Vísir - 06.12.1980, Page 19

Vísir - 06.12.1980, Page 19
Laugardagur 6. desember 1980 V9 VÍSIR ini merkió scm ávallt tryggir vandaóri og betri bækur Líney Jóhannesdóttir Aumingja Jens Saga um misheppnaðan iistamann? Saga þriggja kynslóða? Vægðariaus samtiðarlýsing? Kvenna- saga? Ekkert af þessu og allt í senn - og miklu meira. Þó erytri efnisumgerð aðeins líf sex persóna í sömu götunni einn vetrarpart. Þetta er göldrótt og margþætt skáldsaga, rituð af beyglausri til- finningu og mikilli ratvisi. VERÐ KR. 13.710. FÉLAGSVERÐ KR. 11.650. Ólafur Haukur Símonarson Galeiðan Tímabær og vel gerð nútíma skáldsaga um verk- smiðjustúlkur á vinnustað og í einkalífi. Lesandi stæst í hóp stúlkna sem vinna í dósaverksmiðju og lifir með þeim súrt og sætt fáeina daga. ( bókinni birtist glöggt það galeiðumynstur sem líf þeirra er hneppt í, en á þessum dögum gerast einnig atburð- ir sem gætu breytt lífi þeirra, a.m.k. reynist sam- staða þeirra vonum meiri þegar í odda skerst... VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Guðlaugur Arason Pelastikk Nýstárleg og skemmtileg skáldsaga sem gerist á sjónum eitt siidarsumar á 6. áratugnum. Lifandi lýsing á heimi sjómannsins, séðum með augum átta ára drengs sem fær að fljóta með einn túr og síðan annan og enn annan. Vel skrifuð bók sem hefur fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Dee Brown/Magnús Rafnsson Heygðu mitt hjarta við Undað Hné Þessi bók, „Bury My Heart at Wounded Knee“, kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1970 og sló öll fyrri sölumet. Þarna var gerbyit viðteknum hugmyndum um margrómað tímabil í bandariskri sögu, og erfitt var að véfengja þær sagnfræðirannsóknir sem að baki lágu. Auk þess þótti bókin afburða listaverk. Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda af helstu indiána- foringjum sem koma við sögu og henni fylgja ræki- leg kort og nafnaskrá. VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795. Ernest Hemingway/Stefán Bjarman Hverjum klukkan glymur Frægasta skáldsaga Hemingways, sem gerist á Spáni á tímum borgarastyrjaidarinnar. Andstæður lífs og dauða, ástar og haturs i samþjöppun þriggja daga að baki víglinu fasistaherjanna. Höfundi hefur þótt takast undra vel að sýna í hnotskurn spænskt þjóðlif og hugsunarhátt á þessum örlaga- ríku tímum og opna baðan víðari útsýn. VERO KR. 19.760. FELAGSVERÐ KR. 16.795. Marek Hlasko/Þorgeir Þorgeirsson Áttundi dagur vikunnar „Það er gengið hreint til verks i þessari stuttu skáldsögu. Hvergi slegið úr og í... Hér er hvergi athvarf að finna, hvorki fyrir hugsjónir né vonir né heldur ævintýrið mikla, ástina, sem þau Agnéska og Pietrek setja á allt sltt traust. Umhverf i og hugar- ástand persónanna verða eitt í þessu magnaða riti kornungs pólsks höfundar sem heldur undarlega vel áhrifamætti sínum í blaséruðum heimi“. Á.B. Þjv. 23/11. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. William Heinesen/Þorgeir Þorgeirsson Það á að dansa Spánýtt safn eftir hinn aldna færeyska snilling, með nýjum sögum frá Þórshöfn. Bókin kemur út samtímis á dönsku og íslensku, fjórða bókin i sagnasafni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. Hér segir frá ástarkvölum Fabíans unga, frá fordæðunni og prestaflennunni Teodóru, frá trúar- fári og ofstopa í sögunni Aðventa og titilsagan segir frá sögulegu brúðkaupi á hinni afskekktu Stapaey, þar sem skuggalegir atburðir urðu, skip- brot, strandrán, meira að segja brúðarrán! Óvið- jafnanleg bók sem gefur fyrri verkum Heinesens ekkert eftir. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Einar Olgeirsson/Jón Guðnason Island í skugga heimsvaldastefhunnar Þessi bók rekur örlagaríkustu atburði fslands- sögunnar á þessari öld og gefur innsýn i það sem gerðist á bak við tjöldin. Dregnar eru upp persónu- legar svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum sem komu við sögu og mun þar margt koma á óvart. Frásagnamaður er einn mikilhæfasti og harðskeyttasti stjórnmálamaður þessa tímabils og einn fremsti sagnfræðingur okkar færði í letur. VERÐ KR. 19.885. FÉLAGSVERÐ KR. 16.900. Guðbergur Bergsson Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans Bráðskemmtileg skáldsaga i stíl prakkarasagna um athafnamanninn Ara Fróðason og ferð hans gegnum þjóðfélagið, sem hefst á leikvelli og lýkur í eftirminnilegri laxveiðiferð. Með þessari bók sýnir Guðbergur Bergsson enn á sér nýja hlið og spurn- ing er hvort skáldgáfa hans nýtur sín ekki einmitt best í þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að finna. VERÐ KR. 14.820. FÉLAGSVERÐ KR. 12.600. Jakobína Sigurðardóttir Snaran önnur útgáfa þessarar klassísku framtíðar-hroll- vekju. „Sú mynd sem höfundur dregur upp af „venjulegum íslenskum alþýðumanni" kemur ekki á óvænt, en um leið er hún það sterk að hún hlýtur í senn að vekja eftirtekt og ugg. Og þungi þeirrar viðvörunar sem Jakobína ber fram í framtiðarlýs- ingu sinni vex af því að hún spáir atburðum sem eru svo ískyggilega nátengdir því sem þegar hefur gerst“. Þjv. 17/12 1968. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. Mál IMI og menning

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.