Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 44

Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 44
Hvernig allir lærðu saman, unnu saman og hjálpuðust að. Sérstak- lega var henni tíðrætt um vini hennar sem tóku hana með sér í sumarbústað til að læra fyrir próf í stærð- fræði. Stærðfræðin var jú orðin svolítið ryðguð eftir öll þessi ár. Í október sama ár greindist Helga svo í annað sinn. Það aftraði henni þó ekki að fara í prófin og lauk hún þeim með glæsibrag, þó ekki hefði hún verið í skólanum í einar sex vikur. Um vorið var útlitið aftur orðið gott og ég minnist Helgu og Sveins, eiginmanns hennar, koma labbandi yfir Valhúsahæð til mín og segja mér frá því að geislameðferðin hefði tekist það vel að allt útlit væri fyrir að Helgu hefði í annað sinn tekist að koma í veg fyrir krabbamein sem þá hafði komið sér fyrir nálægt hjart- anu. En allt kom fyrir ekki, Helga greindist aftur og nú í þriðja sinn. Allan tímann talaði hún samt um að koma aftur í skólann. Taka a.m.k. eitt og eitt fag. Helgu er einna best lýst eins og ein vinkona hennar lýsti henni stuttu eftir andlát hennar, því þrátt fyrir öll þessi veikindi og verki sem hrjáðu hana undir lokin, hafði hún mestar áhyggjur af því hvar hún ætti eiginlega að koma jóla- trénu fyrir í ár, plássið í stofunni hafði jú minnkað eftir að hún fékk hægindastólinn. Kæri Sveinn. Ég bið þess nú inni- lega að góður Guð veiti þér, börn- unum þremur og fjölskyldu ykkar styrk í þessari miklu sorg. Minning- arnar sem þið eigið saman verða þó aldrei frá ykkur teknar og ég veit að þær munu ylja ykkur um hjartaræt- urnar um ókomna tíð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Fyrir hönd vina Helgu við Há- skólann í Reykjavík, Helgi Már Þórðarson. Í dag kveðjum við kæra vinkonu okkar Helgu Barðadóttur, sem lést eftir erfið veikindi aðeins 36 ára að aldri. Ég kynntist Helgu Barðadóttur fyrst haustið 2001 en hún var þá ásamt öðru frá- bæru fólki með mér í foreldraráði íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi. Okkar kynni voru að vísu ekki eins og hver önnur því hún sagði fljótlega: „Ég vildi bara segja þér það að ég er búin að vera með krabbamein, en þetta er nú allt að lagast. Ég er búin með geisla- meðferðina, þannig að nú fer hárið að koma aftur og svona.“ Svo tók hún ofan húfuna þannig að sást í bert höfuðið. Okkur fannst hún nú alltaf glæsileg með allar þessar endalausu húfur. Þetta var fyrsta meðferðin henn- ar af þremur. Um veturinn starfaði Helga svo með okkur af fullum krafti. Enda- lausir fundir, æfingar, skipulag og allt sem fylgir þessu hefðbundna óeigingjarna barna- og unglinga- starfi sem stundað er um allt land í öllum íþróttafélögum. Hvergi var að sjá á Helgu að hún hefði einhvern tíma verið eitthvað veik. Um vet- urinn var ákveðið að fara á ESSÓ- mótið á Akureyri sem er hápunkt- urinn í huga allra stráka sem stunda knattspyrnu á aldrinum 11 og 12 ára. Við tóku fleiri fundir og enda- laus skipulagning þar sem Helga dró ekkert af sér við að aðstoða og hjálpa okkur við að gera þessa ferð ógleymanlega í lífi drengjanna. Haustið 2002 ákvað Helga svo að nú væri komið að því að mennta sig og ekki var nú ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Háskólinn í Reykjavík varð fyrir valinu, nú skyldi ná sér í viðskiptafræðimennt- un. Það ríkti því mikil spenna þegar við settumst saman aftur á skóla- bekk, ég eftir tæplega fimm ára hlé, Helga eftir rúmlega 15 ár. Í Háskólanum í Reykjavík kynnt- ist Helga mörgu góðu fólki sem nú hugsar hlýlega til hennar og sendir henni, börnum hennar og eigin- manni innilegar samúðarkveðjur. Ég minnist þess oft hve Helga talaði hlýlega um vini sína í Háskólanum. HELGA BARÐADÓTTIR ✝ Helga Barða-dóttir var fædd á Suðureyri við Súg- andafjörð 7. október 1967. Hún lést á heimili sínu 18. októ- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Seltjarnar- neskirkju 29. októ- ber. Helga hafði sterkan persónuleika, hún var skemmtileg, hress og orð- heppin. Gullfalleg og alltaf glæsileg. Jafnvel þegar hún missti hárið skipti ekki máli hvort hún setti á sig höfuðfat eða ekki, hún var flottust. Hún átti mjög auðvelt með að finna á sig föt og þegar við spurðum hana hvernig hún færi að því sagði hún: „Stelpur, það þýðir ekkert að horfa bara á fötin á herðatrénu, það þarf að máta þau líka.“ Svona gullkorn komu bara frá Helgu. Helga var bóngóð og alltaf tilbúin að hjálpa öðrum. Það var gaman að tala við hana því hún var hreinskilin og sagði alltaf það sem henni bjó í brjósti. Hún var dugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, tók af skarið og kláraði hlutina. Útilegur, bústaðaferðir, áramóta- partí, stuðmannaböll og þorrablót voru árvissir viðburðir í lífi okkar vinkvennanna, svo og einstaka utan- landsferðir og fótboltamót með börnunum. Í maí sl. fór Helga með okkur í sína síðustu bústaðaferð og áttum við þar dýrmætar stundir saman. Fjölskylda og vinir Helgu eiga nú um sárt að binda en góðar minn- ingar um hana eiga eftir að ylja okk- ur og hugga um ókomna tíð. Með þessum orðum kveðjum við þig, elsku Helga, við erum þakklát- ar fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fyrir þær stundir sem við átt- um saman. Takk fyrir að vera svona góð vinkona. Við trúum því að við hittum þig aftur og þangað til, bless, elsku dúllan okkar. Elsku Svenni, Atli, Lovísa og Ax- el, foreldrar og systkini , við send- um ykkur innilegar samúðarkveðj- ur. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Þínar vinkonur Bryndís Bára og Hafdís Hrönn. Kveðja frá samstarfsfólki hjá Flugleiðum frakt Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Við, samstarfsmenn Helgu, kveðjum hana með söknuði en einn- ig þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni í lífi og starfi . Við vottum eiginmanni, börnum og öðrum ættingjum dýpstu samúð okkar. MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudaginn 23. október sl. lést skips- félagi okkar Sigurður Guðmundsson eftir erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Hann var jarðsung- SIGURÐUR K. GUÐMUNDSSON ✝ Sigurður Krist-inn Guðmunds- son fæddist í Reykja- vík 22. apríl 1938. Hann lést á líknar- deild LSH í Kópa- vogi 23. október síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Foss- vogskirkju 30. októ- ber. inn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. október sl. Ekki bar Sigurður á torg veikindi sín, a.m.k. ekki við okkur skipsfélaga sína en það fór ekki framhjá okkur þegar líða tók á sum- arið að hann var alvar- lega veikur. Við tókum frekar eftir því, fé- lagar hans, sem ekki höfðum séð hann í marga mánuði, en Sig- urður kom sem skip- verji um borð í ms. Keili um miðjan apríl sl. þegar skip- ið kom nýtt til landsins eftir sigl- ingu frá Kína. Sigurður hafði þá ekki verið til sjós í tæpt ár og beið eftir hinu nýja skipi þar sem hann ætlaði að ljúka löngum sjómanns- ferli. Þegar hann kom um borð var létt yfir honum og tilhlökkun að takast á við nýtt verkefni á nýju skipi. Sigurður var hvers manns hug- ljúfi og góður drengur sem auðvelt var að umgangast. Hann hafði ágætan húmor, skaut inn einu og einu skondnu orði en yfirleitt var hann hljóður og dulur og lét lítið fara fyrir sér. Hann var einn af þessum mönnum sem frekar hlustar en talar. Hann var farmaður, hafði siglt lengi á skipum Sambandsins áður en hann gerðist skipverji á ol- íuskipunum íslensku. Hann hafði verið háseti á olíu- skipinu ms. Stapafelli frá því það kom nýtt til landsins árið 1979, og þar til það var selt árið 2001. Þá fór hann sem háseti á olíuskipið ms. Kyndil og var þar í eitt ár og loks á olíuskipið ms. Keili frá því það kom nýtt til landsins í apríl sl. eins og áð- ur sagði og þar til hann fór í land um miðjan júní þá þrotinn af kröft- um. Allt hans verklag bar vott um vönduð vinnubrögð og það fór ekki framhjá neinum að þar fór vanur sjómaður og yfirvegaður. Hann gekk að hverju verki með samvisku- semi og aldrei heyrðist frá honum möglunarorð, hann gerði það sem hann var beðinn um þegjandi og hljóðalaust. Það var sem sagt gott að vera í návist Sigurðar og hans er sárt saknað af okkur félögum hans, en það er huggun harmi gegn að þjáningum hans er lokið og við tek- ur nýtt skipsrúm, kannski á nýju skipi á framandi slóðum. Við sendum aðstandendum hans samúðarkveðjur. Skipsfélagar á ms. Keili.  Fleiri minningargreinar um Helgu Barðadóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VILMUNDUR ÓSKARSSON vélstjóri, Beykilundi 2, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 3. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarsjóð hjartasjúklinga. Ólöf Sveinsdóttir, Helga Guðný Jónsdóttir, Óskar Karl Guðmundsson, Óskar Sveinn Jónsson, Dóra Gísladóttir, Sveinbjörn Jónsson, barnabörn og langafabarn. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, SIGRÍÐAR SVEINSDÓTTUR, Hraunteigi 22, Reykjavík. Sérstakar þakkir til allra á Hólabæ á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Sveinn Óli Eggertsson, Ingólfur Vignir Eggertsson. Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HALLDÓRS ALFREÐSSONAR, Rauðagerði 35, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeild- ar og deild B-6 á Landspítalanum Fossvogi fyrir góða umönnun. Birna Fjóla Valdimarsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Jóhann Hjaltason, Sigríður Kr. Halldórsdóttir, Björn Davíð Kristjánsson, Alfreð Halldórsson, Elín Sigurðardóttir, Valdimar Halldórsson, Sigríður S. Heiðarsdóttir og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu og móður, MARGRÉTAR HRANNAR VIGGÓSDÓTTUR kerfisfræðings, Viðarási 59, Reykjavík, sem lést laugardaginn 6. september sl. Sérstakar þakkir færum við fjölskyldum okkar vegna stuðnings í veikindum Margrétar sem og starfsfólki Heimahlynn- ingar krabbameinsdeildar Landspítalans. Kristinn Á. Kristinsson, Sunna Ósk Kristinsdóttir, Nanna Margrét Kristinsdóttir, Tinna Kristín Indíana Kristinsdóttir. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma, langamma og systir okkar, ANNA SIGURVEIG SVEINSDÓTTIR frá Eyvindará, Víðilundi 24, Akureyri, áður Möðruvallastræti 9, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 17. október, var jarðsett í kyrrþey frá Höfðakapellu mánudaginn 27. október, að ósk hinnar látnu. Þökkum umhyggju og Svavar Eiríksson, Birna Sigurbjörnsdóttir, Svanur Eiríksson, Erla Hólmsteinsdóttir, Börkur Eiríksson, Karen Eiríksdóttir, Haraldur Helgason, ömmubörn, Einhildur Sveinsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.