Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 23
2002 - 03
Aðalfundur
Ferðamálasamtaka Íslands
Aðalfundur FSÍ verður haldinn í Reykjanesbæ
á Ránni, 21. - 22. nóvember 2003.
Dagskrá fundarins verður tilkynnt síðar.
Skráning á aðalfundinn og bókun herbergja er
á Hótel Keflavík í síma 420 7000.
Stjórn FSÍ
Suðurnesjum | Á fundi stjórnar
Sambands sveitarfélaga á Suð-
urnesjum 30. október var fjallað um
uppsagnir hjá varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli og eftirfarandi bókað:
„Stjórn SSS lýsir áhyggjum af
fjöldauppsögnum varnarliðisins á
Keflavíkurflugvelli. Stjórnin telur
brýnt að fá viðræður við stjórnvöld
um atvinnumál á svæðinu og nauð-
synlegar mótvægisaðgerðir. Þessar
bókanir hafa verið sendar viðkom-
andi ráðherrum og þingmönnum
Suðurkjördæmis.“
Einnig var skorað á heilbrigð-
isráðherra að fylgja eftir drögum að
uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja og tryggja að hægt
verði að ráðast í framkvæmdir og
rekstur eins og kynnt var.
Viðræður
Ættfræði | Félagar í Ættfræði-
félaginu hittast á Bókasafni Reykja-
nesbæjar næstkomandi mánudags-
kvöld, klukkan 20. Allt áhugafólk um
ættfræði er velkomið. Nánari upp-
lýsingar veitir Einar Ingimund-
arson.
Hjálparstarf | Söfnun ferming-
arbarna og Hjálparstarfs kirkjunnar
fer fram þriðjudaginn 4. nóvember.
Öll fermingarbörn í Keflavík koma í
Kirkjulund klukkan 17 og fá innsigl-
aða bauka og ganga í hús. Í tilkynn-
ingu frá Keflavíkurkirkju eru bæj-
arbúar beðnir um að taka þeim vel.
Söfnunin stendur aðeins til klukkan
20 þann sama dag.
Irene Doomo og Madanyang Sal-
omon hafa kynnt fyrir börnunum
stöðu fátækra í Kenýa í Afríku og
fermingarbörnin sáu einnig mynda-
sýningu þaðan.
Reykjanesbæ | Lykilráðgjöf ehf.
(Turnkey Consulting Group) í
Reykjanesbæ hefur gert samning
við nýsköpunarmiðstöðina Impru
á Iðntæknistofnun um að taka að
sér úttektir á smáfyrirtækjum á
grundvelli aðferða og verklags
sem nefndar eru hagnýt viðmið.
Impra tók upp aðferðir Bus-
iness Review við úttektir á fyr-
irtækjum á árinu 2001, stofnunin
heldur utan um gagnagrunn, ann-
ast þjálfun ráðgjafa og hefur yf-
irumsjón með notkun aðferðanna
hér. Berglind Hallgrímsdóttir,
framkvæmdastjóri Impru, segir
að um sé að ræða samanburð-
arlíkan sem fyrirtæki geti notað
til að fara í gegnum eins konar
sjálfsmat. Helga Sigrún Harð-
ardóttir verkefnisstjóri segir að
ráðgjafi fari yfir spurningalista
með stjórnendum fyrirtækjanna
og beri síðan svörin saman við
svör samsvarandi fyrirtækja í
gagnabanka sem byggist aðallega
upp á upplýsingum frá fyr-
irtækjum í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Einnig eru svörin borin
saman í líkani sem útbúið hefur
verið í samvinnu við virta há-
skóla. Loks er farið yfir nið-
urstöðurnar með stjórnendum og
þeim bent á hvar og hvernig þeir
geti bætt sig.
Aukin þjónusta
Lykilráðgjöf var stofnað fyrr á
þessu ári í þeim tilgangi að taka
að sér alhliða verkefnisstjórn og
fá til liðs við sig fyrirtæki og ein-
staklinga á ýmsum sviðum.
Sjálfstætt starfandi ráðgjafar
hafa fengið vottun til að nota að-
ferðir Business Review, fyrir ýms-
ar gerðir fyrirtækja. Ráðgjafar á
vegum atvinnuþróunarfélaga hafa
fengið aðgang að þessum aðferð-
um við mat á smáfyrirtækjum og
er Lykilráðgjöf í Reykjanesbæ
fyrsta einkafyrirtækið sem gerir
samning við Impru á því sviði.
Ríkharður Ibsen, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að þeir sem að því standi sjái
tækifæri til að færa út kvíarnar
með því að bæta þessari þjónustu
við starfsemina. Fyrirtækið leggi
sérstaka áherslu á uppbyggingu í
atvinnumálum á Suðurnesjum og
sé því gott að styrkja tengslin við
nýsköpunarstarf á Iðntæknistofn-
un. Kjartan Eiríksson rekstr-
arráðgjafi mun meðal annars
vinna að þessu verkefni á vegum
Lykilráðgjafar.
Lykilráðgjöf semur við
Impru nýsköpunarmiðstöð
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ánægjulegt samstarf: Ríkharður og Berglind frá Impru innsigla samstarf
sitt í nýsköpunarráðgjöf með Helgu Sigrúnu og Kjartani frá Lykilráðgjöf.
Taka að sér úttektir
á smáfyrirtækjum