Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 13
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur
ákveðið að fara ekki að tillögum ráð-
gjafarnefndar Alþjóðahafrannsókn-
aráðsins um veiðibann á þorski og
öðrum fisktegundum í Norðursjó.
Leyft verður að veiða sama magn af
þorski á næsta ári og á þessu en
heimildir í flatfiski og lýsingi verða
skornar niður um 50 til 65% í stað
þess að banna þær.
Í frétt frá ESB segir að ákveðið
hafi verið að koma í veg fyrir að
setja þurfi veiðibann á tilteknar teg-
undir með því að bæta fiskveiði-
stjórnun og herða eftirlit með þorsk-
veiðum og gera hið sama vegna
veiða úr öðrum ofveiddum fiskistofn-
um. Jafnframt að veiðar úr stofnum,
sem nýlega séu komnir á válista,
verði dregnar verulega saman. Með
þessu móti verði hægt að halda
áfram arðbærum veiðum úr ofnýtt-
um stofnum jafnframt því að byggja
þá upp að nýju og vernda aðra
stofna, sem standi betur. Þá er bent
á góða viðkomu sumra stofna eins og
lýsu og skötusels og eru heimildir til
veiða úr þeim auknar.
„Afleiðingar ófullnægjandi fram-
fylgni fiskverndunar og uppbygg-
ingar eru öllum ljósar. Mikilvægir
botnfiskstofnar eru áfram í hættu og
allur sjávarútvegurinn sýpur seyðið
af því. Kostirnir eru ljósir; annað-
hvort verður að minnka leyfilegan
heildarafla verulega og hefta veiði-
getu verulega innan hvers árs, eða
að hefja verður langtíma uppbygg-
ingu sem leiðir ekki til eins harka-
legra aðgerða. Ég er fylgjandi seinni
kostinum,“ segir Franz Fischler,
framkvæmdastjóri sjávarútvegs-
mála innan ESB.
Niðurskurður við
Skotland og í Kattegat
Nánast allir þorskstofnar innan
lögsögu ESB eru að hruni komnir og
hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið
lagt til veiðibann annað árið í röð. Á
síðasta ári var leyfilegur þorskafli
dreginn saman um 65%. Nú er það
ætlun ESB að herða eftirlit og
fækka veiðidögum til að tryggja að
ekki verði veitt umfram það á næsta
ári, sem leyfilegt var að veiða á
þessu. Takist það telur fram-
kvæmdastjórnin að hægt sé að
byggja þorskstofnana upp á ný. Því
verður leyfilegur þorskafli í Norð-
ursjó á næsta ári 22.659 tonn. 53%
niðurskurður verður á þorskveiðum
við Vestur-Skotland og 41% í Katte-
gat.
ESB leyfir
þorskveiðar
Kvótinn í Norðursjó 2004 verður
sá sami og í ár, 22.700 tonn
UPPSJÁVARAFLI fimm aðildar-
ríkja Alþjóðasamtaka fiskimjöls-
framleiðenda (IFFO), Chile, Perú,
Danmerkur, Íslands og Noregs, varð
alls 305 þúsund tonn í september
mánuði eða 8% minni en í sama mán-
uði síðasta árs. Aflinn er jafnframt
21% minni en meðalafli september-
mánaðar síðustu fimm ára og reynd-
ar minnsti afli frá því árið 1989.
Skýringarinnar má fyrst og
fremst leita í dræmum aflabrögðum í
uppsjávarveiðum við Ísland og Nor-
eg en einnig var framlengt veiðibann
á ansjósu við Perú. Mest var hins-
vegar veitt af uppsjávarfiski við
Chile, alls 140 þúsund tonn eða 46%
af heildarafla þjóðanna fimm í sept-
ember.
Norðurlandaþjóðirnar þrjár
veiddu samtals 162 þúsund tonn í
september, þar af veiddu Danir um
81 þúsund tonn, Íslendingar tæp 30
þúsund tonn, einkum kolmunna, og
Norðmenn rúmt 51 þúsund tonn.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
IFFO var rólegt á fiskimjölsmörk-
uðum fyrir vikið, þótt greina mætti
talsverða sölu afurða í og frá Chile
og Perú.
Mun minni uppsjávarafli
WWW.HOLT.IS
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Komið í heimsókn
á www.holt.is
Skoðið verðið á
gistingu og veitingum
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
/
Y
D
D
A
•
1
0
6
3
3
•
s
ia
.i
s
Ostakörfur eru kærkomin
jólagjöf til starfsmanna
og vi›skiptavina
og nú er rétti tíminn
til a› panta.
www.ostur.is
sími 569 1600/569 1620
Vi› bjó›um flér a› bæta
í gjafakörfurnar
mat e›a gjafavöru
– kynntu flér úrvali› hjá okkur.
Vi› sjáum einnig um a›
senda gjafapakka fyrir
flig til útlanda.