almennt í ná-
grannalöndunum.“
Bernhard segir að kauphallirnar í
Svíþjóð og London séu skráð fyrir-
tæki og kauphöllin í London sé skráð
á sjálfri sér. Stjórnarmenn þar séu úr
atvinnulífinu í Bretlandi, þannig að
ekki sé um grundvallarmun að ræða
þar og hér.
Hann segir að stóra spurningin í
þessu máli snúist um það hvar mörkin
á milli eftirlits Kauphallarinnar og
Fjármálaeftirlitsins eigi að liggja. En
vandamálið hér á landi í þessu eins og
öðru sé að samfélagið sé lítið og því
verði oft um meiri hagsmunatengsl að
ræða en erlendis. Það geri það hugs-
anlega að verkum að opinbera eftirlit-
ið þyrfti að vera sterkara en gengur
og gerist annars staðar.
Stjórnkerfi kauphallarinnar í New
York hefur verið til umræðu að und-
anförnu og John Reed, sem ráðinn
hefur verið yfirmaður hennar út þetta
ár, vinnur nú að því að endurskipu-
leggja stjórnkerfið. Reed hefur sett
fram tillögur þess efnis, en hann tók
við eftir að fyrrverandi yfirmaður,
Grasso, var látinn hætta vegna hárra
aukagreiðslna frá NYSE.
Í The Wall Street Journal segir að
fyrirhuguð endurskipulagning muni
hjálpa við að útrýma þeim hagsmuna-
árekstrum sem eru mest áberandi í
stjórnsýslu kauphallarinnar. NYSE
hafi árum saman haft stjórn og launa-
nefnd sem í hafi verið fulltrúar þeirra
aðildarfélaga sem kauphöllin hafi eft-
irlit með.
Tillögur Reed ganga út á að skipta
stjórn kauphallarinnar upp þannig að
fulltrúar aðildarfélaganna taki ekki
ákvarðanir um það sem lýtur að eft-
irliti kauphallarinnar og launum yf-
irmanna. Því til viðbótar telur Reed
koma til greina að skipta upp stjórn-
arformennsku og starfi fram-
kvæmdastjóra, en þetta hefur hingað
til verið á einni hendi eins og tíðkast
oft í bandarískum fyrirtækjum. Þá
vill hann setja þak á laun fram-
kvæmdastjóra svo þau verði ekki
hærri en um 2 milljónir dala, um 150
milljónir króna, á ári, sem er umtals-
vert minna en laun síðasta fram-
kvæmdastjóra.
Staða stjórnarmanna í Kauphöll Íslands til umræðu
Spurning um eftirlit
með viðskiptunum
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 15
Opnunartími virka daga frá kl. 14-18, helgar frá kl. 11-18
Stendur til 2. nóv. Upplýsingasími 511 2226
í Perlunni
BANJO barnafatnaður
NÝTT MERKI - toppvara
BANJO
catmandoo
OKKAR TAKMARK:
Verð 50-80%
undir fullu verði.
Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð:
PUMA regnjakkar ................................... kr. 1.400 ............... kr. 4.990
Fóðraðir gallajakkar barna ..................... kr. 1.000 ............... kr. 3.990
Vöggusett með stöng ............................ kr. 1.000 ............... kr. 7.990
Sokkabuxur .......................................... kr. 150 ............... kr. 690
Barnaflíspeysur REGATTA/CATMANDOO.... kr. 1.490 ............... kr. 4.990
IS IT ZO skíðabuxur ................................ kr. 4.990 ................kr. 9.990
Bómullargallar kvenna ........................... kr. 3.500 ................kr. 8.990
Bómullarbuxur jogging karla og kvenna .. kr. 1.500 ................kr. 3.990
Moonboots barna .................................. kr. 990
Sundtoppar og buxur frá ........................ kr. 300
Handklæðasett ungbarna ........................ kr. 900
Laugardag og sunnudag
aukaafsláttur af völdum vörum
Tryggingamiðstöðin
hagnaðist um 602 millj-
ónir króna á fyrstu níu
mánuðum ársins en á
sama tímabili í fyrra
var hagnaðurinn 173
milljónir króna. Hagn-
aður af rekstri dóttur-
félaganna á tímabilinu
er sjö milljónir króna
hjá Líftryggingamiðstöðinni og
tvær milljónir hjá Tryggingu.
Hagnaður af vátryggingarekstri
er 523 milljónir króna en var 134
milljónir fyrir sama tímabil árið áð-
ur.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að bókfærð iðgjöld hafi verið
5.663 milljónir króna á móti 5.775
milljónum árið áður og lækkuðu
um 1,9%. Meginskýringin á lækkun
iðgjalda er auknir afslættir til við-
skiptavina félagsins í TM-öryggi
og lækkun iðgjaldstaxta í öku-
tækjatryggingum, að því er fram
kemur í tilkynningunni.
„Það er mat stjórnenda félags-
ins, að afkoma tímabilsins sé góð
og fyllilega í samræmi við vænt-
ingar. Arðsemi eigin fjár var
12,97% á tímabilinu eða rúmlega
17% á ársgrundvelli,“ segir í til-
kynninguni.
Þá segir að tap af
rekstri eignatrygginga
hafi verið 3,1 milljón
króna en var í fyrra
189,2 milljónir. „Hagn-
aður í sjó-, flug- og
farmtryggingum var
110,4 mkr. sem er nokk-
uð umfram væntingar,
en engin stór tjón hafa
lent á félaginu í þeirri grein það
sem af er árinu. Hagnaður af
rekstri lögboðinna ökutækjatrygg-
inga var 369,8 mkr. og 89,8 mkr. af
öðrum ökutækjatryggingum. Tíðni
slysa og óhappa í umferðinni það
sem af er árinu er lægri en verið
hefur um nokkurt skeið. Félagið
hefur því lækkað iðgjaldstaxta í
ökutækjatryggingum á árinu og
aukið afslætti til einstaklinga í TM-
öryggi. Hagnaður af rekstri
ábyrgðartrygginga var 71,3 mkr.
en tap af rekstri slysa- og sjúkra-
trygginga var 118,0 mkr. Tapið má
einkum rekja til slysatrygginga
launþega og slysatrygginga sjó-
manna. Huga þarf að iðgjalda-
grundvelli þeirra greina. “
Þá segir í tilkynningunni að
hagnaður af fjármálarekstri hafi
verið 350 milljónir króna á móti
246 milljónum árið áður.
TM með 602 millj-
ónir í hagnað
PHILIP Green, eigandi Bhs og Ar-
cadia, hefur dregið sig út úr keppn-
inni um að kaupa Safeway, fjórðu
stærstu verslanakeðju Bretlands, að
því er segir í frétt frá Reuters-frétta-
stofunni. Eftir þetta mun leiðin vera
greið fyrir eina keppinaut Green um
fyrirtækið, William Morrison. Búist
er við tilboði frá honum á allra næstu
vikum, en markaðsvirði Safeway er
um 3 milljarðar punda, eða nálægt
400 milljörðum króna.
Green hættir við Safeway