Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 1

Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 1
Listaskóli á tímamótum Afmælisfagnaður hjá Listaskóla Röngvaldar Ólafssonar á Ísafirði 28 Þjóðsagan um Sveppa Sprellarinn gerist sögumaður á Álfum og tröllum Fólkið Quarashi í NASA Rappararnir ætla að sinna öllum aldurshópum Fólk í fréttum ÓTTAST er að komið sé upp leyni- skyttumál í Ohio í Bandaríkjunum en vitað er um 12 skotárásir sem virðast hafa verið gerðar af handa- hófi í grennd við alríkisþjóðveg nr. 270 er liggur umhverfis borgina Col- umbus. Lögreglumenn telja að minnst fjögur af þessum tilvikum séu tengd, þ.e. að um sé að ræða sama skot- mann. Ekki var skýrt strax frá öllum til- ræðunum en 25. nóvember var 62 ára gömul kona, Gail Knisley, skotin til bana er hún var farþegi í bíl vinar síns á umræddum vegi. Öll tilfellin 12 sem um er rætt hafa orðið á um átta km vegarkafla eða í grennd við hann. Skotið á grunnskóla Á þriðjudag var skotið á tvo menn sem voru í bíl um 145 km frá Col- umbus. Bílstjórinn særðist hættu- lega á höfði en farþeginn á hendi. Komið hefur í ljós að 11. nóvember var skotið að næturlagi á Hamilton- grunnskólann í Obetz sem er um þrjá km frá veginum. Lögreglan tel- ur að ekki hafi verið ætlunin að skjóta á fólk en foreldrar eru nú margir hræddir um börnin og aka þeim sjálfir í skólann. Skólayfirvöld hafa sagt börnunum að þau verði að halda sig innandyra í frímínútunum. Grunur um leyniskyttu Columbus í Ohio. AP, AFP. GREINILEGT er að sumir geta ekki hugsað sér jólin án rjúpna því dæmi eru um að menn séu reiðubún- ir að borga allt að tíu þúsund krónur fyrir ólöglega veidda rjúpu. Morgun- blaðið ræddi við tvo vana veiði- menn sem staðfestu að hafa fengið slík tilboð en báðir höfnuðu þeim og sögðust virða rjúpnabannið. Þeir töldu hins vegar líklegt að slík boð freistuðu óvandaðra veiðimanna til að fara og skjóta rjúpu þrátt fyrir bannið. Eftir því sem næst verður komist hefur enginn enn verið stað- inn að ólöglegum veiðum þótt lög- reglunni hafi borist ábendingar um veiðimenn á ferð. 70.000 fyrir tíu rjúpur „Það var haft samband við mig og mér boðið það að ef ég myndi fara og ná í tíu stykki af rjúpu, fengi ég sjö- tíu þúsund krónur fyrir þær eða sjö þúsund fyrir rjúpuna,“ segir annar veiðimannanna. „Þessir menn vita að veiðimenn taka áhættu með því að fara og skjóta og virðast vera tilbún- ir að borga fyrir það.“ Hinn veiðimaðurinn sagðist hafa fengið tvær hringingar og sér hefðu verið boðnar allt að tíu þúsund krón- ur fyrir stykkið af rjúpunni. „Það sem mér finnst verst í þessu er að það er eins og hugarfarið sé þannig að það sé hreinlega fínt eða „töff“ að vera með ólöglega bráð. Ég tel mig þekkja nokkuð vel veiðimannaflór- una og auðvitað eru misjafnir sauðir í stórum hópi en svona almennt held ég að menn virði bannið.“ Allt að tíu þúsund fyrir ólöglega veidda rjúpu GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið skipun um að verndartollar á innflutt stál verði af- numdir og er þá ljóst að afstýrt hefur verið hörðu viðskiptastríði. Gripið verður til sérstakra ráðstaf- ana til að fylgjast með því að er- lend fyrirtæki noti ekki tæki- færið til að undirbjóða innlend stálfyrirtæki á markaðnum og grafa þannig undan þeim. Heimsviðskiptastofnunin, WTO, hafði áður úrskurðað að verndartollarnir bandarísku brytu gegn alþjóðlegum við- skiptasamningum og Evrópu- sambandið (ESB), Japan og Noregur höfðu hótað að leggja refsitolla á banda- rískar vörur 15. desember. Talsmenn sambands bandarískra stáliðnaðar- manna, USWA, brugðust ókvæða við tíðindunum í gær og sögðu að Bush hefði beygt sig fyrir „fjár- kúgun“ af hálfu Evrópuríkjanna. „Forsetinn þorði ekki að afhjúpa WTO með því að láta menn standa við stóru orðin og með þessu hundsar hann tjónið sem áfram verður unnið [á stáliðnaðinum],“ sagði Leo Gerard, forseti sambandsins en félagar í því eru um 120.000. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, las upp yfirlýsingu frá Bush í gær. Þar sagði að mark- miðin með tollunum hefðu nú náðst, samkeppn- isaðstaða hefði verið treyst og því tímabært að leggja þá af. Viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, Ro- bert Zoellick, sagði í gær að sala innlendra stálfyr- irtækja hefði stóraukist síðustu mánuði. Ávextir og Harley-Davidson Verndartollarnir voru lagðir á í mars 2002 á þeirri forsendu, að innflutt stál, sem væri niður- greitt í framleiðslulöndunum, skaðaði bandarísk fyrirtæki. Viðskiptafulltrúi Evrópusambandsins, Pascal Lamy, fagnaði í gær ákvörðun Bush og til- kynnti að sambandið hefði fallið frá fyrirhuguðum refsitollum, að andvirði 2,2 milljarða dala eða 163 milljarða króna, á bandarískar vörur. ESB hefði sýnt hvað það gæti ef aðildarríkin stæðu saman. Evrópsku refsitollunum var beint á þrauthugs- aðan hátt gegn ýmsum vörum frá nokkrum banda- rískum sambandsríkjum sem vitað er að repúblik- anar leggja þunga áherslu á í forsetakosningunum á næsta ári. Má nefna sem dæmi tolla á innflutning sítrusávaxta og Harley-Davidson-mótorhjóla. Afnám stáltolla Bush sak- aður um undan- látssemi Washington, Brussel. AP, AFP. George W. Bush HEILÖG Barbara, verndardýrlingur þeirra sem vinna við ýmiss konar jarðvinnu, var í aðalhlutverki í kaþólskri messu í aðkomu- göngum eitt við Kárahnjúka í gær. Séra Pat- rick, prestur kaþólskra, fór með fyrirbænir og blessun. Þrátt fyrir að flestir starfsmenn virkjunarinnar hefðu farið á Egilsstaði að gera sér glaðan dag, vegna hátíðar heilagrar Barböru, voru um fjörutíu messugestir í göngunum, aðallega yfirmenn og börn þeirra. Komið hefur verið fyrir nokkrum styttum af heilagri Barböru inni í göngunum, starfs- mönnum til verndar. Voru þessar styttur blessaðar og naut séra Patrick aðstoðar kró- atísku nunnunnar Celestine við blessunina. Að lokinni messunni var boðið til veislu og var hún nokkuð fjölmenn, enda mikið um dýrðir. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Prestur kaþólskra, sr. Patrick, ákallaði verndardýrlinginn heilaga Barböru um vernd gegn slysum og óhöppum og bað um blessun til handa þeim fjölmörgu sem vinna við virkjunarframkvæmdina. Meðal messugesta í aðkomugöngum eitt í gær- morgun voru nokkur börn ítalskra starfsmanna Impregilo. Um 40 manns voru við athöfnina. Kaþólsk messa við Kárahnjúka  Kaþólsk messa/29 STJÓRNENDUR sem fá of- urlaun, rausnarlega kaupauka og svimandi háar starfsloka- greiðslur verða ekki hamingju- samari fyrir vikið. Öðru nær, þeir verða daprir, einmana og skapstyggir, að því er breskir og bandarískir vísindamenn segja. Skýrt var frá niðurstöðum þeirra á vefsíðu Göteborgs- Posten í gær. Carsten von Otter, sem er prófessor í félagsfræði og starfar hjá rannsóknarstofnun atvinnulífsins í Svíþjóð, segir að forstjórarnir verði þjakaðir af streitu vegna ofurlaunanna. Hann vísar m.a. í rannsókn sem gerð var fyrir Ashbridge Bus- iness School í Bretlandi sem bendir til þess að ofurlauna- stjórnendur séu hræddir um að upp komist að þeir séu vanhæfir í starfi, þeir eru einmana og finnst að þeir séu öðruvísi en annað fólk. Þeir eiga erfitt með samskipti við aðra starfsmenn og líður betur í félagsskap með öðr- um í „úrvalsliðinu“. Von Otter segir að háu launin séu orðin eins konar stöðutákn, gríðarleg fjárhæðin sé ekki leng- ur aðalatriðið heldur hvað hún gefi til kynna um stöðuna í sam- félaginu. „Hálaunaðir stjórn- endur fara að haga sér á æ óskiljanlegri hátt,“ segir hann og vísar til bandarískra rannsókna. Ef launin séu tengd við hluta- bréfaverð noti þeir tímann frem- ur til að velta fyrir sér hátimbr- uðum áformum í stað þess að takast á við raunverulegt ástand mála. Þeir fari að líta á grákald- an veruleikann sem truflun. Depurð vegna ofurlaunanna STOFNAÐ 1913 330. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.