Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 2

Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 2
AFNEMA STÁLTOLLA George W. Bush Bandaríkja- forseti ákvað í gær að nema úr gildi umdeilda verndartolla sem lagðir voru á innflutt stál í fyrra. Heims- viðskiptastofnunin, WTO, hafði áð- ur úrskurðað að tollarnir væru ólöglegir. Bandarískir stáliðn- aðarmenn brugðust í gær ókvæða við ákvörðun Bush og sögðu hann hafa beygt sig fyrir hótunum Evr- ópusambandsins sem hugðist svara með refsitollum á ýmsar bandarísk- ar vörur frá 15. desember. Vilja breyta Kyoto-bókun Rússnesk stjórnvöld vilja að gerðar verði breytingar á Kyoto- bókuninni um samdrátt í losun kol- díoxíðs í andrúmsloftið. Fram kom í máli Andreis Íllaríonovs, efnahags- ráðgjafa Vladímírs Pútíns Rúss- landsforseta, í gær að hann stæði fast við þau orð sín fyrr í vikunni að Moskvustjórnin myndi ekki stað- festa Kyoto-bókunina óbreytta ef einhver önnur ríki gerðu það ekki. Ástæðan væri að reglur sáttmálans myndu draga úr hagvexti í Rúss- landi. Líklegt þykir því að Kyoto- bókunin verði ekki að veruleika þar sem Bandaríkjamenn hafa þegar neitað að staðfesta hana. 500.000 tonn af kolmunna Fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi hafa tekið á móti liðlega hálfri milljón tonna af kolmunna á árinu og er áætlað að útflutnings- verðmæti kolmunnans séu um átta milljarðar íslenskra króna. Íslensk skip hafa veitt 474 þúsund tonn en erlend skip hafa landað hér um 74 þúsund tonnum. Rothögg ekki hættulegust Síendurtekin „létt“ högg í hnefa- leikum geta jafnvel valdið meiri skaða en einstaka rothögg segir Ólafur Hergill Oddsson læknir. Hann segir gagnsemi höfuðhlífa einnig vera takmarkaða við að vernda heilann því hann hristist alltaf til við högg. Ítrekuð höf- uðhögg árum saman geti því orsak- að skerta heilastarfsemi enda hafi verið sýnt fram á það í rann- sóknum. Y f i r l i t FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kynningar – Tímarit um mat og vín fylgir Morgunblaðinu í dag til áskrif- enda. Einnig fylgir Morgunblaðinu í dag Dagskrá vikunnar. Blaðinu er dreift á landsbyggðinni. villibráðar-Villi/fordrykkir & fingrafæði/bíóbakkar létt á aðventu/sjávarréttir/barnaboð/koníak TÍMARIT UM MAT & VÍN122003 5.TBL rokk & ról rjúpnalaus jól frítt fyrir áskrifendur Morgunblaðsins/verð í lausasölu kr. 480 Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HIÐ íslenska glæpafélag og Grand Rokk efna til samkeppni um glæpa- smásögu í vetur. Það er á meðal þess sem kemur fram í sérblaðinu Fólkinu, sem fylgir Morgunblaðinu í dag. „Maður á bara ekki að búast við neinu,“ segir Tómas Lemarquis, sem tilnefndur er til evrópsku kvik- myndaverðlaunanna, sem afhent eru í kvöld. „Jú, þetta þykir nú svolítið Hófí- legt,“ segir Regína Diljá Jónsdóttir þegar Fólkið lítur í heimsókn til hennar á leikskólann, en hún keppir í Ungfrú heimi á morgun. Fleira ber á góma, s.s. lista yfir viðburði næstu viku og frumsýn- ingu á gamanmyndinni Love Actually. Samkeppni um glæpa- smásögur TILKYNNT var um tilnefning- ar til Íslensku tónlistarverð- launanna í gær í Borgarleikhús- inu. Í flokki popptónlistar fékk rokksveitin Mínus flestar til- nefningar, kammersveit Reykjavíkur varð þá fengsæl í sígilda geiranum og Hilmar Jensson var tilnefndur til þriggja verðlauna sem djass- listamaður. Þá voru feðgarnir Björgvin Halldórsson og Oddur „Hrafn“ Björgvinsson báðir til- nefndir sem besti söngvarinn. Verðlaun eru veitt fyrir popp, sígilda- og nútímatónlist og djass aukinheldur fyrir „ýmis- lega“ tónlist. Verðlaunin verða afhent í Borgarleikhúsinu um miðjan janúar á næsta ári. Íslensku tónlistar- verðlaunin Feðgar tilnefndir  Mínus með/65 SÍÐARI hluti frumskýrslu Sam- keppnisstofnunar um meint ólöglegt samráð olíufélaganna er væntanleg- ur í hendur félaganna í dag, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Að því loknu munu félögin njóta andmælaréttar áður en endanleg skýrsla verður gefin út. Mun skýrsl- an vera mikil umfangs, í kringum 500 blaðsíður. Samkvæmt heimildum blaðsins boðuðu olíufélögin til fundar með fulltrúum Samkeppnisstofnunar síð- astliðinn mánudag þar sem stofnun- inni var boðið að ljúka málinu með sátt. Í málsmeðferðarreglum sam- keppnisyfirvalda er gert ráð fyrir að ljúka málum með sátt, þar sem aðilar sem til rannsóknar eru viðurkenna brot sín að öllu eða nokkru leyti gegn því að sektir lækki eða að betrum- bótum sé lofað í rekstrinum fram- vegis. Eftir því sem heimildir blaðs- ins herma munu fulltrúar Samkeppnisstofnunar hafa sýnt boð- inu lítil viðbrögð að svo stöddu þar sem síðari hluti frumskýrslunnar hafi ekki verið frágenginn. Mun þessi sáttafundur hafa verið áframhald á því ferli sem hafði verið í gangi fyrir útkomu fyrri hluta skýrslunnar fyrr á þessu ári. Þá bauð Samkeppnisstofnun olíufélög- unum að ljúka málinu með sátt sem í fólst afsláttur á mjög háum sektum. Höfnuðu olíufélögin þessu boði, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, þar sem þau töldu sektirnar allt of háar. Mun annað hljóð hafa verið komið í strokkinn á fundinum á mánudag og höfðu olíufélögin þá m.a. til hliðsjónar nýlegan dóm Hæstaréttar í samráðsmáli græn- metisheildsala. Náist ekki sátt í mál- inu er talið fullvíst að það endi fyrir dómstólum, segja heimildir blaðsins. Mikilvægt að ljúka málinu Lögmenn olíufélaganna, sem Morgunblaðið hafði samband við í gær; Kristinn Hallgrímsson fyrir Ol- íufélagið Esso, Gísli Baldur Garðars- son fyrir Olís og Gestur Jónsson fyr- ir Skeljung, vildu ekkert tjá sig um þennan fund eða staðfesta að hann hefði yfirleitt farið fram. Þannig sögðu Kristinn og Gísli það hafa ver- ið óskráða reglu hjá þeim að tjá sig ekki um gang málsins hjá Sam- keppnisstofnun. Gestur Jónsson sagði það eitt að mikilvægt væri fyrir Skeljung og alla aðila að fara að ljúka málinu sem fyrst. Það hefði lamandi áhrif á starf- semi félaganna og Samkeppnisstofn- unar og erfitt væri að sitja undir því árum saman að vera til rannsóknar hjá yfirvöldum. Ekki væri heldur rétt að ræða það í fjölmiðlum hvern- ig sáttum menn vildu ná fram. Olíufélögin buðu Samkeppnisstofnun sátt í máli sínu Von á síðari hluta frum- skýrslu til félaganna í dag Morgunblaðið/Sverrir MENNTAMÁLANEFND Alþingis hefur lagt fram tillögu á Alþingi um hverjir hljóti heiðurslaun listamanna á næsta ári. Listamennirnir eru 25, en þeir voru 22 á þessu ári. Samkvæmt tillögunni hljóta þeir 1,6 milljónir króna hver. Sex nýir bætast við frá því sem áður var; þau Megas, Krist- inn Hallsson, Vilborg Dagbjartsdótt- ir, Jóhann Hjálmarsson, Rögnvaldur Sigurjónsson og Vigdís Grímsdóttir. Þau Árni Kristjánsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Rúrik Haralds- son létust á árinu. Listamennirnir sem hljóta launin á næsta ári skv. tillögunni eru: Atli Heimir Sveinsson, Ásgerður Búa- dóttir, Erró, Fríða Á. Sigurðardóttir, Guðbergur Bergsson, Gunnar Eyj- ólfsson, Hannes Pétursson, Herdís Þorvaldsdóttir, Jóhann Hjálmarsson, Jón Nordal, Jón Þórarinsson, Jórunn Viðar, Kristinn Hallsson, Kristján Davíðsson, Matthías Johannessen, Megas, Róbert Arnfinnsson, Rögn- valdur Sigurjónsson, Svava Jakobs- dóttir, Thor Vilhjálmsson, Vigdís Grímsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þráinn Bertels- son og Þuríður Pálsdóttir. Sex nýir listamenn fá heiðurslaun TÍMARIT MORGUNBLAÐSINS FYLGIR MORGUNBLAÐINU Á SUNNUDAGINN Allt fyrir Fegurðina Í dag Sigmund 8 Minningar 42/47 Viðskipti 13/18 Brids 42 Erlent 20/23 Kirkjustarf 42 Höfuðborgin 25 Myndasögur 56 Akureyri 26 Bréf 56 Suðurnes 27 Staksteinar 58 Landið 28 Dagbók 58/59 Austurland 28 Íþróttir 60/63 Listir 30/33 Leikhús 64 Daglegt líf 34/35 Fólk 64/69 Forystugrein 36 Bíó 67/69 Viðhorf 40 Ljósvakamiðlar 70 Umræðan 40/41 Veður 71 * * *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.