Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 29
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 29
MILLJÓNAMÆRINGARNIRHljómar
Leikhúspakki þar sem skemmtilegir
þjónar þjóna til borðs.
Öll laugardagskvöld!
Dansleikur annan í jólum
Forsala
miða hafin!Brimkló og Papar
dansleikur
gamlárskvöld
Forsala miða hafin!
Sálin
Jólahlaðborð+
Hljómajól+
dansleikur
kr. 5.400
Föstudagskvöldin
5. og 12. desember
...jólastemningin
er hjá okkur!
Föstudags- og laugardagskvöld
jólahlaðborð + ball 4.200
Laugardagskvöld jólahlaðborð
+ MOTOWN + ball 6.400 kr.
Jólahlaðborðin eru þessa daga:
5. og 6. - 12. og 13. des.
MILLJÓNAMÆRINGARNIR SPILA
ÖLL LAUGARDAGSKVÖLD
Á JÓLAHLAÐBORÐSKVÖLDUM
ANNAÐ KVÖLD, LAUGARDAG:Í KVÖLD, FÖSTUDAG:
Dagskráin framundan er þessi:
Sími 533 1100
broadway@broadway.is
26. des. Papar og Brimkló
31. des. Sálin hans Jóns míns
17. jan. Frábær sýning á Broadway
Le´Sing
24. jan. Frábær sýning á Broadway
Le´Sing
5. des. Jólahlaðborð, Hljóma-jól og Hljómar
6. des. Jólahlaðborð, MOTOWN og Milljónamæringarnir
Le´Sing
12. des. Jólahlaðborð, Hljóma-jól og Hljómar
13. des. Jólahlaðborð, MOTOWN og Milljónamæringarnir
Le´Sing uppselt
19. des. Technics Steve Lawler
Le´Sing
St
afr
æn
ah
ug
m
yn
da
sm
ið
jan
/3
94
9
TÓNLIST FRÁ:
Stevie Wonder
Marvin Gaye
The Temptations
Diana Ross and
The Supremes
Smokey Robinson
Four Tops
og fleiri...
THE SOUL OF:
HEATWAVE
SÝNINGARDAGAR:
06. des.Jólahlaðborð,
Motown og Milljónamæringarnir
13. des.Jólahlaðborð,
Motown og Milljónamæringarnir
Kárahnjúkar | Við biðjum Guð og heilaga
Barböru að blessa þessa framkvæmd og
vernda þá sem hér vinna fyrir slysum og
óhöppum,“ sagði prestur kaþólskra, sr. Pat-
rick, í hátíðarmessu í Kárahnjúkavirkjun í
gær.
Mikið var um dýrðir á virkjunarsvæðinu og
hófst dagskrá með messu í aðkomugöngum 1,
þar sem sr. Patrick hafði kaþólska messu með
fyrirbænum og blessun. Um fjörutíu manns,
karlar, konur og börn, voru messugestir í
göngunum og hafði verið sett upp altari fram-
an við borvagn, sem myndaði með sínum
þremur örmum nokkurs konar tákn heilagrar
þrenningar. Messugestir gengu til altaris og
þáðu sakramenti og að því búnu var stytta af
verndardýrlingnum Barböru, sem komið hef-
ur verið fyrir hátt í gangaveggnum, blessuð.
Vernd heilagrar Barböru nær til fjölmargra
starfsgreina tengdra jarðvinnu, m.a. sprengi-
efnamanna, enda heita allar sprengiefna-
geymslur við virkjunina nafni hennar.
Í göngunum ríkti sérkennilegur hátíðleiki,
enda umhverfi messunnar sérstætt og stærð
þess verks sem verið var að blessa nánast
áþreifanlega yfirþyrmandi. Í lok athafnar
skáluðu viðstaddir og héldu svo í hátíðarmáls-
verð í mötuneyti búðanna.
Blessun í iðrum jarðar
Kátt var á hjalla í hádegisverðinum, þar
voru um 150 starfsmenn Impregilo og ægði
saman fólki af mörgum þjóðernum og bland-
aðist vel. Innan um hefðbundið íslenskt hangi-
kjöt með uppstúf, mátti finna gómsæta ítalska
rétti og kneifuðu menn rauðvín með mat sín-
um. Fóru enda brátt að syngja hástöfum
ítalskar aríur yfir diskunum við mikil fagn-
aðarlæti viðstaddra. Yfirkokkurinn á Adit 1,
Óli Rúnar Ólafsson, segir þær búðir vera
bestar, besti maturinn og skemmtilegasta
andrúmsloftið meðal manna, en starfsmenn
búða virkjunarinnar eiga í metingi um hvar sé
best að vera.
Um klukkan þrjú í gærdag hélt sr. Patrick,
ásamt króatísku nunnunni systur Celestine,
niður í hjáveitugöngin sem Jöklu mun verða
veitt um 18. desember nk. ef áætlanir stand-
ast. Í svokölluðum grautunargöngum, sem
liggja við aðkomugöngin og ná tvígreind undir
stíflustæðið við Fremri-Kárahnjúk, hefur
einnig verið komið fyrir styttu af heilagri
Barböru. Var hún blessuð, sem og stíflan og
aftur beðið fyrir vernd gegn óhöppum og slys-
um. Enn var andrúmsloftið sérstakt, þar sem
presturinn stóð í iðrum jarðar upplýstur af
kösturum og gegnum orð hans runnu vatns-
sytrur úr blökku berginu allt um kring. Prest-
ur lauk svo blessun við útmunna ganganna,
þar sem Jökla mun fossa út eftir ferðalag sitt
um hjáveitugöngin. Þau eru nú nánast tilbúin
til að taka við beljandanum.
Jólaljósin tendruð
Geistlegur endapunktur dagsins var svo
hefðbundin messa að kaþólskum sið í
aðalmötuneyti Impregilo og var hún fjölmenn,
þrátt fyrir að margir starfsmenn fyrirtækisins
hefðu nýtt þennan frídag sinn til að fara niður
í Egilsstaði og gera sér þar dagamun. Úti fyr-
ir var í rökkrinu kveikt á jólatré, sem Skóg-
rækt ríkisins færði Impregilo að gjöf í gær, en
inni fyrir trónir annað eins, en minna. Nokkur
börn fylgdust með, frá sér numin af hrifningu,
en ekki var laust við að barnsleg gleði færðist
einnig yfir þá sem fullorðnir voru. Impregilo
bauð svo fólkinu í Laugarásþorpinu til mik-
illar matarveislu sem stóð fram á nótt.
Heilög Barbara
við Kárahnjúka
Í aðveitugöngum eitt þótti tryggara að setja
járngrind fyrir svo ekkert henti heilaga
Barböru, verndara jarðvinnufólks.
Systir Celestine, króatísk nunna sem búsett er á Akureyri, aðstoðaði kaþólska prestinn við
messuhald og blessun. Hér situr hún í hópi verkamanna við aðkomugöng eitt og gerir sér gott
af hátíðarmatnum sem var á boðstólum eftir hina kaþólsku messu og blessun.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Starfsmenn við Kárahnjúka fylgdust með blessun og fyrirbænum en var síðan boðið til dýrind-
isveislu þar sem íslenskt fjallalambahangiket og uppstúf fóru í bland við ítalskar kræsingar.