Morgunblaðið - 09.11.2003, Blaðsíða 7
Við Skógarhlíð í Reykjavík við slökkvistöðina, er risin ný og glæsileg
bygging.
Hún hýsir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Neyðarlínuna 112,
Almannavarnadeild og Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjórans,
Slysavarnarfélagið Landsbjörgu ásamt Tetra Ísland.
Öll þessi þjóðþrifastarfsemi verður í framtíðinni undir sama þaki.
Tilgangurinn er að ná frekari samhæfingu, skilvirkni og markvissari
vinnubrögðum jafnt við útkall og viðbrögð, sem björgunar- og
almannavarnastarf í landinu.
Hér með er efnt til verðlaunasamkeppni um nafn á björgunar- og
almannavarnastöðinni við Skógarhlíð. Nafnið skal vera þjált, en að
öðru leyti eru gefnar frjálsar hendur. Samkeppnin er öllum opin.
Tillögum, merktum sendanda, skal skila fyrir 23. nóvember n.k.
og senda til:
Glæsileg verðlaun:
1. verðlaun: Utanlandsferð að eigin vali að verðmæti kr. 250.000
2. – 20. Heimilissjúkrakassar.
Nafnasamkeppni
Skógarhlíð 14
105 Reykjavík
VERÐLAUNASAMKEPPNI ALLRA ÍSLENDINGA • BJÖRGUNAR- OG ALMANNAVARNAMIÐSTÖÐ ALLRA ÍSLENDINGA
eða:
nafnasamkeppni@shs.is
Dómnefnd fjallar um val á fram komnum tillögum og er réttur áskilinn
til að hafna öllum.
Dregið verður úr tillögunum, komi fram fleiri en ein um sama nafn.H
O
R
N
/
H
a
u
k
u
r
1
4
7
7