Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 43

Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 43 skeið og börn Garðars og Móeiðar leikfélagar og vinir. Svo vill til að ég bý nú í því húsi, er áður áttu áður- nefndir tengdaforeldrar. Margar eru minningar tengdar Garðari og fjölskyldu hans. Í fyrstu heimsóknir mínar sem barns austur að Tumastöðum þar sem Garðar var skógarvörður og gróðrarstöðvar- stjóri, leikir þar í ævintýralegu um- hverfi, ferðir með þeim upp í skóg- lendin í Skarfanesi og Þjórsárdal, síðar sem samstarfsmanns í starfi hjá Skógrækt ríkisins um tveggja ára- tuga skeið. Garðar réðst sem skógarvörður skógræktar ríkisins á Suðurlandi ungur maður, eftir nám í Danmörku og Noregi. Garðar tók við starfi af Einari G. Sæmundsen sem var fyrsti skógarvörðurinn á Suðurlandi. Upp- bygging gróðrarstöðvarinnar á Tumastöðum urðu með fyrstu verk- um hans oft við lítil efni og erfiðar að- stæður. Uppbygging skóglendanna í Ásólfstaða og Skriðufellsskógum ásamt Skarfanes- og síðar Hauka- dalsskógi um tíma, umsjón með frið- landinu Þórsmörk og skóginum ofan við Kirkjubæjarklaustur og fleiri svæðum, var allt í verkahring skóg- arvarðarins ásamt plöntuuppeldinu á Tumastöðum. Í mörg horn var að líta. Árið 1962 flyst Garðar út að Sel- fossi. Þá var gróðrarstöðin aðgreind frá skógarvarðar-embættinu. Eftir þetta er Garðar með öll skóglendi Skógræktar ríkisins í 3 sýslum Suð- urlands, Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum, ásamt nokkrum umsjónarlöndum s.s. landi skólanna á Laugarvatni, Hrauntúni í Biskupstungum ofl, en Tumastaða- jörðin með seinni stækkunum skilin eftir í umsjón gróðrarstöðvarstjór- ans. Ég kom fyrst í vinnu til Garðars vorið 1966, þá 17 ára gamall. Garðar rak þá vinnuflokk ungra manna sem störfuðu við ýmis skógarverkefni, mikið við girðingaviðgerðir og upp- setningu nýrra girðinga. Á þessum árum var rollufárið í hámarki og þurfti talsvert til að halda sauðfénu fyrir utan skógargirðingarnar, og skilningur eigenda fjárins almennt lítill á starfi okkar skógarmanna. Það fór því mikill tími í að eltast við fénað þennan. Þetta hefur batnað á síðari árum við minnkandi ánauð fjárstofns landsmanna. Vinnuflokkur Garðars ferðaðist oft um og vann að verkefnum hér og þar. Aðbúnaðurinn var ekki upp á marga fiska oft á tíðum: kofi á vörubílspalli eða tjald, handverkfæri og strákarnir stundum að elda ofan í sig sjálfir, stundum með ráðskonu, en í minning- unni er þetta bara sælan sjálf og hið frjálsa líf. Þegar ekki var verið á ferðalögum var legið við inni í Ásólf- staðaskógi við nokkru betri aðbúnað, við gróðursetningu og umhirðu skóg- arins. Það varð úr að ég fór utan til Nor- egs að læra skógrækt og kom heim úr því námi haustið 1972 og réðst þá strax til Garðars sem aðstoðarmaður hans og skógverkstjóri. Samstarf okkar, allt fram til 1986 að Garðar lætur af störfum eftir 42 ára starfs- feril, var án skugga eða ágreinings. Garðar var maður afar rólyndur og sjaldan sá ég hann skipta skapi. Garð- ar kunni allt sem maður þarf til að geta bjargað sér í jafn fjölbreyttu starfi og skógarvarðarstarfið er. Skógfræðingur, skóghönnuður, vél- virki, vélstjóri, skipulagsfræðingur, vegaverkstjóri, bókhaldari, korta- gerðarmaður og rekstrarhagfræðing- ur, eru störf sem skógarvörður þarf að kunna nokkur skil á. Allt þetta hafði Garðar í sér en það sem einkenndi lundarfar hans öðru fremur var varfærni. Ef ég sem und- irmaður hans ámálgaði eitthvað sem kostaði peninga þá fékk ég svarið eft- ir viku, af eða á, enda höfðu skógar- verðir úr litlu að spila og urðu að fara vel með. Hann ávítaði okkur strákana stundum fyrir glannaskap, enda ekki skrýtið, því að hratt var stundum far- ið þar sem margir ungir menn fóru saman í flokki. En ævinlega stóð heimili þeirra Móu opið ef seint var komið úr ferðum og hressing á borð- um. Það kunnum við starfsmennirnir vel að meta. Þannig réðst að ég tók við skóg- arvarðarstarfinu er Garðar hætti. Garðar passaði sig á því að skipta sér ekki af embættisstörfum mínum enda heldur leitt að hafa fyrrverandi yfir- mann yfir sér, en gott að hafa hann í bakhöndinni. Garðar átti við nokkra vanheilsu að stríða við starfslok en lifði við þokkalega heilsu hin síðari ár. Faðir Garðars, Jón Pálsson dýra- læknir á Selfossi, var kunningi afa míns Böðvars Tómassonar frá Garði á Stokkseyri. Þegar Böðvar lá bana- leguna á Sjúkrahúsi Suðurlands, labbaði Jón Pálsson sér yfir að sjúkrabeði Böðvars og rétti honum minningargrein sem hann hafði skrif- að um Böðvar, og bað hann lesa og segja sér hvernig honum líkaði. Böðv- ari líkaði vel og birtist greinin þannig að Böðvari látnum. Að endingu votta ég Móeiði og öðr- um aðstandendum Garðars dýpstu samúð við fráfall hans. Böðvar Guðmundsson. Garðar Jónsson, sem nú er látinn í hárri elli, var af annarri kynslóð skóg- arvarða Skógræktar ríkisins. Hann lifði tímana tvenna í skógræktinni. Þegar hann hóf að starfa við hana kornungur maður, var hún atvinna örfárra með fámennan hóp hugsjóna- manna að baki sér. Þegar hann féll frá var skógrækt orðin atvinnuvegur hundraða bænda um allt land og ynd- isönn enn fleiri manna í nær öllum bæjum og þorpum Íslands. Garðar var einn þeirra, sem lögðu grunninn að þessum miklu umskiptum. Hann var skógarvörður á Suður- landi 1944-1986. Frá unglingsárum hafði hann unnið hjá Skógrækt rík- isins undir handarjaðri Hákonar Bjarnasonar skógræktarstjóra. Á ár- um síðari heimsstyrjaldarinnar var þess ekki kostur að senda unga menn til náms í skógrækt á Norðurlöndum, og fyrir því tók Hákon það ráð að kenna Garðari og Einari G. E. Sæ- mundsen skógræktarfræði á veturna og brautskráði þá með réttindum til skógarvarðastarfs. Á árunum fyrir stríð vann Garðar í gróðrarstöð Skógræktar ríkisins í Múlakoti og á Hallormsstað. Sumarið 1938 fóru þeir Einar Sæm. norður á Hálogaland til þess að vinna í gróðr- arstöðinni á Alstahaug á eyjunni Alöst hjá afburðaduglegum gróðrar- stöðvarstjóra. Fyrsta verkefni Garðars sem skóg- arvarðar var að stofnsetja gróðrar- stöð á Tumastöðum í Fljótshlíð 1944. Það var ekki hrist fram úr erminni í einu vetfangi. Þarna var fyrir mýri, sem þurfti að ræsa fram, áður en hægt væri að brjóta landið. Það var gert 1948. Íbúðarhús skógarvarðar, verkstæðishús og verfærageymsla voru reist 1946. Gróðurhús var reist 1947, sem var nýjung í skógplöntu- ræktun á Íslandi. Vatnsaflsrafstöð var reist 1948 og sama ár og 1949 verkafólksbústaður fyrir 20 manns. 1951 – 1952 kæligeymsla fyrir plöntur. Árin 1947 og 1948 var sáð í gróðurhúsið og 1950 voru dreifsettar nær 600 þús. plöntur. Þar með var ræktunin komin á fullt skrið. Hér er þetta allt tíundað til þess að sýna, að það var í nógu að snúast fyrir hinn unga skógarvörð þessi fyrstu ár á Tumastöðum. Og ekki minna, þegar ræktunin var fullmótuð. Nú kom sér vel reynslan, sem Garðar fékk á Alstahaug. Það var enginn hægðarleikur að reka plöntuuppeldi þarna á berangr- inum í hinni rysjóttu vetrarveðráttu. Enda sáu þeir Hákon Bjarnason og Garðar strax, að ríða yrði þétt net skjólbelta um græðireitina. Þetta skjólbeltanet var gróðursett á árun- um 1948 – 1954. Þá var lengd skjól- beltanna orðin um 2 km og voru þá hin mestu á Íslandi. Samhliða þessu risaverkefni að koma upp gróðrarstöðinni sá Garðar svo um þjóðskógana í umdæmi sínu. Fyrstu árin var það einkum Þórs- mörk og Garðaland, sem Skógrækt ríkisins tók við 1927. Mikið verkefni og erfitt, af því að hin 17 km langa girðing um svæðið lá víðast um fjöll og firnindi. Ég fann fljótt við kynni af Garðari og fjölskyldu hans, hve miklu ástfóstri þau tóku við þetta tilkomu- mikla svæði. Árið 1938 hafði Skógrækt ríkisins keypt Skriðufell í Þjósárdal. Þá var girt um þetta mikla land hvorki meira né minna en 38 km löng girðing, sem mikið verk var að halda við. Síðar keypti Skógræktin næstu jörð, Ásólf- staði, og bættist þá enn við girðingar, sem að hluta lágu á fjöllum. Árið 1949 hófst gróðursetning í Þjórsárdal og næstu áratugina var á þessum jörðum meginverkefni Garðars í nýrækt skógar. Auk þessara tveggja þjóðskóga kom sá þriðji í hlut Garðars að sjá um: Hið yndislega svæði Skarfanes í Landsveit. Síðan Laugarvatn, sem skólarnir þar fólu Skógrækt ríkisins umsjón með. Loks var Garðari falin umsjón með þjóðskóginum í Hauka- dal frá öndverðu ári 1969 eftir hið sviplega fráfall vinar hans, Einars Sæm. Ég hygg nú, að af þjóðskógunum hafi Garðar og Móeiður kona hans bundið mesta tryggð við Þjórsárdal- inn, enda fádæma náttúrufegurð þar með Heklu sjálfa í nærsýn og einstak- lega ljúfa veðráttu. Ég heyrði þau oft dásama veðráttuna þarna uppfrá og bera saman við hina rysjóttu veðráttu í lágsveitunum. Við Garðar vorum samstarfsmenn í rúma þrjá áratugi og áttum mikil samskipti, þótt við sætum sinn í hvoru landshorni. Alltaf voru það samskipti eins og best verður á kosið. Nokkrum sinnum átti ég þess kost að fara með honum og skoða helstu athafnasvæði í umdæmi hans, og njóta um leið feg- urðar Suðurlands, enda staðir eins og Þjórsárdalur og Þórsmörk / Garða- land með fegurstu stöðum á Íslandi. Minnistæðust þessara ferða með Garðari held ég hafi verið, þegar hann sýndi mér Þórsmörk / Garðaland í fyrsta sinn. Hann gerþekkti þetta undraland og ég fann, hverja tilfinn- ingu hann bar til þess. Það var auðvitað óskaplega gaman fyrir mig að skoða með honum alla þess staði á Suðurlandi, sem hann sá um. Um þá miðlaði hann fróðleik á þann notalega hátt, sem var svo ein- kennandi fyrir hann. Garðar hafði til að bera fínan húm- or, sem gæddi alla frásögn hans lífi. Og það var aldrei asi á honum, heldur jafnvægi og einkennileg ró, sem olli því, að manni leið vel í návist hans. Slíkt má svo sannarlega telja til góðra mannkosta. Við öll hér á heimilinu söknum þessa góða drengs og samhryggjumst af heilum hug Móeiði og börnum þeirra. Sigurður Blöndal. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug vegna andláts og útfarar ástkærs eigin- manns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS RAGNARS HELGA JÓNSSONAR frá Eyri í Skötufirði, Álfaskeiði 96, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til séra Braga Skúlasonar. Jóna Jónsdóttir, María Þorsteinsdóttir, Lilja B. Guðjónsdóttir, Guðmundur Ásgrímsson, Sólveig M. Guðjónsdóttir, Árni Pálmason, Elísabet H. Guðjónsdóttir, Trausti G. Traustason, Heiðbjört F. Guðjónsdóttir, Baldur Þórsson, Jón P. Guðjónsson, Guðjón H. Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær dóttir mín, GUÐBJÖRG MARÍA LILAA, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðju- daginn 4. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta Styrktarfélag vangefinna njóta þess. Guðlaug Stefánsdóttir frá Syðri-Bakka. Bróðir minn, ÞORBJÖRN S. MARTEINSSON, dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, lést laugardaginn 11. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir sendum við fjölskyldunni á Kiðafelli í Kjós og starfsfólki á dvalarheimilinu Ási, Hveragerði. Fyrir hönd aðstandenda, Marta Marteinsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og föðurbróðir, ÓLAFUR SIGURÐSSON frá Pálsbæ á Seltjarnarnesi, lést í Malmö laugardaginn 18. október. Ebba og Karin Ólafsdætur og fjölskyldur, Ólafur og Sigurður Péturssynir. Móðir mín og tengdamóðir, AÐALHEIÐUR DÓRA BÖÐVARSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Álfheimum 19, Reykjavík, andaðist mánudaginn 27. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Hilmar Thor Bjarnason, Guðbjörg Hildur Kolbeins. LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960 Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LOVÍSA JÓNSDÓTTIR frá Flatey, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. október. Svanhildur Stefánsdóttir, Guðmundur Rúnar Magnússon, Rafn Stefánsson, Guðlaug Guðbergsdóttir, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.