Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Munið
að slökkva
á kertunum
Vindsveipur eða
gegnumtrekkur
getur kveikt eld á ný
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
'
2
0
0
3Fæst um land allt
Dreifingara›ili:
Tákn heilagrar
flrenningar
Til styrktar
blindum
Tilvalinjólagjöf
Borðalmanök Múlalundar er lausnin
fyrir þá sem vilja hafa góða yfirsýn
yfir verkefni mánaðarins.
Þau fást í helstu ritfangaverslunum
landsins og söludeild Múlalundar.
Borðmottan undir almanakið
myndar ramma og gefur fínleikann.
Við hjá Múlalundi getum merkt
borðmottuna heiti fyrirtækis eða
nafni einstaklings.
Alla daga við hendina!
RÖÐ OG REGLA
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Veffang: www.mulalundur.is
TÖLVULEIKJAFYRIRTÆKIÐ
CCP hefur keypt til baka útgáfu-
réttinn á leiknum EVE-Online,
sem það seldi bandaríska útgáfu-
fyrirtækinu Simon & Schuster Int-
eractive í apríl 2002.
Simon & Schuster, sem er dótt-
urfyrirtæki Bandaríska fjölmiðla-
risans Viacom, keypti útgáfurétt-
inn á leiknum í Bandaríkjunum,
Evrópu og Kanada. Kaupverð er
ekki gefið upp.
Sigurður Ólafsson markaðsstjóri
CCP segir ástæðu kaupanna þá að
Simon & Schuster hafi lagt niður
tölvuleikjadeild fyrirtækisins.
Hann segir þá staðreynd að útgef-
andi leiksins hafi lagt upp laupana
ófyrirséða og mikil vonbrigði.
„Þetta er ekki í samræmi við þann
kraft sem virtist búa í þeim þegar
við skrifuðum undir samninga við
þá í upphafi síðasta árs.
Við seldum dreifingarþáttinn á
sínum tíma til að minnka áhættuna
í rekstri fyrirtækisins og fengum
vel greitt fyrir. Þegar dreifingar-
fyrirtækið ákveður síðan að hætta
starfsemi töldum við vænlegasta
kostinn að kaupa útgáfuréttinn til
baka til að ná fullri stjórn yfir
EVE-online, sem við erum búnir
að eyða miklum peningum og tíma
í,“ sagði Sigurður Ólafsson.
„Þetta markar ákveðin tímamót
fyrir CCP þar við stjórnum sölu-
og markaðssetningu leiksins með
ákveðnari hætti en áður og ætlum
við að notfæra okkur þau sókn-
arfæri sem sú staða býður upp á.
Frá og með gærdeginum byrjuð-
um við að bjóða upp á kaup á
leiknum í gegnum netið með nið-
urhleðslu beint til kaupenda, en
slíkt var ekki hægt áður þar sem
Simon & Schuster höfðu eingöngu
selt leikinn í kössum úti í búð og
stóðu í vegi fyrir þessari dreifing-
arleið.
Héðan í frá getur fólk allsstaðar
í heiminum hlaðið leiknum niður af
heimasíðu leiksins www.eve-on-
line.com gegn gjaldi og byrjað að
spila. Greitt er áskriftargjald einu
sinni í mánuði sem er 13 Banda-
ríkjadalir, eða tæpar 1000 krónur.“
Sala undir væntingum
Sigurður segir að frá því að leik-
urinn fór í loftið í maí sl. hafi selst
um 50.000 kassar með leiknum og
hann sé spilaður í 88 löndum.
Leikurinn hafi verið gefinn út í
145.000 eintökum og áskrifendur
séu 30.000 talsins.
Um samkeppnina í flokki fjöl-
þátttökuleikja segir Sigurður að
líklega séu um 10-15 leikir af sömu
stærðargráðu og EVE-Online í
hinum vestræna heimi, þ.e. leikir
með 30.000 eða fleiri notendur.
Sigurður segir aðspurður að sölu-
tölur fyrirtækisins séu undir vænt-
ingum eins og hann orðar það, en
segir að salan sé stöðug og bundn-
ar séu miklar vonir við komandi
jólaverslun, sem hann segir vera
helsta sölutíma tölvuleikja í heim-
inum.
Starfsmenn CCP eru 30, auk
þess sem 30 manns starfa hjá Sím-
anum við þjónustu leiksins allan
sólarhringinn.
CCP kaupir útgáfu-
réttinn á EVE til baka
BANDARÍSKA verslunarkeðjan
Wal-Mart, sú söluhæsta í heimi,
hefur ákveðið að hætta að taka við
ákveðnum MasterCard debetkort-
um í verslunum sínum snemma á
næsta ári.
Um er að ræða debetkorta-
greiðslur sem korthafar kvitta fyrir
en áfram verður tekið við svoköll-
uðum PIN-kortagreiðslum, þar sem
korthafar slá inn tiltekið leyninúm-
er sem samþykki fyrir greiðslu.
Ástæðan er sú, samkvæmt frétt í
Wall Street Journal, að söluaðilar
þurfa að greiða hærri þjónustugjöld
af greiðslu með undirskriftarkorti
heldur en ef greitt er með PIN-
korti.
„Frá og með 1. febrúar mun Wal-
Mart ekki lengur taka við Master-
Card undirskriftarkortum þar sem
við teljum þjónustugjöldin einfald-
lega of há af vörunni sem er óör-
uggari og óskilvirkari en PIN-kort-
in,“ útskýrir Michael A. Cook,
aðstoðarfjármálastjóri Wal-Mart.
„Við viljum heldur taka út þennan
valkost en að þurfa að fara með
þennan kostnað út í vöruverðið.“
Wal-Mart hefur samið við VISA
um lækkun þjónustugjalda af deb-
etkortum en sú lækkun hefur ekki
komið til framkvæmda. Hins vegar
hefur fyrirtækinu ekki tekist að ná
viðunandi samningum við Master-
Card.
MasterCard hefur svarað því til
að það komi á óvart að Wal-Mart
skuli taka slíka ákvörðun sem muni
skila verslununum óánægðum við-
skiptavinum og minni sölu.
Forsvarsmenn Wal-Mart segja
hins vegar aðeins lítinn hluta við-
skiptavina sinna nota undirskrift-
arkortin, enda séu þrjú af hverj-
um fjórum debetkortum sem
greitt er með í verslununum PIN-
kort.
Wal-Mart tak-
markar notkun
MasterCard