Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 41
NÝLEGA kom út bókin Sérstaða
íslensku kúamjólkurinnar – Tengsl
við heilsu og framtíðarmöguleikar,
eftir Ingibjörgu
Gunnarsdóttur og
Bryndísi Evu Birg-
isdóttur og undirrit-
aða. Í bókinni er
greint frá næring-
arfræðilegum rann-
sóknum á kúamjólk
sem gerðar voru á rannsóknarstofu í
næringarfræði við Landspítala og
Háskóla Íslands. Þar er sagt frá nið-
urstöðum sem sýna að sérstaða ís-
lenskrar kúamjólkur er meiri en
haldið var þegar rannsóknirnar hóf-
ust fyrir þremur árum. Staðreyndir
sem þessar koma almenningi við þar
sem kúamjólk og afurðir hennar eru
mikilvægir næringarefnagjafar, sér-
staklega fyrir yngstu neytendurna,
og þar með fyrir heilsu barna og full-
orðinna, eða með öðrum orðum lýð-
heilsu.
Næring barna – lýðheilsa
Rannsóknarstofa í næringarfræði
hefur eingöngu verið starfrækt með
hjálp framlaga til einstakra verk-
efna. Rannsóknarsvið rannsókn-
arstofu í næringarfræði hefur meðal
annars verið næring ungbarna og
eldri barna, og hvernig megi með
réttri næringu koma í veg fyrir sjúk-
dóma og stuðla að bættri heilsu síðar
á lífsleiðinni. Því miður er hefð lítil
eða engin fyrir því að hérlendir rann-
sóknarsjóðir styrki lýðheilsufræði-
legar rannsóknir eins og oftast er um
að ræða þegar næringarfræðilegar
rannsóknir eru annars vegar. Fjár-
veiting fékkst í þrjú ár á fjárlögum
ríkisins til næringarfræðilegra rann-
sókna á kúamjólk, en áframhaldandi
fjárveiting var skorin niður um tæp-
lega helming. Almenningur hefur
sýnt rannsóknunum mikinn áhuga
og efast þeir sem til þekkja ekki um
mikilvægi lýðheilsufræðilegra rann-
sókna og gildi þeirra fyrir framtíð-
ina.
Lýðheilsa og rannsóknarsjóðir
íslensks almennings
Allar áætlaðar nýjar rannsóknir á
sviði næringarfræði eða sjö talsins
fengu góða umsögn á síðastliðnu ári
hjá þáverandi fagráðum Rannsókn-
arráðs Íslands sem umsóknir þeirra
heyrðu undir. Engin þessara um-
sókna leiddi þó til að verkefnin væru
styrkt og sátu næringarfræðingar
auðvitað hér í sama báti og margir
aðrir sem ekki hlutu styrki. Þó varð
það að teljast athyglivert að eina um-
sóknin sem næringarfræðingar og
samstarfsmenn sendu til Tæknisjóðs
Rannsóknarráðsins til að geta fram-
kvæmt séríslenskar rannsóknir á
sviði matar og heilsu var neitað um
styrk með þeim orðum að verkið
væri áhugavert og þarft en ekki á
verksviði sjóðsins. Þetta gerðist
þrátt fyrir góða umsögn og að fram
kæmi að verkefnið uppfyllti mjög vel
kröfur sjóðsins og væri mjög gott
verkefni, svo notuð séu flokkunarorð
sjóðsins, og þrátt fyrir að Tæknisjóð-
ur hafi verið fær um að styrkja fleiri
verkefni sem hlutu svipaða einkunn á
síðastliðnu ári. Með þessu setti
Tæknisjóður það mark að vera í
ósamræmi við alþjóðleg viðmið og
eigin niðurstöðu. Ljóst er einnig að
Vísindasjóður varð að neita mörgum
mjög góðum umsóknum, en það er
mun óvenjulegra hjá Tæknisjóði.
Jafnrétti hjá nýrri
Rannsóknarmiðstöð?
Með nýrri skipan rannsóknarsjóða
almennings, á Rannnsóknarmiðstöð,
er mikilvægt að nýjar vísinda- og
fræðigreinar sem eiga sér stutta hefð
hérlendis mæti skilningi og mögu-
leikum til framtíðar þegar sótt er um
styrki til hins nýja Vísinda- og tækni-
sjóðs. Þetta er háð því að umsókn-
unum sé mætt af kunnáttufólki á
þann hátt að ekki verði sí og æ og
endurtekið staðar numið við fagra
umsögn. Ekki er þó hægt að sjá að
lýðheilsufræðilegar rannsóknir muni
mæta miklum skilningi ef skoðuð er
heimasíða nýrrar Rannsókn-
armiðstöðvar, og upplýsingar þar um
Vísinda- og tækniráði og nefndir og
fagráð. Nú segja auðvitað einhverjir
að skipa verði í nefndir og ráð sam-
kvæmt þeim fræðigreinum sem sent
hafa inn flestar umsóknir fram að
þessu. Það er þó einnig ótrúlega mik-
ilvægt að ekki sitji gamlir vinir og
kunningjar, samstarfsmenn og skoð-
anabræður, systkini, eða talsmenn
einstakra stofnana og deili út fé hver
til annars eða þeirra sem vinna hjá
þeim og með. Einnig er það sjálfsögð
nútímaleg krafa að jafnréttis sé gætt
við úthlutun. Þetta er auðvitað allt
sjálfsagt. Við síðustu úthlutun, það
er í byrjun þessa árs, voru úthlutanir
um sextíu úr Tæknisjóði, en ein-
göngu tæplega fimmtungur styrkj-
anna var til verkefna þar sem konur
voru verkefnisstjórar. Sama hlutfall
var milli kynjanna við úthlutun önd-
vegisstyrkja, en jafnara var á milli
þeirra í úthlutunum Vísindasjóðs, en
styrkupphæðir eru þar mun lægri.
Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um
hve margar konur eða karlar voru
verkefnisstjórar og sóttu um til sjóða
Rannsóknarráðs. Rannsókn-
armiðstöð, eins og fyrrum Rann-
sóknarráð, fer með almannafé og þar
af leiðandi ætti það að vera skylda
þeirra sem verja almannahagsmuni,
alþingismanna og blaðamanna, að
skoða vel hvernig því fé er varið.
Tækifæri til rannsókna
Það er mikilvægt og nútímalegt að
auka gegnsæi þegar kemur að al-
mennu fé til rannsókna. Góður mat-
ur, hráefni og sífellt flóknari með-
höndlun þess, og áhrif alls þessa á
heilsu barna og annarra er mik-
ilvægt rannsóknarefni víðs vegar í
heiminum. Mikill árangur og athygli
sú sem hérlendar niðurstöður á
þessu sviði hafa fengið undanfarin ár
á alþjóðavettvangi undirstrika að
hérlendis er hægt að gera fyrsta
flokks rannsóknir á sviði næring-
arfræði. Til þess að skapa tækifæri á
rannsóknarsviðinu og auka mögu-
leika okkar á að framleiða hollan mat
og bæta þekkingu á sambandi matar
og heilsu til frambúðar verður að
rýma til fyrir greininni af hendi fjár-
veitingavalds, Háskóla Íslands og
Rannsóknarmiðstöðvar.
Sérstaða íslenskrar kúa-
mjólkur og lýðheilsa
Eftir Ingu Þórsdóttur
Höfundur er prófessor
í næringarfræði.
FORSETI Íslands Ólafur Ragnar
Grímsson flutti ávarp við guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni á 1. sunnudegi í
aðventu, 30. nóv-
ember sl.
Í ávarpi sínu lýsti
forsetinn áhyggjum
yfir bágri stöðu
minnimáttar og
gerði fátækt á Ís-
landi að umtalsefni.
Ber að virða alla viðleitni forseta og
annarra sem betur mega sín og
vekja athygli á þeim alvarlega mis-
bresti sem viðgengst gagnvart þeim
ríkisborgurum sem berjast í bökkum
fátæktar og geta ekki rekið heimili
sín af þeirri reisn sem allir mann-
vinir telja sómasamlega.
Það sem vekur mig til umhugs-
unar eftir að hafa heyrt af ávarpi for-
setans er hvers vegna hann gengur
ekki fram fyrir skjöldu sem fulltrúi
forréttindastéttar landsmanna og
sker niður hluta af útgjöldum sínum
og rekstri til að sýna samkennd með
þeim sem eru undir í lífskapphlaup-
inu? Hvers vegna þykir forrétt-
indafólkinu okkar nóg að tala um
málið á tyllidögum ár eftir ár en ger-
ir síðan lítið sjálft til að sýna for-
dæmi í verki og vera fyrirmynd ann-
arra? Eftir höfðinu dansa limirnir.
Mér verður hugsað til Per Albin
Hansons, forsætisráðherra Svía, á
fyrri hluta síðustu aldar en hann um-
fram aðra lagði grunninn að velferð-
arkerfi því sem við Norðurlandabúar
njótum og hefur verið til fyr-
irmyndar í heiminum. Per Albin
Hanson hafði það sjónarmið eins og
margir á þeirri tíð að forystumenn
yrðu að lifa eins og fólkið. Ekki skilja
sig frá fjöldanum, ekki láta aðra bera
byrðarnar og snerta ekki sjálfir við
þeim með sínum minnsta fingri. Per
Albin Hanson var valdamestur
manna, en hann ók um í stræt-
isvagni, hann eignaðist ekki einu
sinni íbúð heldur bjó í leiguíbúð og
lifði að öðru leyti í anda kenninga
sinna. Þannig hreif hann þjóð sína
með sér og sýndi meðalhófið í verki.
Nú eru leiðtogar af allt öðru
sauðahúsi. Þeir nota dýra bíla sem
stöðutákn og búa í stórum einbýlis-
húsum eða embættisbústöðum og
eru yfirleitt á margsinnis marg-
földum launum miðað við venjulegt
fólk – hvað þá það fátækasta – en
eigi að síður er þetta forystufólk
hinna fátæku sem og þeirra vel
stæðu. Hvaða vit er t.d. í því að
byggja öll þessi dýru og fínu sendi-
ráð? Til að monta sig? Þessi snobb-
aði lífstíll minnir hlægilega mikið á
bruðl í bananalýðveldum þriðja
heimsins. Eru þessir ýktu lifn-
aðarhættir í anda íslenskrar menn-
ingar? Ætli lífsstíll í anda Kristjáns
Eldjárns forseta hafi ekki verið nær
þjóðinni og jörðinni? Með þessu
áframhaldi mun yfirstéttin bráðum
spyrja eins og María Antionette þeg-
ar hún sagði um fátæka fólkið í Par-
ís; Ef það á ekkert brauð þá getur
það bara étið kökur!
Forseti Íslands og annað forrétt-
indafólk þessa lands: Stigið niður til
þeirra sem bera ykkur uppi og sýnið
í verki raunverulega samkennd ykk-
ar og hvetjið um leið með góðu for-
dæmi auðmenn og yfirstétt þessa
lands til að gera slíkt hið sama.
Freistist ekki til að toppa hvert
annað í innantómu pompi og prjáli
sem er ámóta innihaldsríkt og nýju
fötin keisarans. Þá fyrst gæti hlutur
þeirra sem minna mega sín tekið ein-
hverjum raunverulegum breyt-
ingum.
Eftir höfðinu dansa
limirnir…
Eftir Hans Kristján Árnason
Höfundur er stofnandi og fyrrv.
stjórnarform. Stöðvar 2.
Desember
tilboð
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
peysur frá 2.990.-
kjólar frá 6.990.-
lakkstígvél 9.990.- 20% afsláttur af töskum
15% afsláttur af kápum
frá fim. - sun.
flauelsjakki 3.990.-
O
D
D
I H
Ö
N
N
U
N
J
51
33