Morgunblaðið - 04.11.2003, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UM nokkra hríð hefur Christina
Aguilera verið ein vinsælasta
poppsöngkona í heimi og hefur í
dag selt yfir 20 milljónir platna.
En þrátt fyrir þetta þjáist hún hið
innra vegna erfiðra uppvaxt-
arára, eins og fram kemur í við-
tali sem hún átti við Evu Simp-
son, blaðamann breska blaðsins
Mirror. Þar lýsir hún ennfremur
aðdáun sinni á Björk Guðmunds-
dóttur.
Aguilera, sem er 23 ára, ólst
upp í New York þar sem faðir
hennar, sem er frá Ekvador,
barði írska móður hennar reglu-
lega. Aguilera segir að hún beri
varanleg sár á sálinni vegna
þessa og þetta hafi haft áhrif á
hennar eigið ástarlíf. Hún segist
hafa byggt upp sterkan múr sem
hún sé fyrst í dag að reyna að
brjóta niður. Aguilera fékk taugaáfall
í fyrra og hvað föður sinn varðar seg-
ist hún halda honum í tilfinningalegri
fjarlægð. Hann hafi reynt að koma
sér í samband við hana eftir að frægð-
in fór að banka á dyrnar en hún segist
ekki vera neinn vitleysingur og hafi
vaðið fyrir neðan sig.
„Hann lamdi okkur systkinin líka,
og sprengdi á mér vörina eitt sinn svo
illa að það varð eftir varanlegt ör,“
segir hún. „Ég hef þó lært að fyrir-
gefa honum. Og þessir erfiðleikar
hafa gert mig sterkari – svona erf-
iðleikar eru til að læra af þeim og
þroskast.“
Aguilera hefur undanfarið lent upp
á kant við stjörnur eins og Eminem,
Kelly Osbourne og Pink, sem hún
segir að sé sífellt að herma eftir sér.
Þá toppar hún reglulega lista yfir
verst klæddu stjörnurnar.
Aguilera hefur með tímanum
breyst úr sakleysislegri ljósku í harð-
gerða, kynæsandi dívu. Myndband
hennar við lagið „Dirrty“ er frægt að
endemum og þá sat hún nakin fyrir á
forsíðu Rolling Stone blaðins.
„Ég varð nú eiginlega hálf-
svekkt að komast ekki á lista
People yfir þá verst klæddu í ár,“
segir hún. „Ég elska t.d. Björk
því hún er alltaf á jaðrinum og
alltaf áhugaverð í klæðaburði.
Það eru bara þeir sem taka
áhættu sem fara á lista yfir þá
verst klæddu og ég vil miklu
frekar vera á þeim lista en listan-
um yfir þá „best“ klæddu. Ég
meina, það er auðveldasta mál í
heimi að standa brosandi í kjól á
rauða dreglinum. En það er bara
hundleiðinlegt!“
Aguilera segir að ímynd henn-
ar á fyrstu plötu sinni, sem kom
út 1999 og er samnefnd henni,
hafi verið gervileg. Mömmu-
stelpuímyndin hafi verið það sem
útgáfan vildi.
„Þetta varð þó til þess að ég
komst inn í bransann og get gert það
sem ég vil núna. Mér var farið að líða
eins og vélmenni á tímabili en ég er
listamaður og vil vinna sem slíkur.
Plata mín Stripped var því mikilvægt
skref í áttina að hinni raunverulegu
Christinu Aguilera.“
Christina Aguilera berar tilfinningar sínar
Reuters
Er hrifin af Björk
Svarthærð Christina Aguilera á mynd-
bandahátíð MTV í New York í ágúst.
Christina Aguilera mun kynna
evrópsku MTV-verðlaunin á
fimmtudaginn. Ný smáskífa,
„The Voice Within“, kemur út 8.
desember.
HRÆÐSLUMYND 3 græddi heil-
mikið á hrekkjavökunni sem banda-
ríska þjóðin hélt hátíðlega um
helgina. Myndin hélt toppsætinu frá
því um síðustu helgi, sú fyrsta sem
afrekar það síðan hrollvekjan Jason
gegn Freddie gerði slíkt hið sama í
ágúst.
Disney tók upp á því óvenjulega
bragði að setja mynd í almennar
sýningar á laugardeginum en al-
mennar mælingar á helgaraðsókn
ná til aðsóknar frá föstudegi til
sunnudags. Það breytti því ekki að
teiknimyndin Bjarnarbróðir (Broth-
er Bear) náði alla leið í annað sætið á
helgarlistanum. Myndin hafði verið
frumsýnd í tveimur kvikmynda-
húsum um síðustu helgi en þeir hjá
Disney ákváðu að bíða með almenna
dreifingu fram yfir aðalhrekkja-
vökudaginn, sem var á föstudag.
Það er mál manna að hrekkjavaka
verði með hverju árinu meiri og
meiri tekjulind fyrir Hollywood og
að þar á bæ keppist menn við að
framleiða myndir sem þykja falla að
stemmningunni sem þá ríkir,
hrekkjum, hrolli og hvers konar
hryllingi. Ekki skemmir fyrir ef
hægt er svo að hlæja að öllu saman.
Því má líklegt telja að Hræðslumynd
3 verði héreftir notuð sem upp-
skriftin að farsælli hrekkjavöku-
mynd.
Annars er lítið fréttnæmt að ger-
ast, nema þá kannski að In the Cut,
sem státar af tónlist eftir Hilmar
Örn Hilmarsson, náði inn á topp tíu
og það þrátt fyrir að hafa verið sýnd
í helmingi færri bíóhúsum en gerist
og gengur. Hin nýsjálenska Jane
Campion leikstýrði myndinni og
Meg Ryan leikur aðalhlutverkið.
Talsvert hefur verið fjallað um hana
í bandarískum fjölmiðlum, einkum
vegna djarfra nektaratriða sem
Ryan kemur við sögu í en hingað til
hefur þessi vinsæla leikkona veigrað
sér við að taka að sér slík hlutverk.
Myndin hefur hlotið blendna dóma
vestra, allt frá því að vera hampað
sem meistaraverki til þess að vera
úthrópuð mistök.
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
"
# "
$%
&%'
(%)
(%$
*%)
*%
+%,
+%+
$%,
$%
,&%*
&%)
**%
$*%&
%,
%*
*%(
*)%$
$%
$%'
Hræðslumynd 3 enn á toppnum vestra
Hlegið á
hrekkja-
vöku
Reuters
Meg Ryan, Jennifer Jason Leigh og meðleikarar eyða víst drjúgum tíma í
bólinu í In the Cut við undirleik tónlistar Hilmars Arnar Hilmarssonar.
skarpi@mbl.is
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
kl. 6 og 9. B.i. 16.
Kl. 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 4.
með ísl. tali.
Miðav
erð
kr. 50
0
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
„Frábær mynd“
4. myndin frá Quentin Tarantino
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Þú deyrð úr hlátri enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
ÞÞ FBL
TOPP
MYNDINÁ ÍSLANDI
TOPP
MYNDIN
Í USA!
Síðu
stu
sýn
inga
r
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Yfir 20.000 gestir
Stærsta grínmynd ársins!
Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
4 myndin fráQuentin Tarantino
BLÓÐBAÐIÐ ER BYRJAÐ
Miðav
erð
kr. 50
0
Sýnd kl. 6.
Skonrokk FM909
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg Kvikmynd“
„Frábær mynd“
ÞÞ FBL
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
Yfir 20.000 gestir
TOPP
MYND
IN
Á ÍSLA
NDI