Vísir - 29.11.1980, Blaðsíða 7

Vísir - 29.11.1980, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. nóvember 1980. 7 vtsm Einu sinni var lítill bókaormur. Hann át bókstaflega allar bækur sem hann komst í, því hann var algjör bókaormur. En svo fékk hann magapínu. Sumir halda að hann hafi étið of margar vondar bækur sem hafi orðið að æðislegum köggli í maganum á honum. Ef þú þekkir litla bókaorma þá skaltu kynna þér vel hvaða fóður þú velur þeim. Guðrún Helgadóttir: ENN AF JÓNIODDI OG JÓNI BJARNA Hér kemur þriðja bók Guörúnar Helgadóttur um tvíburabræðurna vinsælu. Óvænt tíðindi gerast í fjölskyldumálum þeirra . . . Skemmtilegar myndir eftir Sigrúnu Eldjárn. Nú eru allar þessar bækur Guðrúnar fáanlegar, leikritið Óvitar komið í endurskoðaðri gerð. Sigrún Eldjárn: ALLT í PLATI! Hér hefur Sigrún Eldjárn gert skemmtilega barnabók alveg á eigin spýtur, sögu og myndir. Þetta er ævintýri um tvo Reykjavíkur- krakka sem fara í hugsanaleik, — og þá getur margt gerst. Magnea frá Kleifum: KRAKKARNIR I KRUMMAVIK Magnea frá Kleifum er góökunn fyrir lifandi barnasögur. Þetta er bók um systkinin fimm í Krum'mavík og segir frá mörgu sem á daga þeirra drífur þarna í sveitinni. Sigrún Eldjárn teiknaði myndir í söguna. Aðgengilegt lestrarefni fyrir lítil börn. Gunnilla Wolde: TUMI OG EMMA Bækurnar um Tuma og Emmu eru stöðugt endurprentaðar. Nú koma líka tvær nýjar: Emma og Pétur og Emma og ryksugan. Annette Tison & Talus Taylor: BARBAPAPA Barbapapa þekkja allir. Hér eru þrjár harðspjaldabækur um þá fyrir yngstu lesendurna: Barbapapasirkusinn, Barbapapa og dýrin og Barbapapa úti Og svo eru smábækur um Barbapapafjölskylduna, sex hefti: Barbaljóö býr til glermuni, Barbasnjall býrtil klukkur, Barbamamma býr til hús, Barbavænn við bústörfin, Barbapabbi í perluleit, Barbapabbi býr til hljóðfæri. 1 1» 1Z\Z. H.C. Andersen og Ulf Löfgren: NÝJU FÖTIN KEISARANS OG ELDFÆRIN ævintýrum H.C. Andersens, með skemmtilegum myndum Ulf Löfgren, þar sem vel nýtur sín spaugið í þessum verkum ævintýraskáldsins góða. — Sígildar þýðingar Steingríms Thorsteinssonar. Bækur sem mæla meó sér sjálfar. Tvö af Ole Lund Kirkegaard: HODJA OG TÖFRATEPPIÐ Hodja langaði út í heim. Og hann var svo heppinn að honum áskotnaðist töfrateppi... Þetta er fjórða bók þessa vinsæla höfundar á íslensku, — hann myndskreytir bækurnar sjálfur með mjög fyndnum teikningum. . ÞROSKANDI M YNDSPJ ALD ABÆKU R Þetta eru fjórar bækur handa litlum börnum sem lýsa daglegu lífi þeirra: Tommi leikur sér, Benni fer að sofa, Anna boröar og Sigga fer í bað. SÖGUR ÚR BIBLIUNNI Svend Otto S.: í MYNDUM OG MÁLI GRIMMSÆVINTÝRI Þetta er frábærlega falleg bók, endursögn Biblíunnar í aðgengilegu formi meö fögrum litmyndum. F""" Grimms ævintýri Ein fegursta bókin á markaðnum í ár. Nokkur frægustu Grimmsævintýrin, eins og Mjallhvít og Stígvélaði kötturinn, prýdd afbragðs góöum myndum danska myndlistarmannsins viðurkennda, Svend Otto S. Og ekki spillir íslenskur búningur Þorsteins skálds frá Hamri. DALUR DÝRANNA Fjórar litríkar og skemmtilegar bækur um daglegt líf lítils drengs, og vininn hans besta, hann Tóta trúð. 6 HERRAMENN Sex litlar bækur, fyndin og skemmtileg lesning fyrir alla með myndum: Herra Kjáni, Herra Subbi, Herra Draumóri, Herra Sæll, Herra Skellur, Herra Hnýsinn. — Þrándur Thoroddsen þýddi textann. Óvenjulega litrík og skemmtileg bók, um hina útdauðu og alfriðuðu íbúa Einskisdals, Villa Vængstyrk, sem er fiðrildi sem segir sex, og ýmsa fleiri. Og borgarstjórinn hér er Enginn Panda . . . Ævintýri meó myndum og fræðitextar. Fögur bók, fróðleg og eiguleg í senn. Þýðendur: Þrándur Thoroddsen og Órnólfur Thorlacius. Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156 i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.