Morgunblaðið - 05.12.2003, Page 48

Morgunblaðið - 05.12.2003, Page 48
MINNINGAR 48 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Baldur HelgiKristjánsson var fæddur á Ytri- Tjörnum í Eyjafirði 7. júní 1912. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 25. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristján Helgi Benjamínsson bóndi og hreppstjóri á Ytri-Tjörnum, f. 24. október 1866, d. 10. janúar 1956, og kona hans Fanney Friðriksdóttir húsfreyja, frá Brekku í Kaupangssveit, f. 6. jan- úar 1881, d. 13. ágúst 1955. Bald- ur var sjöundi í röð tólf systkina. Þau voru: Laufey Sigríður, f. 2. nóv. 1899, d. 21. júní 1993; Benja- mín, f. 11. júní 1901, d. 3. apríl 1987; Inga, f. 29. júlí 1903, d. 21. mars 1985; Auður, f. 14. des. 1905, d. 20. jan. 1976; Theodór, f. 12. mars 1908, d. 1. maí 1994; Svafa f. 26. maí 1910; Bjartmar, f. 14. apríl 1915, d. 20. sept. 1990; Valgarður, f. 15. apríl 1917, d. 5. feb. 1999; Hrund, f. 20. feb. 1919, d. 26. mars 2003; Dagrún, f. 1. maí 1921, d. 10. des. 1997; og Friðrik, f. 29. maí 1926. Hinn 20. ágúst 1944 kvæntist Baldur Þuríði Helgu Kristjáns- Ingveldur, f. 17. maí 1952, g. Ingvari Þóroddssyni, f. 16. júní 1952, þeirra börn eru a) Þór- oddur, f. 28. jan. 1978, í sambúð með Aðalheiði R. Jóhannesdótt- ur, f. 17.11. 1978. Sonur þeirra er Ingvar, f. 25.6. 1998, b) Baldur Helgi, f. 4. júlí 1980, c) Páll Þór, f. 29. mars 1984, d) Þuríður Helga, f. 3. maí 1991. 5) Snorri, f. 17. maí 1954, k. Guðrúnu Narfa- dóttur, f. 5. apríl 1955, synir þeirra eru a) Narfi Þorsteinn, f. 14. okt. 1982, b) Baldur Helgi, f. 27. nóv. 1986, c) Snorri Eldjárn, f. 6. des. 1988. Snorri Baldursson á Heimi, f. 23. jan. 1974, k. Sig- nýju Kolbeinsdóttur, f. 22.4. 1978, með fyrri konu sinni, Guð- rúnu Vignisdóttur, f. 11. apríl 1954. 6) Fanney Auður, f. 2.6. 1956, g. Birni Rögnvaldssyni, f. 26. ágúst 1956, þeirra börn eru a) Rögnvaldur Snorri, f. 29. ágúst 1981, b) Sigurbjörg Inga, f. 19. mars 1989, c) Ólafur Birgir, f. 5. júlí 1991, d) Björn Helgi, f. 12. feb. 2001. Baldur ólst upp á Ytri-Tjörnum og átti þar heima alla sína tíð, ut- an tveggja vetra er hann stund- aði nám við Hvanneyrarskóla en þaðan lauk hann búfræðiprófi vorið 1938. Hann var bóndi á Ytri-Tjörnum frá 1944 til 1985. Baldur sat í hreppsnefnd Öng- ulsstaðahrepps um árabil og var hreppstjóri í rúman áratug, auk þess sinnti hann ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína. Útför Baldurs verður gerð frá Munkaþverárkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. dóttur, f. 21. nóv. 1915, frá Hellu á Ár- skógsströnd. Hún er dóttir hjónanna Kristjáns E. Krist- jánssonar, f. 14. okt. 1882, d. 18. maí 1979, og Sigurbjargar Jó- hannesdóttur, f. 2. okt. 1884, d. 25. des. 1952. Eignuðust þau sex börn. Þau eru: 1) Kristján, f. 5. janúar 1945, k. Þóreyju Ey- þórsdóttur, f. 13. ágúst 1943, dætur þeirra eru a) Kristín Hildur, f. 22. febrúar 1975, g. Salvador Berenguer, f. 5.5. 1963. Þau eiga einn son, Óskar Helga, f. 6.9. 2002, b) Sólveig Hlín, f. 21. nóv. 1977, c) Þuríður Helga, f. 21. nóv. 1977, í sambúð með Magnúsi Ó. Helgasyni, f. 31.8. 1977. d) Þórhildur Fjóla, f. 10. sept. 1979. 2) Sigurbjörg Helga, f. 4. jan. 1946, d. 11. feb. 1964. 3) Benja- mín, f. 22. jan. 1949, k. Huldu M. Jónsdóttur, f. 1. nóv. 1950, þeirra synir eru a) Baldur Helgi, f. 25. des. 1973, b) Jón Gunnar, f. 27. mars 1975, í sambúð með Krist- ínu Þ. Haraldsdóttur, f. 4.5. 1979, c) Bergur Þorri, f. 15. feb. 1979, í sambúð með Berglindi Gylfadótt- ur, f. 18.5. 1979, d) Kristján Helgi, f. 7. júní 1983. 4) Guðrún Að horfa með geðró á höpp sín og töp, láta’ ei hreykjast við afrek né bugast við glöp, er að vinna til sigurs á sérhverjum degi. Þau voru ófá skiptin sem afi hafði þessar línur yfir sonarsyni sínum, enda stráksi skapbráður nokkuð. Nú fer hann víst ekki oftar með þessa hendingu, vona ég að boð- skapurinn hafi loks verið meðtek- inn. Fyrir utan foreldra mína finnst mér að Baldur afi hafi átt meiri þátt í að koma mér til nokkurs þroska en aðrir menn. Ég var ekki hár í loft- inu, er ég fór að fylgja honum við hin daglegu störf. Ekki var síður mannbætandi að sitja við fótskör hans á löngum sumarkvöldum og hlýða á samtöl við þau Tjarnasystk- in, Bergstein, Pál, Þórodd og fleiri góða menn. Þar voru ýmis mál brot- in til mergjar, bæði hin veraldlegu og þau andlegu. Niðurstaðan var þó ekki ætíð samhljóða. Þykir mér ólíklegt að hann og Bergsteinn hafi orðið ásáttir um stjórnmálaviðhorf- ið, eftir ríflega 40 ára rökræður um strauma og stefnur stjórnmálanna. Sennilega hafa þeir þegar tekið upp þráðinn á öðrum tilverustigum. Afi var hafsjór af fróðleik, sögum og ljóðum. Man ég varla eftir honum öðru- vísi en farandi með vísu fyrir munni sér, ósjaldan í samræmi við aðstæð- ur. Hann var glaðsinna maður. Kurt Møller, sem var vinnumaður heima á Ytri-Tjörnum upp úr miðjum sjötta áratugnum, lýsti honum svo: „Han var den gladeste mand jeg no- gensinde har truffet, han var altid glad. En dag sagde jeg til ham: „Sikke noget møgvejr vi har i dag.“ „Ja, er det ikke dejligt,“ sagde han og blev bare ved med at synge.“ Dagbók hélt afi í nærri sjö ára- tugi og samfleytt frá því að hann var á Hvanneyrarskóla. Í henni er lífshlaupinu vandlega haldið til haga, síðasta færslan er frá gaml- ársdegi 2002. Fannst honum þá mál að linnti, bað mig að taka við því keflinu. Hef ég oft fengið að grípa til hennar þegar fletta þarf upp á ýmsum staðreyndum, hvort sem það er nú heyfengur fyrri ára eða merk tímamót í lífi einstakra fjöl- skyldumeðlima. Að halda dagbók var einmitt eitt af þremur atriðum sem hann sagði mér eitt sinn, að góður maður hefði tjáð sér að væru mikilvægust andlegum þroska manna. Hin tvö voru að tala við skemmtilegt fólk og skrifa sendi- bréf. Hvort tveggja ástundaði afi ríkulega, hér við hlið mér eru t.d. söfn bréfa frá sr. Benjamín og Bergsteini. Eru þau mikil að vöxt- um. Á heimili þeirra afa og ömmu hef- ur ætíð verið gestkvæmt. Ytri- Tjarnir hafa verið samkomustaður fjölskyldunnar alla tíð og verða von- andi áfram. Þó finnst mér nú um stund hún Snorrabúð stekkur, þeg- ar hinn aldni höfðingi er fallinn frá. Brottförina bar skjótt að, rétt eins og hann hafði óskað sjálfur. Fjórum dögum fyrir andlátið hélt amma upp á 88 ára afmæli sitt af hefðbundnum rausnarskap. Mætti þar fjöldi manna. Þar var hann hrókur alls fagnaðar, veitti á báðar hendur. Hvarflaði ekki að neinum, að þetta væri hans síðasta veisla. En enginn fær ráðið sínum næturstað. Það er erfitt að venjast þeirri til- hugsun að eiga ekki eftir að setjast niður með honum að ræða landsins gagn og nauðsynjar. Hann fylgdist vel með því sem um var að vera, hvort sem það varðaði hans nán- ustu, eða því sem fram fór í al- heimsþorpinu. Það var ósjaldan að hann hafði samband við mig að loknu dagsverki til að fá upplýsing- ar um framgang bústarfa, uppskeru og afurðir. „Jæja, nafni, hvað náðuð þið af mörgum hekturum í dag?“ Þá hafði hann alla tíð mikinn áhuga á stjórnmálum, mér er til efs að margir á hans aldri hafi hirt um að fylgjast með úrslitum síðustu þing- kosninga fram undir rauða morgun. Eins og kunnugt er var nokkuð liðið á morguninn eftir kjördag er hin endanlegu úrslit lágu fyrir. Tengda- dóttir hans segir mér að sér líði seint úr minni viðbrögðin, þegar það lá fyrir að ákveðinn stjórnmála- maður af vinstri vængnum næði ekki inn á þing. „O, komst hún ekki inn, blessuð prinsessan.“ Fylgdu svo talsverð hlátrasköll í kjölfarið. Okkar síðasta samtal snerti líka hin pólitísku dægurmál. Forsætis- ráðherrann hafði þá snuprað tvo af forsvarsmönnum fjármálastofnunar fyrir að hafa misst fótanna í dýrkun sinni á Mammon, með því meðal annars að lesa upp úr Passíusálm- um Hallgríms Péturssonar. Afi innti mig eftir þessu, hafði aldrei slíku vant misst af fréttatímanum. Ég fór og sótti bókina og las fyrir hann umrætt erindi úr 16. sálmi. Áttum við þarna góða stund, sam- einuðumst í dálæti okkar á hæfi- leikum þessa leiðtoga þjóðarinnar, þar sem hann vandaði um fyrir þeim „sem auði með okri safna“. Fjölskyldan hefur misst mikið. Mér finnst ekki aðeins sem horfinn sé á braut náinn ættingi, heldur líka einn af mínum bestu vinum. Réttan mánuð vantaði upp á að vinskapur okkar héldist þrjá áratugi. Missir ömmu er þó mestur, hún sér nú á bak lífsförunaut sínum í blíðu og stríðu, sambandi sem varað hefur lýðveldistímann allan og borið ríku- legan ávöxt. Er ég þess fullviss að börnin þeirra fimm, barnabörnin er fylla tugina tvo, ásamt langömm- ustrákunum tveimur munu hjálpa henni sem mest þau mega, að kom- ast yfir fráfall afa. Skarðið sem hann skilur eftir sig verður þó naumast fyllt. Ég óska honum guðs blessunar í nýjum heimkynnum. Eftir lifa ljúfar minningar um góðan dreng. Baldur Helgi Benjamínsson. Baldur á Tjörnum (Ytri-Tjörn- um) er látinn á 92. aldursári en þó í rauninni í blóma lífsins. Það að hafa fengið að vera með honum sem tengdasonur í 27 ár er eitt það besta sem mig hefur hent. Vinátta hans, góðsemi og áhugi hans á því sem ég og mínir hafa ver- ið að fást við á hverjum tíma hefur gert margt svo miklu auðveldara en ella. Þegar amstur dagsins virtist allt að því yfirþyrmandi var gott að skreppa í heimsókn í sveitina, setj- ast inn á kontórinn til tengdapabba, ræða um lífið og tilveruna, halla sér síðan út af í sófann, blunda, rumska við að teppi var breitt yfir mann svo kuldi sækti ekki að, vakna endur- nærður. Baldur var íhaldsmaður í jákvæð- ustu merkingu þess orðs, framfara- sinnaður og fastheldinn. Mesti sam- vinnumaður sem ég hef hitt eða haft spurnir af. Vissi sem var að við kæmumst ekki af nema að hjálpa hvert öðru. Beitti sér t.d. fyrir því að bændur sameinuðust um kaup á tækjum þannig að sem flestir gætu nýtt sér framfarirnar. Þá geta orðið vandamál því sama hlutinn þarf oft að nota á mörgum bæjum á sama tíma. Þá reyndi á skipulagshæfi- leika Baldurs, sem hann átti nóg af, og allir urðu sáttir. Setti sig yfirleitt síðast í röðina. Baldur kunni ógrynni af vísum, ljóðum og ljóðabálkum. Ef hann hafði heyrt einu sinni kunni hann reiprennandi, þótt liðin væru ár eða áratugir. Fékkst aðeins við að yrkja en minntist á að stundum hefði sér sviðið að hafa ekki við eldri bræðr- um sínum í kveðskapnum. Skák var líka í miklu uppáhaldi og fóru þá ýmsir halloka, er talsvert kunnu fyrir sér í þeirri íþrótt. Baldur lá aldrei á skoðunum sínum, allra síst þeim pólitísku. Var hann ávallt reiðubúinn til rökræðna, hvort sem þær tóku stuttan tíma eða það lang- an að nóttin dugði varla til. Innan fjölskyldunnar eru frægar bréfa- skriftir Baldurs við svila sinn Berg- stein Jónsson en hvert bréf var upp á tugi blaðsíðna, mikil og þung rök lögð fram og vitnað í ræður og rit. Áhugi á þjóðmálum hélst alveg fram á síðasta dag. Síðasta skiptið sem ég hitti Baldur var fjórum dög- um fyrir andlátið. Þá var slegið upp veislu í tilefni afmælis Þuríðar tengdamömmu. Baldur sat í stóln- um sínum á kontórnum og eins og venjulega safnaðist fólk saman þar inni til að ræða við hann um stöðu mála. Systir mín sem býr í Fær- eyjum var stödd hér og mætti að sjálfsögðu. Er hún hafði heilsað Baldri tók hann upp við hana fær- eysk stjórnmál og vildi vita hvað nýjast væri að frétta. Þannig var Baldur, fullur áhuga á öllu til hinstu stundar. Þó að liðir væru farnir að stirðna, vinnulúnir fingur að kreppast og heyrn að daprast var óbilandi áhugi á lífinu, sama hvers ríkis það var. Hann naut umhyggju elskulegrar eiginkonu eins og alltaf, veitti og naut ástríkis, var spurður ráða og gaf þau og tók þátt í hinu daglega lífi. Þannig eru menn í blóma lífsins. Á 90 ára afmæli Baldurs flutti vinur hans, Sverrir Pálsson, fyrrum skólastjóri, honum ljóðabálk þar sem eitt erindið er svona: Maður dugs og dáða drengur heill og góður athöfn þín og iðja eykur landsins hróður leitar bestu lausna leysir hverskyns vanda verk þín merk og mikil munu lengi standa Það eru margir sem syrgja höfð- ingjann Baldur á Tjörnum. Blessuð sé minning hans. Ingvar Þóroddsson. Elskulegur tengdafaðir minn, Baldur H. Kristjánsson, er látinn á nítugasta og öðru aldursári. Sorg og söknuður sækir að, en hugurinn er fyrst og fremst fullur þakklætis fyr- ir hvað við fengum að njóta hans lengi og hvað hann sjálfur naut lífs- ins til hinsta dags. Baldur var ljúflingur og höfðingi, greindur maður og víðlesinn. Hann var ljóðelskur og söngelskur og við hvert tækifæri hafði hann á reiðum höndum kvæði, ljóð eða vísubrot. Þar nýttist honum vel stálminnið. Hann velti lífinu og tilverunni mikið fyrir sér og fátt var honum óvið- komandi. Andleg mál, ekki síst ei- lífðarmálin, voru honum hugleikin og hann leitaði svara. Hann gat ver- ið ágengur í spurningum við okkur yngra fólkið. Svör okkar voru iðu- lega ófullnægjandi og honum fannst við fátt bitastætt hafa lært í öllum þessum skólum. Hann gleymdi aldr- ei uppruna sínum, hafði ávallt í heiðri gömlu gildin og gat verið fastur fyrir ef honum þótti of geyst farið í breytingar. Þótt hann kynni vel að meta öll nútímaþægindi og nyti lífsins lystisemda á efri árum, þá var hann þess fullviss að það væri hverjum manni hollt að upplifa skort og hafa fyrir hlutunum – hann taldi sig t.d. lánsaman að hafa upp- lifað kreppuna miklu. Baldur var óvenju einlægur mað- ur og talaði oft um hversu farsæll hann hefði verið í lífinu. Fylgdi þá gjarnan með að Þuríður væri hans stóri happdrættisvinningur. Þar er ég sammála því samband þeirra hjóna var einstakt. Gagnkvæm virð- ing og vinátta ríkti með þeim og ást- in var skilyrðislaus í 60 ár. Missir Þuríðar er mikill. Að leiðarlokum vil ég þakka Baldri fyrir samfylgdina. Hann var okkur öllum góð fyrirmynd. Guðrún. Mig langar að minnast míns ást- kæra tengdaföður sem er nú farinn yfir móðuna miklu á 92. aldursári. Um Baldur Helga, tengdaföður minn, er hægt að segja svo ótal- margt en svo voru þau nátengd hjónin og samofin í mínum minning- arbrotum að vart er hægt að minn- ast hans án þess að minnast á eig- inkonu hans og tengdamóður mína, Þuríði Helgu. Þau voru bændahöfð- ingjarnir í þess orðs fyllstu merk- ingu og gestrisni þeirra vel þekkt. Höfðinglegar móttökur þeirra hjóna þegar gesti bar að garði eru mörgum ógleymanlegar, bæði ís- lenskum og erlendum gestum, sem komu á ættaróðal Baldurs á Ytri- Tjörnum í hinum fyrra Önguls- staðahreppi. Við hjónin fórum með fjölda erlendra gesta okkar inn á þeirra heimili. Móttökurnar voru ávallt einstaklega rausnarlegar, þar var boðið upp á rammíslenskan mat, fágætt bakkelsi og eðalvín var veitt á skrifstofu húsbóndans. Margir vina okkar minnast þessara heim- sókna með hlýhug og virðingu. Dætur okkar, þær Kristín Hildur. Sólveig Hlín, Þuríður Helga og Þór- hildur Fjóla, áttu ávallt ljúft athvarf í sveitinni hjá ömmu og afa. Ég minnist þess sérstaklega hve auðvelt var að vera samvistum við þau þegar fjölskyldan flutti til Ís- lands frá Noregi eftir margra ára búsetu. Við dvöldum hjá þeim í þrjá mán- uði, yngsta dóttirin nýfædd og hús- næði í smíðum á Akureyri. Þau voru boðin og búin til hjálpa okkur á all- an hátt. Fjölskyldan minnist með þakk- læti allra áramótanna þegar stór- fjölskyldan safnaðist þar saman. Þá var hugleikið að vera í sveitinni hjá þeim sæmdarhjónum. Allir aldurs- hópar sameinuðust í áramótagleð- inni, með bálköst á túninu, tilheyr- andi flugeldasýningu og borðin hlaðin veitingum. Það er ótal margt hægt að draga fram til að skilgreina persónuna og bóndann á Ytri-Tjörnum. Hann hafði meðal annars alveg sérstakan áhuga á hvers konar samræðulist í anda Sókratesar, vildi fá fram skoð- un og þekkingu andmælandans og spurði þá gjarnan: „Hvað segir þú um það?“ Átti það jafnt við lærða sem ólærða. Honum fannst mikil- vægt að geta rökstutt mál sitt af festu og einurð. Vissi reyndar oftast svarið sjálfur og kom oft í lokin með einhver vel valin gullkorn varðandi málefnið. Ég minnist þess eitt sinn er hann spurði prest einn þessarar spurningar: „Trúir presturinn á Guð?“ Þannig vildi hann fá fram rökræður um trú og trúarbrögð. Glettnin var ríkur þáttur í eðli hans. Hann var gjarnan hrókur alls fagnaðar með spaugsyrði á vörum og flytjandi drápur og kvæði eftir stórskáldin okkar eins t.d. Kiljan, Einar Ben. eða hann kastaði fram stökum eftir bræður sína, þá Bjart- mar, Teódór og Benjamín. Hann hafði ótrúlegt minni og kunni að vitna í og dagsetja ára- gamla atburði og veðurfar svo ná- kvæmlega, að við, hinir yngri áheyrendur, nutum þess að heyra hann segja frá atburðum liðins tíma og urðum oft alveg orðlaus yfir minni hans og þekkingu. Hann var skarpgreindur, reikn- ingsglöggur og vel lesinn. Hann var áhugasamur um skák og var eft- irsótt hjá yngri kynslóðinni að fá að tefla við afa sinn. Baldur var natinn bóndi og mikill vinnuþjarkur. Hann lagði áherslu á ýmiss konar ræktun, þar á meðal komu þau hjón upp skógarreit sem hefur verið unaðsreitur fyrir afkom- endur þeirra. Um hann má segja að hann hafi hugsað fyrst og fremst um velferð ættingja og vina. Hann var góð- hjartaður, hjálpsamur og velviljað- ur og ég minnist þess ekki, að sölu- menn og aðrir er knúðu dyra færu tómhentir heim. Ég minnist hans með þakklæti og virðingu. Vonandi tekst okkur að hafa glettnina, velviljann og sam- ræðulistina hans að leiðarljósi. Blessuð sé minning hans. Þórey Eyþórsdóttir. Þegar Heimir sonur minn hringdi í mig að kvöldi 25 nóvember og sagði að afi Baldur væri dáinn, minntist ég orða hans að afi og BALDUR H. KRISTJÁNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.