Morgunblaðið - 04.11.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
REYKINGAR og áfengisdrykkja
hafa minnkað meðal íslenskra ung-
linga í 10. bekk frá árinu 1995 en hass-
neysla hefur aftur á móti aukist lít-
illega. Þetta kemur fram í
niðurstöðum íslenska hluta ESPAD-
könnunarinnar (European School
Survey Project on Alchohol and other
Drugs) en þetta er ein umfangsmesta
rannsókn sem gerð er á vímu-
efnaneyslu 15 og 16 ára unglinga í
Evrópu og Bandaríkjunum. Tilgangur
rannsóknarverkefnisins er að fylgjast
með breytingum á vímuefnaneyslu
ungmenna en það er gert með stöðl-
uðum könnunum á fjögurra ára fresti.
Að sögn Stefáns Hrafns Jónssonar,
lýðfræðings frá Rannsóknum & grein-
ingu, liggur fjölþjóðlegur sam-
anburður ekki fyrir sem stendur en ís-
lenski hlutinn býður upp á samanburð
milli ára. Þetta er í þriðja sinn sem
ESPAD-rannsóknin er framkvæmd
og þátttökuþjóðirnar eru nú orðnar 35
talsins. Á Íslandi hafa verið gerðar
sambærilegar rannsóknir nær árlega
frá árinu 1995 og því hefur myndast
hér vísir að traustum langtímagagna-
grunni. Nýjasta rannsóknin var fram-
kvæmd í mars sl. og náði til 82% allra
tíundu bekkinga á landinu.
Í takt við viðhorf almennings
Samkvæmt niðurstöðum hefur
dregið jafnt og þétt úr reykingum
unglinga í 10. bekk síðan árið 1995 og
jafnframt hefur dregið úr reykingum
yngri nemenda. Unglingar í dag
reykja minna en forverar þeirra, eru
líklegri til að hafa aldrei reykt og ólík-
legri til að reykja stundum eða dag-
lega. Þannig höfðu til dæmis rúmlega
60% aðspurðra árið 1995 prófað að
reykja en í dag er það hlutfall um
45%. Breytingin er ekki eins mikil á
daglegum reykingum en fimmtungur
10. bekkinga reykti árið 1995 en nú er
það hlutfall komið niður í tæp 14%.
Heldur færri stúlkur en piltar reykja
en kynjamunurinn virðist fara sífellt
minnkandi. Unglingum sem aldrei
hafa reykt hefur jafnframt fjölgað til
muna en árið 1995 var það hlutfall
39% en er nú komið upp í 54%.
Stefán Hrafn bendir á að þessar
niðurstöður séu í takt við viðhorf al-
mennings. „Þessi minnkun á sér stað
á sama tíma og andstaða almennings
við reykingar hefur aukist.“
Hlutfall unglinga sem einhvern
tíma hafa smakkað áfengi hefur hald-
ist nokkuð stöðugt í gegnum tíðina en
vanalega hafa fjórir af hverjum fimm
unglingum bragðað áfengi. Þetta hlut-
fall hefur þó minnkað eilítið og er
núna í kringum 75%. Rúmlega annar
hver unglingur hefur einhvern tíma
orðið drukkinn um ævina en það hlut-
fall hefur minnkað um rúm 10% síðan
árið 1995. Þarna hefur kynjamun-
urinn einnig minnkað en það bendir til
þess að áfengisneysla pilta og stúlkna
virðist ekki að öllu leyti þróast með
sama hætti.
Færri drekka en drekka meira
Stefán Hrafn bendir á að nú drekki
hlutfallslega færri nemendur en 1999
en svo virðist sem þeir sem drekka
drekki að jafnaði meira en áður.
Neysla ólöglegra vímuefna sveiflast
lítillega milli ára en neysla á hassi hef-
ur aukist eilítið. 13,1% tíundu bekk-
inga hafa prófað að reykja hass, 10,3%
hafa sniffað, 4,5% hafa tekið amfeta-
mín eða spítt og 2,3% hafa neytt al-
sælu (ecstacy).
Á bilinu 5,1–11,4% unglinga telja
sig geta keypt hass á skólalóðinni en
flestir nefndu þó aðra staði eins og
húsnæði dópsala eða skemmtistaði.
Það vekur athygli að af þeim nem-
endum sem aldrei hafa reykt hass
telja rúm 60% sig hvergi geta keypt
hass ef þau kæra sig um það.
Stefán Hrafn bendir á að minni
vímuefnaneysla unglinga haldist jafn-
framt í hendur við aukna samveru
þeirra með foreldrum sínum. „Stuðn-
ingur foreldra hefur mikil áhrif. Nið-
urstöður rannsóknanna eru sterk vís-
bending um að forvarnarstarf okkar
skilar árangri. Við megum hins vegar
ekki slaka á. Forvarnarstarf er ekki
verk sem er klárað í eitt skipti fyrir
öll,“ segir Stefán Hrafn.
Niðurstöður ítarlegrar rannsóknar á vímuefnaneyslu 15–16 ára ungmenna
Reykingar og drykkja minnk-
uðu meðal tíundu bekkinga
! " #
$
% &
'( % &&
% && '(
! " #
)
%
'( %
)
*
UTANRÍKISRÁÐHERRA Tékka,
Cyril Svoboda, sagði að loknum fundi
sínum með utanríkisráðherrum Ís-
lands og Noregs í Prag að á honum
hefði komið greinilega fram að Ísland
og Noregur ætli að skrifa undir samn-
ing um aðlögun EES að stækkun ESB
innan skamms og að þau vonist til þess
að Liechtenstein muni gera það einn-
ig. Hvorki Halldór Ásgrímsson né Jan
Petersen, utanríkisráðherra Noregs,
ræddu við fjölmiðla eftir fundinn.
Enn er unnið að lausn deilunnar og
koma bæði Ísland og Noregur að
þeirri vinnu en málið mun engu að síð-
ur vera nokkuð snúið.
Í Liechtensteiner Vaterland er haft
eftir talsmanni utannríkisráðuneytis-
ins í Liechtenstein að lögð hafi verið
fram ný sáttatillaga en enn beri þó
mikið á milli í deilunni. Lausnin gangi
út á það að skilja að fullnægjandi við-
urkenningu Tékklands og Slóvakíu á
sjálfstæði Liechtenstein og svo eigna-
kröfum liechtensteinsku furstafjöl-
skyldunnar vegna eignaupptöku í
Tékkóslóvakíu eftir lok heimsstyrjald-
arinnar síðari; ganga eigi frá sjálf-
stæðisviðurkenningunni í tengslum
við undirritunina en deilan um fjár-
hagskröfur furstafjölskyldunnar verði
látin bíða síðari tíma. Heimildarmenn
Morgunblaðsins í íslenska utanríkis-
ráðuneytinu staðfestu að unnið væri
að lausn málsins á þessum nótum.
Haft er eftir utanríkisráðherra
Liechtenstein, Ernst Walch, á heima-
síðu Radio Liechtenstein að það hafi
ekki komið honum á óvart að fátt hafi
komið út úr samningaviðræðunum í
Prag og Liechtenstein muni halda fast
í kröfur sínar. „Okkur þykir það miður
að Tékkar hafa ekki gefið eftir, ekki
einu sinni um millimetra,“ sagði Walch
en tók jafnframt fram að hann væri
þakklátur fyrir að Íslendingar og
Norðmenn væru að reyna að miðla
málum.
Ísland og Noregur ákveðin í
að skrifa undir aðlögun EES
ÞÓRIR Einarsson afhenti Ásmundi
Stefánssyni lyklavöldin að embætti
ríkissáttasemjara í gær. Kjarasamn-
ingar á almennum vinnumarkaði eru
lausir um áramót og segist Ásmund-
ur ekki kvíða því þó að mikið verði
að gera hjá honum á næstunni.
Þórir, sem hefur verið rík-
issáttasemjari undanfarin tæp níu
ár, sagði bæði söknuð og létti fylgja
því að láta af starfinu. Engin logn-
molla er þó framundan hjá Þóri,
hann hyggst m.a. rita sögu embætt-
isins og sáttastarfs á Íslandi en það
megi rekja allt aftur til ársin 1925
og væntanlega enn lengra aftur.
„Það eru afskaplega mikil átök í
þessu starfi á köflum og í raun oft
frekar lítill tími á milli þeirra. Það
fylgja þessi starfi oft miklar vökur og
fjarvistir að heiman og stundum er
nánast dvalið hér nokkra mánuði í
Karphúsinu, kannski bara skotist
heim í nokkra klukkutíma. En það
má segja að það hafi verið sæmilegur
friður og fá mál í um ár vegna þess
að samningarnir hafa verið lengri.
En nú blasir við törn á árunum 2004
og 2005. Þetta er því mjög góður tími
til að skipta um því ekki er gott að
skipta um hest í miðri á,“ segir Þórir.
Ásmundur Stefánsson segir að
búast megi við að ýmislegt verði á
döfinni á næstu mánuðum. „En það
er ekki endilega það versta sem fyr-
ir mann kemur að fá verkefni strax
og ég kvíði því ekki. Það er að vísu
ekki útséð um það með hvaða hætti
komandi samningar verða og
hversu auðveldlega mönnum geng-
ur að leysa málin og þess vegna án
þess að tala við sáttasemjara. En ég
hef auðvitað reynslu af því að vera
hér sólarhringunum saman, bæði
sem fulltrúi fyrir ASÍ á sínum tíma
og svo sem fulltrúi fyrir bankana.
Þannig að ég veit alveg hvað það
þýðir. Ég kvíði því ekki og er sæmi-
lega úthaldsgóður í slík verk,“ segir
Ásmundur.
Morgunblaðið/Sverrir
Ásmundur Stefánsson tekur við lyklunum af Þóri Einarssyni.
Enginn kvíði þó að
mikið verði að gera
Ásmundur tekur við af Þóri
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur
dæmt starfsmann bílaumboðs í 85 þús-
und króna sekt og þriggja mánaða
ökuleyfissviptingu fyrir að aka 400
hestafla sportbíl á 195 km hraða á
Krýsuvíkurvegi í sumar, en þar er
leyfilegur hámarkshraði 90 km.
Maðurinn var á sýningarbíl sem
bílaumboðið hafði að láni frá framleið-
anda. Mun tilgangur ökuferðarinnar
hafa verið sá að prófa afl og gæði bíls-
ins. Maðurinn ætlaði að prófa bílinn á
Kvartmílubrautinni við Straumsvík,
en þar sem hún var lokuð tók hann „í
andartaks dómsgreindarleysi“ þá
röngu ákvörðun að prófa bílinn á
Krýsuvíkurveginum. Þar var lögregl-
an og stöðvaði ökuþórinn.
Málið dæmdi Jónas Jóhannsson
héraðsdómari. Verjandi ákærða var
Jóhannes Rúnar Jóhannsson. Málið
sótti Arnþrúður Þórarinsdóttir,
fulltrúi lögreglustjórans í Hafnarfirði.
Missti
prófið eftir
ofsaakstur
á 400 hest-
afla bíl
FLUG Icelandair til og frá London
tafðist ekki í tveggja daga löngu
verkfalli hlaðmanna á Heathrow-
flugvelli, en verkfallinu lauk í nótt.
„Okkar flugferðir gengu sam-
kvæmt áætlun og án truflunar,“ seg-
ir Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair. „Við björguðum
þessu bæði með okkar fólki héðan og
frá London með aðstoð Swissport.“
Engin trufl-
un vegna
verkfalls
♦ ♦ ♦