Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 53

Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 53 EIÐUR Smári Guðjohnsen segir í viðtali við fréttavef Sky sport að hann láti það ekkert trufla sig þó svo að knattspyrnustjórinn Claudio Ranieri sé sífellt að hringla til með liðskipan enda segist hann alltaf hafa þurft að hafa fyrir því að vinna sér sæti í liðinu. Eiður Smári skoraði tvö mörk fyrir Lundúnaliðið gegn Notts County í deildabikarkeppninni í vikunni og hefur þar með skorað fjögur mörk fyrir Chelsea á leiktíð- inni og 50 í það heila fyrir félagið, 35 í deildinni, 6 í bikarkeppninni, 5 í deildabikarkeppninni og 4 í Evr- ópukeppninni. Eiður Smári hefur aldrei haft meiri samkeppni um að komast að í byrjunarliðinu enda engir smákarlar sem eru að keppa við hann; Jimmy Floyd Hassel- baink, Adrian Mutu og Hernan Crespo, allt framherjar í fremstu röð. Margir hafa sagt að helsti höf- uðverkur Ranieris verði að halda öllum stórstjörnum Chelsea ánægð- um á leiktíðinni en Eiður Smári segist einfaldlega ánægður með að þurfa að berjast fyrir sæti sínu. „Frá mínum bæjardyrum séð þá held ég að samkeppni um stöður í liðunum sé óhjákvæmileg í nútíma fótbolta. Menn segja að lið eins og okkar sem ætlar að vera með í bar- áttunni um titlana verði að hafa fjóra góða framherja innan sinna raða og það er því eðlilegt að sam- keppnin sé um þær tvær stöður sem eru í boði hverju sinni. Fyrst þegar ég kom til Chelsea frá Bolt- on voru Jimmy Floyd, Tore Andre Flo og Gianfranco Zola þar fyrir. Þá var hörkusamkeppni eins og í dag svo þetta er ekkert nýtt fyrir mér,“ segir Eiður Smári við Sky sport. Eiður segir að allir leikmenn Chelsea séu ánægðir með hversu stór og öflugur hópurinn sé hjá lið- inu og samkeppni milli manna um stöður í byrjunarliðinu verði ekki til neins annars en að hjálpa því í baráttunni um titlana. „Ég held að Claudio hafi verið mjög skynsamur. Honum hefur tekist að halda mönnum í góðu formi og allir hafa fengið sann- gjörn tækifæri í liðinu. Þar með hefur hann haldið öllum í góðu leikformi sem er mjög jákvætt því ef einhver hefur dottið út úr liðinu vegna meiðsla eða breytingar hafa verið gerðar á liðinu þá hafa þeir sem komið hafa í staðinn verið full- komlega klárir.“ Eiður Smári og félagar hans sækja Everton heim á Goodison Park í dag. Eiður verður líklega ekki í leikmannahóp þeirra blá- klæddu þrátt fyrir mörkin tvö á móti Notts County. Í þeim leik byrj- uðu Eiður Smári og Jimmy Floyd inná en í dag gæti Claudio Ranieri alveg tekið upp á því að tefla Adr- ian Mutu og Jimmy Floyd fram í fremstu víglínu. Eiður Smári ánægður með samkeppnina FABIEN Barthez, markvörður enska liðsins Man- chester United og franska landsliðsins, hefur enn ekki fengið leyfi frá Alþjóðaknattspyrnusamband- inu, FIFA, þess efnis að fá að fara til franska liðsins Marseille og leika með liðinu út leiktíðina. Ekki er opnað fyrir kaup og sölu leikmanna fyrr en í janúar og hefur FIFA úrskurðað í máli leik- mannsins og fær hann ekki að skipta um félag að svo stöddu. Franska knattspyrnusambandið fékk úrskurð FIFA í gær og tilkynnti leikmanninum og fé- lagsliðunum um gang mála. Marseille getur sam- kvæmt reglugerðum áfrýjað úrskurði FIFA, en það ferli mun taka langan tíma og óvíst að Barthez fari til franska liðsins í janúar. Barthez á enn rúm tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester United en hann er sem stendur þriðji valkostur hjá knattspyrnustjóra liðsins, Alex Fergu- son. Bandaríkjamaðurinn Tim Howard hefur staðið vaktina í markinu það sem af er og á varamanna- bekknum er landsliðsmarkvörður Norður-Íra, Roy Carroll. Barthez fer ekki til Marseille Fabien Barthez LILLESTRÖM hefur sett sig í samband við Viking um að fá Hannes Þ. Sigurðsson leigðan til félagsins á næsta tímabili. Hannes, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Viking, er ósáttur í herbúðum liðsins þar sem hann hefur fengið fá tækifæri með því á yfirstandandi leik- tíð. Frank Grönlund framkvæmdastjóri Lille- ström segir í viðtali við Adressavisen að hann hafi rætt við kollega sinn hjá Viking um að fá Hannes leigðan en Lilleström hafi ekki ráð á því að kaupa leikmanninn. „Hann er góður framherji sem líklega fengi að spila meira hjá okkur. Það myndi henta hon- um vel að koma til Lilleström og ekki skemmir það fyrir að við erum með annan ungan Íslend- ing í okkar röðum, Davíð Þór Viðarsson, en hann og Hannes eru góðir félagar,“ segir Grönlund. Lilleström hefur rætt við Viking um Hannes Þ. Mikill áhugi í Skotlandi GEYSILEGUR áhugi er í Skot- landi fyrir Evrópuorrustu Skot- lands og Hollands – um sæti í Evrópukeppni landsliða í Portú- gal næsta sumar. Fyrri leikur þjóðanna fer fram á Hampden Park í Glasgow 15. nóvember. Miðasala hófst í morgun og var snemma, því miðasalan hófst kl. 8 á Hampden og einnig í 48 Safe- way-verslunum víðs vegar um Skotland. Með þessu gaf skoska knattspyrnusambandið öllum áhugamönnum – víðs vegar um Skotland, jafna möguleika á að tryggja sér miða á leikinn. reiknað með að uppselt yrði á leik- inn á augabragði. Stuðningsmannahópur landsliðs- ins, Tartan Army, sem hefur ferðast um með landsliðinu til Íslands, Litháen, Færeyja og Þýskalands í riðlakeppni EM, fengu forgang í að kaupa miða. Skotar urðu að vakna Ryan Giggs, leikmaður Manchest-er United, segir að baráttan um enska meistaratitilinn sé galopin og fleiri lið en Manchester United, Ars- enal og Chelsea eigi eftir að blanda sér í slaginn. Ensku meistararnir eru í þriðja sæti með 22 stig eftir óvænt tap á heima- velli fyrir Fulham um síðustu helgi, Chelsea er stigi á undan í öðru sæti en Arsenal trónir á toppnum með 24 stig. Giggs segist vel geta séð að Newcastle og Liv- erpool geti blandað sér í baráttuna á komandi vikum en bæði hafa þau verið að rétta úr kútnum og þá sérstaklega Newcastle. „Arsenal og Chelsea eru ekki einu liðin sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Newcastle og Liv- erpool eru alveg líkleg til að komast á skrið og fara í einhverja 10–15 leiki án þess að tapa. Þau hafa alveg mannskapinn til að slást um efstu sætin í deildinni,“ segir Giggs. Giggs segist ekki alveg sáttur við gengi síns liðs og telur að United-vélin sé ekki farin að malla eins vel og hún getur best. „Við getum bætt okkar leik til muna og ég hef fulla trú á að við gerum það. Okkur hefur tekist vel upp gegn betri liðunum en höfum átt það til að detta niður á móti lægri skrifuðu lið- unum.“ Manchester United fær nýliða Portsmouth í heimsókn á Old Trafford í dag og Sir Alex Fergu- son, stjóri United, sem hefur tekið út tveggja leikja bann, kemur til með að gera breytingar á liðinu sem tapaði fyrir Fulham. Fyrirliðinn Roy Keane kemur inn í liðið á nýjan leik eftir að hafa hvíld tvo síðustu leiki en Paul Scholes verður fjarri góðu gamni þar sem hann er meiddur í nára. Giggs segist mikill aðdáandi fyrirliðans Roy Keane og segir hann ótrúlegan leið- toga í liðinu. „Það er frábært að hafa hann í sínu liði. Hann dregur vagn- inn og hvetur menn stöðugt áfram.“ Titilbaráttan galopin að mati Giggs Ryan Giggs  GUNNAR Pettersen, landsliðs- þjálfari Norðmanna í handknattleik, er í sjöunda himni eftir sigurinn á Dönum í fyrrakvöld en Norðmenn fögnuðu þar sigri, 35:28. Pettersen hefur verið við stjórnvölinn hjá Norðmönnum síðan 1978 og sigurinn í fyrrakvöld telur hann vera þann besta hjá liðinu undir sinni stjórn. Danir voru með sitt sterkasta lið en þjóðirnar eigast aftur við á sunnu- daginn.  LARS Krogh Jeppesen, stórskytta danska landsliðsins í handknattleik sem leikur með Flensburg í Þýska- landi, er sterklega orðaður við stór- lið Barcelona en Börsungar vilja fá Danann þegar samningur hans við Flensburg rennur út næsta sumar.  MANCHESTER United er að und- irbúa einnar milljónar punda tilboð í kínverska táninginn Dong Fangzhou. Leikmaðurinn, sem er 18 ára gamall og var til reynslu á Old Trafford í síðasta mánuði, leikur með Dalin Shide í heimalandi sínu. Tveir Kínverjar leika með liðum í ensku úrvalsdeildinni, miðjumaður- inn Li Tie er hjá Everton og varn- armaðurinn Sun Jihai er hjá Man- chester City.  ENSKA knattspyrnan nýtur mik- illa vinsælda í Kína og enn meiri eftir að Kínverjar eignuðust leikmenn í úrvalsdeildinni þar á landi. Meira en 100 milljónir manna fylgdust til að mynda með beinni útsendingu í sjón- varpi frá viðureign Everton og Man- chester City 1. janúar síðastliðin þar sem þeir Tie og Jihai öttu kappi hvor við annan.  WERDER Bremen hefur bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá tyrkneska landsliðsmanninn Alpay, sem var leystur undan samningi við Aston Villa á dögunum – eftir að hann sýndi David Beckham, fyrirliða enska landsliðsins, óvirðingu í lands- leik á dögunum. Klaus Allofs, tækni- legur ráðgjafi hjá Werder, staðfesti þetta í viðtali við blaðið Kicker. Hertha Berlín, Hamburger SV og Mönchengladbach höfðu áður sýnt Alpay áhuga. FÓLK Hörður til HK HÖRÐUR Fannar Sigþórs- son, línumaður og varn- armaðurinn sterki hjá Þór á Akureyri, er genginn til liðs við Kópavogsliðið HK. Hörður Fannar er 21 árs og kemur til með að styrkja hóp HK-manna, sem eiga framundan tvo erfiða leiki í Evrópukeppninni – gegn sænska liðinu Drott. ORRI Freyr Hjaltalín framherji Þórsara kemur líklega til að leika með Grindvíkingum í úrvalsdeild- inni næsta sumar. Jónas Þórhalls- son formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur sagði við Morgunblað- ið í gær að Grindvíkingar væru búnir að setja sig í samband við Orra og hlutafélagið Mjölni, sem Orri er samningsbundinn, um kaup á leikmanninum og sagðist Jónas vongóður um að samningar næð- ust. Óðinn Árnason var eins og Orri leikmaður Þórs og samnings- bundinn Mjölni þar til Grindvík- ingar keyptu upp samning hans fyrir síðasta tímabil. Tveir Færeyingar í sigtinu Grindvíkingar hyggjast styrkja lið sitt með fleiri leikmönnum og horfa þeir til Færeyja í því sam- bandi. Jakob á Borg, leikmaður Klakksvíkur, og Hjaltgrim Eltör hjá B-36, báðir landsliðsmenn, eru efstir á óskalistanum að sögn Jón- asar Þórhallssonar og hefur Ingv- ar Guðjónsson framkvæmdastjóri Grindvíkinga farið tvívegis út til Færeyja til viðræðna við leikmenn- ina og forráðamenn liðanna sem þeir leika með en þeir eru báðir samningsbundnir sínum félögum. Orri Freyr á leið frá Þór til Grindvíkinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.