Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 28
LANDIÐ
28 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ísafjörður | Listaskóli Rögnvaldar
Ólafssonar á Ísafirði heldur upp á tíu
ára afmæli sitt í dag en skólinn var
formlega stofnaður 5. desember
1993. Að sögn Margrétar Gunn-
arsdóttur skólastjóra er markmið
skólans að bjóða upp á fjölbreytt
nám á sviði lista og menningar með
áherslu á samþættingu helstu list-
greina nútímans, s.s. myndlistar,
leiklistar, tónlistar, danslistar og rit-
listar, enda segir hún hefðbundin
landamæri listgreina óðum hafa ver-
ið að brotna niður í seinni tíð.
Ber nafn fyrsta
íslenska arkitektsins
Listaskólinn ber nafn Rögnvaldar
Ólafssonar, sem oft hefur verið
nefndur fyrsti íslenski arkitektinn,
og teiknaði hann Edinborgarhúsið
þar sem skólinn hefur aðsetur sitt.
Að sögn Margrétar ber stofndag
skólans upp á fæðingardag Rögn-
valdar sem var fæddur í Dýrafirði 5.
desember 1874 en fluttist ungur til
Ísafjarðar þar sem hann ólst upp.
Margrét þekkir vel til starfsemi
Listaskólans síðustu tíu árin enda
sjálf verið viðriðin hann frá upphafi
fyrir hönd Tónlistarskóla Margrétar
Gunnarsdóttur sem var einn fjögurra
aðila sem stóðu að stofnun skólans en
hinir voru Litli leikklúbburinn,
Myndlistarfélagið á Ísafirði og
Lúðrasveit Ísafjarðar. Litli leik-
klúbburinn og Myndlistarfélagið
voru einnig stærstu hluthafarnir í
Edinborgarhúsinu hf. sem stofnað
var 9. september 1992.
„Fyrstu árin fór kennslan fram
vítt og breitt um bæinn, og teygði
jafnvel anga sína yfir í næstu byggð-
arlög, en í dag er svo komið að öll
starfsemi skólans fer fram í Ed-
inborgarhúsinu. Segja má að við
sjáum loks hilla undir verklok þar en
stórt skref var stigið fyrr á þessu ári
þegar ríkið og Ísafjarðarbær und-
irrituðu samkomulag um uppbygg-
ingu þriggja menningarhúsa á Ísa-
firði, eitt þeirra Edinborgarhúsið.
Heildarframlög til uppbyggingar
þessara húsa nema um 420 millj-
ónum króna á næstu þremur árum,
þar af greiðir ríkið um 60% af kostn-
aði.“
Vettvangur menningar í sinni
fjölbreytilegustu mynd
Margrét segir Edinborgarhúsið
lengi hafa verið eitt mesta mannvirki
á Ísafirði, reisulegt og óvenju stíl-
hreint til síns brúks. Sögulegt gildi
hússins sé ótvírætt, hvort sem litið er
til atvinnusögu eða menningarsögu
staðarins. Það var reist árið 1907 af
versluninni Edinborg sem hóf starf-
semi sína á Ísafirði laust eftir alda-
mótin 1900 og var þá eitt stærsta
verslunarfyrirtæki landsins. Árið
1917 hætti Edinborgarverslun starf-
semi á Ísafirði og segir Margrét að
eftir það hafi húsið gegnt ýmsum
hlutverkum, lengst af í þjónustu
Kaupfélags Ísfirðinga.
„Þegar kom fram á níunda áratug
síðustu aldar leit hins vegar út fyrir
að Edinborgarhúsið hefði lokið hlut-
verki sínu og ekki annað að sjá en
ekkert lægi fyrir þessari merku
byggingu annað en að grotna niður
og verða að ryki. Þá tóku nokkur
menningarfélög í bænum sig saman
um að kaupa húsið og gera úr því
menningarmiðstöð sem skyldi verða
vettvangur menningar í sinni fjöl-
breytilegustu mynd. Frá upphafi
hefur starfsemi Listaskóla Rögn-
valdar Ólafssonar haldist í hendur
við uppbyggingu Edinborgarhússins
enda áréttað í stofnskrá að hlutverk
hans sé að sameina allar listgreinar
undir einn hatt og stuðla að sam-
vinnu þeirra. Er óhætt að segja að
skólinn hafi átt drjúgan þátt í að
gæða menningarmiðstöðina lífi.“
Skólastarfið í stöðugri þróun
Þegar Margrét er beðin að segja
frá nánar frá því starfi sem fram fer í
Listaskólanum brosir hún við og seg-
ir það geta orðið langa upptalningu
þar sem starfsemin hafi orðið um-
fangsmeiri með hverju árinu og varla
sé hægt að kasta tölu á allan þann
fjölda námskeiða sem hafi verið boð-
ið upp á en henni telst til að kennarar
séu orðnir eitthvað í kringum sextíu í
mismunandi fögum. Hún segir skóla-
starfið í stöðugri þróun og örum vexti
enda hafi ávallt verið reynt að hafa
námsframboðið sem fjölbreyttast og
mæta þeim áhuga sem umhverfið
sýni.
„Tónlistarnám hefur alla tíð skipað
stóran sess hjá skólanum og hefð-
bundin píanókennsla fyrir alla ald-
urshópa hefur verið fastur þáttur í
starfseminni frá upphafi. Við höfum
líka boðið fólki upp á óhefðbundna
tónlistarkennslu, ef svo má segja, og
það er gaman að segja frá því að á
síðustu árum hefur fjöldi fólks lært
„vinnukonugripin“ á gítarnámskeiði.
Þar lærir fólk að bregða fyrir sig gít-
arspili við ýmis tækifæri og hefur
námskeiðið verið talsvert sótt af
bæði leikskóla- og grunnskólakenn-
urum sem vilja nýta gítarinn í sínu
starfi. Mér telst svo til að þessir gít-
arnemendur séu orðnir vel á annað
hundrað og aðsóknin er ekkert að
minnka. Ég vil líka nefna sem dæmi
að í vetur höfum við boðið upp á
kennslu á rafbassa og rafgítar, þá
gefst fólki einnig kostur á að læra að
syngja í hljóðkerfi og svo erum við
með „Trommur og töfrateppi“ sem
er tónlistarnámskeið fyrir fimm ára
börn, þannig að það er margt
skemmtilegt að gerast hjá okkur á
þessu sviði.“
Myndlistarnámskeið skólans hafa
alla tíð notið mikilla vinsælda og seg-
ir Margrét þau einn stærsta þáttinn í
starfsemi skólans. „Við höfum verið
svo lánsöm að eiga mikið af hæfi-
leikafólki á því sviði hér fyrir vestan
sem hefur verið tilbúið að leggja okk-
ur til starfskrafta sína þannig að að
jafnaði getum við boðið upp á nám-
skeið í teiknun, málun, módelteikn-
ingu og leirlist auk annarra nám-
skeiða eins og t.d. skúlptúr,
teiknimyndasögugerð, tölvugrafík og
brúðugerð, svo fátt eitt sé nefnt. Við
höfum sömuleiðis verið svo heppin að
hér býr fagfólk á leiklistarsviðinu
sem hefur gert okkur kleift að bjóða
upp á námskeið í leiklist þar sem far-
ið er í undirstöðuatriði leikrænnar
tjáningar, s.s. raddbeitingu, persónu-
sköpun, spuna og látbragðsleik. Hafa
þau námskeið bæði verið fyrir börn
og fullorðna og eru jafnan vel sótt.“
Vinsæl ballettkennsla
Sú námsgrein sem einna mesta at-
hygli hefur vakið er ballett, en slíkt
mun vera fátítt hér á landi utan höf-
uðborgarsvæðisins. Aðspurð segir
Margrét þetta vera rétt og hún viti
aðeins til þess að ballett sé kenndur á
einum öðrum stað á landsbyggðinni.
Tækifærið hafi komið fyrir rúmum
tveimur árum þegar rússnesk dans-
mær, Kateryna Pavlova, fluttist til
Ísafjarðar.
„Okkur fannst tilvalið að athuga
hvort hún væri ekki tilbúin til að taka
að sér að kenna ballett og það var
auðsótt mál þrátt fyrir að hún talaði
nánast enga íslensku. Mikill áhugi
reyndist fyrir þessu námi og aðsókn-
in fór fram úr vonum þannig að í dag
státum við af mörgum litlum ball-
erínum. Því miður misstum við kenn-
arann frá okkur á Akranes en okkur
hefur samt tekist að sjá til þess að
ballett er kenndur áfram á Ísafirði.
Í september fengum við samþykki
menntamálaráðuneytisins fyrir því
að Listdansskóli Íslands tæki að sér
kennslu í listdansi og djassballett við
skólann og eru laun kennara greidd
af Listdansskólanum en Listaskóli
Rögnvaldar sér um kennsluaðstöðu,
húsnæði, dagpeninga, ferðakostnað
og annað sem til fellur vegna komu
kennara hingað. Staðan er því sú að í
vetur erum við með þrjá hópa ungra
stúlkna í ballettkennslu auk ung-
lingsstúlkna og kvenna sem nema
djassballett undir handleiðslu kenn-
ara frá Listdansskólanum.“
Vilja fá listnámsbraut
við Menntaskólann
Nemendur við Menntaskólann á
Ísafirði geta fengið mörg af þeim
námskeiðum sem eru kennd við skól-
ann metin til eininga sem valfög.
Margrét segir það eitt af mark-
miðum skólans að vinna að því að
nemendur á svæðinu geti stundað
nám sem teljist fullnægjandi und-
anfari að Listaháskóla Íslands.
„Menntaskólinn á Ísafirði hefur
óskað eftir því við menntamálaráðu-
neytið að fá heimild til þess að koma
á fót listnámsbraut með myndlistar-
og tónlistarkjörsviði. Helsta mark-
mið brautarinnar yrði að koma til
móts við þá nemendur sem stunda
listnám í sérskólum á svæðinu og
styðja þannig enn frekar við þá
menningarhefð sem hér hefur skap-
ast, að nemendur geti stundað list-
nám í heimabyggð til undirbúnings
framhaldsnámi í sérskólum eða há-
skólum. Menntaskólinn myndi þá
kenna kjarnagreinar á listnámsbraut
en listaskólarnir á svæðinu myndu
kenna sérgreinarnar, tónlist og
myndlist, samkvæmt aðalnámskrá
sérskólanna. Það geta allir séð að
yrði slík listnámsbraut að veruleika
yrði það mikil lyftistöng fyrir bæj-
arfélagið.“
Tilraunaverkefni
á landsbyggðinni
Nemendur á yfirstandandi haust-
önn eru 177 talsins og hafa aldrei
verið fleiri. Margrét segir að eins og
staðan er í dag fái Listaskóli Rögn-
valdar 2,5 milljónir króna í styrk frá
Ísafjarðarbæ en þyrfti að fá 4,5 millj-
ónir króna, enda hafi nemendum
fjölgað mikið.
„Í ársbyrjun 2003 var staðfestur
samningur milli Ísafjarðarbæjar og
Listaskólans um 2,5 milljóna króna
styrk til skólans, auk annars stuðn-
ings. Í samningnum kemur fram að
ákvörðunin um fjárframlagið byggist
á sérstöðu skólans sem alhliða lista-
skóla með fjölbreytta starfsemi sem
sé einstök á landsbyggðinni. Við
bindum auðvitað vonir við að þetta
samstarf verði til að efla starfsemi
skólans enda ætlun beggja aðila að
vinna saman að því að fá viðurkenn-
ingu menntamálaráðuneytis á hinni
margþættu og mikilvægu starfsemi
skólans. Segja má að samstarfið við
Listdansskóla Íslands sé fyrsta skref
í þá átt en stefnt er að því að fá ríkið
til að styrkja kennslu í fleiri list-
greinum, jafnvel þannig að skólinn
verði tilraunaverkefni fyrir þetta fyr-
irkomulag á listaskólum víðar á
landsbyggðinni.“
Á ballettnámskeiði: Kennsla í ballett er fátíð utan höfuðborgarsvæðisins, en hefur notið vinsælda á Ísafirði. List-
dansskóli Íslands tók að sér að sjá um kennsluna bæði í listdansi og djassballett.
Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði
Allar listgreinar
undir sama hatti
Edinborgarhúsið: Eitt þriggja menningarhúsa á Ísafirði og lengi eitt mesta
mannvirki á staðnum, reisulegt, óvenju stílhreint með ótvírætt sögulegt gildi.Ísafirði með sýningu á afrakstri
nemenda skólans. Að sögn Mar-
grétar verður boðið upp á sýnishorn
af því helsta sem myndlistarfólk hef-
ur verið að sýsla innan veggja skól-
ans, píanó- og gítarnemendur verða
með tónleika í kvöld, listdansnemar
koma fram á danssýningum á sunnu-
daginn og síðast en ekki síst verður
afmælishátíð á morgun, laugardag,
þar sem verður leikið, sungið og
dansað. Eru allir velunnarar skólans
velkomnir.
MEÐ tíu ár að baki er ljóst að Lista-
skóli Rögnvaldar Ólafssonar stend-
ur á ákveðnum tímamótum og Mar-
grét tekur undir það. „Segja má að
skólinn sé búinn að slíta barns-
skónum og hafi náð að vaxa og
dafna á þroskaárunum. Við horfum
björtum augum til framtíðar enda
hefur skólinn sannað gildi sitt með
eftirtektarverðum hætti og það sýn-
ir okkur að við erum á réttri leið.“
Fyrirhugað er að fagna afmælinu
alla helgina í Edinborgarhúsinu á
Afmælisfagnaður alla helgina
Ljósmynd/Guðfinna M. HreiðarsdóttirÍ píanótíma: Margrét Gunnarsdóttir skólastjóri með nemendum sínum, El-
ísabetu Gígju og Borghildi Öglu. Hefðbundin píanókennsla fyrir alla ald-
urshópa hefur verið fastur þáttur í starfseminni frá upphafi.