Morgunblaðið - 01.11.2003, Qupperneq 58
ÓHÆTT er að telja Leonciemeð óvenjulegri og um-deildari listamönnumlandsins. Hún hefur lengi
notað listamannsnafnið Indverska
prinsessan, eða „Indian Princess
Leoncie“, en lagði það heiti nýlega á
hilluna og notar nú nafnið „Icy Spicy
Leoncie“, sem ekki er heiglum hent
að þýða á góðu móti yfir á íslensku –
nema þá kannski „Ískryddið“. Nafnið
vísar þó til þess að hún er enn söm við
sig, og syngur ögrandi, hressa og
eggjandi texta um allt milli himins og
jarðar.
Hún segist hafa hætt að kalla sig
indversku prinsessuna þegar jafnvel
hennar eigin móðir sagði hana ekki
líta út eins og Indverja.
„Það er búið núna. Ég ætla bara að
vera ég sjálf,“ segir Leoncie.
„Fólk kemur oft að mér og spyr
hvort ég sé í raun prinsessa. Og já, ég
er algjör prinsessa en ég ætla ekki að
vera indverska prinsessan. Ég er
bara Leoncie, „Icy Spicy“ Leoncie frá
Íslandi.“
Frá Góa til Sandgerðis
Við setjumst niður í eldhúskrók-
num á heimili hennar í Sandgerði.
Hún er eins og hún á að sér að vera.
Pilsið er stutt og hálsmálið á skyrt-
unni er flegið. Andlitið er vandlega
málað, mikið lagt í hárgreiðsluna og
hún tiplar fimlega um heimilið á
háum hælum brosandi sínu skæra
og breiða brosi. Hún hafði verið að
blaða í tímariti um fjölbragðaglímu
þegar mig bar að garði: „Ég er sjálf
glímukappi – lærði að glíma þegar
ég bjó í Kanada.“
Leoncie býður mér hressingu og
ég þigg vatnssopa. Hún fær sér líka
vatn, segist halda mikið upp á ís-
lenska vatnið, og setur rör í glasið
sitt. Hún drekkur alltaf með röri til
að halda varalitnum á sínum stað.
Leoncie fæddist á Indlandi, í
Góa-héraði sem er miðstöð vest-
rænna tónlistaráhrifa í indverskri
tónlistarmenningu. Mikil tónlist
var á heimili Leoncie og faðir henn-
ar hafði tónlistina að aðalstarfi.
„Faðir minn kenndi mér á píanó og
örlítið á gítar en ég hafði mestan
áhuga á píanóinu – fingurnir hrein-
lega léku um lyklaborðið.“
Strax sem stelpa fór Leoncie að
ferðast með föður sínum og tróð upp
með honum víða. Ung fór hún síðan
til Englands í nám við Trinity Col-
lege of Music í Lundúnum. Hún
vill samt ekki segja mér hve-
nær eða hvað hún var
gömul: „Ég ætla ekki
að nefna tölur. Ég
ræði aldrei tölur
í nokkru viðtali.
Þær koma ekki
að neinu gagni –
nema kannski til
að vinna í lottó.“
Eftir námið í Eng-
landi fór hún á flakk
með hljómsveit sinni, The
Minstrels, sem var meðal
annars skipuð föður hennar og
bróður.
„Við spiluðum popptónlist og vor-
um ansi góð. Pabbi var á saxófón og
trompet, bróðir minn á píanó og ég
söng. Því söngurinn gefur mér frelsi
til að hreyfa mig. Ég er frjálslega
Leoncie, villt og frjáls,“ grínast hún.
Tónlistin hefur gert Leoncie kleift
að ferðast til fjölda landa og bjó hún
meðal annars langdvölum á Englandi
og í Danmörku og talar ágæta
dönsku með ekta dönskum hreim. En
á endanum hafnaði hún á Íslandi. Þar
giftist hún honum Viktori sínum. „Ég
kom til Íslands til að syngja í
Glæsibæ. Ég kom ekki hingað til að
giftast Viktori enda er tónlistin stóra
ástin í lífi mínu. Ég vildi samt alltaf
giftast evrópskum manni. Ég hafði
aldrei áhuga á indverskum mönn-
um.“ Hún bætir við hlæjandi: „Og ég
vildi heldur alls ekki indverska
tengdamóður.“
Afkastamikil og á eigin fótum
Leoncie á fjórar plötur að baki og
kom sú fyrsta, My Icelandic Man, út
1985. Því næst var Story From Bro-
oklyn og þriðja plata Leoncie var
Love Messages From Overseas. Á
þeirri plötu var lagið „Hún er óvið-
jafnanleg“ og segir Leoncie frá því
hvernig fjöldi fólks setti sig í sam-
band við hana eftir að hún flutti lagið
í þætti Hemma Gunn, og gerir jafnvel
enn.
„Ég hef fengið mikið af tölvupósti,
þá sérstaklega frá konum. Þegar þær
eru í einhverri lægð og heyra þetta
jákvæða lag, þá líður þeim betur. Ég
hef jafnvel fengið símtöl frá fólki sem
hefur beðið mig að kenna þeim að öðl-
ast meira sjálfsöryggi. Það hugsar
sem svo: „Fyrst Leoncie getur þetta,
af hverju getum við það ekki líka?“
Við Leoncie stökkvum úr einu í
annað, en þrátt fyrir þetta framhjá-
hlaup gleymir hún ekki að segja mér
frá fjórðu plötu sinni, Sexy Loverboy.
Á þeirri plötu var hið umtalaða lag
Leoncie „Hæ ástin“ þar sem fyrir
kemur svohljóðandi textabútur:
ég lofa þér að nudda þig og gefa þér full-
nægingu, -sæti.
Leoncie veit alveg hvað ég er að
fara þegar ég segi að margir hafi ef-
laust sperrt eyrun við þessa línu. En
hún segir það misskilning að um
Einn allra heitasti smellurinn í dag
heitir „Ást á pöbbnum“ og er hugarsmíð
söngkonunnar Leoncie – eða „Icy Spicy“
eins og hún kýs nú að vera kölluð. Lagið er
að finna á nýútkominni plötu sem heitir
Radio Rapist/ Wrestler og ræddi
Ásgeir Ingvarsson við hana af því tilefni.
Icy Spicy Leoncie gefur út sína fimmtu plötu
„Heitasta
poppleyndarmál
Íslands“
58 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 13.30
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
Miðav
erð
kr. 50
0
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
4. myndin frá Quentin Tarantino
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og geggjuð grínsýning kl. 12. B.i. 10 ára.
kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 og powersýning kl. 12. B.i. 16.
YFIR
20 000
GESTIR
Powersýningkl. 12.
Kl. 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 2.með ísl. tali.
Geggjuðgrínsýningkl. 12.
j
í i
l. .
TOPP
MYND
IN
Í USA!
Stærsta grínmynd ársins!
FRUMSÝNING
Þú deyrð úr hlátri enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
ÞÞ FBL
„Frábær mynd“
Miðav
erð
kr. 50
0
Yfir 20.000 gestir
Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
4 myndin fráQuentin Tarantino
BLÓÐBAÐIÐ ER BYRJAÐ
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Skonrokk FM909
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg Kvikmynd“
„Frábær mynd“
ÞÞ FBL
Þú deyrð úr hlátri
enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 2 og 4..
Stærsta grínmynd ársins!
TOPP
MYNDIN
Í USA!
Miðav
erð
kr. 50
0
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Yfir 20.000 gestir
Hún hitti hann á pöbb eitt kvöld
á Country pub í Reykjavík
Hún starði á hann mjög ákveðinn
Hann glápti á móti dauðadrukkinn
Hún kinkaði kolli og blikkaði hann
Hann var dáleiddur af allann Vodkann
Hann fór til hennar og sagði hvar hann var frá
Hún sagði „Veistu hvað?“
Við höfum sameiginlegt
því við komum bæði frá Kópavogi
Ást á pöbbnum
Ást á pöbbnum, þau féllust í ást á
pöbbnum
Nú grætur hann – Hann átti að kynnast
henni fyrst
Hún eyðir öllu hans fé. Hann sparar
ekki neitt
Hann vildi kaupa hús, en hann á varla
fyrir öl krús
Til að gera allt verra hann missti vinnuna
í staðinn að vinna fór hann norður með henni
Hún dróg hann til Akureyrar
Þau dönsuðu línudans fram til klukkan 3
Syngjandi... við komum bæði frá Kópavogi.
Glímukóngurinn Leoncie: „Ég
er bara Leoncie, „Icy Spicy“
Leoncie frá Íslandi“