Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hveragerði | Mikið var um hunda á
Hengilssvæðinu í byrjun október,
þegar Björgunarhundasveit Íslands
hélt sína síðustu sumaræfingu á
Nesjavöllum. Námskeiðið stóð í þrjá
daga, frá föstudegi til sunnudags.
Mættir voru 15 hundar og 25 manns
til að æfa víðavangsleit.
Æft var í tveimur hópum og sam-
anstóð hvor hópur af 7–8 hundum
ásamt einum íslenskum og einum
breskum leiðbeinanda. Í þetta sinn
komu Bretarnir, Mike Hadwin og
Jeff Haslam, frá SARDA Lakes-
björgunarhundasveitinni í Vatnahér-
aðinu í Bretlandi, en íslensku leið-
beinendurnir voru þeir Ingimundur
Magnússon og Þórir Sigurhansson.
Að sögn Susanne Götzinger reyna
þessar æfingahelgar mikið á hunda
og menn því alla dagana eru æfingar
mjög stífar. Prófin sem teymið þarf
að ganga í gegnum í námskeiðslok
eru mjög ströng sem er vel skiljan-
legt. Mistök geta verið dýrkeypt þeg-
ar reynir á hunda og menn til að finna
týnt fólk í útköllum. Hundar hafa
ótrúlega gott lyktarskyn og með
réttri þjálfun geta þeir fundið týndan
mann mun fyrr en menn gætu nokk-
urn tímann og þess vegna eru hundar
notaðir meira og meira í útköllum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
þegar leitað er að fólki.
Góð þjálfun hunda
og leitarfólks
Til að þjálfa hunda og menn enn
betur var haldin útkallsæfing seint á
laugardagskvöldinu, þar sem aðstæð-
ur voru hafðar eins og í útköllum og
jafnvel veðrið var fullkomið; rok og
rigning, en innan skamms fundust
þeir „týndu“ því hundarnir létu veðr-
ið ekki trufla sig.
Breski leiðbeinandinn Mike Hadw-
in sagði í lok námskeiðsins: „Það er
mjög ánægjulegt og kom mér á óvart
að sjá hversu góð þjálfun ykkar er og
hversu mikil gæði eru hér bæði á
hundum og leitarfólki.“
Eftir síðustu sumarúttekt eru 8
hundar með A-próf í víðavangsleit og
eru þar með útkallshundar. Auk þess
eru 7 hundar með B-prófið og eru
þeir á svokölluðum vinnulista, þ.e.
hægt er að kalla þá út ef hunda vant-
ar.
Jafnvel leitarveðrið fullkomið
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Björgunarhunda-
sveit Íslands æfði
á Hengilssvæðinu
Þjálfun nauðsynleg: Björgunarhundasveit Íslands hélt síðustu sumaræfinguna á Nesjavöllum.
EINN hundanna sem tók A-
prófið er Sámur (eða
Reykjadals Sámur sem er
ræktunarnafn hans) en hann
er fyrsti hreinræktaði ís-
lenski fjárhundurinn á Ís-
landi til að taka A-próf í
víðavangsleit.
Sámur með
A-próf
Selfossi | „Það er heilmikil arfleifð sem
fylgir nafni fyrirtækisins sem við höfum
látið halda sér en sérstaða okkar er á viss-
an hátt sú að hér vinna tveir af örfáum
söðlasmiðum í landinu,“ segir Guðmundur
Árnason söðlasmiður sem ásamt konu
sinni, Rögnu Gunnarsdóttur, rekur söðla-
smíðaverkstæðið Baldvin og Þorvaldur að
Austurvegi 56 á Selfossi en söðlasmíða-
verkstæði undir þessu heiti hóf starfsemi
1927.
Fyrirtækið er mikil miðstöð fyrir hesta-
menn á Suðurlandi sem leita eftir þjónustu
fyrirtækisins en auk þeirra hjóna vinna
tveir starfsmenn hjá fyrirtækinu, söðla-
smíðameistari og almennur starfsmaður.
„Svæðið sem við þjónustum er mjög stórt
og erindin af ýmsu tagi. Það hefur orðið
mikil aukning í hestamennskunni á und-
anförnum árum og þá um leið þörf fyrir
þjónustu. Við erum með verslun og verk-
stæði þar sem við seljum fatnað og búnað
fyrir hestamennskuna ásamt því að sinna
nýsmíði og viðgerðum. Það er vaxandi
þáttur að við flytjum inn sjálf leður og
vörur af ýmsu tagi og erum líka í góðu
samstarfi við MR-búðina í Reykjavík varð-
andi fóðurbæti, girðingarefni og fleira,“
segir Guðmundur.
Þau hjónin eru bæði uppalin við hesta-
mennsku og þekkja því vel til þarfa hesta-
manna. „Það er nauðsynlegt að hafa áhuga
á þessu umhverfi. Maður getur betur sett
sig inn í aðstæður fólks sem er með hesta
og vill sinna þeim vel og stunda áhuga-
málið af kostgæfni. Þetta er sérstakt svið
varðandi vörur fyrir hestinn en allt sem
viðkemur fatnaði í þessu sporti á margt
sameiginlegt með öðrum útivistarþáttum
en við leggjum okkur eftir því að eiga fatn-
að fyrir alla, þá sem þurfa stórt og þá sem
eru nettari því hestamenn eru af öllum
stærðum og gerðum. Svo er hesturinn okk-
ar það frábrugðinn öðrum hestakynjum að
framleiða þarf sérstaklega fyrir hann.
Fjöldaframleiðsla erlendis frá dugar ekki,“
segir Ragna og bendir á að hnakkur sem
er smíðaður eftir óskum kaupandans mið-
ast við mann og hest.
Sérstakur hnakkur
fyrir einfættan knapa
„Óskirnar eru mjög mismunandi hjá
fólki, allt eftir því hver manneskjan er og
hvað hún er að fást við í sinni hesta-
mennsku. Svo eru margir sem vilja fá eitt-
hvað sérstakt og þá sinnum við því og það
er gaman að geta komið til móts við óskir
fólksins svo sem smíði á sérútbúnum
hnökkum fyrir fatlaða. Við erum núna til
dæmis með pöntun á nýjum hnakki fyrir
einfættan knapa. Þetta er mikil handavinna
og hálfgert föndur að fást við hnakkasmíð-
ina. Hver hnakkur tekur svona 30–35
klukkustundir í smíði, allt eftir útfærslum.
Svo liggur sumum meira á en öðrum og
það hefur komið fyrir að menn hafa hrein-
lega beðið eftir því að fá hnakkinn. Við
reynum auðvitað að bregðast við öllum
óskum sem koma, nánast á hvaða tíma sem
er. Fólki liggur oft mikið á og maður getur
vel skilið þær aðstæður og við reynum að
sinna því ef við höfum smugu til þess,“ seg-
ir Guðmundur. Þau hjón segja og að mikil
samkeppni sé í þessari starfsemi og þá við
ófaglærða aðila.
„Það er mjög gefandi að finna ánægju
fólks með það sem við erum að gera. Mað-
ur fær þakkir sem er mikilvægt og eflir
mann í þessu starfi. Svo hittir maður svo
margt skemmtilegt fólk því hestamenn eru
skemmtilegir,“ segir Ragna. Þau hjónin
eru sammála um að nýr keppnisvöllur í
hestaíþróttum á Selfossi hafi mikið gildi
enda þurfi stór hestamannamót mikla þjón-
ustu af ýmsu tagi. „Það er alltaf eitthvað
fram undan í hestamennskunni, mót af
ýmsu tagi og alls konar hestaferðir sem
fólk fer í og þarf að undirbúa og þá er
ekkert til sparað því allir vilja að vel takist
til í því sem verið er að gera,“ segir Guð-
mundur.
Þau segja að fyrirspurnum fjölgi stöðugt
frá útlendingum sem koma við á sumrin til
að versla og vilja svo hafa tækifæri til að
nálgast frekari upplýsingar. Því hafi þau
opnað heimasíðu, www.baldvinogthorvald-
ur.is til þess að sinna þessum hópi.
Hestamenn eru skemmtilegir
Guðmundur og Ragna
reka söðlasmíða-
verkstæði og
verslun á Selfossi
Föndur að fást við hnakkasmíði: Ragna Gunnarsdóttir og Guðmundur Árnason ásamt starfs-
fólki sínu, Magnúsi Jakobssyni söðlasmíðameistara og Lindu Ósk Högnadóttur starfsmanni.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Vinsæl vara | Vörur undir merk-
inu Skyr.is hafa notið vinsælda síð-
ustu misseri. Fram kemur í Dag-
skránni á Selfossi að salan hafi aldrei
verið eins góð og undanfarið. Mjólk-
urbú Flóamanna hafi framleitt um
20 tonn á viku í haust og hafi salan
farið fram úr björtustu vonum. Haft
er eftir forsvarsmönnum Mjólk-
urbúsins að skyr.is sé best heppnaða
varan, sem hafi komið á markað síð-
ustu ár, eða frá því að kókómjólkin
kom á markað árið 1974.
Vilja halda landsmót | Sveitarfé-
lagið Ölfus hefur óskað eftir því við
Héraðssambandið Skarphéðin að
Landsmót ungmennafélaganna
verði haldið í Þorlákshöfn 2007 eða
2009. Á þingi Héraðssambandsins
Skarphéðins í febrúar síðastliðnum
var samþykkt að veita stjórn sam-
bandsins umboð til að sækja um að
halda Landsmót ungmennafélag-
anna 2007 eða 2009. Í framhaldi af
því var sveitarstjórnum á sam-
bandssvæðinu sent bréf um hvort
þau hefðu áhuga og treystu sér til að
útvega aðstöðu svo halda mætti
landsmót á svæðinu, umsókn-
arfrestur er til 1. desember næst-
komandi. Héraðssambandinu hefur
þegar borist ósk frá Sveitarfélaginu
Ölfusi um að halda mót í Þorláks-
höfn og vitað er að Sveitarfélagið
Árborg er að athuga málið.
Sveitarfélagið Ölfus hefur á und-
anförnum vikum látið athuga kostn-
að og gera úttekt á hvað vantar upp
á aðstöðu í Þorlákshöfn og telur að
ekkert sé því til fyrirstöðu að halda
mót af þessari stærð í Þorlákshöfn.
Skólastjóri ráðinn | Á fundi bæj-
arráðs Árborgar fyrir viku var lagt
fram minnisblað bæjarstjóra um
Suðurbyggðarskóla. Fram kemur í
Dagskránni að samþykkt hafi verið
að auglýsa eftir skólastjóra þannig
að hann geti tekið til starfa um
næstu áramót. Tveir sérfróðir ráð-
gjafar verði fengnir til að meta um-
sóknir ásamt ráðningarráðgjafa. Þá
hefur verið samþykkt að teikningar
og hugmyndir um Suðurhlíðarskóla
verði kynntar skólanefnd, for-
eldraráði, foreldrum og starfs-
mönnum í þessum mánuði og aftur í
mars eftir að skólastjóri hefur lagt
fram fyrstu drög að innra skipulagi.
Byrjað verður að kenna í fyrsta
áfanga skólans á ágúst 2004.
Föstudagur: 31. okt. kl. 20:00 - Kaplakriki
Laugardagur: 01. nóv. kl. 16:30 - Ólafsvík
Sunnudagur: 02. nóv. kl. 19:40 - Laugardalshöll
ÍSLAND - PÓLLAND
Mætum öll og styðjum strákana okkar til sigurs