Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Dreifing. Hönnun og umbrot • S. 577 1888
Fæst í næstu bókabú›
Jólin í boltanum
MIKILL beygur er í leiðtogum
tveggja frjálslyndra flokka í Rúss-
landi, Bandalags hægri aflanna og
Jabloko, þar sem þeir telja að stuðn-
ingsmenn Vladímírs Pútíns forseta
styrki mjög stöðu sína í þingkosn-
ingunum á sunnudag. Útlit er jafn-
vel fyrir að flokkarnir tveir fái ekki
tilskilið fylgi, eða að minnsta kosti
5% atkvæðanna, til að þeim verði út-
hlutað þingsætum. Þeir óttast því að
dúman, neðri deild þingsins, verði
eingöngu skipuð „kerfiskörlum“
Pútíns, kommúnistum og þjóðernis-
öfgamönnum. Þeir vara við því að
verði þetta niðurstaðan geti það leitt
til einræðis í Rússlandi.
„Þetta er raunveruleg hætta sem
þjóðin gerir sér ekki grein fyrir,
hætta sem ráðamennirnir í Kreml
eru farnir að átta sig á en þeir geta
nú ekki gert neitt við henni,“ sagði
Borís Nemtsov, leiðtogi Bandalags
hægri aflanna, á miðvikudag.
„Í rauninni hafa þeir hleypt töfra-
andanum úr flöskunni,“ bætti
Nemtsov við. „Það er viðurkennd
staðreynd að það voru nokkrir menn
í stjórn forsetans sem áttu þá hug-
mynd að spila út þjóðernissósíalism-
anum. En þar sem þeir hafa hleypt
andanum út koma þeir honum ekki
inn aftur.“
Flestir búast við því að Sameinað
Rússland, flokkur stuðningsmanna
Pútíns, og kommúnistar fái megin-
þorra þingsætanna. Flest bendir
þess að þjóðernisflokkur Vladímírs
Zhírínovskís, Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn, komist yfir 5%-þrösk-
uldinn og hugsanlegt er að Rodina,
bandalag þjóðernissinnaðra vinstri-
manna, komi á óvart í kosningunum.
Flokkur Zhírínovskís er nú með
fjórtán þingmenn og hefur yfirleitt
stutt stjórnina í atkvæðagreiðslum í
dúmunni.
Óttast að menn Pútíns fái
tvo þriðju þingsætanna
Sameinað Rússland og banda-
menn flokksins eru nú með nauman
meirihluta í dúmunni. Leiðtogar
Bandalags hægri aflanna telja að
Sameinað Rússland og aðrir stuðn-
ingsmenn Pútíns fái að minnsta
kosti tvo þriðju þingsætanna, þann-
ig að dúman verði að afgreiðslu-
stofnun sem samþykki gagnrýnis-
laust allar ákvarðanir forsetans
einungis til að fullnægja formsatrið-
um. Sameinað Rússland geti þá til
að mynda breytt stjórnarskránni að
vild.
„Þetta er flokkur hins gráa sam-
safns kerfiskarla sem stefna að því
að miðstýra valdinu og fjármagns-
streyminu í landinu,“ sagði Borís
Nemtsov. „Að lokum leiðir þetta til
skoðanakúgunar og lögregluríkis.“
Síðustu skoðanakannanir benda
til þess að Sameinað Rússland hafi
aukið fylgi sitt á kostnað kommún-
ista og að Jabloko og Bandalag
hægri aflanna komist ekki yfir 5%
þröskuldinn.
Óháður stjórnmálaskýrandi, And-
rej Píontkovskí, segir að stuðnings-
menn Pútíns hafi nú þegar bæði tögl
og hagldir í dúmunni og það breytist
ekki eftir kosningarnar, þótt meiri-
hluti þeirra kunni að aukast lítils
háttar.
Talið er að Sameinað Rússland
hafi náð mörgum atkvæðum af
kommúnistum með því að höfða til
andúðar rússnesks almennings á
olígörkunum svokölluðu sem högn-
uðust mjög á einkavæðingunni í for-
setatíð Borís Jeltsíns. Handtaka
Míkhaíls Khodorkovskís, auðugasta
manns Rússlands, virðist hafa kom-
ið kommúnistum í opna skjöldu.
Nokkrir yfirmenn í fyrirtæki Khod-
orkovskís, olíufélaginu Yukos, eru í
framboði fyrir kommúnista og
hermt er að auðkýfingurinn hafi
styrkt flokkinn fjárhagslega, auk
þess sem hann styrkti Jabloko og
Bandalag hægri aflanna.
Stjórnmálaskýrandinn Borís
Kagarlítskí segir að margir kjós-
endur, sem hafa kosið kommúnista
til þessa, hafi snúist á sveif með
Sameinuðu Rússlandi vegna að-
gerða yfirvaldanna gegn auðkýfing-
unum.
Óttast að kjörsóknin verði lítil
Dúman er skipuð 450 þingmönn-
um og flokkunum er úthlutað helm-
ingi þingsætanna í hlutfalli við fylgi
þeirra fái þeir að minnsta kosti 5%
atkvæðanna. Hinn helmingur þing-
mannanna er kjörinn í einmennings-
kjördæmum þar sem kjósendurnir
velja á milli einstaklinga fremur en
flokka. Alls bjóða 23 flokkar fram í
fyrrnefnda hluta kosninganna en
aðeins fimm til sjö þeirra eiga raun-
hæfa möguleika á að fá þingmenn
kjörna.
Leiðtogar Jabloko og Bandalags
hægri aflanna óttast að lítil kjör-
sókn verði flokkunum tveimur að
falli. Í kosningabaráttunni virtist al-
menningur hafa lítinn áhuga á kosn-
ingunum og frambjóðendur áttu í
erfiðleikum með að ná athygli
þeirra.
Frambjóðendur Sameinaðs Rúss-
lands voru mjög áberandi í fjölmiðl-
unum og flokkurinn notaði hvert
tækifæri til að hvetja fólk til að
kjósa flokkinn.
Leggja allt sitt traust á Pútín
Vika Litvintseva, rússnesk kona
sem fylgdist með kosningaáróðri
Sameinaðs Rússlands fyrir íshokkí-
leik í Síberíu, kvaðst telja að Rússar
hefðu fengið sig fullsadda á þinginu
og legðu nú allt traust sitt á forset-
ann. „Fólkið vill ekki kjósa, telur sig
ekki geta breytt neinu,“ sagði hún.
„Rússar hafa öldum saman aðeins
haft einn stjórnanda, einn keisara,
og þeir eru vanir því að einn maður
stjórni. Þeir hafa ekki vanist því að
taka ákvarðanirnar sjálfir, vilja
bara að stjórnin ákveði hvað þeim sé
fyrir bestu.“
Nýleg skoðanakönnun þykir lýsa
vel sterkri stöðu Sameinaðs Rúss-
lands. Meirihluti aðspurðra kvaðst
þá telja að frambjóðendur flokksins
hefðu staðið sig best í sjónvarps-
kappræðum þótt flokkurinn hefði
neitað að taka þátt í þeim.
Flest bendir til að menn Pútíns styrki stöðu sína í þingkosningunum í Rússlandi
Frjálslyndir
flokkar
í miklum
vandræðum
AP
BÚIST er við að aðgerðir rússneskra yfirvalda gegn Míkhaíl Khodorkovskí og fleiri rússneskum auðkýfingum hafi
talsverð áhrif í þingkosningunum í Rússlandi. Listamaður í Moskvu hefur gert brjóstmynd úr súkkulaði af Khodor-
kovskí (fyrir miðju) og sex öðrum svokölluðum olígörkum, m.a. Borís Berezovskí (t.v.) og Míkhaíl Frídman (t.h.).
Forystumenn rússnesku flokkanna Jabloko
og Bandalags hægri aflanna óttast að flokk-
arnir fái ekki nógu mikið fylgi í þingkosn-
ingunum á sunnudaginn kemur til að þeim
verði úthlutað þingsætum, en til þess þurfa
flokkar að ná a.m.k. 5% atkvæða.
’ Að lokum leiðirþetta til skoðana-
kúgunar og lög-
regluríkis. ‘
Auðkýfingar úr súkkulaði