Vísir - 29.11.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 29.11.1980, Blaðsíða 4
vísnt 4 Laugardagur 29. nóvember 1980 L _ _ * I Dagur hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins Rannsóknarlögregla rikisins hefur nú starfað i rúm 3 ár, og hefur með tilkomu þessa em- bættis stórt skref verið stigið i þá átt að aöskilja dómsvald og lög- reglustjórn. RLR hefur það verkssvið að hafa með höndum lögreglurannsóknir afbrotamála i Reykjavik, Kópavogi, Sel- tjarnarnesi, Garðabæ, Hafnar- firði og Kjósarsýslu, að svo miklu leyti sem önnur lög eða réttarreglur beina þessum þátt- um ekki í hendur lögreglustjóra viðkomandi umdæma. Auk ofan- greinds, er mjög algengt að rann- sóknarlögreglumenn RLR séu sendir út á landsbyggðina til að- stoðar við sérverkefni og hefur sú þjónusta stóraukist, þrátt fyr- ir mannfæð i stofnuninni. Til þess að kynna lesendum Visis, hið viðfeðma verksvið RLR, fengu fréttamaður og Ijós- myndri leyfi til að þess að fylgjast með störfum RLR i einn dag. Að sjálfsögðu gefur slíkt ekki fullnægjandi mynd af starf- inu, en þó ættu lesendur að verða einhverju nær um starfið og upp- I byggingu stofnunarinnar. | Vísis þakkar hinum fjölmörgu j aðilum er komu við sögu á ferð j blaðamanna um stofnunina, | fyrir góðar viðtökur og sérstak- | lega Nirði Snæhólm, leiðsögu- j manni þeirra um þetta völundar- { hús hinnar réttu lausnar. I _______________________________-I Siguröur Benjaminsson og Haraldur Arnason I þann veginn að leggja af staö frá Auöbrekkunni á ieiöút á Seltjarnarnes. .komnir á staöinn og vettvangsathugun hefst Dagur í lífi... „Nei, þab er alveg blankt hjá okkur”. — Það er Njörður Snæhólm i simanum, að ræða við árrisulan blaðamann, sem hringt hefur til þess að afla frétta. Klukkan er rúmlega 8 á miðvikudagsmorgni. Að þessu sinni var sem sagt ekkert að frétta og eftir kveðju lagði Njörður simtólið á. Blaðamenn Visis ætluöu að fá að fylgjast meö máli frá þvi það kom inn á stofnunina og þar tii verulegur gangur var kominn i rannsókn málsins. Ekki virtist þessi dagur ætla aö verða hent- ugur til slikra hluta, þar sem nóttin virtist hafa verið með rólegasta móti. Annars var sá er hringt hafði heldur fljótur á sér, þvi rétt i' sama mund og Njörður haföi lagt slmtólið á, kom Gisli Guömundsson inn á skrifstofuna. Fyrsta verk Gisla á morgnana er aö afla upplýsinga frá lögregl- unni i Reykjavik um þá hluti sem gerst hafa, frá þvi daginn áður. Að þessu sinni var um aö ræöa fjórar skýrslur, þjófnaö og hand- tökur, daglega híuti sem ekki þykja nægilega stór mál til þess aö veröa fréttaefni. Væri allt sikt tinttil (dagblööunum, væri i þeim fátt um annaö efni. Á meöan Visismenn stöldruðu viö hjá Niröi um morguninn, höföu 3 dagblöö haft samband i fréttaleit, svo sú upplýsingaþjónusta getur tekiö nokkurn tima, ef um er að ræöa umfangsmikil mál. GIsli Guömundsson, hefur, eins og áöur segir það verkefni að safna saman gögnum frá lögregl- unni i Reykjavik hvern morgun. bar fær hann jafnfram skrá yfir þá sem inni sitja. Hans verkssvið er einnig aö fara yfir allt er varö- ar starf RLR úr fjölmiðíum og mátti sjá þykkar möppur um það efni I hillum á skrifstofu Gisla. Vaktaskipulagið kemur einnig i hlut Gisla, auk fjölda annara verkefni i hinu daglega starfi. Tilkynning um bruna. Tiikynning um bruna barst til RLR um klukkan 8.45 um morg- uninn. Lögreglan i Hafnarfirði hafði samband, en slökkviliðið i Reykjavik hafði verið kvatt að prentsmiðjunni Hólaprent á Seltjarnarnesi. Tveir rann- sóknarlögreglumenn voru þegar kvaddir til,. bað voru þeir Siguröur Benjaminsson úr 3. deild, sem fæst við brunamál, og Haraldur Arnason úr tæknideild. beir fóru inn á tæknideild og tóku til búnað sinn, myndavél og hli'fðarfatnað. Klukkan 8.55 lögöu þeir af staö út á Seltjarnarnes. Stuttu áöur en þeir fóru frá Auðbrekku, hafði veriö tilkynnt um stofnunina að nú væri „námskeiðiö” að hefjast en af þeim þætti fengum viö siðar nánari skýringar. Bill rannsóknarlögreglumann- anna, renndi upp að Hólaprent- smiöjunni á Seltjarnarnesi klukkan rúmlega 9. bar tóku þeir fram búnaö sinn og gengu inn i reykmettað húsið. 1 miðjum sal- num voru sýnileg ummerki elds, en örfin pappirsaska lá yfir öllum salnum, svo ljóst var að hin viðkvæmu tæki og bókastatiar höfðu orðið fyrir miklum skemmdum. Rannsóknarlög- reglumennirnir hófu nú þegar at- huganir sinar. Haraldur myndaði staðhætti I griö og erg, en Sigurð- ur kynnti sér aðstæður þar sem eldsupptök voru sýnileg. Verk- stjórinn veitti leiöbeiningar um þá hluti sem þarna höfðu staöiö á borðinu, sem var nú gjörónýtt. Vél þessi hafði tvær hitastilling- ar. önnur var til þess aö halda vélinni heitri, án vinnslu, þannig að fljótlegra væri aö beita henni þegar á þyrfti að halda en hin stillingin var fyrir svonefndan vinnsluhita. Starfsmenn verk- GIsli Guömundsson segir Niröi Snæhólm hvers hann hefur oröiö vlsarl eftir aö hafa fengiö skýrslur frá lögreglunni I Reykjavlk. smiöjunnar töluðu um það sin á milli að liklega hefði vélin veriö stillt á vinnsluhita um nóttina, eða þá að „hitaelement” hefðu gefið sig. Rannsóknarlögreglu- mennirnir unnu hins vegar þöglir aö rannsókn málsins og söfnuðu efni i skýrslu til réttra aðila. Rannsókn á vettvangsstaö var' lokið um hádegisbilið. bá höfðu þeir félagar kallað til Ragnar Vigni yfirmann tæknideildar og ennfremur starfsmenn raf- magnseftirlits rikisins. Eftir hádegið litum við inn til Sigurðar Benjaminssonar, þar sem hann var að ljúka við skýrslugerð i málinu, en að hans sögn varnú beðið eftir skýrslu frá Rafmagnseftirlitinu, áður en það væri sent saksóknara. bannig er meðferð allra mála þótt þau séu siður en svo sakamál. bað er siöan I verkahring rikissaksókn- ara að ákveða hvert framhald málsins skuli vera, eftir athugun á umræddum skýrslum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.